Morgunblaðið - 09.10.2021, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.10.2021, Blaðsíða 44
44 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021 Undankeppni HM karla J-RIÐILL: Ísland – Armenía...................................... 1:1 Þýskaland – Rúmenía .............................. 2:1 Liechtenstein – N-Makedónía ................ 0:4 Staðan: Þýskaland 7 6 0 1 19:3 18 N-Makedónía 7 3 3 1 15:6 12 Armenía 7 3 3 1 8:10 12 Rúmenía 7 3 1 3 10:8 10 Ísland 7 1 2 4 7:15 5 Liechtenstein 7 0 1 6 2:19 1 E-RIÐILL: Tékkland – Wales ..................................... 2:2 Eistland – Hvíta-Rússland ...................... 2:0 Staðan: Belgía 16, Tékkland 8, Wales 8, Eistland 4, Hvíta-Rússland 3. G-RIÐILL: Lettland – Holland ................................... 0:1 Gíbraltar – Svartfjallaland ...................... 0:3 Tyrkland – Noregur................................. 1:1 Staðan: Holland 16, Noregur 14, Tyrkland 12, Svartfjallaland 11, Lettland 5, Gíbraltar 0. H-RIÐILL: Kýpur – Króatía ....................................... 0:3 Malta – Slóvenía ....................................... 0:4 Rússland – Slóvakía ................................. 1:0 Staðan: Króatía 16, Rússland 16, Slóvenía 10, Sló- vakía 9, Malta 4, Kýpur 4. Suður-Ameríka Venesúela – Brasilía................................. 1:3 Úrúgvæ – Kólumbía..................................0:0 Ekvador – Bólivía..................................... 3:0 Paragvæ – Argentína............................... 0:0 Staðan: Brasilía 27, Argentína 19, Ekvador 16, Úrúgvæ 16, Kólumbía 14, Paragvæ 12, Perú 11, Síle 7, Bólivía 6, Venesúela 4. >;(//24)3;( Subway-deild karla Grindavík – Þór Ak .............................. 69:61 Tindastóll – Valur................................. 76:62 Staðan: Njarðvík 1 1 0 107:82 2 Tindastóll 1 1 0 76:62 2 KR 1 1 0 128:117 2 Stjarnan 1 1 0 113:102 2 Grindavík 1 1 0 69:61 2 Keflavík 1 1 0 101:99 2 Vestri 1 0 1 99:101 0 Þór Ak. 1 0 1 61:69 0 Breiðablik 1 0 1 117:128 0 ÍR 1 0 1 102:113 0 Valur 1 0 1 62:76 0 Þór Þ. 1 0 1 82:107 0 1. deild karla Hamar – Skallagrímur......................... 78:64 Höttur – Álftanes ................................. 88:84 ÍA – Selfoss ........................................... 66:87 Sindri – Hrunamenn ............................ 92:73 Fjölnir – Haukar ................................ 68:111 Staðan: Haukar 3 3 0 321:178 6 Höttur 3 3 0 312:234 6 Álftanes 3 2 1 271:226 4 Selfoss 3 2 1 267:250 4 Sindri 3 2 1 251:238 4 Hamar 3 1 2 229:243 2 Fjölnir 3 1 2 231:281 2 Hrunamenn 3 1 2 242:313 2 Skallagrímur 3 0 3 208:267 0 ÍA 3 0 3 211:313 0 1. deild kvenna Ármann – Aþena/UMFK..................... 87:50 Staðan: Þór Ak. 2 2 0 157:135 4 Ármann 2 1 1 155:128 2 ÍR 1 1 0 73:57 2 Tindastóll 1 1 0 89:76 2 Snæfell 2 1 1 141:152 2 Aþena/UMFK 2 1 1 129:136 2 Fjölnir b 0 0 0 0:0 0 KR 1 0 1 73:74 0 Hamar/Þór 1 0 1 76:89 0 Stjarnan 1 0 1 57:73 0 Vestri 1 0 1 49:79 0 >73G,&:=/D HANDKNATTLEIKUR Undankeppni EM kvenna: Ásvellir: Ísland – Serbía......................... S16 Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Víkin: Víkingur – Valur.......................... L14 Eyjar: ÍBV – KA ..................................... S16 Sethöllin: Selfoss – Afturelding........ S19.30 1. deild karla, Grill 66-deildin: Austurberg: ÍR – Þór............................. L18 Digranes: Kórdrengir – Fjölnir ............ L18 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin: Smárinn: Breiðablik – Grindavík...... S18.15 Ljónagryfjan: Njarðvík – Fjölnir ..... S19.15 Borgarnes: Skallagrímur – Valur..... S19.15 Blue-höllin: Keflavík – Haukar......... S20.15 1. deild kvenna: MG-höllin: Stjarnan – KR ..................... L17 Sauðárkrókur: Tindastóll – ÍR.............. L18 Ísafjörður: Vestri – Fjölnir b................. L18 UM HELGINA! vann 69:61 eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 47:30. Grindvíkingar skoruðu aðeins 22 stig í seinni hálfleik en það var nóg. Þeir héldu forystunni, voru sterk- ari á lokamínútunum og fögnuðu átta stiga sigri. Nahor Sharabani skoraði 15 stig fyrir Grindavík og Kristinn Pálsson 13 stig. Ólafur Ólafsson var með 9 stig og 9 fráköst. Hjá Þórsurum var Jordan Connors stigahæstur með 23 stig og níu fráköst, þá skoraði Ragnar Ágústsson 12 stig. Tindastóll vann Val, 76:62, í úrvals- deild karla í körfuknattleik, Subway-deildinni, í síðasta leik fyrstu umferðar deildarinnar í Sík- inu á Sauðárkróki í gærkvöld. Tindastóll var yfir í hálfleik, 45:35, og var með sextán stiga for- ystu eftir þriðja leikhluta. Hittni Valsmanna var ekki til eftirbreytni en liðið skoraði fjórar þriggja stiga körfur úr 30 tilraunum. Þá hittu Valsmenn úr fimm af fjórtán víta- skotum sínum. Javon Bess skoraði 19 stig fyrir Tindastól og Sigurður Gunnar Þor- steinsson skoraði 16 stig og tók þrettán fráköst. Þá skoraði írski framherjinn Taiwo Badmus 13 stig og tók átta fráköst. Pablo Cesar var stigahæstur Valsmanna með 18 stig og Kári Jónsson skoraði 16 stig. Kristófer Acox skoraði 13 stig og tók 15 frá- köst. _ Spánverjinn Ivan Aurrecoec- hea skoraði 17 stig fyrir Grindavík gegn sínum gömlu félögum þegar liðið tók á móti Þór frá Akureyri og Sannfærandi sigur Tindastóls Morgunblaðið/Eggert Tindastóll Sigurður Gunnar Þor- steinsson mætir sterkur til leiks. HANDBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Rut Arnfjörð Jónsdóttir lék tíma- mótalandsleik í Svíþjóð á fimmtu- dag eins og fram hefur komið og á nú að baki 100 A-landsleiki. Sá 101. bætist væntanlega við á móti Serb- um á Ásvöllum á morgun. „Ég er ótrúlega stolt og ánægð að hafa náð þessum áfanga. Ég vissi ekki að það væru svona fáar konur sem hefðu náð þessu. Ég vissi svo sem að það væri farið að styttast í 100. leikinn. Ég hef einnig gaman af því að hafa náð að spila með mörg- um þeirra sem hafa náð þessum áfanga. Mér finnst alltaf vera mikill heiður að spila fyrir Íslands hönd,“ sagði Rut þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hennar í gær þegar hún var stödd ásamt íslenska hópnum á Arlanda-flugvellinum í Stokkhólmi. Svíþjóð vann Ísland 30:17 í fyrsta leik liðanna í undankeppni Evrópu- mótsins. Þótt úrslitin hafi ekki verið góð segist Rut ánægð með að tíma- mótaleikurinn hafi verið mótsleikur á móti einu besta liði í heimi. „Mér fannst gaman að ganga inn á völlinn. Full höll, flott umgjörð og andstæðingurinn sterkt lið. Vonandi var það aukahvatning fyrir ungu leikmennina okkar að upplifa þetta andrúmsloft í undankeppni. Von- andi hvetur þetta þær frekar til að reyna að komast á þennan stað sem Svíar eru um þessar mundir. Mér finnst skemmtilegt að vera með þessum stelpum í landsliðinu því þær leggja mikið á sig og eru hæfi- leikaríkar.“ Hvatning að mæta þeim bestu Rut fékk sjálf að upplifa stórmót sem frekar ungur leikmaður þegar Ísland komst í fyrsta skipti í loka- keppni árið 2010. Reyndist það henni aukahvatning til að komast langt í handboltanum? „Mér fannst það. Algerlega. EM í Danmörku var svakalega stórt dæmi og ég var frekar ung. Við vor- um margar í því liði að spila erlend- is og það var gamn að mæta stelp- um sem maður hafði fylgst með lengi. Ég óska þess að þær sem eru í kvennalandsliðinu í dag fái líka að upplifa stórmót með A-landsliðinu,“ sagði Rut en eins og fram hefur komið er nú unnið eftir áætlun hjá HSÍ til að kvennalandsliðið geti aft- ur barist um að komast á stórmót eftir nokkur ár líkt og liðið gerði um tíma. Hún segir því ekki miklar vonir hafa verið bundnar við að vinna Svía á útivelli sem léku um verðlaun á Ólympíuleikunum í ágúst. „Við vissum að við værum að mæta ógnarsterku liði. Þær sænsku hafa verið að spila vel og voru mjög góðar á ÓL. Þetta er mjög vel spil- andi lið sem hefur fengið mikinn tíma saman. Enda er góð stemning í kringum liðið og þær fengu góðan stuðning á leiknum. Við hefðum að sjálfsögðu viljað gera örlítið betur. Okkur langar að komast á þennan stað sem Svíarnir eru á en þetta er staðan. Við erum í uppbyggingu og það tekur tíma fyrir þessar ungu að aðlagast. En mér líst vel á margt í okkar leik og þar er fullt jákvætt sem hægt er að taka með sér. Það hefur rosalega mikið að segja fyrir landslið að fá tíma til að vinna saman. Ef dagarnir sem sænska lið- ið hefur fengið eða okkar landslið eru bornir saman þá er mikill mun- ur. Þær eru auk þess atvinnumenn og lifa af þessu. Það er allt annað dæmi en að vera í fullri vinnu með boltanum.“ Serbar á öllum stórmótum Fram undan er næsti leikur í undankeppninni á móti Serbíu á morgun klukkan 16. „Ég hef ekki séð þær enn þá en serbneska liðið er einnig lið sem hefur verið á öllum stórmótum und- anfarin ár. Margir leikmenn þeirra spila með stórum félögum sem eru í Evrópukeppnum. Við eigum eftir að sjá hvernig þær mæta í leikinn. Við ætlum að gera betur en gegn Svíum. Við erum að reyna að bæta okkar leik og viljum vera jákvæðar í kringum uppbygginguna. Vonandi hittum við á góðan leik gegn Serbíu. Ég hvet alla sem hafa tök á til að mæta á leikinn og taka með sér unga iðkendur sem eru að æfa handbolta,“ sagði Rut enn fremur. Vissi ekki að svo fáar hefðu náð 100 leikjum - Reynt að halda í jákvæðnina í kringum uppbyggingu landsliðsins Morgunblaðið/Eggert Á Ásvöllum Rut Jónsdóttir leikur sinn 101. landsleik þegar Ísland mætir Serbíu í Hafnarfirði á morgun. Rut Jónsdóttir varð tíunda lands- liðskona Íslands í handknattleik frá upphafi til að spila 100 A-landsleiki þegar hún lék með landsliðinu gegn Svíum í undankeppni EM í Eskils- tuna á fimmtudaginn. Hrafnhildur Skúladóttir á leikja- metið en hún spilaði 170 landsleiki fyrir Íslands hönd. Þessar tíu eiga 100 leiki að baki: Hrafnhildur Skúladóttir............. 170 Arna Sif Pálsdóttir...................... 150 Hanna Guðrún Stefánsdóttir ..... 142 Dagný Skúladóttir....................... 119 Berglind Íris Hansdóttir............. 108 Þórey Rósa Stefánsdóttir ........... 106 Karen Knútsdóttir....................... 103 Anna Úrsúla Guðmundsd. .......... 102 Rakel Dögg Bragadóttir ............ 102 Rut Jónsdóttir .............................. 100 Rut sú tíunda til að spila 100 landsleiki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.