Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 44

Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021 Helga rútgá fanEinar bárða - anna magg a - yn gvi ey stein s Alla l augar daga frá k l 9-12 F rekar hljótt hefur verið um hryðjuverkamenn að und- anförnu miðað við oft áður en þeir eru öflug upp- spretta efnis fyrir spennusagnahöf- unda og Kaldaslóð eftir Kim Faber og Janni Pedersen kemur úr þeim far- vegi. Spennandi frásögn, en lopinn er ansi mikið teygður. Sagan gerist í Danmörku um jól og áramót 2017. Rannsóknarlögreglu- maðurinn Martin Junckersen, kall- aður Juncker, hef- ur verið fluttur til í starfi eftir að hafa farið út af sporinu í einkalífinu. Hann þarf fljótlega að taka til hendi í sveitaþorpinu, þar sem hann ólst upp og heilabilaður faðir hans býr án opinberrar að- stoðar. Um svipað leyti falla 19 manns í sprengjuárás á jólamarkaði í Kaup- mannahöfn og í stað friðsælla jóla og áramóta snýst allt um að finna hryðjuverkamennina, sem hafa horfið sporlaust. Frásögnin snýst annars vegar um helstu viðfangsefni Junckers í Sand- sted, morð og nauðgun, og hins vegar um viðamikið verkefni Signe Kristi- ansen og félaga hennar í Kaupmanna- höfn. Vandamál fyrrverandi starfs- félaga fléttast inn í gang mála og sér ekki fyrir endann á þeim. Reyndar eru nokkrir lausir endar þegar upp er staðið og kemur það niður á sögunni. Eins er frásögnin af ástandi föður Junckers allt of stór hluti bókarinnar. Prófarkalestur mætti vera betri og fyrsta málsgreinin á bls. 236 er dæmi um óþarfa hroðvirkni. Spennan er mikil og tíminn nauð- ur. Allur tiltækur mannskapur er kallaður til vegna sprengjuárás- arinnar og þrátt fyrir að þörf fyrir fleiri menn sé óvænt mikil í Sandsted er ekki hægt að verða við óskum Junckers og peningaleysi borið við. Sama er uppi á teningnum í sam- bandi við aðstoð við föður hans. Kunnuglegt stef. Kaldaslóð er hrottaleg frásögn sem teygir anga sína til stríðandi fylkinga í Sýrlandi og Afghanistan. Vandamál vegna flóttafólks og hælisleitenda eru í brennidepli sem og hættulegir öfga- hópar, en á sama tíma búa innviðir samfélagsins við skort sem dregur dilk á eftir sér. Ljósmynd/Les Kaner Dönsk Kim Faber og Janni Pedersen, höfundar bókarinnar Kaldaslóð. Danskir stríðsmenn láta til sín taka Glæpasaga Kaldaslóð bbbnn Eftir Kim Faber & Janni Pedersen. Þýðing: Ólafur Arnarson. Kilja. 504 bls. Krummi bókaútgáfa 2021. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Nöfnurnar Kristín Helga Ríkharðs- dóttir og Kristín Karólína Helga- dóttir opna nú í dag kl. 16 listasýn- ingu í MUTT galleríi á Laugavegi. Sýningin verður þá opin milli 14. ágúst og 5. september og ber heitið Vinsamlegast bíðið og er biðin meg- inþema sýningarinnar. Verk sýning- arinnar eru unnin í heimsfaraldri og bera merki um óvissu. „Við byrjuðum að vinna að þessari sýningu fyrir rúmu ári, í miðjum heimsfaraldri. Við ætluðum okkur að opna miklu fyrr en svo samhliða seinkunum og biðinni sem þeim fylgdu stækkaði sýningin í sniðinu. Við fórum svona í bið að vinna með biðina,“ segir Kristín Karólína í samtali við blaðamann. Ljósmyndir úr skúlptúrum Á sýningunni verða um tuttugu verk til sýnis sem hanga uppi á vegg. Kristín segir þau ljósmyndir unnar út frá skúlptúrum. „Við erum með þessar tuttugu ljósmyndir en við lít- um samt á þau sem myndlistaverk þar sem þetta eru ljósmyndir af skúlptúrum. Þá hönnuðum við þá, stilltum upp í raunveruleikanum og svo koma þessir skúlptúrar fram í myndunum sem og reyndar mynd- bandinu.“ Einnig er sýnt stutt myndband, sjö til átta mínútna langt, á sýning- unni. Er það nátengt myndunum. Upplifa biðina Kristín segir þá gesti og gangandi sem leggja leið sína á sýninguna geta upplifað biðina sem birtist í myndbandinu. „Það er biðstofa á sýningunni en fólk getur þá sest nið- ur á biðstofunni og upplifað biðina sjálft, sem og hvernig hún birtist í myndbandinu.“ Biðin er eins og áður segir meginþema sýningarinnar og segir Kristín biðina undirliggjandi og vera hinn rauða þráð sem fer í gegnum bæði ljósmyndirnar og myndbandið. Hún segir ennfremur biðina vera alltumlykjandi í okkar daglega lífi og biðin hafi orðið þeim nöfnum hug- leikin við undirbúning sýningar- innar. „Biðin getur líka verið mynd- hverfing fyrir margt annað, biðin eftir dauðanum, bíða eftir símtali, flugi útborgun, bóluefni og þar fram eftir götunum.“ Sýningin verður opnuð í dag og verður boðið upp á léttar veitingar. Spurð við hverju gestir og gangandi megi búast við á sýningunni segir Kristín: „Bara að finna sjálfa sig í þessum myndum og verkum. Það er hægt að gera svo margar tengingar að ég tel að allir geti skapað sín eigin hugrenningatengsl og fundið sig í myndunum og myndböndunum.“ steinar@mbl.is Kanínumaðurinn Hér ber að líta stillu úr myndbandi sýningarinnar. BBBBB Biðin skóp enn meiri bið - Allir geti fundið sig í verkunum - Efnisleg og myndhverf biðstofa Forvitnilegt Ljósmyndaskúlptúr. Ber brjóst virðast oft fara fyrir brjóstið á samfélagsmiðlinum Insta- gram. Fréttastofa BBC greinir frá því að fyrirtækið Facebook sem á miðilinn hafi beðist afsökunar á því að hafa bannað myndir af auglýs- ingaveggspjaldi fyrir nýja kvik- mynd Pedro Almodóvar. Á því má sjá nærmynd af geirvörtu sem úr lekur mjólkurdropi. Kvikmyndin ber titilinn Madres Paralelas, sem þýða mætti sem Hliðstæðar mæður, og fjallar um það þegar leiðir tveggja ófrískra kvenna skarast þegar komið er á fæðingadeildina. Penélope Cruz fer með eitt af aðalhlutverkum mynd- arinnar og það gerir einnig Rossy de Palma. Myndin verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í september. Hönnuður veggspjaldsins Javier Jaen, segir Instagram eiga að skammast sín fyrir þessa ritskoðun. Samfélagsmiðillinn hefur strang- ar reglur um nekt og kynferðislegt efni en gerir þó venjulega undan- tekningar ef um skýrt listrænt sam- hengi er að ræða. Veggspjaldið Geirvarta með mjólkur- dropa á plakati kvikmyndarinnar. Geirvarta fór fyrir brjóstið á Instagram

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.