Morgunblaðið - 09.11.2021, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.11.2021, Blaðsíða 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021 Þú finnur fallegar og vandaðar jólagjafir hjá Eirvík Suðurlandsbraut 20 / Reykjavík / Sími 588 0200 / eirvik.is Meirihlutinn hefur kynnt breytingu á skipulagi Háaleitis- og Bústaðahverfis. Stórum íbúðablokkum er raðað á græn svæði báðum megin við Miklubraut og Bú- staðaveg. Þrengt er að allri umferð og Bú- staðavegur ekki til sem samgöngubót. Á grænmerktu svæði við Grens- áskirkju er komin blokk og annað eftir því. Hvílíkur tvískinnungur miðað við grænu byltinguna sem skikkaði íbúa í nýju Vogahverfi til að tyrfa smá blett sem fylgdi sumum íbúðunum. Hvar eru grænu lausnirnar sem borgin kynnti nýlega og áætlaði 34 milljarða lántöku fyrir framkvæmd- unum? Á íbúafundi lýsti borgarstjóri á um klukkustund hvað mikið gott hefði verið gert fyrir hverfið síðast- liðin fjögur ár. Síðan var vannýting íbúðahverfa kynnt. Sagt var frá að margir gimsteinar hefðu fundist í Smáíbúðahverfi sem væru eign íbú- anna. Borgin myndi koma þeim í verð með því að leyfa byggingu smá íbúðarhúsa inni á lóðum einbýlis- húsa eða byggja nýja íbúð við húsið. Stærstu gimsteinarnir voru viðbót- arhæð ofan á blokkir, til dæmis í Háaleitishverfinu. Gulrótin í þessari sölumennsku borgarinnar var að nýja hæðin væri alfarið í eigu íbúanna. Það segir að borgin áætlar útlagðan kostnað miklu lægri en söluverðið og við- urkennir með því að þétting byggðar þrýsti upp íbúðaverði. Rúsínan var að í leiðinni yrðu lyftur settar í hús- in. Mig minnir að reglu- gerð segi að lyfta skuli vera séu hæðir fjórar eða fleiri. Áður var skylt að hafa eitt bíla- stæði á hverja 50 fer- metra íbúðar, sem er tvö stæði á íbúð. Ekkert var minnst á að íbúar á nýju hæðinni þyrftu bílastæði. Borgarlínan reddar því. Dagur var spurður um gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Í löngu svari kom fram að tafir væru á samráði við Vegagerðina og áskoranir íbúa- samtaka, sem óttuðust um börn sín að fara yfir Bústaðaveginn. Þegar Dagur hafði lokið máli sínu spurði fyrirspyrjandi: Get ég fengið svar við spurningu minni? Borgarstjórinn bauðst til að fara aftur með sömu rulluna. Bygging hringtorgsins við Sprengisand og blokkar við Furu- grund á gatnamótum Bústaða- og Grensásvegar hafa augljóslega þann tilgang að þrengja að Bústaðavegi og eyðileggja hann sem samgöngu- æð, áður en mislægu gatnamótin koma. Þau skemmdarverk munu standa fyrir sínu fáist nýja skipulag- ið ekki samþykkt. Ekki að furða að Dagur hafi forðast að svara beint. Seinna mun hann segja að minnka verði umferð á Bústaðavegi vegna íbúa Furugrundar og Bústaðavegar svo nálægt veginum. Það er sama taktík og við óafturkræf skemmdar- verk á flugvelli allra landsmanna. Þessi þétting byggðar mun stöðva akstur allra bíla. Það er bónus í við- bót við aðaltilgang nýja skipulags- ins, sem er að hala inn sem allra mest í formi gatnagerðargjalda með sölu lóða. Ekki veitir af fjármagninu til að halda rekstri borgarinnar gangandi og fá fé í gæluverkefnin. Nýju blokkirnar eru í gamalgrónum hverfum og innviðakostnaður í lág- marki. Sala lóða er því hreinar tekjur upp á tugi eða hundruð millj- arða króna. Fyrir fjórum árum fóru um 200 milljónir í mjókkun Grensásvegar úr 2+2 í 1+1-akrein. Tilgangurinn var að minnka hámarkshraðann. Á íbúa- fundi fyrir framkvæmdir benti ég Degi á að miklu ódýrara væri að skipta út hámarkshraðaskiltum. Nú fjórum árum síðar er sóað í þreng- ingu Háaleitisbrautar í sama til- gangi. Í leiðinni er þrengt að umferð þannig að slysahætta er af að beygja af Miklubraut upp Háaleitisbraut og í hina áttina er strætóstoppistöð á miðri akrein. Hefði ekki verið nær að nota fjármagnið í bættar gönguleiðir yfir Bústaðaveginn og koma þannig á móts við íbúasamtökin? Þau munu vera þau einu sem skipulagið hefur hlustað á og tekið tillit til. Það eru liðin 13 ár síðan pottar og pönnur voru barin við Alþingishúsið. Er ekki kominn tími á Ráðhúsið? Borgarstjórans gimsteinar Eftir Sigurð Oddsson Sigurður Oddsson »Nýju blokkirnar eru í gamalgrónum hverfum og innviða- kostnaður í lágmarki. Sala lóða er því hreinar tekjur upp á tugi eða hundruð milljarða króna. Höfundur er verkfræðingur og eldri borgari. Það hefur heldur betur gustað um Birgi Þórarinsson síðan hann sagði sig löglega úr Miðflokknum og fyrir mig a.m.k. er hans sárt saknað, enda að mínum dómi drengur góður, og því hefur berlega eitt- hvað gengið á vegna ákvörðunar hans. Birgir var einn af frammámönnum flokksins sem alþingismaður og hann ásamt fleirum svaraði mér alltaf í síma, því oft þurfti ég á upp- lýsingum að halda varðandi mín greinaskrif, en því miður lögðust ekki allir svo lágt. Ég verð að nefna t.d. Gunnar Braga, sem ég hef reynt að ná í símleiðis í um eitt ár, með hléum að vísu, án árangurs, og gæti ég nefnt fleiri. Upphafið er Klausturmálið, sem er enn verið að núa mönnum um nasir, þar sem Birgi réttilega of- bauð og lét það í ljós. Var honum aldrei fyrirgefið það, sem svo kom illilega niður á honum og sér- staklega frá áramótum er menn úr flokknum fundu verulega að fram- boði hans og lögðu ekki stein held- ur steina í götu hans, sem svo hélt Miðflokknum á floti í kosning- unum. Framlag Gunnars Braga nokkr- um dögum fyrir kosningar var kornið sem fyllti mælinn en Birgir tók samt þá ákvörðun að taka slag- inn sigurviss og vann auðvitað en yfirgaf síð- an ósómann. Það er fullyrt að kveða hefði mátt Klausturmálið niður strax ef rétt hefði verið staðið að málum, burt- séð frá innleggi Báru. Birgi eru valin þvílík stóryrði og skítkastið hefur verið í hámarki, jafnvel frá fólki sem hefur ekki hugmynd um alla málavöxtu og sakar hann um svik við kjósendur. Ég hef ekki enn skilið muninn á svikum við kjósendur hvort sem viðkomandi segir sig úr sínum flokki tveimur vikum, mánuði eða tveimur árum eftir kosningar, þótt vissulega sé þetta umtalaða atvik óvenjulegt. Bylur hæst í tómri tunnu! Eftir Hjörleif Hallgríms Hjörleifur Hallgríms » Birgis er sárt sakn- að, enda að mínum dómi drengur góður. Höfundur er eldri borgari á Akureyri. Viðskipti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.