Morgunblaðið - 09.10.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.11-15
Bralette án spanga, opnanlegur að framan,
með vasa, sem hentar skálastærðum
30-38 DD-H
Verð 13.850 kr.
S IGN | FORNUBÚÐIR 1 2 , HAFNARF IRÐ I | S : 5 5 5 0800 | S IGN@S IGN . I S | S IGN . I S
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Ný sending
Rofa –White Label
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
Ný haustlína
Opið í dag kl. 11-15
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030
Við erum á facebook
Stakir jakkar
Kr. 9.990
Str. S-XXL
Björgunarsveitarmenn ásamt sjálf-
boðaliðum frá Skógræktarfélagi Ís-
lands og Skógræktarfélagi Reykja-
víkur gróðursettu um 4.000
rótarskot í Heiðmörk í vikunni, við
svæði sem varð illa úti í gróður-
eldum í vor.
Um er að ræða rótarskot sem
björgunarsveitir seldu um síðustu
áramót undir merkjunum Skjótum
rótum, þar sem fólki var boðið að
kaupa tré sem gróðursett yrði víða
um land en um leið að styðja við
starf björgunarsveita. Fleiri
plöntur hafa verið gróðursettar
víða um land.
Mikill gróðureldur kviknaði í maí
sl. við Hnífhól í suðvesturhluta
Heiðmerkur. Miklir þurrkar höfðu
verið vikurnar á undan og gróður
orðinn mjög þurr. Svæðið sem
brann var rúmlega 50 hektarar
fjarri alfaraleið og því erfitt að-
gengi fyrir viðbragðsaðila.
Gróðursettu um 4.000
rótarskot í Heiðmörk
Morgunblaðið/Unnur Karen
Rótarskot Björgunarsveitir gróðursetja rótarskot í Heiðmörk í vikunni.
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur
metið veiðiþol rjúpnastofnsins og
ráðleggur að ekki verði veiddar
nema um 20 þúsund rjúpur í haust.
Það eru fjórir fuglar á hvern veiði-
mann. Veiðistofn rjúpu er metinn
248 þúsund fuglar að þessu sinni.
Mælingar sýna fækkun rjúpna
2020-2021. Stofninn er að nálgast
lágmark í sumum landshlutum en
rétt að byrja að falla í öðrum.
Rjúpnastofninum hefur hnignað til
lengri tíma litið, að sögn Náttúru-
fræðistofnunar.
Viðkoma rjúpunnar var mæld í
tveimur landshlutum á þessu ári.
Hún var þokkaleg á Norðaustur-
landi en léleg á Vesturlandi. Þá hef-
ur afkoma unga versnað frá síðustu
aldamótum, samanborið við áratug-
ina á undan.
Forsendur mats Náttúrufræði-
stofnunar byggjast á þeirri stefnu
stjórnvalda að rjúpnaveiðar skuli
vera sjálfbærar. Stofninn á að geta
sveiflast á milli lágmarks- og há-
marksára innan þeirra marka sem
náttúruleg skilyrði setja honum.
Enginn ágreiningur var um
ástand rjúpnastofnsins árið 2021 og
árangur veiðistjórnar á árunum
2005-2020 á samráðsfundi Nátt-
úrufræðistofnunar, umhverfis- og
auðlindaráðuneytis, Umhverfis-
stofnunar, Skotveiðifélagsins og
Fuglaverndar 7. september sl.
Morgunblaðið/Ingó
Rjúpnaveiðar Þúsundir veiðimanna
ganga til rjúpna á veiðitímanum.
Fjórar
rjúpur á
veiðimann
- Ráðlögð heildar-
veiði er 20.000 rjúpur