Morgunblaðið - 09.10.2021, Blaðsíða 22
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Árið 2020, sem að öllu leyti var
markað af kórónuveirunni, lék
fyrirtæki misjafnlega. Þetta birtist
m.a. í nýjum tölum sem Creditinfo
hefur tekið saman í tengslum við
verkefnið Framúrskarandi fyrir-
tæki 2021 sem hleypt verður af
stokkunum 21.
október næst-
komandi.
Sérfræðingar
Creditinfo hafa
m.a. tekið saman
gögn um mið-
gildi EBITDA-
hagnaðar þeirra
fyrirtækja sem
skilað hafa árs-
reikningi síðustu
fimm árin, þ.e.
frá 2016 til og með 2020. Í tölunum
hefur fyrirtækjunum verið raðað
niður eftir atvinnugreinum og sjón-
um sérstaklega beint að sjávar-
útvegi, fjármála- og vátrygginga-
starfsemi, ferðaþjónustu og
byggingarstarfsemi og mannvirkja-
gerð.
„Það vekur sérstaka athygli
hversu mikill gangur hefur verið í
fjármála- og vátryggingastarfsem-
inni. Þar hefur miðgildi EBITDA
hækkað verulega milli ára eða um
224% eftir að hafa lækkað um 30%
milli áranna 2018-2019,“ útskýrir
dr. Gunnar Gunnarsson, forstöðu-
maður fyrir Greiningu og ráðgjöf
hjá Creditinfo. Hann bendir á að
hentugt geti verið að notast við
miðgildi þegar þróun atvinnugreina
er skoðuð. Það virki betur en að
horfa til meðaltals, þar sem fáein
fyrirtæki geti í slíku mati skekkt
heildarmyndina verulega. Miðgildið
taki öfgarnar á jöðrunum út úr
jöfnunni.
Miðgildið segir sögu
„Þetta dregur úr hættunni á því
að örfá eða jafnvel eitt afgerandi
fyrirtæki skekki myndina. Við
sjáum t.d. í tölunum í fjármála-
þjónustunni að samanlögð
EBITDA stóru viðskiptabankanna
þriggja lækkaði úr 61 milljarði árið
2019 í 42 milljarða árið 2020. Hins
vegar hækkaði samanlögð
EBITDA allra annarra fjármála-
fyrirtækja í greiningunni hjá okkur
(133 fyrirtæki og eignarhaldsfélög
ekki tekin með í reikninginn) úr 14
milljörðum 2019 í 41 milljarð í
fyrra,“ útskýrir Gunnar. Sömu töl-
ur sýna að EBITDA jókst milli ára
hjá 62% fyrirtækja í þessari grein.
Með sama hætti og fjármála-
starfsemin sker sig úr með bættu
gengi vitna tölurnar um hvers kon-
ar auðnubrigði urðu í ferðaþjónust-
unni á síðasta ári.
„Miðgildi EBITDA í ferðaþjón-
ustu var 2,8 milljónir króna árið
2019 en reyndist -17 þúsund krón-
ur árið 2020. Það er lækkun sem
nemur 101%,“ segir Gunnar.
Ekki alslæmt í ferðaþjónustu
Athygli vekur að í hópi þeirra
fyrirtækja sem uppfylla skilyrðin
um að teljast framúrskarandi í
ferðaþjónustu hækkaði um 4% milli
ára og fór úr 41 milljón króna í 43
milljónir. „Það er ljóst að höggið er
mikið á ferðaþjónustuna. Það sést
m.a. á því að hlutfall þeirra fyr-
irtækja sem voru með jákvæða
EBITDA fór úr 73% í 50%,“ segir
Gunnar.
Sé litið til byggingastarfsemi og
mannvirkjagerðar hækkaði mið-
gildi EBITDA um 16% milli ára og
hlutfall þeirra fyrirtækja sem
reyndust með jákvæða EBITDA í
greininni fór úr 77% í 79%. Í sjáv-
arútvegi var hlutfallið óbreytt en
miðgildi EBITDA lækkaði hins
vegar um 11%.
Stórt mengi
Í greiningu Creditinfo er unnið
með stórt mengi fyrirtækja og ætti
hún því að gefa góðan þverskurð af
íslensku viðskiptalífi. Þannig eru
502 fyrirtæki að baki úttektinni á
stöðu sjávarútvegsins, í fjármála-
og vátryggingastarfsemi eru þau
133. Í ferðaþjónustu eru fyrirtækin
951 og í byggingastarfsemi og
mannvirkjagerð hvorki fleiri né
færri en 1.699.
Framúrskarandi fyrirtæki
sigldu í gegnum faraldurinn
- Fjármála- og tryggingafyrirtæki upplifa gósentíð - Ferðaþjónustan haltrar
Þróunmiðgildis EBITDAeftir atvinnugreinum
Reikningsárin 2016 til 2020, m.kr.
14
12
10
8
6
4
2
0
2016 2017 2018 2019 2020
Heimild: CreditinfoByggingarstarfsemi og mannvirkjagerð
Ferðaþjónusta
Fjármála- og vátryggingarstarfsemi
Sjávarútvegur
Framúrskarandi 2021
» 842 fyrirtæki reyndust
framúrskarandi 2020
» Senn kemur í ljós hversu
mörg þau verða í ár
» Listinn verður kynntur 21.
október á viðburði í Hörpu
» Samhliða útgáfu listans gef-
ur Morgunblaðið út veglegt
blað þar sem listinn er birtur
og rætt við forsvarsmenn fyrir-
tækja á listanum
Gunnar
Gunnarsson
22 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
STUTT
« Nýskráningar einkahlutafélaga voru
6% færri í september 2021 en sama
mánuð ári fyrr. Voru skráningarnar nú
250 talsins. Nýskráningum í fjármála-
og vátryggingastarfsemi fjölgaði hins
vegar úr 36 í 54 frá fyrra ári. Þeim
fækkaði hins vegar úr 42 í 25 í heild- og
smásöluverslun og viðgerðum á vél-
knúnum ökutækjum.
Nýskráningum einka-
hlutafélaga fækkar
Elon Musk, stofnandi Tesla, segir
það munu taka heiminn 30-40 ár að
rafvæða bílaflotann en nú séu um
tveir milljarðar fólksbifreiða og at-
vinnubifreiða í notkun í heiminum.
Með hliðsjón af endurnýjun og hlut-
falli rafbíla í dag, sem sé innan við
1%, taki rafvæðingin e.t.v. 30-40 ár.
Þetta kom fram í svörum Musks
við spurningum úr sal eftir að hann
hafði farið yfir starfsemina í tilefni
aðalfundar Tesla árið 2021.
Höfuðstöðvarnar til Texas
Meðal þess sem kom fram í máli
Musks er að fyrirtækið hyggst flytja
höfuðstöðvarnar frá Kaliforníu til
Austin í Texas. Fyrirtækið hafi reist
þrjár nýjar bílamiðjur í Texas,
Shanghai og Berlín og lagt allt kapp
á þróun Tesla Model 3 rafbílsins. All-
ir hefðu verið kallaðir upp á dekk í
þessu skyni en ella hefði Tesla ekki
lifað af. Þróun sólarhlaðna hefði set-
ið á hakanum en færi nú í forgang.
Musk var jafnframt spurður
hvaða áhrif aðgengi að litíni hefði á
smíði Tesla á litínjónarafhlöðum.
Svar Musks var að litín væri auð-
fundið og aðgengið ekki vandamál.
Fyrirtækið myndi áfram nota nikkel
í orkumeiri rafhlöður en til framtíðar
væri stefnt að notkun járns í rafhlöð-
ur Tesla-bifreiða með hefðbundinni
drægni. Sagði Musk fyrirtækið þeg-
ar farið að endurvinna rafhlöður úr
fyrstu kynslóðum Tesla.
Verði sölumesti bíll heims
Musk vék einnig að markaðssetn-
ingu á rafbílnum Tesla Y. Stefnan
væri að sá bíll yrði sá söluhæsti í
heiminum á næsta ári í dollurum
talið og í fjölda eintaka árið 2023.
Vegna þrýstings á aðfangakeðjur
hefði fyrirtækið þurft að hækka verð
á bílum. Meðal annars vegna mikils
kostnaðar við fraktflug.
Musk væntir þess að spurn eftir
orkustöðvum á heimilum verði með
tímanum jafn mikil og eftir rafbílum.
En stöðvarnar geymi orku sem sé
þýðingarmikið ef framboð endurnýj-
anlegrar orku er óstöðugt.
Rafbílavæðingin
tekur 30-40 ár
- Musk boðar bílarafhlöður úr járni
AFP
Athafnamaður Musk hefur sem
endranær mörg járn í eldinum.
Birna Ósk Ein-
arsdóttir, fram-
kvæmdastjóri
sölu- og þjón-
ustusviðs hjá Ice-
landair Group,
hefur ákveðið að
láta af störfum hjá
fyrirtækinu. Kom
þetta fram í til-
kynningu til Kaup-
hallar Íslands
snemma í gærmorgun. Skömmu síðar
tilkynnti hún á samfélagsmiðlum að
hún hyggi á flutninga til Hollands þar
sem hún mun á nýju ári taka við starfi
á vettvangi framkvæmdastjórnar
APTM, dótturfélags flutningarisans
Maersk. Í tilkynningu frá Icelandair
segir að Birna muni aðstoða fyrir-
tækið við „yfirfærslu verkefna þegar
þar að kemur“. Ekki kemur fram
hvort ráðið verði í stöðu Birnu Óskar
eða hvort uppstokkun verði á ábyrgð-
arsviðum þeirra sem í fram-
kvæmdastjórn félagsins sitja.
Átta manns sitja í framkvæmda-
stjórn Icelandair Group en í liðnum
mánuði var greint frá því að Jens
Þórðarson, framkvæmdastjóri flug-
rekstrarsviðs félagsins, hefði ákveðið
að láta af störfum. Ekki liggur fyrir
hvaða verkefni bíða hans.
Verði ekki gerð uppstokkun á verk-
efnum framkvæmdastjórnar bíður
forstjórans það verkefni að fylla stöð-
ur Jens og Birnu Óskar.
Í maí var greint frá því að Eva Sól-
ey Guðbjörnsdóttir hefði ákveðið að
láta af störfum sem framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs flugfélagsins.
Hún hefur tekið við starfi aðstoð-
arforstjóra og fjármálastjóra at-
North, sem áður hét Advania Data
Centers. Við starfi hennar tók Ívar S.
Kristinsson.
Tíðar breyt-
ingar hjá
Icelandair
Birna Ósk
Einarsdóttir
- Framkvæmda-
stjóri sölu- og þjón-
ustusviðs hættir
9. október 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 128.69
Sterlingspund 175.01
Kanadadalur 102.3
Dönsk króna 20.0
Norsk króna 14.971
Sænsk króna 14.667
Svissn. franki 138.91
Japanskt jen 1.1556
SDR 181.61
Evra 148.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 184.2675