Morgunblaðið - 09.10.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021
MEÐ DINNU OG HELGA
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
SKÍÐAFRÍ Á ÍTALÍU 2022
Nú er tíminn til að bóka skíðaferðina eftir áramót!
Við bjóðum beint flug vikulega til Ítalíu, þar sem
farþegar okkar geta valið úr tveimur frábærum
skíðasvæðum, Pinzolo og Madonna.
Kláfur tengir skíðasvæðin Pinzolo og Madonna,
svo auðvelt er að nýta sér bæði skíðasvæðin.
Dinna og Helgi hafa mikla reynslu af skíðaferðum
og ævintýrum enda voru þau ung gefin saman í
skíðaskála í Bláfjöllum.
Innifalið, flug, gisting, flutningur á skíðabúnaði,
íslensk fararstjórn og innritaður farangur
VERÐ FRÁ:129.900 KR.
á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn í tvíbýli með hálfu fæði
SKÍÐI
2022PINZOLO EÐAMADONNA
ÍSLENSK
FARARSTJÓRN OG
FLUTNINGUR Á
SKÍÐABÚNAÐI
INNIFALIÐ Í VERÐI
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Annað bátskuml virðist komið í ljós
við fornleifauppgröftinn sem nú
stendur yfir á Seyðisfirði. Ragnheið-
ur Traustadóttir fornleifafræðingur,
sem stjórnar rannsókninni, staðfesti
í gær að þetta væri að öllum líkind-
um bátskuml. Fyrra bátskumlið
fannst fyrir nokkrum dögum og voru
þar tennur úr manni, bein úr hesti,
spjót, næla, járnmunir og fleiri grip-
ir. Bátskuml höfðu ekki áður fundist
á Austurlandi. Þau eru talin vera frá
því um miðja tíundu öld. Kuml er
heiti yfir grafreit frá því fyrir
kristnitöku. Svo virðist sem kumlin
séu nokkur á svæðinu.
Í næstu viku mun átta manna hóp-
ur fornleifafræðinga á vegum
Antikva starfa við uppgröftinn en
síðan verður gert hlé. Næsta sumar
stendur til að hefja uppgröft á bæj-
arhólnum á landnámsjörðinni sem
þarna er rétt við kumlin. Við rann-
sóknina í sumar og forkönnun áður
hefur komið í ljós að margvíslegar
minjar um búsetu frá löngu tíma-
skeiði eru á svæðinu þar sem forn-
leifafræðingarnir eru að athafna sig
og bíða þær frekari rannsóknar.
Ljósmynd/Antikva
Bátskuml Í kumlinu eru auk mannabeina bein hests og hunds.
Annað bátskuml
fundið á Seyðisfirði
- Hlé gert á rannsókninni í næstu viku
virkjun í Glámu-Vattardal, stækkun
Svartsengis í Svartsengi-Eldvörp-
um, Garpsdalur í Reykhólahreppi,
Alviðra í Borgarbyggð og Vind-
heimavirkjun í Hörgárbyggð.
Verkefnisstjórn 5. áfanga
Rammaáætlunar (2021-2025) er nú
tekin til starfa. Formaður hennar er
Jón Geir Pétursson, dósent í um-
hverfis- og auðlindafræði við HÍ.
Hann segir að tillögur verkefnis-
stjórnar 4. áfanga séu enn í vinnslu
hjá verkefnisstjórninni.
„Það þarf líka að meta hvenær við
auglýsum eftir nýjum virkjana-
kostum. Þá mun það fara í gegnum
Orkustofnun. Hvað verður um til-
lögur úr 3. áfanga hefur líka áhrif á
okkar vinnu. Þar eru fjöldamargir
kostir í biðflokki og það þarf að
halda áfram að vinna með þá. Bið er
ekki varanlegt ástand,“ sagði Jón
Geir. Þess má geta að í biðflokki 3.
áfanga eru tíu virkjanakostir auk 28
til viðbótar frá gildandi rammaáætl-
un (2013) og nýrra virkjunarkosta
sem bíða frekari umfjöllunar.
þingsályktunartillögu árið 2015 um
að vatnsaflsvirkjunin Hvamms-
virkjun í Þjórsá skyldi færð í orku-
nýtingarflokk. Þessa virkjanakosti
hefurAlþingi samþykkt.
Verkefnisstjórn 3. áfanga
Rammaáætlunar (2013-2017) skilaði
lokaskýrslu í ágúst 2016. Þar var
lagt til að átta virkjanakostir færð-
ust í orkunýtingarflokk, þ.e. Skrokk-
ölduvirkjun, Holtavirkjun og Urr-
iðafossvirkjun í Þjórsá, Austurgils-
virkjun, Austurengjar á Krýsuvíkur-
svæðinu, Hverahlíð II og Þverár-
dalur á Hengilssvæðinu og Blöndu-
lundur.
Verkefnisstjórn 4. áfanga
Rammaáætlunar (2017-2021) lagði
fram drög að tillögum um flokkun
virkjunarkosta í lok skipunartíma
síns. Þar var lagt til að níu virkjana-
kostir færu í orkunýtingarflokk.
Þeir eru Hvanneyrardalsvirkjun í
Glámu – Ísafirði, stækkun Vatns-
fellsstöðvar, stækkun Sigöldustöðv-
ar og stækkun Hrauneyjafoss-
stöðvar á Þjórsársvæðinu, Tröllár-
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Verði tillögur um virkjanakosti í 3.
áfanga Rammaáætlunar sam-
þykktar verða um 1.421 MW komin í
nýtingarflokk úr 2. og 3. áfanga
áætlunarinnar. Virkjanakostir úr 3.
áfanga hafa þrisvar verið lagðir fyrir
Alþingi en ekki fengið afgreiðslu.
Í orkunýtingarflokki núgildandi
Rammaáætlunar, það er 2. áfanga,
eru tveir virkjunarkostir í vatnsafli
og 14 í virkjun jarðvarma. Vatnsafls-
virkjanirnar eru Hvalárvirkjun í
Ófeigsfirði og Blönduveita í Blöndu.
Jarðvarmavirkjanirnar eru Reykja-
nes, Stóra Sandvík, Eldvörp, Sand-
fell, Sveifluháls, Meitillinn og Gráu-
hnúkar og Hverahlíð á Reykjanes-
skaga. Bjarnarflag, Krafla I.
stækkun, Krafla II, 1. áfangi, Krafla
II, 2. áfangi, Þeistareykir og Þeista-
reykir, vestursvæði á Norðaustur-
landi. Þingsályktunartillaga þessa
efnis var samþykkt á Alþingi í jan-
úar 2013. Þingið samþykkti svo
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Svartsengi Virkjanakostir eru metnir í Rammaáætlun. Alþingi hefur ekki samþykkt nýja virkjanakosti síðan 2015.
Virkjanakostir bíða
samþykkis Alþingis
- Engir nýir virkjanakostir verið samþykktir síðan 2015
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Við lok vinnudags í gær var búið að
selja 81 af 84 íbúðum í Sunnusmára
2-6 í Kópavogi. Það væri ekki í frá-
sögur færandi nema fyrir þá sök að
þær voru auglýstar fyrir hálfum
mánuði og var tekið við fyrstu til-
boðum mánudaginn 27. september.
Íbúðirnar kosta frá 40,9 milljónum
og upp í ríflega 100 milljónir.
Samanlagt á sjötta milljarð
Hafa nú selst íbúðir í húsinu fyrir
rúmlega fimm milljarða króna.
Þórhallur Biering, löggiltur fast-
eignasali hjá Mikluborg, segist að-
spurður einu sinni áður hafa upplifað
jafn hraða sölu á nýjum íbúðum.
Nánar tiltekið á 34 íbúðum í Hrólfs-
skálamel 1-5 á Seltjarnarnesi en þær
hafi selst eins og heitar lummur.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að raunverð íbúða á höfuðborgar-
svæðinu er nú í sögulegu hámarki.
Hefur það hækk-
að um 10,3% frá
október í fyrra en
nafnverðið um
14,1%. Fram und-
an er síðasta
launahækkun
lífskjarasamn-
ingsins, 1. janúar
næstkomandi, en
hún kann að hafa
áhrif á íbúðaverð.
Hversu mikil mun skýrast með vor-
inu. Taxtar hækka um 25 þúsund en
almenn laun um 17.500 krónur.
Eftirspurnin þrýsti upp verðinu
Þórhallur telur útlit fyrir að íbúða-
verð haldi áfram að hækka. Eftir-
spurnin sé nú meiri en framboðið.
Spurður um hlutfall fyrstu kaup-
enda í Sunnusmára 2-6 segir Þór-
hallur að hamagangurinn hafi verið
slíkur að ekki hafi verið tími fyrir
slíka greiningu. Íbúðirnar verða af-
hentar í mars, apríl og maí.
Seldu íbúðir fyrir
fimm milljarða á
hálfum mánuði
- Söluhraði nýrra íbúða í Sunnusmára
2-6 þykir vitna um skort á íbúðum
Morgunblaðið/Baldur
Sunnusmári 2-6 Bílastæði í kjallara fylgir flestum íbúðum í fjölbýlishúsinu.
Þórhallur
Biering