Morgunblaðið - 09.10.2021, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021
✝
Aðalheiður
Árnadóttir
fæddist niðri á
Stekkjum í Hnífs-
dal 19. desember
1928.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Vestfjarða á Ísa-
firði 28. september
2021.
Foreldrar henn-
ar voru Guðmund-
ína Rannveig Ragúelsdóttir, f.
21. júní 1898, d. 4. maí 1986, og
Sigurður Árni Jónsson, f. 10.
júlí 1900, d. 9. apríl 1987. Hún
á einn bróður á lífi, Hörð Lín-
dal Árnason, f. 3. mars 1934.
Látin eru Jón Guðmundur
Árnason, f. 4. febr. 1927, d. 28.
júlí 1935, og Júlíana Ólöf Árna-
dóttir, f. 7. júní 1930, d. 3. okt.
1953, og Rakel Sólborg Árna-
dóttir, f. 27. ágúst 1936, d. 29.
sept. 1999. Frá fyrra hjóna-
bandi móður hennar eru Sig-
urborg Helgadóttir, f. 7.10.
1920, d. 21.1. 2002, Júlíus Helgi
Helgason, f. 4.2. 1923. d. 21.10.
2011, og Matthías Helgason, f.
11.4. 1918, d. 6.5. 1983.
Hinn 28. maí 1949 giftist hún
Skaftason, þau áttu tvö börn,
síðari maki var Sigurjón Þor-
grímsson sem er látinn, hann
átti tvær dætur. Aðalheiður og
Friðbjörn ólu upp bróð-
urdóttur Friðbjarnar, dóttur
Páls Friðbjarnarsonar, og syst-
urdóttur Aðalheiðar, dóttur
Júlíönu, Rannveigu Sig-
urbjörgu Pálsdóttur, f. 24.6.
1948, maki Ernir Ingason, þau
eiga þrjú börn.
Heiða eins og Aðalheiður
var ávallt nefnd fór suður til
Reykjavíkur 16 ára gömul og
hóf störf á Landakotsspítala og
síðar á sjúkrahúsinu Hvíta-
bandinu. Hugur hennar stóð til
hjúkrunarnáms en breyttar að-
stæður heima fyrir urðu til
þess að ekki gat orðið af nám-
inu og hún fluttist aftur vestur.
Fyrir vestan starfaði hún m.a.
við fisk- og rækjuvinnslu. Síðar
vann hún við mötuneyti
Menntaskólans á Ísafirði, við
afgreiðslu í Gamla bakaríinu
og við matseld við Sjúkrahúsið
á Ísafirði. Eftir að Heiða flutti
suður árið 1982 starfaði hún á
Reykjalundi og síðar við mat-
seld í Verslunarskólanum, þar
starfaði hún í fimmtán ár þar
til hún hætti sökum aldurs.
Síðustu æviárin bjó Heiða á
Hlíf 1 á Ísafirði.
Útför Aðalheiðar fer fram
frá Ísafjarðarkirkju í dag, 9.
október 2021, og hefst athöfnin
klukkan 14.
Friðbirni Frið-
bjarnarsyni, f. 11.
mars 1923, d. 30.
sept. 1994. Þau
slitu samvistir.
Foreldrar Frið-
bjarnar voru Frið-
björn Helgason, f.
5. okt. 1883, d. 24.
sept. 1946, og Sól-
veig Steinunn
Pálsdóttir, f. 30.
nóv. 1899, d. 21.
feb. 1993. Þau bjuggu á Sút-
arabúðum í Grunnavík.
Börn Aðalheiðar og Frið-
bjarnar eru: 1) Friðbjörn Heið-
ar, f. 31.12. 1949, d. 3.3. 1994,
maki hans var Jórunn Jóhanna
Þórðardóttir, þau eiga þrjú
börn. 2) Sólveig, f. 16.8. 1952,
maki Aðalsteinn Sigfússon,
þau eiga þrjú börn. 3) Árni
Júlíus, f. 23.11. 1953, maki
Ágústa Marísdóttir, þau eiga
eina dóttur. 4) Snæbjörn, f.
3.8. 1955, maki hans var Guð-
rún Valgarðsdóttir, þau slitu
samvistir, þau eiga tvær dæt-
ur, síðari kona er Anna Irena
Smoter, hún á einn son. 5) Að-
albjörg, f. 10.7. 1960, fyrri
maki var Magnús Hafsteinn
Hvað segir þú fallegt? Þannig
heilsaði Heiða amma mér þegar
ég kom í heimsókn. Hún var
glæsileg kona, sem eftir var tekið
hvert sem hún kom og hélt hún
þeirri reisn til síðasta dags. Hún
var hrókur alls fagnaðar og
heyrðist hláturinn í henni langar
leiðir. Eins lá henni hátt rómur
þegar hún talaði og meinti hvert
einasta orð og hafði sterkar
skoðanir á flestu. Hún átti erfitt
með að standast fallega skó og
helst varð hún að eiga hanska og
veski í stíl. Eins átti hún urmul
af alls konar glingri og skarti.
Fötin saumaði hún svo á sig
sjálf, nýmóðins dragtir og kjóla.
Í minningunni sé ég ömmu að-
eins fyrir mér á Bakkaveginum í
Hnífsdal, með svuntu annaðhvort
í þvottahúsinu, sem var heilög
stund, eða í eldhúsinu. Allt sem
kom frá eldhúsinu var borið á
borð á smekklegan hátt. Ekki
man ég eftir henni sitjandi við
borðið og hún borðaði oftast þeg-
ar allir voru búnir. Svo voru
bakstursdagarnir og á sunnu-
dögum voru sko kaffiboð, sem í
dag væri nær að kalla ferming-
arveislu. Hvern sunnudag kom
stórfjölskyldan saman og drakk
heitt súkkulaði úr mánaðarboll-
unum og gos úr kristalsglösum.
Borðið svignaði undan öllum
kræsingunum hennar. Ég var
svo hjá ömmu og afa Bjössa í
einn vetur á meðan mamma
stundaði nám í Íþróttakennara-
skólanum að Laugarvatni. Ég
hef verið 4 eða 5 ára. Ég minnist
þess ekki að hafa fengið ein-
hverja sérmeðferð þar, varð ein
af börnunum þeirra. Ég þurfti að
gegna og fara eftir settum
reglum. Þar leið mér alltaf vel,
mikið líf og fjör á stóru heimili.
Þar var ég eins og blómi í eggi og
fann fyrir væntumþykju frá öll-
um á Bakkaveginum. Ekki má
gleyma garðinum í Hnífsdal sem
var smekklega hannaður og vel
hirtur. Ekki kom annað til greina
en að fá besta skít sem völ var á í
garðinn hennar Heiðu Árna og
lét hún senda eftir honum alla
leið til Grunnavíkur. Þangað
þurfti hún líka að komast á
haustin til berja því þar voru þau
mun betri en úr Djúpinu eða
annars staðar frá. Heimili ömmu
voru alla tíð fagurlega skreytt,
stífaðir dúkar á fægðum borðum.
Bónuð gólfin og gluggatjöldin
svo glæsilega saumuð og hönnuð
af henni, að þau hæfðu kónga-
fólki. Við sem þekktum, vitum að
amma átti það til að segja upp-
hátt það sem hún hugsaði og gat
það stundum verið bagalegt.
Hún byrjaði í megrun árið 1970
og stóð sá megrunarkúr til ársins
2020. Hún lét mig vita ef ég varð
of búttuð og eins ef ég varð of
grönn því þá væru hrukkurnar
mínar bara meira áberandi. En
þetta fór inn um annað og út um
hitt. Svona var hún bara og varla
færi ég að breyta því. Amma
mín, ég vissi að ég væri að kveðja
Aðalheiður
Árnadóttir
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Tökum á móti ástvinum í hlýlegu
og fallegu umhverfi
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt
húsnæði og nýir glæsilegir bílar.
Sjá nánari upplýsingar á utfor.is
Útfararþjónusta
Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina
– Þjónusta um allt land og erlendis
– Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum
í yfir 70 ár
Guðný Hildur
Kristinsdóttir
Framkvæmdastjóri
Ellert Ingason
Sálmaskrár,
útfararþjónusta
Emilía Jónsdóttir
Félagsráðgjöf,
útfararþjónusta
Guðmundur
Baldvinsson
Útfararþjónusta
Lára Árnadóttir
Útfararþjónusta
Sigurður Bjarni
Jónsson
Útfararþjónusta
Magnús Sævar
Magnússon
Útfararþjónusta
Jón G. Bjarnason
Útfararþjónusta
Helga
Guðmundsdóttir
Útfararþjónusta
Elsku eiginmaður minn, pabbi okkar,
tengdapabbi og afi,
SNORRI BALDURSSON
líffræðingur,
Ytri-Tjörnum í Eyjafirði,
lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar
miðvikudaginn 29. september.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju í Reykjavík föstudaginn
15. október klukkan 13.
Elsa Friðrika Eðvarðsdóttir
Heimir Snorrason Signý Kolbeinsdóttir
Narfi Þorsteinn Snorrason Svava Þorleifsdóttir
Baldur Helgi Snorrason Sunna Kristín Hannesdóttir
Snorri Eldjárn Snorrason Alda Valentína R. Hafsteinsd.
Snorri, Svava, Þorleifur Kári, Benjamín Eldjárn,
Dagur Snorri, Lovísa Guðrún
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓHANN HELGASON,
fyrrv. skrifstofustjóri, Akureyri,
lést sunnudaginn 3. október á
dvalarheimilinu Hlíð Akureyri.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 14. október klukkan 13.
Athöfninni verður streymt á facebooksíðunni Jarðarfarir í
Akureyrarkirkju – Beinar útsendingar.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Minningarsjóð á vegum
Knattspyrnufélags Akureyrar.
Sigríður Árnadóttir
Stefán Jóhannsson Karólína Margrét Másdóttir
Helgi Jóhannsson Kristín Sólveig Eiríksdóttir
Hólmfríður Jóhannsdóttir Unnar Vilhjálmsson
Sigríður Jóhannsdóttir Sigurður Sigurðsson
Eiríkur S. Jóhannsson Friðrika Tómasdóttir
Jónína Þuríður Jóhannsd. Guðmundur Örn Sverrisson
barnabörn og barnabarnabörn