Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 40

Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 40
40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021 annan kringlukastþjálfara. Ég var því fenginn til að þjálfa þennan strák og hann verður heimsmeist- ari sjö árum seinna og ólympíu- meistari átta árum seinna. Það er auðvitað lyginni líkast. En varðandi Svíana er þessu öðruvísi farið, því ég hef búið í Svíþjóð í þrjátíu og fimm ár. Ég er giftur sænskri konu og börnin mín eru hálfsænsk og hálfíslensk. Þótt ég sé alltaf Íslendingur í hjartanu þá hef ég búið svo lengi í Svíþjóð. Þess vegna er enn skemmtilegra fyrir mig að ná þessum árangri með sænska íþróttamenn. Fyrir utan hversu óvænt það var að Simon færi á verðlaunapallinn með Daniel. Ég bara næ því ekki enn þá. Þetta á eiginlega ekki að geta gerst og hefur ekki gerst í sænskri íþrótta- sögu frá árinu 1948. Það er ótrúlegt að fá að upplifa þetta.“ Keppni þarf að læra Eitt af flóknustu viðfangsefnum sem þjálfarar afreksíþróttamanna fá í fangið er að stilla spennustigið í keppni. Gildir þá einu hvort um er að ræða einstaklings- eða hóp- íþróttir. Slíkt verkefni verður eðli málsins samkvæmt snúnara eftir því sem viðburðirnir eru mikilvæg- ari. Hver er galdurinn þegar kem- ur að því að ná spennustiginu réttu á stærsta mótinu? „Endalaus og þrotlaus vinna. Ég er með visst kerfi í þessu og vinn með fjölda sérfræðinga sem ég fæ frá ólympíusambandinu í Svíþjóð og sænska frjálsíþróttasamband- inu. Ef við skoðum Daniel Ståhl og Gerd Kanter þá voru þeir ekkert sérstakir keppnismenn þegar þeir voru yngri. Í báðum tilfellum sendi ég þá á öll mót sem við gátum fund- ið, þegar þeir voru 19 eða 20 ára gamlir, til þess að læra að keppa. Ég hef auk þess verið með íþrótta- sálfræðing á mínum snærum í tíu ár sem hefur unnið með Daniel. Á endanum gengur þetta upp. Ég lít þannig á að fyrst og fremst þurfi afreksfólkið að eiga sæmilegt líf og eiga gott fólk að sem styður það. Þannig að þetta félagslega sé í lagi. Síðan þarf að vinna mjög mikið í andlega þætt- inum ef fólk er ekki með það í byrjun. Styrktarþjálfunin og kast- þjálfunin er svo tiltölulega einföld ef maður kann sitt fag. Þetta gengur út á að læra að keppa og Daniel kunni það ekki, þar af leið- andi gekk fátt upp hjá honum þeg- ar hann var yngri. Gerd var ekk- ert sérstakur í því heldur, en Simon er annars konar dæmi. Hann hafði það í sér frá fyrsta degi að keppa og keppir alveg svakalega vel,“ útskýrir Vésteinn. Reynir að einfalda hlutina Í tveimur tilfellum hefur Vé- steinn þjálfað menn sem hafa orð- ið ólympíumeistarar í kringlu- kasti. Í báðum tilfellum urðu þeir heimsmeistarar í greininni árið áður. Vésteinn segir það vera allt annað en auðvelt að fara á Ólymp- íuleika þegar andrúmsloftið er á þá leið að allt annað en fyrsta sæti sé tap. „Daniel er meira eða minna ósigraður síðustu tvö til þrjú árin. Svipað var uppi á teningnum hjá Gerd þegar hann fór á leikana 2008. Þá er öll pressan á þeim og ég verð alveg var við það. Þeir finna alveg fyrir þessu, enda eru þetta ungir menn. Fyrir vikið verður mikil vinna hjá mér, íþróttamanninum og íþróttasál- fræðingnum að finna rétta spennustigið. Fyrir Daniel var tíu sinnum erfiðara að fara á Ólymp- íuleikana heldur en Simon sem hafði allt að vinna. Fyrir Daniel hefði annað sætið verið ósigur. Pressan er gígantísk eins og við sjáum hjá Simone Biles og Naomi Osaka sem finnst þetta bara of mikið. Ég skil það mjög vel. Hjá mér gengur kerfið út á ein- faldleika. Þegar þú keppir í und- ankeppninni á Ólympíuleikum þá fá menn bara þrjú köst en allt ferlið tekur tvo og hálfan tíma. Í þessu umhverfi er auðvelt að tapa áttum meðan á því stendur. Ég legg áherslu á að menn einbeiti sér í eina mínútu fyrir hvert kast. Á milli eru menn bara hressir og kátir en einbeita sér í þrjár mín- útur á heildina litið. Eða sex mín- útur í úrslitum þegar eru sex köst. Þá verður þetta miklu einfaldara og menn hugsa bara um eitt atriði. Þá ertu bara að kasta kringlunni og reynir þitt besta en ert ekki að hugsa um hversu margir eru að horfa á þig. Ég hef unnið með þetta í tuttugu ár og það virkar yfirleitt þegar farið er í mót þar sem spennustigið er hátt.“ Er Íslendingur en ekki Svíi Aðspurður hvort hann verði var við að Íslendingar fylgist vel með honum í kringum stórmótin segist Vésteinn hafa fundið fyrir því eftir magnaðan árangur í Tókýó. „Ég fékk margar kveðjur að heiman og mér þykir mjög vænt um það. Ég er fyrst og fremst Ís- lendingur en ekki Svíi þótt ég eigi sænska konu og hafi búið lengur í Svíþjóð en á Íslandi. Ég hef alla tíð haldið ríkisborgararéttinum. Þegar ég var með Gerd var fylgst vel með því sem ég var að gera, en einnig að mörgu leyti þegar ég þjálfaði Joachim. Svo minnkaði það um tíma en núna kom gusa af kveðjum að heiman og ég hef rosalega gaman af því,“ segir Vé- steinn Hafsteinsson sem nær að koma í heimsókn til Íslands í næsta mánuði. „Ótrúlegt að fá að upplifa slíkan árangur“ - Vésteinn Hafsteinsson náði árangri sem Svíar náðu síðast árið 1948 AFP Tókýó Svíarnir bregða á leik þegar tvöfaldur sigur var í höfn. Ólympíu- meistarinn Daniel Ståhl í fanginu á Simoni Pettersson sem fékk silfrið. FRJÁLSAR Kristján Jónsson kris@mbl.is Selfyssingurinn Vésteinn Haf- steinsson hefur náð ævintýralegum árangri sem frjálsíþróttaþjálfari. Á nýafstöðnum Ólympíuleikum í Jap- an bætti hann við skrautfjöðrum í hattinn. Þrír íþróttamenn á leik- unum eru undir hans handleiðslu, Daniel Ståhl, sem sigraði í kringlu- kastinu, Simon Pettersson, sem var annar í sömu grein, og Fanny Ro- os, sem hafnaði í 7. sæti í kúluvarpi, en öll eru þau frá Svíþjóð. Vésteinn segir árangurinn vera hápunktinn á ferlinum. „Ég verð að segja að þetta er toppurinn á ferlinum hingað til. Ég hef gjarnan verið með þrjá til sex keppendur á þessum stórmótum. Nú var ég með þrjá keppendur. Við fórum á leikana með þær vonir að Daniel ynni, Simon yrði á meðal átta efstu og næði kannski 5. eða 6. sæti, og Fanny yrði á meðal átta efstu. Það gekk eftir. Sem þjálfari fékk ég árangur út úr þessu sem er enn betri en ég vonaðist eftir. Ég bjóst aldrei við því að þeir yrðu í tveimur efstu sætunum í kringlu- kastinu. Það er alveg stórkostlegt og ég hef aldrei upplifað annað eins. Það er ótrúleg lífsreynsla að ganga í gegnum þetta og ég hef aldrei fengið annað eins af ham- ingjuóskum, sem ég er auðvitað mjög þakklátur fyrir. Ég hef verið lengi í þessu og að fá þetta á mín- um tíundu Ólympíuleikum er svakalegur bónus,“ segir Vésteinn. Áður þjálfaði hann Gerd Kanter frá Eistlandi. Sá varð heims- og ól- ympíumeistari 2007 og 2008 auk þess að ná í brons í London 2012. „Erfiðara er að ná í ólympíu- verðlaun heldur en í verðlaun á EM eða HM. Þetta er allt gert svo stórt og fyrir vikið er mjög erfitt að ná í verðlaun á Ólympíuleikum. Á mín- um þjálfaraferli gerðist það fyrst þegar Daninn Joachim Olsen fékk bronsverðlaun í Aþenu 2004 í kúlu- varpinu en það breyttist átta árum síðar í silfurverðlaun út af lyfjamis- ferli. Síðan vann Gerd gull í Peking 2008 og þá var það hápunkturinn á ferlinum. Ég hafði þá unnið með honum í átta ár og það var stór- kostlegur tími. Í rauninni var lyg- inni líkast hvernig það gekk, en ég þjálfaði hann í tólf ár þegar upp var staðið. Það var hápunkturinn á ferlinum en þessi árangur núna toppar hann.“ Þóttu ekki nógu efnilegir Vésteinn segir að Gerd Kanter og Daniel Ståhl eigi það sameigin- legt að hafa ekki þótt líklegir til af- reka á yngri árum. Ef til vill hafi þeir endað undir handleiðslu Vé- steins vegna þess að aðrir þjálfarar hafi ekki haft mikla trú á þeim. Upphafið að samstarfi Vésteins og Kanters er með nokkrum ólík- indum. „Ég hef verið með Daniel í tíu ár en enginn hafði trú á þessum strák. Saga hans og Gerds er ósköp svip- uð því enginn virðist hafa viljað þjálfa þessa stráka. Gerd Kanter þótti ekki nógu góður miðað við það sem eistneskir þjálfarar vildu sjá. Ég fékk hringingu frá eistneskum íþróttafréttamanni. Hann hafði þá setið við hliðina á Ingólfi Hannes- syni og Samúel Erni Erlingssyni á Ólympíuleikunum árið 2000. Hafði sá eistneski spurt Ingólf og Samma hvort þeir þekktu einhvern kringlukastþjálfara. Þeir bentu bara á mig enda þekktu þeir engan Morgunblaðið/Brynjar Gauti Peking Vésteinn gefur Gerd Kanter fyrirmæli á Ólympíuleikunum árið 2008 en Kanter sigraði þá í kringlukastinu eins og Ståhl gerði nú. Pepsi Max-deild kvenna Breiðablik – Valur .................................... 0:1 Staðan: Valur 15 12 2 1 40:15 38 Breiðablik 15 10 1 4 49:22 31 Stjarnan 13 6 2 5 16:18 20 Þróttur R. 13 5 4 4 28:25 19 Selfoss 14 5 4 5 20:19 19 ÍBV 13 5 1 7 20:28 16 Þór/KA 14 3 6 5 15:21 15 Fylkir 13 3 3 7 13:30 12 Tindastóll 13 3 2 8 10:21 11 Keflavík 13 2 3 8 11:23 9 Lengjudeild karla Selfoss – Grindavík .................................. 3:2 Þróttur R. – Grótta................................... 1:2 Staðan: Fram 15 13 2 0 41:10 41 ÍBV 15 10 2 3 29:13 32 Kórdrengir 14 8 4 2 24:15 28 Vestri 15 8 1 6 25:28 25 Grótta 16 7 2 7 32:30 23 Fjölnir 15 7 2 6 19:18 23 Grindavík 16 5 5 6 29:33 20 Þór 15 5 4 6 29:26 19 Afturelding 15 5 4 6 30:28 19 Selfoss 16 4 3 9 25:36 15 Þróttur R. 16 3 1 12 26:38 10 Víkingur Ó. 14 0 2 12 15:49 2 England Brentford – Arsenal ................................ 2:0 - Patrik Sigurður Gunnarsson var vara- markvörður Brentford. - Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik- mannahópi Arsenal vegna veikinda. Þýskaland 1. deild: Möncheng. - Bayern München ............... 1:1 B-deild: Schalke – Aue........................................... 1:1 - Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik- inn með Schalke og var fyrirliði liðsins. C-deild: Freiburg II – Dortmund II ..................... 2:5 - Kolbeinn Finnsson lék allan leikinn hjá Dortmund II Rúmenía CFR Cluj – Farul Constanta................... 1:0 - Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 66 mínúturnar með Cluj. Pólland Termalice BB – Lech Poznan ................ 1:3 - Aron Jóhannsson var ekki í leikmanna- hópi Lech Poznan vegna meiðsla. Danmörk SönderjyskE – Midtjylland..................... 0:2 - Mikael Anderson kom inn á sem vara- maður á 78. mínútu hjá Midtjylland. Elías Rafn Ólafsson var varamarkvörður liðsins. - Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á sem varamaður á 66. mínútu hjá Sönder- jyskE. B-deild: Esbjerg – Horsens ................................... 0:0 - Andri Rúnar Bjarnason lék fyrstu 74 mínúturnar með Esbjerg en Ísak Óli Ólafs- son var ekki í hópnum. - Aron Sigurðarson lék fyrstu 70 mínút- urnar með Horsens en Ágúst Eðvald Hlynsson var ónotaður varamaður. >;(//24)3;( EM U19 karla Leikið í Króatíu: Ítalía – Ísland........................................ 17:30 E(;R&:=/D Forkeppni HM karla Danmörk – Ísland................................. 91:70 Stig Íslands: Elvar Már Friðriksson 30, Hörður Axel Vilhjálmsson 11, Sigtryggur Arnar Björns- son 9, Kári Jónsson 8, Ægir Þór Steinars- son 8, Tryggvi Snær Hlinason 7, Kristófer Acox 5, Kristinn Pálsson 5. >73G,&:=/D KNATTSPYRNA Pepsi Max-deild karla: Greifavöllurinn: KA – Stjarnan ..............S16 Kaplakriki: FH – Leiknir R. ...................S17 Hlíðarendi: Valur – Keflavík..............S19:15 Lengjudeild karla: Olísvöllurinn: Vestri – Fram ..................L13 Extra-völlurinn: Fjölnir – Afturelding..L14 Domusnovavöllur: Kórdrengir – ÍBV ...L16 SaltPay-völlurinn: Þór – Víkingur Ó .....L16 Lengjudeild kvenna: Víkingsv.: Víkingur R. – Augnablik.......L18 2. deild karla: KR-völlur: KV – ÍR .................................L12 Húsavík: Völsungur – Reynir S ..........LL13 Akraneshöllin: Kári – Leiknir F. ......L13:30 Rafholtsv.: Njarðvík – Fjarðabyggð .....L14 Vogaídýfuvöllur: Þróttur V. – KF..........L16 Grenivík: Magni – Haukar......................L16 UM HELGINA!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.