Morgunblaðið - 09.11.2021, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.11.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021 STOFNAÐ 1953 Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380 20% afsláttur af þvotti og straujun á rúmfötum Tilboðið gildir 8.-20. nóvember Bakkakoti og hjá S.Ó.S. lögnum. Þau eru búsett í Grafarvogi. For- eldrar Jónu voru Magnús Einars- son, f. 11.3. 1934, d. 29.10. 2019, sendibílstjóri hjá Þrótti, og Hólm- fríður Guðrún Sveinsdóttur, kölluð Gígja, f. 16.2. 1935, d. 20.4. 2017, vann á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Sonur Sigga Óla og Jónu er Aron Atli, f. 30.7. 1994, nemi í pípulögnum í Tækniskólanum. Kærasti hans er Hákon Amblie Sørensen. Hálfbróðir Sigga Óla, sam- mæðra, er Rúnar Marvinsson, f. 22.7. 1945, matreiðslumaður. Al- systkini Sigga Óla eru Ingimar Sumarliðason, f. 2.11. 1948, fyrr- verandi útgerðarmaður, búsettur í Sandgerði; Sólborg Sumarliða- dóttir, f. 18.2. 1950, hjúkrunar- fræðingur, búsett í Reykjavík; Rut Sumarliðadóttir, f. 15.8. 1953, þroskaþjálfi, búsett á Alicante; Árnína Guðbjörg Sumarliðadóttir, f. 17.6. 1955, kennari, búsett í Kópavogi; Margrét Sumarliða- dóttir, f. 6.7. 1959, hárgreiðslu- meistari, búsett í Reykjanesbæ; Sigrún Sumarliðadóttir, f. 6.7. 1959, sjúkraliði, búsett í Reykja- nesbæ. Foreldrar Sigga Óla voru hjónin Sumarliði Lárusson, f. 20.2. 1922, d. 7.10. 2004, verkstjóri hjá Sand- gerðisbæ, og Árnína Jenný Sig- urðardóttir, f. 1.7. 1927, d. 26.12. 2009, síðast starfsmaður hjá Póst- inum í Sandgerði. Sigurður Óli Sumarliðason Oddur Oddsson sjómaður á Suðureyri Guðrún Oddsdóttir matráðskona í Sandgerði Sigurður Óli Sigurðsson bátsmaður í Öxney í Skógarstrandarhreppi Árnína Jenný Sigurðardóttir húsfreyja í Sandgerði Ólöf Oddsdóttir húsfreyja á Hvítanesi Sigurður Stefánsson sjómaður á Hvítanesi í Ögurhreppi Ingibjörg Sigurðardóttir skáldkona í Sandgerði Sólborg Salína Jónsdóttir vinnukona á Svalbarði í Þistilfirði, sú sem Sólborgarmálið snerist um Árni Árnason vinnumaður á Sævarlandi í Þistilfirði Árnína Guðbjörg Árnadóttir húsfreyja í Kálfshamarsvík og á Dalvík Lárus Óskar Frímannsson útgerðarmaður í Kálfshamarsvík á Skaga, síðar búsettur á Dalvík Hallveig Ósk Gísladóttir húsfreyja í Hvammkoti Frímann Guðjónsson bóndi í Hvammkoti á Skagaströnd Ætt Sigurðar Óla Sumarliðasonar Sumarliði Lárusson verkstjóri í Sandgerðisbæ Valgerður Pálína Sigurðardóttir húsfreyja í Króki á Skagaströnd „OG HVENÆR VAR ÞAÐ SEM ÞÚ UPPGÖTVAÐIR AÐ ÞETTA VAR HREKKUR OG AÐ EKKI VÆRI HÆGT AÐ SLÖKKVA Á KERTUNUM Á AFMÆLISKÖKUNNI?“ „MAMMA ÞÍN KOMST AFTUR Í VÍNIÐ MITT.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera mamma. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann GRETTIR! GAKKTU FRÁ LEIKFANGA- SNÁKNUM ÞÍNUM ÞEGAR ÞÚ ERT HÆTTUR AÐ LEIKA ÞÉR MEÐ HANN ÉG Á EKKI LEIKFANGASNÁK JÆÆÆÆÆKS! GAH! GAH! GAH! ÉG GET EKKI SOFIÐ! ÉG HEYRI EINHVER HLJÓÐ ÚR ELDHÚSINU! ÉG HEYRI AFGANGINN AF STEIKINNI OG SÆTU KARTÖFLUNUM KALLA Á MIG! Á facebók kennir margra grasa. Indriði á Skjaldfönn rifjar upp limru Ingvars Gíslasonar „Eðli limrunnar“: Limrunnar eðli er ljótt, og læst skal hún inni um nótt, því annars af hlýst það sem verður hún víst, vínóður klámhundur skjótt. Grétar Snær Hjartarson eldri bætti við: „Limran er þannig upp byggð að fyrst koma tvær langlínur en síðan tvær skammlínur og að lokum ein langlína. Enginn hefur, að ég held, lýst þessu ljóðformi í jafn stuttu og hnitmiðuðu máli og Jón Ingvar Jónsson“: Limaran, svo langt sem hún nær, er ljóðform með skammlínur tvær en þessi er ekki með þær. Maðurinn með hattinn yrkir á Boðnarmiði: Fallega daman hún Dana dreif sig í flugferð til Gana með dágóðum vini Daníel Hlyni sem dáði og elskaði hana. Hólmfríður Bjartmarsdóttir orti á fimmtudag: Úti er golan ósköp mjúk andar haustsins blíða. Frostið breiddi á fjöllin dúk fallega hvítan víða. Ingólfur Ómar Ármannsson sagði þann sama dag: „Stillt og fal- legt veður í gærkvöldi“: Þegar kvöldar, húmið hljótt himintjöldin þekur. Máni skjöldinn skerpir ótt skuggi völdin tekur. „Heimsókn“ heitir þessi limra Guðmundar Arnfinnssonar: Það stendur hér einn fyrir utan óvæntur gestur með kutann, kallar á mig og kallar á þig: „Nú sígur á seinni hlutann“. Karl Benediktsson yrkir um „glæpsamlegt atferli katta í sjón- varpsfrétt“: Myrða, drepa, meiða, slást … Marga glæpi nefnum fleiri: Köttur einn með kryppu sást kúka norður á Akureyri. Þórey Helgadóttir gerði þessa at- hugasemd: „Ætli næsta krafa verði ekki bara að útrýma bæði köttum og karlmönnum, það kemur örugg- lega frá einhverjum vitringnum.“ Hallmundur Kristinsson kvað: Fífil ykkar, frjálsu kettir, fegri munað getið. Orðnir heldur illa settir; einskis frelsið metið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Það er deyfð yfir köttum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.