Morgunblaðið - 09.11.2021, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021
✝
Edda Eyfeld
fæddist 24. apr-
íl 1941 í Reykjavík.
Hún lést 15. október
2021 í Reykjavík.
Móðir Margrét
Emilía Þórðardóttir
Eyfeld, f. 7. okt.
1908, d. 24. júlí
1972. Sammæðra
systkin: Guðný
Petrína Steingríms-
dóttir, f. 31. jan.
1931, d. 30. okt. 1962. Faðir: Fer-
dínand Ríkharð Eyjólfsson Ey-
feld, f. 30. okt. 1899, d. 15. des.
1946. Samfeðra systkin: Halldór
Pétur Ferdinandsson Eyfeld, f.
28. júní 1922, d. 3. maí 2007, Sól-
veig Eyfeld Ferdínandsdóttir, f.
17. apríl 1924, d. 12. maí 1981,
Eyjólfur Ferdinandsson Eyfeld,
f. 29. ágúst 1927, d. 23. feb. 1993,
Kristín Hulda Eyfeld, f. 29. jan.
1935, d. 23. des. 1998.
Makar og börn: Barnsfaðir
Frantz Adolph Håkansson, f. 14.
okt. 1939. Barn: Hafdís Huld Ey-
feld Håkansson, f. 27. des. 1956.
Fyrrum eiginmaður (gift 1.
ágúst 1959) Ómar Konráðsson, f.
13. júní 1935, d. 14. ágúst 2011.
Börn: Ásta Ómarsdóttir, f. 12.
Alexander Einarsson, f. 4. sept.
1992, Aron Bjarni Einarsson, f. 4.
sept. 1992.
Barnabarnabörn: Kristín Julia
Fanndal, f. 20. des. 2011, Alex-
ander Þór Aronsson, f. 1. júní
2015. Barn Ásta Ómarsdóttir, f.
12. sept. 1960. Fyrrum eigin-
maður (gift 28. nóv. 1990) Ómar
Þröstur Richter, f. 17. feb. 1958.
Barnabörn: Ómar Þröstur Rich-
ter, f. 28. nóv. 1984, Erla Björk
Richter, f. 7. nóv. 1990. Barn:
Ferdinand Ríkhard Eyfeld
Ómarsson, f. 31. okt. 1961, d. 21.
apríl 2006. Sambúð slitið Sigríð-
ur Ragna Jóhannsdóttir, f. 9.
mars 1963. Barnabörn: Gunn-
hildur Edda Ferdinandsdóttir, f.
19. júlí 1985, Jóhann Eyfeld
Ferdinandsson, f. 16. nóv. 1986.
Barnabarnabörn: Lovísa Björt
Kristjánsdóttir, f. 9. apríl 2006,
Kamilla Ósk Kristjánsdóttir, f. 1.
feb. 2011, Jasmín Líf Kristjáns-
dóttir, f. 14. feb. 2014, Ívar Þór
Böðvarsson Kristjánsson, f. 30.
jan. 2019, Lea Björk Jóhanns-
dóttir, f. 14. feb. 2008, Elíana Dís
Jóhannsdóttir, f. 28. maí 2012.
Barn: Hrund Ómarsdóttir, f. 10.
nóv. 1972. Barnabörn: Omar
Tewari, f. 27. jan. 1997, Abh-
ishek Sandeep Pusala, f. 19. maí
2001.
Útförin fór fram 25. október
2021.
sept. 1960, Ferdin-
and Ríkhard Eyfeld
Ómarsson, f. 31.
okt. 1961, d. 21. apr-
íl 2006, Hrund Óm-
arsdóttir, f. 10. nóv.
1972.
Barnabörn,
barnabarnabörn og
barnabarnabarna-
barn: Barn: Hafdís
Huld Eyfeld Håk-
ansson, f. 27. des.
1956. Barnsfaðir Jóhannes
Johnsen, f. 27. júlí 1953. Barna-
börn: Svanhvít Edda Johnsen, f.
2. nóv. 1975, Elísa Margrét
Johnsen, f. 23. mars 1978.
Barnabarnabörn: Emilia Huld
Johnsen, f. 1. jan. 1997, Ívan Elís
Johnsen, f. 3. maí 2005, Alísa
Myrra Bjarnadóttir, f. 23. jan.
2008, Indía Marý Bjarnadóttir, f.
17. júní 2011, Dísella Maren
Bjarnadóttir, f. 9. sept. 2013, Ev-
an Ernir Bjarnason, f. 1. des.
2016, Bjarmi Snær Bjarnason, f.
19. júlí 2019, Brimir Sær Bjarna-
son, f. 19. júlí 2019.
Barnabarnabarnabarn: Óliver
Leó Johnsen, f. 15. nóv. 2017.
Barnsfaðir Einar Karl Karlsson,
f. 2. feb. 1963. Barnabörn: Ísak
Elskuleg móðir mín Edda Ey-
feld lést á Hrafnistu 15. október
2021. Það er erfitt að kveðjast og
sérstaklega núna eftir þetta Co-
vid-ástand, sem hefur hindrað
okkur sem búum hvor í sínu land-
inu í að hittast. Ætlunin var að
koma til Íslands núna í nóvember
til að hitta mömmu og sjá hvernig
hún hefði það á Hrafnistu. En
enginn veit hvenær kallið kemur
og nú er ég hér að kveðja mömmu
í hinsta sinn. Minningarnar um
yndislega móður og ömmu
barnanna minna eru óteljandi og
fátækleg orð mín hér því aðeins
eins og dropi í hafið. Frá barn-
æsku koma upp minningar um
gullfallega og blíða konu, fallegt
heimili, fyrirmyndarhúsmóður,
besta matinn, bestu terturnar og
bestu smákökurnar. Mamma var
mikil jólamanneskja og dugnað-
arforkur, hún valdi alltaf að und-
irbúa jólin á nóttunni, þrífa allt
húsið hátt og lágt, baka tertur og
frysta, baka heilan helling af
smákökum. Svo var mikil hátíð á
jólunum þegar öll fjölskyldan
safnaðist saman. Hún vildi hafa
alla fjölskylduna í kringum sig og
hefði helst viljað að við byggjum
öll saman sem ein stór fjölskylda.
Hún tók mikinn þátt í lífi mínu
þegar ég var sjálf að stofna fjöl-
skyldu, ég og mamma sátum
margar stundir saman í stofunni
að sauma rúmföt í vögguna og
barnatreyjur handa litla kúrek-
anum sem var væntanlegur í
heiminn. Hún og tilvonandi eig-
inmaður minn flugu til Glasgow
til að kaupa allt sem þurfti fyrir
fyrsta barnið. Þetta var mamma,
alltaf boðin og búin að hjálpa öðr-
um. Allir sem kynntust mömmu
töluðu um hvað hún var yndisleg
kona. Seinni árin þegar hún svo
þurfti á minni aðstoð að halda var
heimili mitt alltaf opið og vissi
hún að hún var velkomin hvenær
sem er og eins lengi og hún vildi.
Hún dvaldi oft hjá mér mánuðum
saman í Svíþjóð og áttum við, ég,
mamma og dóttir mín Erla
Björk, ógleymanlegar stundir
saman. Síðustu tvö árin bjó hún á
Hrafnistu og var þá í miklu sam-
bandi við son minn Ómar Richter
og konuna hans, Mariju Richter.
Við söknum öll mömmu mikið og
hún mun lifa áfram í hjörtum
okkar og í minningunum um ynd-
islega konu. Elsku mamma, ég
veit að allir englarnir taka vel á
móti þér í eilífðinni. Lifðu í ljós-
inu elsku mamma mín.
Ég bý að brosum hennar
og blessa hennar spor
Því hún var mild og máttug
og minnti á jarðneskt vor.
(Davíð Stefánsson)
Ásta Ómarsdóttir.
Edda Eyfeld
Elsku besta móð-
ursystir mín er farin
- ég sé hana fyrir
mér með útréttar hendur hlaupa í
fangið á Hreini sínum í sumar-
landinu góða. Hún saknaði hans
mikið eftir að hann lést fyrir sjö
árum enda voru þau mjög sam-
heldin hjón svo vægt sé til orða
tekið. Þrúður er sú yngsta og síð-
asta af Laxárnesfólkinu sem frá
okkur fer.
Foreldrar mínir byggðu sum-
arbústað í Laxárnesi og alla okkar
æsku flutti móðir okkar þangað
með okkur öll börnin á vorin til að
verja sumrinu þar. Það voru
dásamlegir tímar þar sem við
fengum að valsa um frjáls í nátt-
úrunni. Þrúður var þá bara barn
og unglingur að aldri og sýndi
okkur systkinum mikla þolinmæði
og elsku. Þegar afi og amma
hættu að búa í Laxárnesi þá flutt-
ust þau í Mosfellsbæinn í göngu-
færi við okkur. Við systkinin nýtt-
um okkur það vel og það leið ekki
sá dagur að við færum ekki til
þeirra að minnsta kosti eitt okkar
og stundum fleiri eða öll.
Þegar ég hugsa til baka eins og
ég man Þrúði best, þá birtist hún
með bjarta og dálítið kankvísa
brosið sitt og hjartahlýjuna. Hún
var bara 10 árum eldri en ég og
varð því að mörgu leyti fyrirmynd
mín. Hún nennti að leika við mig
þegar ég var barn, sat með mér að
lita í litabækur og byggja úr lego-
kubbum. Seinna fékk ég að skoða í
snyrtibudduna hennar og nota tú-
beringargreiðuna og úða yfir mig
hárlakki eins og tískan kallaði á.
Sé hana fyrir mér með hárið upp-
sett í sátu, þröngu pilsi, peysu og
támjóum skóm með bláan augn-
Þrúður S.
Ingvarsdóttir
✝
Þrúður Svan-
rún Ingvars-
dóttir fæddist 11.
nóvember 1943.
Hún lést 14. októ-
ber 2021.
Útför Þrúðar fór
fram 25. október
2021.
skugga og „ælæner“
á leiðinni út að
skemmta sér. Þrúð-
ur vann líka á síman-
um og svaraði björt-
um rómi: Brúarland,
og tengdi svo við lín-
una sem beðið var
um. Hún var með
fallega söngrödd og
hafði unun af því að
syngja í kórum, til að
mynda í kirkjukór í
Kjósinni og svo Álafosskórnum
þar sem þau Hreinn voru bæði.
Þegar hún eignaðist Evu Hrönn
þá gat ég setið og horft á þessa
litlu fallegu frænku mína stund-
unum saman. Svo þegar hún
stækkaði aðeins fékk ég að passa
hana og svo sat ég stundum hjá
þeim systkinum Evu og Reyni eft-
ir að hann bættist í hópinn meðan
foreldrarnir skruppu í bíó. Þrúður
og Hreinn giftu sig á heimili for-
eldra minna og það var sko
skemmtilegt brúðkaup, sungið og
dansað fram eftir nóttu. Þau
bjuggu sér fallegt heimili, fyrst í
Sörlaskjóli og svo keyptu þau íbúð
í Rjúpufellinu og bjuggu þar
lengst af. Það var mikið áfall fyrir
þau öll þegar Eva Hrönn lést rúm-
lega tvítug að aldri og ég held að
Þrúður hafi aldrei orðið söm eftir.
Reynir og Nína hafa reynst þeim
Þrúði og Hreini afar vel og annast
þau í veikindum og hjálpað Þrúði
til að búa heima eftir að Hreinn
féll frá. Þá hafa barnabörnin verið
dugleg að heimsækja þau og
hjálpa til.
Ég er svo þakklát fyrir að fá
tækifæri til að hitta hana á Land-
spítalanum og geta sagt henni
hvað mér þótti vænt um hana og
að fá að kveðja hana áður en hún
lagði í þessa síðustu ferð sína. Ég
veit að hún fylgdist alla tíð vel með
systkinabörnunum sínum og af-
komendum þeirra og gladdist yfir
velgengni þeirra. Elsku besta
Þrúður mín – góða ferð í sumar-
landið og bestu kveðjur okkar
systkinanna fylgja þér þangað.
Hrafnhildur.
Minning þín er mér ei
gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er
geymd,
Guðni Svan
Sigurðsson
✝
Guðni Svan
Sigurðsson
fæddist 2. febrúar
1949. Hann lést 11.
október 2021.
Útför Guðna fór
fram 22. október
2021.
þú heilsaðir mér og
kvaddir.
(Káinn)
Kæra Unnur og
fjölskylda, minn
hugur er hjá ykkur
og samhryggist ég
ykkur og bið góðan
Guð um að styrkja
ykkur og varðveita.
Guðmundur
Árni
Sigurðsson.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir
og amma,
LINDA HANNESDÓTTIR
frá Bröttugötu 21,
Vestmannaeyjum,
lést á sjúkradeild HSU
þriðjudaginn 2. nóvember.
Gísli Ingólfsson
Gunnar Ingólfur Gíslason Auður Ásgeirsdóttir
Sigurður Einar Gíslason Elva Dögg Björnsdóttir
Linda Kristín Valgerðardóttir Fannar Örn Unnarsson
og ömmubörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir,
tengdadóttir og systir,
ERLA BJÖRK HELGADÓTTIR,
Víðimel, Varmahlíð,
lést á heimili sínu 2. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 13. nóvember klukkan 14.
Hægt er að fylgjast með athöfninni í safnaðarheimilinu og
í Bifröst, en einnig verður henni streymt á youtube-rás
Sauðárkrókskirkju.
Feykir Sveinsson
Helgi Snævar Feykisson Kristjana Ýr Feykisdóttir
Guðmundur Sölvi Feykisson Árný Bára Feykisdóttir
Helgi J. Þorleifsson Alma R. Guðmundsdóttir
Steinunn Ámundadóttir Sveinn Árnason
Davíð Þór Helgason Inga Skagfjörð Helgadóttir
Ástkær sambýliskona mín, systir
og stjúpdóttir,
INGIBJÖRG JÓNASDÓTTIR
kennari,
Assens, Óðinsvéum,
lést 23. október á sjúkrahúsinu
í Óðinsvéum.
Grímur Þ. Jónasson
Jón Atli Jónasson Jónas Oddur Jónasson
Herborg Drífa Jónasdóttir Pétur Jökull Jónasson
Margrét Johnson Elísabet Johnson
Vala Ósk Arnardóttir Hrönn Indriðadóttir
Indriði Örn Hrannarsson Leo Sigurður Hrannarsson Leo
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRÉT VALDIMARSDÓTTIR,
áður til heimilis á Kirkjuvegi 20,
Selfossi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvöllum,
Eyrarbakka, föstudaginn 5. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn
16. nóvember klukkan 13.
Valdimar Friðriksson Jóhanna Valdórsdóttir
Sæmundur Friðriksson Hafdís Gunnarsdóttir
Erna Friðriksdóttir Bjarni Þorvaldsson
Hrefna Friðriksdóttir
ömmu- og langömmubörn
Ástkær dóttir okkar og barnabarn,
ERNA LÍF GUNNARSDÓTTIR,
lést á heimili sínu sunnudaginn 31. október.
Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju
fimmtudaginn 11. nóvember klukkan 15.
Guðný Rósa Hannesdóttir
Gunnar Rúnarsson
Hannes Oddsson
Jakobína Valdís Jakobsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐMUNDA SÓLVEIG
HARÐARDÓTTIR,
lést laugardaginn 6. nóvember á
Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi.
Útför fer fram frá Borgarneskirkju
laugardaginn 13. nóvember klukkan 14.
Björn Þorbjörnsson
Jóhanna Þ. Björnsdóttir Valgeir Ingólfsson
Hörður Björnsson Sylvía Daníelsdóttir
Jökull Fannar Björnsson Margaret Taaka
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
SIGURÐUR BÁRÐARSON,
áður til heimilis að Smáraflöt 46,
Garðabæ,
lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu, Boðaþingi,
6. nóvember. Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 12.
nóvember klukkan 13.
Einar Sigurðsson Kristín Ingólfsdóttir
Stefanía Sigurðardóttir Andreas Resch
Helgi Steinar Sigurðsson Robin Miller
Gunnar Tjörvi Sigurðsson Hilda Björk Indriðadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
HUGLJÚF RAGNA PÁLSDÓTTIR,
Enni í Unadal,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands
á Sauðárkróki 5. nóvember.
Útförin fer fram frá Hofsóskirkju laugardaginn
13. nóvember klukkan 14.
Óttar Skjóldal
Hrefna, Þorbjörn
Auður Ragna