Morgunblaðið - 14.08.2021, Síða 36

Morgunblaðið - 14.08.2021, Síða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021 ✝ Mikael Þór Ás- geirsson fædd- ist á Húsavík þann 19. maí 1985. Hann lést 1. ágúst 2021. Foreldrar Mikka, eins og hann var ætíð kall- aður, voru María Mikaelsdóttir, f. 22.10. 1962, og Ás- geir Arnar Jóns- son, f. 17.11. 1955, d. 1.9. 2005. Alsystkini Mikka eru Íris Hörn, f. 27.7. 1983, hennar mað- ur er Tryggvi Þórðarson, f. 24.8. 1978, og eiga þau tvær dætur, Ílóna Sif, f. 9.1. 1991, hennar maður er Ragnar Rögn- valdsson, f. 5.1. 1985, og eiga þau tvo syni, og Aðalbjörg, f. 29.8. 1995, hennar maður er Emil Atli Þórhallsson, f. 13.5. 1992. Hálfsystkini Mikka samfeðra eru Páll Skúli Ásgeirsson, f. 30.12. 1971, Eva Jóna Ásgeirs- dóttir, f. 18.6. 1972, og Elísa Hörn Ásgeirsdóttir, f. 8.9. 1976. Sonur Mikka er Elmar Jökull, f. 28.2. 2014, móðir hans er Ásthildur Kristín Björns- dóttir, f. 21.9. 1987. Mikki ólst upp á Húsavík í góðum frændsystkinahópi. Mikki fór til Kan- ada og lærði sjúkranudd. En svo fór að halla undan fæti og hans sjúkdómur, sem var fíknisjúkdómur, tók völdin næstu árin. En Mikki náði að komast upp úr því og fékk inni á Draumasetrinu sem var hans gæfa. Mikki átti góðan tíma á Draumasetrinu og eign- aðist marga og góða vini þar. Hann átti góðar stundir með Elmari syni sínum og átti hann hug hans allan. Útför Mikaels fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 14. ágúst 2021, og hefst athöfnin klukkan 14. Pabbi, ég sakna þín mjög mik- ið og mér finnst mjög leiðinlegt að geta ekki verið meira með þér. Takk fyrir að vera með mér í fótbolta. Takk fyrir að kaupa nammi með mér. Takk fyrir að fara með mér í Rush og bíó. Þú varst besti pabbi heimsins og ég elskaði þig mjög mikið. Ég vildi ég væri engill pabbi minn þá myndi ég klæða blómum himininn og loftin myndu óma af ljúfum söng sem leiftraði af gleði kvöldin löng. Og af því þú ert þreyttur vænginn minn, þú fengir til að hvílast –enn um sinn. Sængin þín verður öll mín ást og allt sem saman áttum við – ef þér er kalt og koddann færðu úr skýjaslæðum þeim sem sjálfur Drottinn gerði höndum tveim og stjörnurnar ég set á koddann þinn og sólina við hjartað, ljúfurinn. Sofðu í friði pabbi, sofðu rótt. Sofðu, ég vaki, það er komin nótt. (Alvar Haust) Þinn Elmar Jökull. Mikael Þór Ásgeirsson Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Höf. ókunnur) Engin ein manneskja, ég end- urtek engin, hefur lagt jafn mik- ið gott af mörkum inn í mitt líf og þú. Þegar þú hættir hjá SÁÁ fór ég að gráta og fannst öll sund lokast, þá sagðir þú við mig eitthvað á þá leið að nú værum við búnar, ég og þú, að fylla Georgía Magnea Kristmundsdóttir ✝ Georgía Magn- ea Kristmunds- dóttir fæddist 7. apríl 1951. Hún lést 18. júlí 2021. Útförin hefur farið fram í kyrr- þey. margar andlegar skúffur af góðu efni, sem ég gæti leitað í þegar þín nyti ekki lengur við. Þetta hef ég gert með góðum árangri og er enn að. Ég er alls ekki viss um að ég væri á lífi hefði þín ekki notið við, því þótt ég hafi átt gott trúnaðarfólk þá var ég svo illa á mig komin að það varst bara þú ein sem með þinni manngæsku og menntun réðst við að hjálpa mér svo vel gengi. Það er ekki bara ég sem hef blómstrað heldur fjölskyldan mín, maðurinn, dóttir og barna- börn. Þannig að nú á ég ham- ingjusama fjölskyldu, nokkuð sem aldrei áður hefur gerst í mínu lífi. Ég hitti þig 1985 og var hjá þér í þrettán ár, mér finnst skylt að geta þess að síðan 2003 hef ég verið hjá alveg dásamlegum geð- lækni, sem hefur byggt vel ofan á okkar vinnu, en þú áttir upp- hafið. Þú sagðir mér stundum glefs- ur úr þínu lífi, sem hjálpaði mér alltaf mjög vel. Ég sá ykkur Einar þinn eitt sinn dansa saman á árshátíð og sagði við þig í næsta tíma „óskaplega ertu góð og brosmild við hann Einar þinn“. Ég hef aldrei gleymt svipnum sem kom á þig þegar þú svaraðir „mikið þykir mér vænt um að heyra þetta“. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Elsku Georgía mín, mér finnst illbærilegt að þurfa að kveðja þig í síðasta sinn. Þú varst ein- hvern veginn alltaf þarna, þótt sambandið hafi ekki verið mikið síðari ár. Ég ákvað að taka það alvarlega að virða mörk skjól- stæðings og kennara, sem þú kenndir mér að væri farsælast. Einu sinni þegar ég lá á St. Jós- eps sagðir þú mér eftir á að þú hefðir alveg orðið að halda þér til að heimsækja mig ekki. Svo lengi sem ég lifi mun ég draga upp minningarnar og ylja mér við þær, sem og allt það góða sem þú kenndir mér. Ég sendi þér, Einar, allar mínar bestu samúðarkveðjur og bið allar góðar vættir að gefa þér styrk í sorginni. Megi minning- arnar um þessa einstöku konu ylja þér svo lengi sem þú lifir. Einnig bið ég öllum hennar ætt- ingjum og vinum allrar blessun- ar. Það er eins og yfir svífi enn og hljóti að minna á þig þættirnir úr þínu lífi, þeir, sem kærast glöddu mig. Alla þína kæru kosti kveð ég nú við dauðans hlið, man er lífsins leikur brosti ljúfast okkur báðum við. (Steinn Steinarr) Rúna Knútsdóttir. Elsku mamma, þau eru nú orðin mörg árin síðan þú hoppaðir upp í bíl- inn þinn og brunaðir af stað og sinntir þínum erindum hvar sem var. Svo gerði Alzheimer-sjúk- dómurinn vart við sig og smátt og smátt réð hann sífellt meiru í lífi þínu. Það var oft erfitt fyrir þig að átta þig á því hvað var að gerast umhverfis þig. Síðustu fjögur árin hefur þú verið á hjúkrunarheimilinu Mörk við góða umönnun. Mamma fæddist í Reykjavík, flutti í Kópavog og bjó þar nærri 40 ár. Þegar við fluttum á Þing- hólsbraut í Kópavogi var aðeins hluti hússins byggður. Hún hafði yndi af blómum og bjó til ynd- islega blómabrekku. Mamma var mikill dýravinur og hafði finkur í Sigurvaldís Guð- rún Lárusdóttir ✝ Sigurvaldís fæddist 19. júní 1927. Hún lést 13. júlí 2021. Útförin hefur farið fram í kyrr- þey að ósk hinnar látnu. búri og ófáar kisur áttu athvarf hjá henni. Hún var heima- vinnandi og var mjög þolinmóð við okkur. Mér verður hugsað til þess þeg- ar ég fór að fara í bíó. Eftir bíóförina þurfti auðvitað að segja mömmu frá hverju einasta smá- atriði. Það var ekkert hugsað út í hvað hún var að gera, alltaf hlustaði mamma jafn þolinmóð á þessar frásagnir. Á sumrin var farið í tjaldúti- legur. Bíllinn hlaðinn af mat og öllu sem tilheyrði slíkri ferð og þrjár stelpur tróðu sér inn í aft- ursætið að lokum. Ég minnist margra, góðra ferða austur að Barkarstöðum í Fljótshlíð til Sigurðar, móðurbróður Tómas- ar, og Maríu, konu hans, og fjöl- skyldu. Birna, systir mömmu, og Sævar fluttu til Kaliforníu 1958. Mamma fór oft til þeirra og ferð- aðist með þeim upp og niður strönd Kaliforníu, niður til Mexíkó og víðar, m.a. til Hawaii. Eftir að Sigurbjörg systir og fjölskylda fluttu til Danmerkur fór hún oft til þeirra. Það var erfiður tími þegar Tómas, stjúpi minn, lést á besta aldri árið 1980 úr krabbameini. Nokkrum árum seinna flutti mamma í Ártúnsholt nær Ingi- björgu systur og fjölskyldu og var til aðstoðar með börn henn- ar. Það átti vel við mömmu, að taka að sér það hlutverk. Um fimmtugt fór mamma að vinna úti, og eftir að hafa unnið skrifstofustörf í mörg ár, starf- aði hún á Kópavogshæli í nokkur ár. Þar þótti henni gott að vinna, því umönnun átti vel við hana, hvort sem í hlut áttu menn eða dýr. Í mörg ár kom mamma til okkar Ingu systur til skiptis í helgarmat. Þegar á leið og hún var kominn í hjólastól lögðust þessar ferðir af. Elsku mamma, þú þekktir okkur framan af þegar við heim- sóttum þig, en er á leið fór að- eins að draga úr því, þú þekktir kannski ekki nöfnin en kannaðist við andlitin. Brostir alltaf og hélst í hendur okkar og við ósk- uðum þess að það væri vegna þess að þú þekktir okkur. Við sátum við gluggann þinn og horfðum út og þú tókst alltaf eftir fuglunum og fólkinu. Myndaalbúmin þín vöktu líka mikinn áhuga og þú skoðaðir myndirnar mjög vel. Og á eftir fengum við okkur kaffi við gluggann þinn. En nú ert þú farin, elsku mamma mín, þú varst orðin þreytt og hvíldinni fegin. Á meðan sumrin mild og björt og hlý að mínu hjarta leggja blómin sín, ég verð það barn, sem vildi helst á ný sér varpa að brjósti þínu, mamma mín. (Kjartan Ólafsson) Hvíldu í guðs friði. Ólöf Sif. Mamma, elsku mamma, man ég augun þín, í þeim las ég alla elskuna til mín. Mamma, elsku mamma, man ég brosið þitt; gengu hlýir geislar gegnum hjarta mitt. Mamma, elsku mamma, man ég lengst og best hjartað blíða, heita, hjarta, er sakna ég mest. (Sumarliði Halldórsson) Elsku mamma mín, takk fyrir öll árin og alla aðstoð sem þú hefur veitt mér. Þín dóttir, Sigurbjörg (Sirí). Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, DAGNÝJAR ERLENDSDÓTTUR leikskólakennara, Heinabergi 23, Þorlákshöfn. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Stefán Hauksson Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, stjúpmóður, ömmu og langömmu, KATRÍNAR JÓNSDÓTTUR, Árskógum 6, Reykjavík. Eyrún Magnúsdóttir Andrés Magnússon Áslaug Gunnarsdóttir Jón Magnússon Guðrún Bergþórsdóttir Ásmundur Magnússon Ásdís Þrá Höskuldsdóttir Steinunn Magnúsdóttir Jesper Madsen Sæmundur Magnússon barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg systir mín og föðursystir okkar, KRISTÍN GÍSLADÓTTIR frá Litla-Lambhaga, Hvalfjarðarsveit, áður til heimilis að Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugardaginn 7. ágúst. Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 18. ágúst klukkan 11. Snæbjörn Gíslason Hrefna Sigurðardóttir Ármann Sigurðsson Sigurjón Sigurðsson Þóra Gísladóttir Gísli Gíslason Björgvin Ómar Gíslason Amma Silla er farin í sumarlandið á fund afa sem situr og bíður eftir henni í grænni brekku. Hún hafði beðið þess lengi að hitta loks Bjarna sinn. Þar bíða hennar vafalaust líka blóm og annar gróður að sjá um, því amma var mikil blómakona og Sigurlaug Sigurjónsdóttir ✝ Sigurlaug Sig- urjónsdóttir fæddist 20. sept- ember 1926. Hún lést 1. ágúst 2021. Útförin fór fram 11. ágúst 2021. garðskálinn hennar og gluggakistur vel skreytt blómum. Ýmislegt var ömmu til lista lagt. Þar voru hannyrðir framarlega í röð- inni. Sauma- og prjónaskapur lá vel fyrir henni og var alltaf hægt að reiða sig á að amma gat gert við saumsp- rettur, skipt um rennilása og stytt buxur á Sjonna sinn þegar á þurfti að halda. Enda keyrði ég ömmu með ánægju á Selfoss, meðan hún bjó enn á Reykjum, til að fara í hannyrðabúð að gramsa. Ég hafði líka gaman af því að skreppa með hana í bíltúr í Grímsnesið, hennar æskusveit, til að hitta afa Sigurjón og ömmu Guðrúnu í sumarbústaðnum. Því hafði hún líka virkilega gaman af. Amma var afkastamikil í eld- húsinu, það verður ekki annað sagt. Hún eldaði ofan í mann- skapinn, hvort sem það voru hleðslumenn, kostgangarar úr réttunum, börn og barnabörn eða gestir hvaðanæva að, sama hversu margir komu. Alltaf var hægt að ganga að því vísu að maturinn væri tilbúinn á réttum tíma. Hádegismatur þurfti að vera klár klukkan tólf svo afi gæti lokið við að borða og búinn að koma sér fyrir inni á dívan áð- ur en hádegisfréttirnar byrjuðu í útvarpinu. Svo rann honum að- eins í brjóst áður en hann reis á fætur og fór út að puða. Á meðan gekk amma frá öllu, þvoði upp og fór svo strax að sinna einhverju öðru. Hún þurfti ekkert að leggja sig eftir matinn, slík var orkan og drifkrafturinn í henni. Hún var líka alltaf með bakk- elsi á boðstólum. Pönnukökur bakaði hún á mörgum pönnum og fór létt með það. Einnig steikti hún ástarpunga sem voru sérstakt lostæti. En aðalsmerkið í bakstrinum voru samt flatkök- urnar; þær bestu sem ég hef um ævina smakkað og mun smakka. Í þeirri deild stendur henni eng- inn á sporði. Ég man nokkur skipti þegar amma stóð við helluna í gamla mjólkurhúsinu, veltandi flatkökunum í slíkum reykjarmekki að móðuharðindi mætti kalla. En afurðirnar voru gulls ígildi og ekki kvartaði amma yfir kófinu. Það var ekki hennar stíll. Bara drífa sig. Í búrinu var alls kyns gúm- melaði að finna. Ég á margar æskuminningar þar sem ég kem inn bakdyramegin í eldhúsið og veð beint inn í búr í leit að ein- hverju gómsætu. Aldrei kom ég að tómum kofanum. Alltaf voru til kökur, ástarpungar, flatkökur eða annað bakkelsi sem kætti lít- inn dreng og rann ljúflega niður með mjólkursopa. Hvíl í friði, elsku amma mín, og njóttu þess að iðja við eitthvað með afa í sumarlandinu. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Þinn dóttursonur, Sigurjón. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.