Morgunblaðið - 09.11.2021, Blaðsíða 12
„Laser-fókus“
Play er enn tiltölulega nýtt flug-
félag og sviptingar í flugrekstri eru
miklar eins og íslenskir neytendur
vita vel og hafa séð undanfarin ár, nú
síðast með falli WOW Air. Birgir og
Einar segja, nánast í kór, að stjórn-
endur flugfélaga verði að vera gríð-
arlega einbeittir því samkeppnin er
hörð og baráttan er háð á degi hverj-
um allan ársins hring. Þeir segja
enda að það sé ástæðan fyrir því að
verið sé að stækka rekstur Play út til
Litháen. Ef kostnaður við rekstur-
inn er ekki lækkaður með þessum
hætti skapast hætta á því að félagið
tapi fyrir samkeppnisaðilum, sem
eru mun fleiri en bara Icelandair,
eins og margir gleyma gjarnan.
Raunar segir Birgir að samkeppn-
isaðilar Play séu bara ætíð jafn-
margir og þau flugfélög sem fljúga
til og frá Íslandi. Þannig sé Icelanda-
ir bara einn samkeppnisaðili af fjöl-
mörgum.
„Þú þarft bara að vera með „laser-
fókus“ á kostnaðinn. Þess vegna er-
um við að gera þetta, þetta er bara
ein leiðin til að lækka kostnaðinn og
það er það sem markaðurinn vill –
það er enginn Kani að fara að ákveða
að fljúga með okkur eða Icelandair
af því það eru svo löng fæðingarorlof
á Íslandi eða stutt vinnuvika eða svo
góðir lífskjarasamningar,“ segir
Birgir og bætir við að verið sé að
ráðast í útrás snemma til þess að
þurfa ekki að segja neinum upp.
Þannig er ekki verið að koma upp
neinni starfsemi, sem fyrir er til á Ís-
landi og legðist niður við útvíkk-
unina. „Við erum í raun og veru að
gera þetta núna til að þurfa ekki að
segja neinum upp,“ segir Birgir.
Búast við hagnaði eftir ár
Play kynnti ársfjórðungsuppgjör
sitt fyrir síðustu helgi sem sýndi
fram á neikvæða afkomu um 1,4
milljarða króna, sem var undir vænt-
ingum. Þrátt fyrir það segja bæði
Birgir og Einar að félagið sé vel statt
enda hafi það verið vel fjármagnað
frá upphafi og svo hafi kostnaður
verið minni en áætlað var.
„Tapið er heldur meira en við
lögðum upp með,“ segir Einar. „Við
vorum að vona í vor að faraldurinn
væri svona í rénun, sem hefur síðan
ekki alveg gengið eftir. Við fjár-
mögnuðum okkur samt betur en
upphafleg plön gerðu ráð fyrir og við
fjármögnuðum okkur sérstaklega til
að vera klár í alveg nokkur áföll. Og
frávikið í krónum talið er mjög
óverulegt með hliðsjón af peningun-
um sem við söfnuðum, þannig að
peningastaðan á reikningnum okkar
er bara eiginlega sú sama og við
gerðum ráð fyrir að hún yrði.“
„Ársfjórðungurinn sem við erum
að kynna núna endar náttúrulega í
september, þar sem við vorum með
52% sætanýtingu en í október var sú
tala komin upp í 68%, þannig að ég
ætla ekkert að fara sitja hérna að ári
og útskýra af hverju við erum í tapi
þá,“ bætir Birgir við.
Lífræn aukning í sætanýtingu
Og Play-fólki er tíðrætt um sæta-
nýtingu, eins og sást á fjárfestadegi
sl. föstudag, sem haldinn var í Kaup-
mannahöfn. Þar kom einmitt fram að
sætanýting félagsins stæði í um 68%,
sem er hækkun upp á 27 prósentu-
stig síðan í sumar þegar starfsemin
hófst. Birgir og Einar voru spurðir
hvort flugferðum hefði verið fækkað
fram í tímann og sætaframboð þann-
ig lækkað en þeir taka að öllu leyti
fyrir það.
„Þetta er bara meiri sala og fólk er
bara byrjað að vilja ferðast meira.
Við erum náttúrulega svolítið að
hanga bara á íslenska markaðnum
og Íslendingar fengu þarna aðeins
kalda fætur í sumar þegar við vorum
nýbyrjuð en svo núna bara í sept-
ember/október byrjaði fólk að
ferðast. Og við sjáum ekkert merki
um það núna að það sé eitthvað að
hætta,“ segir Birgir. Einar tekur
heilshugar undir þetta og bendir á að
vanalega séu flugmiðar bókaðir
langt fram í tímann. Þannig sé ekki
nema eðlilegt að sætanýting komist
ekki á almennilegt skrið fyrr en
nokkrum mánuðum eftir að miðasala
hefst.
„Við náttúrulega byrjuðum að
selja miða í maí og venjulega viltu
vera með sölu 6-12 mánuði fram í
tímann vegna þess að fólk pantar sér
alla jafna flug með löngum fyrirvara.
Við byrjum í maí og fljúgum svo
fyrst mánuði síðar, það er svolítið
erfitt að fylla fyrstu vélarnar á þeim
tíma. Fólkið sem var að ferðast þá
var bara búið að kaupa miðana sína,“
segir Einar.
„Laser-fókus“ Play í Litháen
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Útrás Flugfélagið Play ætlar að opna starfsstöð í Litháen til þess að lækka kostnað og auka samkeppnishæfni.
- Reyna að lækka starfsmannakostnað og líta til Esytrasaltsins - Það sem er hægt í Litháen er ekki
hægt á Íslandi - Segja að Play muni skila hagnaði eftir ár - Aukin sætanýting engar sjónhverfingar
Neikvæð afkoma
» Afkoma Play á þriðja árs-
fjórðungi var neikvæð um 1,4
milljarða króna
» Kostnaður var þó undir
áætlun
» Tekjur félagsins námu 875
milljónum króna
Birgir
Jónsson
Einar Örn
Ólafsson
VIÐTAL
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Birgir Jónsson, forstjóri Play, og
Einar Örn Ólafsson, stjórnarformað-
ur félagsins, segja að nýkynntar fyr-
irætlanir um að opna starfsstöðvar í
Litháen hafi verið gerðar með það
fyrir augum að lækka launakostnað.
Þar fyrir utan segja þeir í samtali við
ViðskiptaMoggann að meira fram-
boð af sérmenntuðu fólki sé í Lithá-
en en á Íslandi.
Þeir segja að það sé rökrétt fram-
vinda uppbyggingar félagsins að
opnuð sé starfsstöð erlendis. Þegar
fyrirhugaðar flugferðir milli Banda-
ríkjanna og Evrópu hefjast verður
ekki mikil þörf fyrir t.d. íslensku-
mælandi starfsfólk í þjónustuveri og
því sé vel hægt að starfrækja slíka
þjónustu utan landsteinanna til við-
bótar við þjónustuver og skrifstofu
hér á landi fyrir íslenska neytendur.
Til viðbótar má nefna að Play hyggst
fá til liðs við sig forritara í Litháen,
starfsfólk sem sinnir markaðsmál-
um, fjártæknimálum og starfsfólk í
almennari skrifstofustörf.
Auðvelt er að gera sér í hugarlund
hvað þeim, sem mjög annt er um
kjör launþega, myndu segja um-
starfsstöðvar íslensks flugfélags á
markaði í Litháen. Spurðir út í fyr-
irsjáanlega gagnrýni úr þeirri átt
segja Birgir og Einar að málið sé
einfalt.
Af hverju Litháen?
„Við höfum fengið spurninguna
„af hverju Litháen?“ Og svo hafa
margir spurt okkur „af hverju ekki
Serbía eða Búlgaría eða Svartfjalla-
land eða Albanía, þau eru miklu
ódýrari?“ Litháen er alveg Evrópu-
sambandsland, launin þar eru ekkert
ósvipuð bara Portúgal, svo við tökum
bara dæmi úr V-Evrópu. Svo snýst
þetta ekkert bara um launakostnað-
inn heldur einmitt bara aðgang að
sérmenntuðu starfsfólki. Ef þú ætlar
að ráða eitthvert 10 manna forrit-
unarteymi hérna á Íslandi, það er
nánast bara ekkert hægt, það er eig-
inlega bara útilokað,“ segir Einar áð-
ur en Birgir skýtur inn í:
„Markaðurinn er alveg búinn að
ákveða hvað hann vill: Hann vill lág
verð. Einhvern veginn þarf að mæta
því og það er erfitt ef þú ert með all-
an kostaðinn þinn í dýrasta landi í
heimi liggur við.“
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir Kjartan Smári Höskuldsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandssjóða, segir
enn koma til greina að reisa hótel á
Kirkjusandi.
Félagið 105 Miðborg byggir á fjór-
um af níu reitum á Kirkjusandi. Fé-
lagið er fagfjárfestasjóður í rekstri
og stýringu Íslandssjóða.
Umrætt hótel yrði vestast á upp-
byggingarsvæðinu, gegnt höfuð-
stöðvum Origo, og er áformað að þar
verði 240 herbergi og jafnvel fleiri, ef
leigutaki óskar þess.
Verði sú síðasta
Kjartan Smári segir gert ráð fyrir
að byggingin verði sú síðasta sem
rísi á reitum Íslandssjóða.
„Miðað við núverandi áætlanir
væri þetta hús að rísa eftir um þrjú
ár,“ segir Kjartan Smári. Ekki hafi
komið til álita að hætta við hótelið.
Horfur í ferðaþjónustu séu bjartar
og vegna breyttrar notkunar á fjölda
airbnb-íbúða muni skapast þörf fyrir
fleiri hótelberbergi innan fárra ára.
Kjartan Smári bendir á að um sé
að ræða skrifstofuhúsnæði með leyfi
fyrir hótelrekstri. Ekki sé meitlað í
stein að þar verði hótel. „Það er enn
fullur vilji hjá okkur til þess að reisa
hótel en framhaldið mun ráðast af
stemningunni á markaðnum fyrir
nýjum hótelbyggingum þegar þar að
kemur. Þetta er afar góð staðsetning
fyrir hótel,“ segir hann. Reiturinn sé
við miðborgina, samgöngur með
besta móti og útsýnið glæsilegt.
Íbúðir í stað skrifstofuhúsnæðis
Hótelið yrði á reit F1, í 8.950 fer-
metra byggingu, en F-reitur verður
þrískiptur. Hefur félagið 105 Mið-
borg sótt um leyfi til að breyta notk-
un á reit F2 úr skrifstofu- og at-
vinnuhúsnæði í íbúðir en þar gætu
risið tugir íbúða í 7.500 fermetra
byggingu.
Loks verða íbúðir í 3.000 fermetra
byggingu á reit F3. baldura@mbl.is
Áforma enn stórt hótel
Teikning/THG arkitektar
Á teikniborðinu Fyrirhugað hótel á
Kirkjusandi hefði 250 herbergi.
- Fjárfestir á Kirkjusandi bendir á fækkun airbnb-íbúða