Morgunblaðið - 09.10.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.10.2021, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021 Hafnargata 29 í miðbæ Keflavíkur Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Ný 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í vandaðri nýbyggingu. Sjávarútsýni Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Verð 40.900.000 Birt stærð eignar er 107,6m2 H inn 30. september sl. var haldið málræktarþing í tilefni af ár- legri ályktun Íslenskrar mál- nefndar um stöðu íslenskrar tungu. Skömmu áður hafði ég spjallað við upplýstan mann sem tjáði mér, eftir að hann heyrði að ég ynni á Árnastofnun, að hann leiddi ekki oft hugann að stöðu íslenskunnar nema hvað honum fyndist hún alltaf vera í nauðvörn og í miklum vanda stödd; hann saknaði þess að tungan bærist í tal undir já- kvæðum og skemmtilegum formerkjum. Ályktun málnefndarinnar útfærir þessa tilfinningu því að þar er skrifað um ímynd- arvanda þjóðtungunnar; að í huga nemenda sé „íslenska stundum tengd sérstaklega við skólaverkefni, einkunnir, leiðréttingar, virð- ingu og eldra fólk en enska aftur á móti við skemmtun, afþreyingu, ferðalög og framtíð- artækifæri.“ Í tengslum við námsefni er haft á orði að það þurfi að endurspegla nýja fagþekkingu, til dæmis í því „hvernig fjallað er um málbreytingar í ís- lensku, tilbrigði í máli og málviðmið eins og hvaða atriði þyki eða þyki ekki við hæfi.“ Þá er vakin athygli á útbreiddu tvítyngi meðal leikskólabarna og mik- ilvægi þess að þau fái öll góða þjálfun í sínu móðurmáli um leið og þurfi að efla fagþekk- ingu leik- og grunnskóla- kennara á íslensku máli, ekki síst þegar kemur að því að kenna íslensku sem annað mál og fá börn og unglinga til að lesa. Eins og Jón Yngvi Jóhannsson sagði á þinginu: „Það lærir eng- inn að lesa sér til gagns nema lesa sér til gamans fyrst.“ Alkunna er að íslensk málstefna hefur einkennst af málstýringu og hreintungustefnu sem lengst af hefur ríkt sátt um í samfélaginu. Að frumkvæði menntamanna hlaut sú hugmynd brautargengi að skapa tungunni nýyrði, hreinsa burt slettur og erlend áhrif og laga beygingar og fleiri málfarsþætti að fyrirmynd forna málsins. Þannig varð nútíma- íslenska líkari máli fornsagna en tungutaki 17. aldar. Þó að þessi mál- stýring hafi komið að ofan var henni tekið opnum örmum því að með hreintungustefnunni varð íslenskan gegnsærri og auðskildari en ef tökuorð hefðu verið gripin upp með hverri nýrri hugmynd sem nútíminn færði tungunni. Gangi málstýring að ofan of langt er hætt við að stuðningurinn dvíni og að börn fái málóttatilfinningu fyrir því að „rétta“ íslenskan sé ekki þeirra mál — eins og Hanna Óladóttir kom inn á og vildi fremur virkja áhuga barna á að tala um tungumálið, m.a. sem valdatæki og á sínum forsendum. Með breyttum tíðaranda kvikna nýjar hugmyndir um hvernig sé við hæfi að tala saman og beita tungumálinu. Og þá skiptir máli að fólk finni að sú málstefna og málstýring sem því finnst endurspegla réttlæt- iskennd sína sé ekki barin niður af mályfirvöldum með heitstrengingum um að ekki megi breyta málinu með nýjum hugmyndum. Í því samhengi er vert að minnast þess að málstýring byggð á tiltekinni hugmyndafræði hefur verið eitt helsta einkenni íslenskrar málstefnu undanfarnar aldir. Málstýring og hugmyndafræði Tungutak Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is Ljósmynd/Unsplash, Gaelle Marcel Þjálfun Mikilvægt er að fá börn til að lesa. Þ egar rætt er um gerð nýs stjórnarsáttmála til fjögurra ára minnist enginn á utanríkis-, örygg- is- eða varnarmál. Þessi mál bar ekki heldur hátt í kosningabaráttunni. Túlki einhver þögn- ina á þann veg að málaflokkurinn skipti litlu eða engu er um misskilning að ræða. Í byrjun vikunnar, mánudaginn 4. október, komu for- ystumenn nágranna okkar á Grænlandi og í Færeyjum saman til fundar með forsætisráðherra Danmerkur í Kaupmannahöfn og rituðu undir yfirlýsingu sem stað- festir skipun samstarfsnefndar ráðherra landanna um utanríkis-, öryggis- og varnarmál. Þetta er nýmæli innan danska ríkjasambandsins. Danski forsætisráðherrann Mette Frederiksen sagði mikilvægt að styrkja samstarf Dana, Færeyinga og Grænlendinga á grundvelli gagnkvæmrar virðingar og jafnréttis. Í samstarfsnefndinni yrði skipst á upplýs- ingum, afstaða samræmd og rætt náið um utanríkis-, öryggis- og varnarmál að því er varðar Færeyjar og Grænland sérstaklega. Nefndin kemur til sögunnar vegna óska stjórna Fær- eyja og Grænlands um meira svig- rúm til áhrifa á ákvarðanir í þess- um mikilvægu málaflokkum. Lokaúrlausnir í utanríkis- og varnarmálum eru á valdi dönsku ríkisstjórnarinnar. Múte B. Egede, formaður grænlensku landstjórnarinnar, Naalakkersuisut, segir skipun nefndarinnar sýna vilja til að efla innra samstarf ríkjanna en einnig til að viðurkenna ólíka hagsmuni þeirra innan samstarfsins. Með þessu sé ýtt undir að Grænlendingar verði virkari þátttakendur í alþjóðasamstarfi. Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, segir nauðsynlegt að nútímavæða ríkjasambandið með því að stuðla að meiri samvinnu milli þjóðanna þriggja. Fær- eyingar verði varir við sífellt meiri áhuga stórveldanna á landi sínu og væntir lögmaðurinn þess að samstarfs- nefndin verði til að auka áhrif Færeyinga sjálfra á ákvarðanir í öryggis- og varnarmálum sem snerti þá á komandi árum. Hér er með öðrum orðum enn eitt dæmið um nýmæli í norrænum öryggismálum sem brýnt er að skoða ræki- lega frá íslenskum sjónarhóli. Allar ákvarðanir ná- grannaþjóðanna snerta okkur á einn veg eða annan. Sömu sögu er að segja um ákvarðanir hér á landi og hagsmuni þessara þjóða. Til að um trúverðugar varnir Færeyja og Grænlands sé að ræða verður Ísland að standa við hlið þeirra. Hvorki í Færeyjum né á Græn- landi verður flugher eða kafbátaleitarvélum NATO-ríkja sköpuð sambærileg aðstaða og er á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Ákvarðanir um þessa nýskipan í samskiptum stjórn- valda innan konungsríkisins Danmerkur eru ekki teknar í tómarúmi eða að óathuguðu máli. Þær má rekja (1) til nýrrar og sjálfstæðari stöðu Grænlands og Færeyja inn- an ríkjasambandsins, (2) til niðurstaðna fræðilegra rann- sókna danskra stjórnmála- og herfræðinga og (3) til auk- ins strategísks áhuga stórveldanna á Norður-Atlantshafi og Arktis (norðurslóðum). Skömmu áður en ritað var undir Kaupmannahafnar- yfirlýsinguna 4. október kom út bókin Sikkerhedspolitik í Arktis og Nordatlanten þar sem 15 fræðimenn í þremur löndum danska konungsríkisins skrifa fræðilegar greinar sem snúast einkum um áhrif breyttra aðstæðna í öryggis- málum á hagsmuni ríkisins og stjórnarhætti þess. Annar ritstjóra bókarinnar, Jon Rahbek-Clemmensen, lektor við danska Varnarmálaháskólann, hefur lengi stundað rannsóknir á stöðu Grænlands í ljósi breyttra aðstæðna á norðurslóðum. Í grein sinni færir hann rök fyrir nýrri kenningu um að Danir líti ekki á hlut sinn og afskipti á Grænlandi einungis sem „tæki“ til að ná hnatt- rænum strategískum markmiðum heldur sem markmið í sjálfu sér. Sé áhugi Dana á Græn- landi einungis vegna áhrifa strategískrar þýðingar landsins á alþjóðavettvangi hefði afstaða Dana átt að breytast eftir lok kalda stríðsins á tíunda áratugn- um og í upphafi 21. aldar þegar Grænland reyndist ekki lengur „tæki“ í samkeppni stórveldanna. Við blasi að danskir stjórnmálamenn kjósi að standa vörð um konungsríkið vegna þess sjálfs og þeir vilji verja verulegum fjárhæðum í því skyni. Jon Rahbek-Clemmensen segir meirihluta Grænlend- inga líta á aðild að ríkjasambandinu sem „tæki“ til verja velferðarríkið Grænland þar til sjálfstæðir Grænlend- ingar hafi einir burði til að tryggja eigin velferð. Í sam- skiptum Dana og Grænlendinga ríki þögn um fjárhags- legan ávinning af núverandi skipan. Þögnina verði að rjúfa, annars séu öll spilin ekki lögð á borðið. Athugun á norrænum öryggismálum undanfarin umbreytingaár sýnir að nokkur óvissa hefur ríkt um hvaða stefnu samskipti Dana við Færeyinga og þó eink- um Grænlendinga tækju. Spurningar hafa vaknað um hvort öryggis- og varnarmál skuli aðeins ræða við danska embættismenn í Kaupmannahöfn en ekki líta til Nuuk eða Þórshafnar. Nú liggur fyrir að um þrjá jafnréttháa aðila er að ræða þótt málum sé formlega ráðið til lykta í Kaupmannahöfn. Í höfuðborgum landanna verða sér- stakar tengi-skrifstofur um þessi mál og formennska í samstarfsnefndinni færist á milli landanna. Færeyingar sitja á formannsstóli árið 2022. Hér á landi er málum því miður þannig háttað að hvergi, hvorki innan háskóla né annars staðar, er fyrir hendi þekking og því síður stundað rannsóknarstarf sem jafnast á við það sem birtist í danska ritinu fyrrnefnda um öryggismálin á norðurhveli. Þetta er alvarlegur ann- marki á íslenskri hagsmunagæslu hvort heldur litið er til öryggis- og varnarmála eða EES-mála. Þarna ættu þau sem sitja nú og semja stjórnarsáttmála til næstu fjögurra ára úr að bæta. Nýmæli í danska konungsríkinu Til að um trúverðugar varn- ir Færeyja og Grænlands sé að ræða verður Ísland að standa við hlið þeirra. Björn Bjarnason bjorn@bjorn.is Félagsvísindamenn, lög- regluþjónar og fangaverðir komu saman á ráðstefnu á Akureyri 6. október 2021 til að ræða um lög- gæslu, refsingar og afbrotavarnir. Framlag mitt var erindi um, hvernig löggjafinn gæti fækkað verkefnum lögreglunnar, svo að hún gæti ein- beitt sér að þeim, sem brýnust væru. Þetta mætti gera með því að hætta að eltast við þær athafnir manna, sem ættu sér engin fórnarlömb, og nefndi ég í því sambandi vændi, klám, innherjaviðskipti og skatta- hagræðingu. Leiðarljós mitt var frá heilögum Tómas af Akvínas, sem segir í riti sínu um lögin (96. spurning, 2. grein, í þýðingu Þórðar Kristinssonar): „Lög manna eru sett fjölda manna, sem að meiri hluta eru ekki full- komlega dygðugir. Og þess vegna banna mannalög ekki alla þá lesti, sem dygðugir menn forðast, heldur einungis alvarlegri lesti, sem meiri hlutanum er fært að forðast, og eink- um þá, sem eru öðrum til sársauka og sem eru þannig, að væru þeir ekki bannaðir, væri ekki unnt að viðhalda samfélagi manna; þannig banna mannalög morð, þjófnað og þess háttar.“ Ég hef áður rætt hér um vændi og klám, en minni á, að aðstaða vænd- iskvenna og klámleikara hefur snar- batnað við það, að milliliðir eru þar að hverfa úr sögunni. Á netinu geta þessir hópar nú átt viðskipti beint við þá, sem vilja kaupa af þeim þjónustu. Margir eiga hins vegar erfitt með að skilja, að innherjaviðskipti eigi sér ekki alltaf fórnarlömb. En lítum á einfalt dæmi. Hluthafi í fyrirtæki fær innherjaupplýsingar um það á fimmtudegi, að fyrirtækið muni hækka í verði á mánudag. Hann kaupir fleiri hlutabréf og hagnast talsvert, þegar þau hækka. Þá spyrja einhverjir: Töpuðu ekki hinir hlut- hafarnir, sem fengu ekki þessar upp- lýsingar? Svarið er nei. Það er rangt að draga hið háa verð hlutabréfanna á mánudag (sem allir hluthafar njóta) frá hinu lága verði þeirra á fimmtu- dag (sem öllum stóð til boða) og skil- greina það sem tap annarra hluthafa. Þeir eru ekki verr settir en áður. Þeir áttu ekki rétt á, að innherjinn deildi upplýsingum sínum. Þeir eru engin fórnarlömb. Þá er auðvitað gert ráð fyrir, að upplýsingarnar hafi verið fengnar án svika eða blekkinga. .Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Á að refsa fyrir fórn- arlambalaus brot?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.