Morgunblaðið - 14.08.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 14.08.2021, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021 ✝ Arnór Gunn- arsson fæddist á Sauðárkróki 19. júlí 1951. Hann lést á heimili sínu í Varmahlíð 5. ágúst 2021. Foreldrar hans voru sr. Gunnar Gíslason, prestur, alþingismaður og bóndi í Glaumbæ, f. 5.4. 1914, d. 31.3. 2008, og Ragnheiður Mar- grét Ólafsdóttir, húsmóðir og safnvörður í Glaumbæ, f. 13.4. 1915, d. 19.2. 1999. Systkini Arnórs eru Stefán, f. 28.2. 1945, d. 15.9. 1996, Gunnar, f. 27.6. 1946, Ólafur, f. 18.4. 1950, d. 29.4. 2021, Mar- grét, f. 17.7. 1952, og Gísli, f. 5.1.1957. Eftirlifandi eiginkona Arn- Sveitarfélaginu Skagafirði, sem þjónustufulltrúi landbún- aðarnefndar, árið 2013 og starfaði þar til ársins 2021. Arnór vann ýmis störf fyrir Seyluhrepp og síðan Sveitarfé- lagið Skagafjörð. Meðal annars sat hann í hreppsnefnd 1986 – 1998; var héraðsnefndarmaður fyrir Seyluhrepp 1994 – 1998; var fjallskilastjóri úthluta Seyluhrepps í 24 ár, frá 1986 til 2010; sat í stjórn Búnaðar- félags Seyluhrepps 1977 – 1986, og í ótal nefndum og stjórnum er störfuðu á vegum sveitarfélaganna. Einnig sat hann í stjórn Ræktunarsam- bands Norðurlands. Arnór var félagi í Lionsklúbbi Skaga- fjarðar. Útförin fer fram frá Glaum- bæjarkirkju 14. ágúst 2021 kl. 14. Streymt verður frá athöfn- inni, stytt slóð: https://tinyurl.com/ybaeskb7 Hlekk má einnig nálgast á: https://www.mbl.is/andlat Athöfninni verður auk þess útvarpað á staðnum á tíðninni FM 107,2. órs er Ragnheiður Sövik, f. 26.7. 1953. Þau gengu í hjónaband 10.7. 1976. Synir þeirra eru Óskar Arn- órsson, f. 30.3. 1976, og Atli Gunnar Arnórsson, f. 12.3. 1979, sam- býliskona Kristvina Gísladóttir, f. 1.3. 1975. Börn þeirra eru Leó, f. 2003, Lydía, f. 2005, og Arnór Gísli, f. 2016. Arnór ólst upp í Glaumbæ í Skagafirði, útskrifaðist með búfræðipróf frá Bændaskól- anum á Hvanneyri 1970, og hóf búskap í Glaumbæ II árið 1977. Hann rak þar kúabú til ársins 2012 en seldi þá bróðursyni sínum jörðina og flutti í Varmahlíð. Hann hóf störf hjá Í dag kveðjum við Arnór, föðurbróður okkar, eftir erfiða og langa baráttu við krabba- mein. Það er stutt stórra högga á milli fyrir systkinin úr Glaumbæ, því einungis eru örfá- ir mánuðir síðan við kvöddum Óla, bróður þeirra, í Glaumbæj- arkirkju í Skagafirði, í maí á þessu ári. Það var því miður orð- ið ljóst þá hvert stefndi hjá Arnóri og kom ekki á óvart að hann hafi kvatt þessa jarðvist stuttu á eftir Óla, enda voru þeir bræður mjög nánir og rétt rúmt ár á milli þeirra í aldri. Við systkinin vörðum öllum okkar sumrum í Skagafirði á ár- um áður, aðallega í Glaumbæ og Varmahlíð hjá afa og ömmu, en við vorum einnig mikið hjá Arnóri og Ragnheiði í Glaumbæ II. Arnór kenndi okkur margt í gegnum tíðina, þar sem við feng- um öll að spreyta okkur sem „vinnumenn“ hjá honum yfir mismunandi tímabil. Þar lærð- um við til verka í fjósinu, sinnt- um heyskap og ýmsum öðrum verkum á bænum. Þess á milli var ærslast og leikið sér í sveit- inni eins og börnum og táning- um er einum lagið. Arnór hefur örugglega oft þurft ærlega á þol- inmæðinni að halda með húsið fullt af börnum á ýmsum aldri. Alltaf var þó vel að okkur hlúð í Glaumbæ II og eigum við góðar minningar um vist okkar hjá Arnóri, Ragnheiði, Óskari og Atla. Arnór gat virst hrjúfur á yf- irborðinu og gaf lítið fyrir til- finningasemi, en undir niðri bjó barngóður og örlátur maður, sem þótti virkilega vænt um fólkið sitt og reyndist okkur vel. Við erum þakklát fyrir allt sem hann færði okkur og kenndi í gegnum tíðina. Minningin um mætan mann og kæran frænda lifir með okkur um ókomna tíð. Hvíl í friði, elsku Arnór. Gunnar, Helga Kristín, Arnór og fjölskylda. „Ég kem með!“ Svo mörg voru þau orð þegar Arnór svaraði kalli mínu eftir tíu mínútna umhugsun þegar ég spurði hann fyrir fáeinum árum, þar sem hann var staddur um borð í Norrænu, hvort hann væri til í að koma með mér, og bláókunnugri konu að auki, í fjögurra vikna ferð með Síb- eríulestinni. Arnór var nefnilega ekki maður margra orða eða málskrúðs, en þau voru vel valin og stóðu. Við fyrstu kynni virkaði Arn- ór á marga sem hrjúfur og ekki sérlega aðgengilegur, en undir því þunna yfirborði var ákaflega vel gefinn, hjartahlýr, hjálpsam- ur húmoristi, sem naut sín betur í fámenni en fjölda. Hann tran- aði sér aldrei fram en valdist til ábyrgðarstarfa vegna mann- kosta sinna, vék sér ekki undan skyldum og leysti erfið mál af réttsýni. Hann langaði upphaf- lega til að verða dýralæknir, fór á Hvanneyri, en örlögin höguðu svo að hann sneri heim, byggði upp í Glaumbæ 2 og bjó góðu búi í áratugi. Kunningsskapur okkar hófst sumarið góða sem ég var í Há- túni 1986 en þróaðist í trausta vináttu eftir að ég flutti að Löngumýri fyrir tuttugu árum. Hann var þar tíður gestur með Lionsklúbbi Skagafjarðar, mik- ilvægum þætti í lífi hans sem einn af stofnfélögum. Er með ólíkindum hve stór skörð hafa verið höggvin í þann hóp á réttu ári. Ragnar, Eymundur, Þórólf- ur og nú Arnór, gegnheilir menn á besta aldri, leiftrandi af fé- lagsanda og manngæsku. Ég mun sakna símtala, gagn- kvæmra greiða, kaffisopa eða hádegissnarls. Og það var fleira. Við Arnór fórum saman í hesta- ferðir, gengum æðarvarpið á Hrauni, fórum með Agnari á Miklabæ á ritlistarnámskeið og svona mætti telja, en vissulega stendur upp úr lestarferðin til Kína. Að deila klefa, herbergi og jafnvel rúmi í fjórar vikur og teysta hvor á annan í framandi umhverfi án árekstra er ekki sjálfgefið, en var ævintýri sem við öll nutum. Ekki eina ævintýri Arnórs því engan annan þekki ég sem hefur gengið Jakobsveg- inn, ferðast með Síberíulestinni og sjatlað fjallskilamál út að austan. Það var gott að vera í návist þessa dula manns og ég held að hann hafi jafnvel hleypt mér nær sér en mörgum öðrum. Þetta skilja þeir félagar hans Jón Berndsen og Allan sem ferð- uðust með honum ríðandi um árabil og Allan sem gekk Jak- obsveginn með Arnóri. Það var þegar Allan stakk upp á göngu- ferðinni sem Arnór ákvað að slá ekki framar á frest þeim tæki- færum sem bjóðast því enginn veit hvenær það er of seint. Slík- an þankagang er okkur öllum gott að hafa í huga. Þegar veik- indin ágerðust að nýju hvatti ég hann til að gera allt sem hann langaði til. Hann svaraði: „Ég er búinn að því öllu nema einu.“ Nú hvað er það? „Mig langar til að sjá nafna fermast.“ Því miður tókst það ekki. Sjúkdómurinn ágerðist í byrjun árs og sam- hliða varð Arnór fyrir miklu höggi við bróðurmissinn, jafn nánir og þeir Óli voru. Hann kvaddi þegar hlýtt ágúströkkrið hjúpar Langholtið og Hólmurinn breytist í dúnsæng um lágnætt- ið. Elsku Ragnheiður, Óskar, Atli Gunnar, Kristvina og börn, systkini og ástvinir allir. Hjartans samúðarkveðjur til ykkar allra. Guð blessi góðan dreng. Gunnar Rögnvaldsson. Ég finn mikla þörf hjá mér að setja nokkur orð á blað við frá- fall vinar míns Arnórs Gunnars- sonar, er lést langt fyrir aldur fram. Leiðir okkar lágu nokkuð snemma saman þótt aldursmun- ur væri 15 ár en það var þegar hann var í barnaskólanum í Varmahlíð á heimavist hjá okkur Þóru. Við rákum þá veitinga- staðinn í Varmahlíð. Arnór var snemma tápmikill og skemmti- legur strákur. Snemma fór hann að hjálpa til við búskapinn hjá foreldrum sínum í Glaumbæ og ungur eignaðist hann hest og fór í sínar fyrstu göngur undir handleiðslu Dúdda á Skörðugili. Síðar með honum í ótal smöl- unartúra utan gangna í Staðar- fjöllum, m.a. var hann til staðar þegar smala þurfti fyrir Pálínu á Skarðsá. Sagði hann mér stund- um frá ýmsu úr þeim smölunum, sem gladdi hugann með góðum minningum. Já, árin liðu og Arn- ór gerðist bóndi og fjölskyldan eftir að hann og kona hans, Ragnheiður Sövik, stofnuðu ný- býlið Glaumbæ II, árið 1977, úr landi prestsetursins í Glaumbæ. Þar bjuggu þau góðu búi til 2012 er þau fluttu að Laugarvegi 3 í Varmahlíð. Eins og að framan greinir hafði Arnór yndi af hest- um og kom sér upp góðu hest- húsi er hann byrjaði sinn búskap og tamdi hesta sína þar heima. Eftir að hann hætti búskap var hann mjög virkur í hestaferðum með félögum sínum. Samskipti okkar Arnórs voru margvísleg í ýmsum félagsmál- um og báru jafnan merki trausts og heiðarleika, sem ætíð ein- kenndi hann. Við störfuðum saman í ýmsum félögum, s.s. búnaðarfélagi, fjallskilamálum o.fl. Þá störfuðum við saman í hreppsnefnd Seyluhrepps í 12 ár og fyrir það samstarf vil ég sér- staklega þakka og hans góðu rit- arastörf og margvíslegan stuðn- ing og góð ráð. Arnór starfaði sem fjallskilastjóri fyrir úthluta Seyluhrepps í 24 ár, bæði fyrir og eftir sameiningu sveitarfélaga í Skagafirði. Hann fór ófáar ferðir í Staðarfjöllin, bæði sem gangnamaður og ekki síst eftir að göngum lauk. Var þá að sækja skepnur sem urðu eftir í lögboðnum göngum og hafði þá sér til fylgdar oft fjallskilastjóra úr nágrannasveitarfélagi og fleiri góða félaga. Fjallskilastjórastörfum skilaði Arnór með sóma eins og öllu því sem hann tók að sér í samfélag- inu. Margar ánægjustundir liðinna ára koma upp í hugann þar sem húmor og orðheppni Arnórs naut sín. Við fórum margar ferð- ir saman til skoðunar á óskil- ahrossum vítt um fjörðinn, sem stundum leiddi til opinbers upp- boðs - og stundum fengum við skemmtilega fylgdarmenn. Arnór var einn af þeim góðu drengjum sem setja sterkan svip á samfélagið með störfum sínum og framkomu - slíkir menn eru aldrei of margir meðal okkar samferðamanna og því sár sökn- uður og eftirsjá að þeim er þeir eru burt kallaðir. Arnór var einstaklega hjálp- samur, sama hver átti í hlut. Var alltaf reiðubúinn að koma og hjálpa t.d. okkur á Grófargili ef eitthvað stóð til, s.s. hrossastúss og fleira. Þá sagði hann jafnan: Já, ég kem. Ég kveð þig nú góði vinur með þakklæti og eftirsjá í huga fyrir samfylgdina og þín góðu störf. Minningin lifir um góðan dreng. Ragnheiði, Óskari, Atla Gunn- ari og fjölskyldu sendi ég inni- legar samúðarkveðjur. Sigurður Haraldsson. Í dag kveðjum við hinstu kveðju kæran vin, Arnór Gunn- arsson, sem lést um aldur fram 5. ágúst sl. Bóndastarfið varð hans starfsvetvangur mesta hluta æv- innar, en er hann brá búi gerðist hann starfsmaður landbúnaðar- nefndar sveitarfélagsins. Þar var hann á heimavelli og því starfi sinnti hann með afbrigðum vel eins og hans var von og vísa. Hann var glöggur á umhverfi sitt, vel læs á náttúruna og unni henni. Arnór var dulur maður um eigin hagi, hæglátur og traustur, en fullur af gáska og húmor á góðri stundu. Allt frá því að við urðum nágrannar hafa sam- skiptin verið náin og vináttan orðið traust. Það var mér ómetanlegt að eiga hann að í starfi og leik. Tómlegt verður að hafa hann ekki í stólnum sínum í hesthús- inu, þar áttum við okkur athvarf og stundirnar þar gæðastundir. Þar voru mál krufin og á stund- um djúpt kafað. Svo þurfti ekki alltaf orð. Barnabörnin okkar áttu í Arnóri vin, við þau talaði hann á jafnréttisgrundvelli og mátu þau hann mikils. Einn af sameigin- legum snertiflötum í tilveru okk- ar voru lengri og skemmri hestaferðir sem við fórum í á hverju sumri ásamt vini okkar Sveini Allan. Upphafið að þess- um ferðum bar að með sérstök- um hætti, en það er önnur saga. Fyrsta langa ferðin okkar var 2001, árið sem við strákarnir urðum fimmtugir. Síðan fórum við árlega saman, þvældumst víða og án teljandi óhappa. Fyrir nokkrum árum greind- ist Arnór með krabbamein sem farið var að bíta illilega síðasta árið. Síðustu vikurnar voru erf- iðar en fjölskyldan stóð sem klettur að baki honum. Með ein- stakri umhyggju gerðu þau hon- um kleift að vera heima til hinstu stundar. Ég veit að það mat hann mikils. Kæri vinur þessi fáu minning- arorð fylgja þér úr hlaði, aðeins eru stuttlega rifjuð upp kynni við gegnheilan vin. Elsku Ragn- heiður, þér og fjölskyldunni allri, sendum við Elín hugheilar sam- úðarkveðjur. Það er bjart yfir minningunni um góðan dreng. Jón Örn Berndsen. „Mínir vinir fara fjöld“ Þessi orð Bólu- Hjálmars komu mér í hug þegar ég frétti lát góðs vin- ar, Arnórs í Glaumbæ. Kynni okkar Arnórs hófust er við vor- um í hópi margra góðra manna, sem stofnuðu Lionsklúbb í fram- anverðum Skagafirði; Arnór var þar sem annars staðar góður og starfssamur félagi. Um svipað leyti vorum við kosnir í stjórn Slátursamlags Skagfirðinga og sátum þar í um tíu ár. Þar gekk á ýmsu og þá var gott að eiga Arnór að, hann var alltaf tilbú- inn að standa við erfiðar ákvarð- anir, aldrei að skorast undan. Arnór byggði bú í Glaumbæ II frá grunni, ræktaði tún, byggði bæ og fjós og bjó ágætu kúabúi. Hann sagði stundum að sinn draumur hefði verið að búa í afskekktum dal, með sauðfé, hitta fáa, eiga góðan hund og hesta og svo brosti hann þessu óræða brosi og smáhló. Arnór seldi frænda sínum bú- ið fyrir líklega tíu árum og vann eftir það hjá Sveitarfélaginu Skagafirði og sinnti málum er vörðuðu landbúnað, þarna var hann algjörlega á heimavelli og ávann sé virðingu, eins og reyndar alls staðar þar sem hann kom að málum. Arnór eignaðist lítinn afadreng og nafna fyrir nokkrum árum og varð hann lífsljósið hans. Arnór sagðist helst vilja vera heima, en þó fór hann og gekk Jakobsveginn, fór með Síb- eríuhraðlestinni til Mongólíu, til Færeyja með Norrænu og til fleiri landa. Arnór átti góða og duglega hesta, naut þess að ríða út í fylgd góðra vina. Hann hafði gaman af að ríða til fjalla að hausti og smala fé og gerði það næstum alla sína tíð. Arnór var kirkjunnar maður, ævinlega sat hann í sínum bekk í heimakirkju sinni á Glaumbæ. Arnór taldi að þjóðkirkjan ætti enn erindi við þjóðina. Arnór var ótrúlegur húmor- isti, hann var ekki sá maður sem notaði mörg orð, en sá maður sem notaði orð svo listilega að þau verða óborganleg. Mér finnst við hæfi að nefna eitt: Fyrir nokkrum árum fórum við mörg ríðandi til messu að Ábæ í Austurdal. Ræðu flutti Einar Guðfinnsson og mærði dalinn og fegurð hans óskaplega fallega. Þegar þeir Arnór og hann voru að leggja á, snýr Arnór sér að Einari og segir: „Einar, það væri gaman að sjá þennan dal, sem þú varst að tala um.“ Fjölskyldu Arnórs sendi ég samúðarkveðjur. Ég sé hann fyrir mér leggja á þann blesótta og ríða á vit þeirra fjalla þar sem fegurðin ein ríkir. Ég fel Arnór þeim Guði er sólina skapaði. Agnar á Miklabæ. Í dag kveð ég góðan vin. Vin sem breytti lífi mínu. Ef við hefðum ekki rekist hvor á annan og náð saman þá hefði líf mitt orðið eitthvað allt öðruvísi. Hvanneyri var staðurinn og heit- kona hans var frá Blönduósi. Þetta var upphaf að farsælli veg- ferð minni gegnum lífið. Arnór hinn ungi frá Glaumbæ í Skaga- firði var á álíka stigi í lífsgleði og ég. Blönduós var staðurinn sem ól af sér fallegar og vel gerðar konur og var Ragnheiður heit- kona Arnórs ein þeirra. Þau komu mér í skilning um þetta með því að kynna fyrir mér kon- una sem ég hef búið með í næst- um 45 ár. Fyrir þetta er ég þakklátur og hef átt vináttu þeirra hjóna óskaddaða gegnum súrt og sætt. Það er margs að minnast gegnum tíðina og nægir að nefna reiðtúra, einkatónleika í Glaumbæjarkirkju, ótal ferðir milli Hvanneyrar og Reykjavík- ur á fólksvagnsbjöllunni og svo framvegis. Arnór var ekki hávær í samskiptum þess þurfti hann ekki því hinn hnífskarpi húmor hans tryggði honum ávallt sess í umræðunni. Hann var næmur á samferðamenn sína og kunni að segja frá þeim svo eftir var mun- að. Þessi fátæklegu orð eru hér sett á blað til þess að minnast góðs vinar, þakka fyrir trygga og góða vináttu. Arnór var góður maður sem gerði heiminn betri. Ragnheiði og sonum þeirra Arn- órs svo og ástvinum öllum sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Hvíl í friði kæri vinur og blessuð sé minning þín. Jón Sigurðsson. Megi gæfan þig geyma, megi Guð þér færa sigurlag, megi sól lýsa þína leið, megi ljós þitt skína sérhvern dag. Og bænar bið ég þér, að ávallt geymi þig Guð í hendi sér. (Höf: Bjarni Stefán Konráðsson) Takk fyrir allt, elsku afi. Arnór Gísli, Lydía og Leó. Arnór Gunnarsson Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri Guðmundur Baldvinsson útfararstjóriJón G. Bjarnason útfararstjóri Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, BERGÞÓRA BACHMANN FRIÐGEIRSDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 10. ágúst. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju í Reykjavík þriðjudaginn 24. ágúst klukkan 13. Baldur Magnús Stefánsson Stefán Rúnar Baldursson Friðgeir Magni Baldursson Björg Pétursdóttir Egill Brynjar Baldursson Halla Arnar Eyrún Þóra Baldursdóttir Bachmann barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.