Morgunblaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021
s/fo
sa
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Kristjana S. Williams heldur nú í
mánuðinum, milli 14. og 28. ágúst
nánar til tekið, einkasýningu með
verkum sínum í Gallerí Fold á
Rauðarárstíg. Kristjana er þekkt
fyrir verk sín víða um heim og er
stíll hennar einkennanlegur og
auðþekkjanlegur. Hún vinnur alla
jafna bæði með prentverk sem gefin
eru út í takmörkuðu upplagi en
einnig með frumgerðir af prentuð-
um þrívíddarverkum. Á sýningunni
verður fjöldi nýrra verka sem
Kristjana vann með íslensku þema
og hafa verkin ekki verið sýnd áður
hér á landi.
Kristjana er fædd á Íslandi og
stundaði nám við Central St. Mart-
ins lista- og hönnunarháskólann í
London. Árið 2011 hóf hún feril
sinn sem myndlistarmaður auk þess
að myndlýsa bækur og vinna að
hönnun ýmissa muna. Dagblaðið
The New York Times hefur lýst
verkum hennar sem hluta nýrrar
fornmunastefnu en upprunalegu
þrívíddarverkin hennar, prent í tak-
mörkuðu upplagi og innanhúss-
munir, innihalda leturgröft frá vikt-
oríanska tímabilinu sem hún
gjarnan blandar við gróður og dýra-
líf. Hefur samspil þessara áður-
nefndu hluta oft töfrandi áhrif ef
marka má lýsingar í dagblaðinu.
Fjarlægðin veitir nýja sýn
Í samtali við blaðamann segir
Kristjana sýninguna snúast að lang-
mestu leyti um Ísland, og þá aðal-
lega frá sjónarhorni hennar sem er
að vissu leyti sérstakt. „Ég er búin
að búa í London meira en helming
ævi minnar og þess vegna er sjón-
arhorn mitt á Ísland pínu eins og að
horfa á Ísland úr fjarska í gegnum
kíki. Þetta er ekki sjónarhorn túr-
istans en ekki sjónarhorn heima-
manns heldur,“ segir Kristjana.
Verk Kristjönu eru oft innblásin
af ferðalögum hennar víða um
heiminn. Gjarnan með táknrænum
heimskortum skreyttum dýrum,
gróðri og marglitum fiðrildum.
Fram kemur í tilkynningu að sýn-
ingin sé rannsókn Kristjönu á Ís-
landi úr fjarlægð. Fjarlægðin við
Ísland mun þá hafa veitt henni nýja
sýn á náttúruna, land og þjóð.
Haft er eftir Kristjönu úr til-
kynningu: „Svo mörg verka minna
hafa fjallað um það sem ég hef upp-
götvað langt frá ströndum Íslands.
Ég man hvernig mig dreymdi um
fjarlægar strendur með gulum
skeljasandi, án þess að kunna að
meta svörtu ströndina sem ég stóð
á.“ Þá segir hún enn fremur; „fjar-
lægðin við Ísland í öll þessi ár hefur
kennt mér að skynja og meta til
fullnustu sérstæða töfra íslenskrar
náttúru.“
Þrívíddarverkin heilla
Auk prentverka Kristjönu verða
á sýningunni þrjú þrívíddarverk þar
sem dýpt er framkölluð með því að
forma og vinna áprentaðan lista-
verkapappírinn í þrívídd. Verkin
fanga hugann og eru stórbrotin og
margslungin. Auðvelt er að gleyma
amstri hversdagsins við það eitt að
skoða verkin og stöðugt er hægt að
koma auga á ný smáatriði í þessum
þrívíddarverkum Kristjönu. Einnig
verða þá fjögur önnur þrívíddar-
verk til sýnis og eru þau innblásin
af ævintýraferðum nútíma land-
könnuðarins Bens Fogle, en hann
hefur ferðast og myndað hér á landi
fyrir sjónvarpsþætti sína, Lives in
the Wild.
Spurð hvernig listamaður hún sé
segir hún: „Í grunninn vinn ég mest
með svona klippimyndir. En auk
þess vinn ég mikið í stafrænni list
og hinu stafræna rými. Einnig hef
ég mikið byggt verk mín á letri frá
viktoríanska tímabilinu, sem ég
skanna og kem fyrir á sértilgerðum
pappír. Það eru þessar þrívíddar-
myndir sem koma bara út í tak-
mörkuðu upplagi.“
Ljósmynd/Marina Longo
Skapandi Kristjana að störfum á vinnustofu sinni í London.
Ísland Hluti klippimyndar eftir Kristjönu, eitt verkanna á sýningunni.
Öðlaðist nýja sýn á Ísland
- Kristjana Williams sýnir fjölda nýrra verka í Gallerí Fold - Starfar í stafrænni list- Þrívídd í
bland við klippimyndir - Kristjana segir sýninguna eins og að horfa á Ísland í gegnum kíki
Hulda Vilhjálmsdóttir opnar sýn-
inguna Pönk rómantík (Fullkom-
inn ófullkomleiki) í dag, laugar-
dag, kl. 14 í Galleríi Þulu. Um
sýninguna segir Hulda að á henni
séu verk sem hún hafi unnið á
undanförnu ári og að þau séu sam-
tal milli abstrakt og fígúratífs,
náttúrunnar og abstrakts, hins
gamla og nýja.
Hulda útskrifaðist úr Listahá-
skóla Íslands með BA-gráðu í mál-
un árið 2000 og stundaði diplóma-
nám í leirmótun og keramiki við
Myndlistarskólann í Reykjavík vet-
urinn 2007-8. Árið 2007 var hún
tilnefnd til Carnegie-myndlistar-
verðlaunanna og árið 2018 til Ís-
lensku myndlistarverðlaunanna
fyrir einkasýningu sína Valbrá í
Kling & Bang. Árið 2019 hlaut hún
myndlistarverðlaunin Tilberann.
Hulda hefur haldið fjölda einka-
sýninga og tekið þátt í mörgum
samsýningum hér á landi og er-
lendis og eru verk eftir hana í
eigu ýmissa listasafna. Árið 2003
opnaði hún og rak gallerí Angelicu
Smith í þrjá mánuði sem var nokk-
urs konar gjörningur, eins og seg-
ir í tilkynningu. Hún hefur einnig
gefið út nokkrar ljóðabækur og
myndabækur, þ. á m. Valbrá árið
2017 og Dagur líður sem kom út í
fyrra. Hulda hefur starfað sjálf-
stætt að myndlist frá því hún lauk
námi og segir um verk hennar að
þau séu tilfinningarík en þó yfir-
veguð. Verk og feril Huldu má
kynna sér á huldavil.com.
Listakonan Hulda Vilhjálmsdóttir innan um verk sín í Galleríi Þulu.
Samtal milli hins gamla og nýja