Morgunblaðið - 09.11.2021, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021
Jürgen Klopp er minn mað-
ur. Það er ekkert leyndarmál að
ég held með Liverpool í ensku
úrvalsdeildinni og sem stuðn-
ingsmaður enska liðsins er erfitt
að elska ekki þýska knatt-
spyrnustjórann.
Það er held ég erfitt að elska
hann ekki, sama með hvaða liði
maður heldur. José Mourinho
var sá „útvaldi“ en Klopp sá
„venjulegi“ eins og hann orðaði
það þegar hann tók við Liver-
pool í október 2015. Einn af al-
þýðunni sem elskar að gera grín
og er alltaf til í gott grín líka.
Svo er hann mikill bjórmaður
líka.
Hann er hins vegar ekkert
sérstaklega skemmtilegur þegar
hann tapar, eins og flestir. Liver-
pool tapaði sínum fyrsta leik á
tímabilinu um nýliðna helgi gegn
West Ham í London. Klopp
mætti pirraður í viðtöl og klíndi
tapinu á vafasamar ákvarðanir
dómarans.
Hann toppaði svo pirringinn
þegar hann skaut á starfsmann
breska ríkissjónarpsins, BBC, að
hann væri ekki hvolpurinn hans.
Klopp átti nokkur svona augna-
blik á síðustu leiktíð þegar liðið
var að ganga í gegnum erfiða
tíma og tapa leikjum gegn liðum
á borð við Southampton, Burn-
ley, Brighton og Fulham.
Þá nýtti hann tækifærið og
gerði lítið úr fjölmiðlamönnum
sem voru í raun bara að vinna
vinnuna sína. Þetta virðist vera
orðinn einhver ávani hjá honum
og fjölmiðlamenn á Englandi
anda eflaust léttar í hvert skipti
sem Liverpool vinnur, ef þeir
eiga að taka viðtal við Þjóðverj-
ann eftir leik það er að segja.
Vonandi lætur hann af
þessari hegðun enda hundleið-
inleg og þessum annars frábæra
stjóra ekki til framdráttar.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Friðrik Ingi Rúnarsson hefur
ákveðið að taka fram spjaldið og
tússpennana sem körfuboltaþjálf-
arar nota óspart í leikhléum. Í gær
var tilkynnt að ÍR hefði samið við
Friðrik um að stýra karlaliði fé-
lagsins út keppnistímabilið í úrvals-
deildinni í körfuknattleik, Subway-
deildinni. Forverinn í starfi, Borce
Ilievski, sagði upp fyrir um tveimur
vikum.
„Þetta er spennandi verkefni en
krefjandi á sama tíma. Kannski er
óvenjulegt að lið standi uppi þjálf-
aralaust þetta snemma á tímabilinu
en þetta er svo sem ekki í fyrsta
sinn sem það gerist í íþróttunum og
verður ekki það síðasta. ÍR-liðið
hefur aðeins verið að ströggla,“
sagði Friðrik Ingi þegar Morg-
unblaðið náði tali af honum í gær
en hann var þá á leið í Seljaskólann
til að stýra sinni fyrstu æfingu hjá
ÍR.
Upp úr krafsinu kemur að Frið-
rik á þessar líka fínu minningar úr
íþróttahúsinu í Seljaskóla. „Ég var
að rifja upp að ég fór með Njarðvík
í úrslit í Seljaskóla þegar ég var 16
ára gamall og var að hefja þjálf-
araferilinn. Ég var þá að þjálfa
minnibolta 12 ára og yngri. Þá
hampaði ég mínum fyrsta Íslands-
meistaratitli sem þjálfari. Þetta var
árið 1984 og Hermann Hauksson
lék með ÍR og Jón Arnar Ingvars-
son lék með Haukum svo einhverjir
séu nefndir. Þetta er skemmtilegt
að rifja upp núna,“ sagði Friðrik en
þá voru enn sex ár í að Steinar Þór
Guðjónsson, formaður körfuknatt-
leiksdeildar ÍR, kæmi í heiminn.
Fann fyrir einhverri spennu
Einungis sex árum síðar var
Friðriki treyst fyrir meistaraflokki
Njarðvíkur og er hann sá yngsti
sem þjálfað hefur í efstu deild karla
hérlendis frá upphafi. Vorið eftir
gerði hann Njarðvík að Íslands-
meisturunum og hefur allar götur
síðan verið þekktur í íþróttalífinu
hérlendis. Friðrik hefur marga
fjöruna sopið í boltanum og hefur
stýrt Grindavík, KR, Keflavík, Þór
Þorlákshöfn og karlalandsliðinu.
Hann hefur þó einungis unnið með
einum leikmanni úr núverandi leik-
mannahópi ÍR.
„Ég var ekkert lengi að hugsa
málið þannig lagað. En nýtti þó
tímann vel sem ég þó hafði til að
fara yfir stöðuna. Ég fann fyrir
einhverri spennu. Mér þykir vænt
um þessa stöðu: þjálfarann, þótt
einhverjir kunni að segja að það sé
einhver froða. Ég skil líka þegar
kollegar fá stundum nóg af þjálfun
því þetta er að mörgu leyti erfitt
starf. Ábyrgðin er mikil en þegar
ég tók þetta saman var ég tilbúinn
að taka verkefnið að mér. Við urð-
um ásátt um að samningurinn væri
bara fram yfir þetta Íslandsmót.
Mér líst bara vel á fólkið í kring-
um liðið og aðstöðuna. Nú er ég á
leiðinni á mína fyrstu æfingu og fæ
þá tækifæri til að kynnast leik-
mönnum aðeins betur. Ég hef
þjálfað einn þeirra áður því ég
þjálfaði Sigvalda [Eggertsson] í 18
ára landsliðinu fyrir fjórum árum.
Ég hlakka til að sjá hvernig stemn-
ingin er og hvað hægt sé að gera.“
Margir frábærir fánaberar
ÍR-liðið hefur fengið mikinn
stuðning á áhorfendapöllunum á
síðustu árum og þá sérstaklega á
heimavelli.
„Já það er mikil stemning á
heimaleikjum ÍR. Hún hefur verið
einkar glæsileg á síðustu árum. Ég
held ég geti talað fyrir munn
margra að það er ekkert auðvelt að
fara í Seljaskólann og ná góðum
úrslitum. Það er margt sem heillar
hjá ÍR,“ sagði Friðrik en þessi sig-
ursæli þjálfari er þá kominn til
eins sigursælasta liðs landsins.
Friðrik segist hafa átt samtal við
Einar Ólafsson sem á sjöunda ára-
tugnum byggði upp geysilega
sterkt lið hjá ÍR þar sem Þorsteinn
Hallgrímsson var í fararbroddi.
„Í sögulegu samhengi þá er
þetta auðvitað gamalgróið og sig-
ursælt félag. Margir frábærir
fánaberar í körfuboltanum hafa
komið úr herbúðum ÍR. Þegar ég
var ungur, og var að byrja í þjálf-
un, þá varð ég á vegi Einars Ólafs-
sonar en hann var þá enn í fullu
fjöri. Við tókum tal saman fyrir
nokkrum árum síðan og hann
mundi þá eftir því þegar ég var að
byrja í þessu. Ég hafði þá verið
mjög æstur og ætlaði mér að sigra
heiminn í einu vetfangi. Þetta var
skemmtilegt spjall og ég ber auð-
vitað ómælda virðingu fyrir manni
eins og Einari. Hann var það sem
ég kalla stundum, „lífsstílsþjálf-
ari“. Hann var þjálfari af lífi og
sál,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson
við Morgunblaðið síðdegis í gær en
fyrsti leikur hans með Breiðholts-
liðið verður gegn Val á Hlíðarenda
á fimmtudagskvöldið.
Margt sem heillar hjá ÍR
- Friðrik Ingi tekur slaginn sem þjálfari karlaliðs ÍR í körfubolta - Fagnaði 16
ára gamall í Seljaskóla - Einkar glæsileg stemning á heimaleikjum liðsins
Morgunblaðið/Einar Falur
Sigursæll Friðrik Ingi Rúnarsson hóf ferilinn sem þjálfari í meistaraflokki með því að stýra Njarðvíkingum til Ís-
landsmeistaratitils aðeins 22 ára gamall árið 1991 og hefur víða komið við eftir það.
Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir,
17 ára stúlka úr Fjölni, hefur verið
valin í kvennalandsliðið í körfu-
knattleik í fyrsta skipti fyrir leikinn
gegn Rúmeníu í undankeppni Evr-
ópumótsins 2023 sem fram fer í
Búkarest á fimmtudaginn. Emma
kemur í staðinn fyrir fremstu
körfuboltakonu landsins, Helenu
Sverrisdóttur, sem missir af leikn-
um vegna meiðsla í hné sem hafa
hrjáð hana síðustu vikur. Emma er
bakvörður og hefur skorað 11 stig
að meðaltali í leik með Fjölni í úr-
valsdeildinni í vetur.
Emma í staðinn
fyrir Helenu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landsliðið Emma Sóldís Svan Hjör-
dísardóttir í leik með Fjölni.
Eddie Howe er maðurinn sem fær
það verkefni að rétta við enska liðið
Newcastle undir stjórn nýrra sádi-
arabískra eigenda. Hann var í gær
ráðinn knattspyrnustjóri New-
castle í stað Steve Bruce sem var
sagt upp störfum á dögunum. New-
castle er eina liðið sem hefur ekki
unnið leik í fyrstu 11 umferðum
ensku úrvalsdeildarinnar. Howe er
43 ára Englendingur og náði mögn-
uðum árangri með Bournemouth
en hann fór með liðið af botni D-
deildar í úrvalsdeildina á sex árum
og hélt því þar í fimm ár.
Howe tekinn við
hjá Newcastle
AFP
Newcastle Eddie Howe er kominn í
úrvalsdeildina á nýjan leik.
Egyptinn Hassan
Moustafa var
endurkjörinn
forseti Alþjóða-
handknattleiks-
sambandsins,
IHF, á þingi þess
á laugardaginn
og er þar með að
hefja sitt sjötta
fjögurra ára
tímabil sem æðsti
maður íþróttarinnar í heiminum.
Moustafa var fyrst kjörinn forseti
IHF í nóvember árið 2000. Hann
var endurkjörinn eftir kosningar
árin 2004 og 2009 en hefur nú
þrisvar í röð verið endurkjörinn án
mótframboðs.
Moustafa er 77 ára gamall og var
fremsti handknattleiksmaður
Egypta á sínum tíma en hann lék
með landsliði þjóðar sinnar í fimm-
tán ár. Hann gerðist síðan þjálfari
og var um skeið alþjóðlegur dóm-
ari. Þá var Moustafa formaður
egypska handknattleikssambands-
ins 1984-1992 og aftur 1996-2008.
Æðstu stjórnendur IHF við hlið
Moustafa eru varaforsetinn Joël
Deplanque frá Frakklandi, gjald-
kerinn Anna Rapp frá Svíþjóð og
þau Narcisa Lecusanu frá Rúmeníu
og Frantisek Taborsky frá Tékk-
landi sem sitja með þeim í fram-
kvæmdastjórninni.
Endurkjörinn
forseti IHF
enn og aftur
Hassan
Moustafa
Xavi Hernández var í gær formlega
kynntur til sögunnar sem nýr knatt-
spyrnustjóri Barcelona og um tíu
þúsund stuðningsmenn félagsins
mættu á Camp Nou til að hylla
þennan dáða son félagsins.
„Þakka ykkur öllum fyrir. Ég vil
ekki verða of tilfinningaríkur en ég
er með gæsahúð. Þetta er stærsta
félag heims og ég mun leggja hart að
mér til að standa undir væntingum
ykkar. Barcelona getur aldrei sætt
sig við jafntefli eða tap. Við verðum
að vinna alla leiki,“ sagði Xavi við
þetta tækifæri.
„Ég mæti hingað vel undirbúinn
og með sama DNA og áður. Við
verðum að taka völdin á vellinum,
vera með boltann, skapa okkur tæki-
færi og spila af ákefð. Verkefnið sem
blasir við er að endurheimta margt
sem hefur tapast úr leik liðsins,“
sagði Xavi sem lék með Barcelona
frá 11 ára aldri árið 1991 til ársins
2015 en frá þeim tíma hefur hann
verið hjá Al-Sadd í Katar, í fjögur ár
sem leikmaður og síðan tvö ár sem
þjálfari. Hann tekur við Barcelona í
níunda sæti, ellefu stigum á eftir
toppliðinu Real Sociedad.
Sættum okkur aldrei við jafntefli eða tap
AFP
Mættur Xavi Hernández veifar til
stuðningsfólksins á Camp Nou.