Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 34

Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021 ✝ Anna fæddist 18. nóvember 1934 í Pausram í fyrrverandi Tékkó- slóvakíu. Hún lést á Heilbrigðisstofn- un Norðurlands á Siglufirði 4. ágúst 2021. Foreldrar henn- ar voru Johann Hauk járnbraut- arstarfsmaður, f. 6. desember 1894 og d. 7. apríl 1974, og Sophie Axmann hús- móðir, f. 20. janúar 1902 og d. 20. nóvember 1956. Anna sem alla tíð var kölluð Anni (Anní) átti einn bróður, Joseph Hauk, hann lést ungur. Eftir stríð bjó fjölskyldan í Bayern í Suður- Þýskalandi. Anní bjó lengi í Munchen í Suður-Þýskalandi þar sem hún stundaði nám í klæðskeraiðn. Hún tók þar meistarapróf í þeirri iðn. Þar kynntist hún síðan eigin- manni sínum, Jóhanni Sv. Jóns- syni, f. 14. mars 1934, d. 11. apríl 2021, sem einnig stundaði Árnýju Dögg Heimisdóttur, f. 16. febrúar 2001, og eru þau búsett í Reykjavík, og Andri Leó, f. 22. ágúst 2007. Anní og Jóhann fluttust til Siglufjarðar 1961. Á Siglufirði starfaði Anní við ýmis störf, m.a. kenndi hún handavinnu og þýsku við gagnfræðaskóla Siglufjarðar, hún starfaði líka í rækjuvinnslu hjá Rammanum um tíma, kenndi eldri borg- urum alls konar handavinnu og föndur, og vann við heimilis- aðstoð, en þó var hennar að- alstarf lengst af saumaskapur og fataviðgerðir ásamt fleiru því tengdu. Anní átti ýmis áhugamál, og má þar helst nefna margs kon- ar handavinnu og saumaskap og svo garð- og blómarækt. Sund stunduðu hún og eigin- maður hennar daglega um langt árabil og farið var á gönguskíði á vetrum. Einnig stunduðu þau bæði badminton yfir vetrartímann. Hún starfaði í nokkrum fé- lögum á Siglufirði eins og Sina- wik og kvenfélagi bæjarins. Anní var heilsuhraust lengst af en veiktist 2014 þá rétt að verða 80 ára gömul. Hún og eiginmaður hennar sálugi flutt- ust á Skálarhlíð 2018 og loks fluttist hún svo yfir á sjúkra- húsið á Siglufirði 2020. Útför Anníar fer fram frá Siglufjarðarkirkju 14. ágúst 2021 kl. 11. þar nám, og giftu þau sig í Munchen hinn 5. september 1958. Börn Anníar og Jóhanns eru: 1) Bylgja, f. 28. des- ember 1961, búsett á Siglufirði, fyrr- verandi eigin- maður Bylgju er Pálmi Aðalbjörns- son, f. 21. febrúar 1960. Barn þeirra er Elín (Ellý), f. 20. febrúar 1994, bú- sett í Reykjavík. 2) Jón Tryggvi, f. 23. ágúst 1964, og er hann kvæntur Fjólu Kristjánsdóttur, f. 6. desember 1965, og eru þau búsett í Reykjavík. Börn þeirra eru: Aron Ármann, f. 21. september 1992, kvæntur Juliönu Nogu- eira, f. 26. september 1994, og eru þau búsett á Sólheimum í Grímsnesi. Jóhann Felix, f. 21. september 1992, í sambúð með Önnu Sunneborn Guðnadóttur, f. 28. maí 1992, og eru þau bú- sett í Reykjavík. Alex Harri, f. 21. ágúst 1997, í sambandi með Elsku mamma mín kvaddi snemma að morgni 4. ágúst síð- astliðinn. Eftir nokkuð erfið veik- indi í um 1 – 2 vikur gafst lík- aminn upp og kallið var komið. Sumarlandið beið mömmu þar sem ég veit að pabbi tók vel á móti henni opnum örmum. Þau tvö voru enda svo samrýnd hjón að ekki kom það mér mikið á óvart hversu stutt varð á milli þeirra. Einungis eru nú liðnir tæpir 4 mánuðir síðan pabbi minn yfirgaf þessa jarðvist. Margs er að minnast og þakk- látust er ég fyrir þann yndislega tíma sem við áttum saman und- angengin 7 ár, en þann tíma hef ég einmitt varið með þeim for- eldrum mínum hér í heimabæn- um Siglufirði. Mér fannst ég kynnast foreldr- um mínum alveg upp á nýtt hér á þeirra efri árum. Ýmislegt var spjallað og gert, og við mamma sátum heilu kvöldin og prjónuð- um eða hekluðum saman, og svo var kvöldkaffið ómissandi fyrir háttinn. Við pabbi vorum svo meira í pólitíkinni og ættfræðin var líka rædd miklu meira en áð- ur. Pjakkur hundurinn okkar var hér lengi með okkur og höfðu mamma og pabbi ómælda ánægju af honum. Mamma var einstaklega góð manneskja sem vildi ávallt gera allt fyrir alla. Hún var hörkudug- leg kona, og var snillingur á mörgum sviðum. Bæði í sauma- skap og allri handavinnu en líka í eldamennsku. Mamma var frá- bær kokkur og hjá henni fékk maður alltaf góðan mat og minn- isstæðast er hennar frábæra þýska kartöflusalat og svo þýsku smákökurnar alltaf fyrir jólin. Eins bláberjaskyrkökurnar henn- ar og svo möndluhornin sem hún bakaði svo oft og sendi okkur systkinum stundum suður til Reykjavíkur. Eins var hún mjög dugleg að tína bláber á haustin, og tíndi oft heilu lítrana og þau sendi hún okkur líka oftar en ekki suður yfir heiðar. Garðrækt og blóm voru líka stórt áhugamál hjá mömmu og hún var tímunum saman í garð- inum að dytta að og gera hann fal- legan, enda fengu þær stöllur hún og Dúdda heitin, nágranni okkar, verðlaun fyrir fallegasta garð bæjarins eitt sumarið. Mamma tók upp ýmsa íslenska siði eins og sláturgerð, gerði rab- arbarasultu og gróf marga laxana sem pabbi veiddi í gegnum árin. Eins var mjög gjarnan til reyktur lax á heimilinu, og mamma smurði oft brauð handa okkur með þessu góðgæti. Eins bakaði hún mjög oft pönnukökur og vöfflur og gerði silungssalöt, því pabbi koma með ófáa silungana heim úr veiðitúrum sínum. Já það vantaði nú ekki mynd- arskapinn hjá henni mömmu. Hún elskaði barnabörnin sín mik- ið og fannst erfitt núna síðustu æviárin að geta ekki sjálf sinnt því að pakka inn og senda þeim gjafir. Yndislegar minningar ylja manni um ókomin ár og takk inni- lega fyrir allt elsku besta mamma mín. Algóður Guð blessi þig og varð- veiti um alla eilífð. Þín dóttir Bylgja. Anna Johanna Jóhannsdóttir Hauk Jón í Hala hefur kvatt okkur og gengið til Austursins eilífa. Jóni kynntist ég fyrir alvöru árið 2004 Jón Vilberg Karlsson ✝ Jón Vilberg Karlsson fædd- ist 17. janúar 1933 á Hömrum í Gríms- nesi. Hann lést 29. júní 2021. For- eldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir og Karl Ólafsson. Foreldrar hans bjuggu á Hömrum 1927-1934, síðan í Vallarhjáleigu í Flóa 1934-1936. Fjölskylda Jóns flutti í Hala 1936. Útförin fór fram í kyrrþey. þegar hann birtist þar sem ég var að slá upp fyrir sökkli. Myrkur var og og snjókoma en unnið við birtu frá ljósköst- urum. Þar kom hans fyrsta ráðgjöf til mín, varðandi verk- efnið sem ég var að vinna við. Ég hafði hafið framkvæmdir við fyrstu hesta- sundlaugina á landinu. „Ég ætla að kenna þér hvernig á að fara á hausinn,“ sagði hann og skellihló. Upp frá þessum degi tókst með okkur vinátta sem entist út hans líf. Milli þess að við hittumst í Hala eða í Áskoti höfðum við símasam- band vikulega eða oftar sl. 17 ár. Þar ræddum við stjórnmál en mest hross, hrossarækt og hrossarækt- endur. Jón var sjálfstæður í skoðunum og ófeiminn að segja skoðanir sín- ar. Ekki reyndi hann að geðjast einum né neinum skoðanalega en var þolinmóður við að hlýða á skoð- anir annarra. Aldrei sló í brýnu á milli okkar en ef honum leist ekki á hvað ég hafði fram að færa var við- kvæðið alltaf: „Nei hættu nú, Kobbi.“ Mér finnst hrossarækt Jóns ekki hafa fengið þá athygli sem hann átti skilið en úr framræktun frá honum, þ.e. Þokka frá Garði, hafa komið margir af bestu gæð- ingum landsins. Sagði Jón mér að ekki hefðu menn haft trú á Þokka sem ræktunargrip en raunin varð önnur. Ræktaði hann undan hon- um fyrstu árin með nánast ein- vörðungu heimahryssum sem gáfu af sér gríðarlega góð afkvæmi, margar hverjar. Jón sagði mér ekki alls fyrir löngu að hans tími færi að koma og hann ætti sér þá ósk að fá að kveðja þennan heim heima hjá sér. Hann gat ekki hugsað sér að enda á stofnun, því hreinlega nennti hann ekki. Enda varð honum að ósk sinni. Oft kom ég í heimsókn til hans og hafði þá með mér börn sem voru í fóstri hjá okkur hjónum. Dáðist ég að því hversu nærgætinn og ljúfur hann var við þessi börn. Hann gaf þeim tíma, bar á borð fyrir þau mjólk og kökur, spurði um uppruna, áhugamál og ættir en fáir menn sem ég hef kynnst hafa verið sterkari og fróðari um ættir í Rangárþingi en Jón í Hala. Sterkar stjórnmálaskoðanir sínar var hann ófeiminn við að setja fram og fannst honum lítið til þingheims þjóðarinnar koma. Þar væri stór hluti þingmanna sem hefðu lítið fram að færa, væru illa inni málum og ættu sér yfirhöfuð engar hugsjónir. Hann saknaði gömlu mannanna á þingi sem voru fastir fyrir og unnu meira fyrir hagsmuni heildarinnar en nú væri gert. Þó svo Jón byggi ekki í Ása- hreppi var hann félagsmaður í Ungmennafélagi Ásahrepps. Tók virkan þátt í félagsstarfinu á sín- um yngri árum. Allt fram undir nokkur síðustu ár tók Jón virkan þátt í bústörfum í Hala, bæði heyskap og sauð- burði. Jón var maður með stórt hjarta og mátti ekkert aumt sjá. Að- standendum hans votta ég samúð mína. Vin sínum skal maður vinur vera, þeim og þess vin. En óvinar síns skyli engi maður vinar vinur vera. Jakob S. Þórarinsson. Óli Pétur Útfararstjóri s. 892 8947 Hinrik Valsson Útfararstjóri s. 760 2300 Dalsbyggð 15, Garðabæ Sími 551 3485 osvaldutfor@gmail.com Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR AÐALSTEINSSON, lést laugardaginn 31. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 18. ágúst klukkan 15. Streymt verður frá athöfninni á https://youtu.be/EKeP7EGkubQ og má einnig nálgast á mbl.is/andlát á útfarardaginn. Steinunn Aðalsteinsdóttir Aðalsteinn Guðmundsson Ásta S. Aðalsteinsdóttir Birgir Örn Guðmundsson Gunnlaug Guðmundsdóttir Guðm. Gylfi Guðmundsson Helga Aspelund barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA SIGRÚN HELGADÓTTIR, Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 8. ágúst. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 24. ágúst klukkan 13.00. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Innilegar þakkir til starfsfólks D-deildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Helena Rafnsdóttir Vilberg Jóhann Þorvaldsson Helgi Ingólfur Rafnsson Þórdís Árný Sigurjónsdóttir Ólöf Elín Rafnsdóttir Róbert Jóhann Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Mín yndislega fósturmóðir, UNNUR JÓNSDÓTTIR, áður Lindasíðu 4, Akureyri, er látin. Hún var kvödd hinstu kveðju frá Akureyrarkirkju 13. ágúst, í kyrrþey að hennar ósk. Fyrir hönd fjölskyldunnar allrar, Unnur Huld Elsku faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR GUÐBJARTSSON bólstrari, Kristjánshaga 2, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 6. ágúst. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hins látna. Soffía Einarsdóttir Bjarni Jónsson Eva Einarsdóttir og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, KATRÍN SIGURÐARDÓTTIR, Hagamel 50, Reykjavík, lést 30. júlí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 16. ágúst klukkan 15. Blóm afþökkuð en þeim sem vilja minnast Katrínar er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Helgi Magnússon Arna Borg Einarsdóttir Sigurður Gylfi Magnússon Tinna Laufey Ásgeirsdóttir Magnús Örn Helgason Sunna María Helgadóttir Arnar Þór Helgason Pétur Bjarni Einarsson Ástkær bróðir, mágur og frændi okkar, ÓSKAR HELGI S. MARGEIRSSON, áður til heimilis á Brávallagötu 26, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 17. ágúst klukkan 15. Útförinni verður einnig streymt, hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Guðjón Margeirsson Margrét Jónsdóttir Jóhanna Jónasdóttir og aðrir aðstandendur Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Hafi æviágrip þeg- ar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning- @mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.