Morgunblaðið - 12.11.2021, Blaðsíða 1
Fjárhagsáætlun Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins gerir ráð fyrir að
heildartekjur vegna sjúkraflutninga
verði um 130 milljónum króna hærri
á þessu ári en áætlun fyrir árið gerði
ráð fyrir og verði samtals einn og
hálfur milljarður króna yfir árið.
Jón Viðar Matthíasson slökkviliðs-
stjóri segir að fjölgun sjúkraflutn-
inga sé umfram íbúaþróunina á
svæðinu og margar ástæður séu fyr-
ir henni, m.a. faraldur kórónuveir-
unnar en stór hluti flutninga sé á
Covid-göngudeild Landspítalans, al-
menn veikindi og fjölgun sem hefur
orðið í hópi fólks 60 ára og eldri.
Áætlað er að tekjur af sjúkraflutn-
ingum verði 1.663 milljónir króna á
næsta ári og hækki um 21,5% á milli
ára. Samtals gæti heildarkostnaður
vegna sjúkraflutninga á höfuðborg-
arsvæðinu því orðið á fjórða milljarð
króna á tveimur árum.
Heilbrigðisráðuneytið áformar
að bjóða út Covid-19-flutninga fyrir
þá sjúklinga sem geta setið við
flutning. »2
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjúkrabifreið Ýmsar ástæður eru
fyrir fjölgun sjúkraflutninga.
130 milljónum hærri
tekjur af sjúkraflutningum
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu gerði 0:0 jafntefli
við landslið Rúmeníu í undankeppni heimsmeistaramóts-
ins í gær.
Leikurinn þótti ekki mikið fyrir augað, en rúmenska
landsliðið þurfti á sigri að halda til þess að halda vonum
sínum um umspil á lífi. Varnarleikur Íslands var hins
vegar vel skipulagður og dugði til að næla í stig. Leiksins
verður helst minnst fyrir þær sakir að Birkir Bjarnason
fyrirliði lék í gær sinn 104. landsleik, en með því náði
hann að jafna landsleikjamet Rúnars Kristinssonar.
Birkir átti mjög góðan leik að þessu sinni, en allt stefnir í
að hann muni bæta metið á sunnudaginn. »26
Ljósmynd/Alex Nicodim
Birkir jafnaði landsleikjamet
Rúnars í jafntefli í Búkarest
F Ö S T U D A G U R 1 2. N Ó V E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 266. tölublað . 109. árgangur .
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík / 525 8000 / www.bl.is
RENAULT
ARKANA
Náttúrulegur
Hybrid
5ÁRAÁBYRGÐ
NÝR
www.renault.is
FJÖLSKYLDAN Í
FYRIRRÚMI HJÁ
ARNARI GAUTA
GERIR UPP
OFBELDISSAM-
BAND Á SHOOK
FRÁVIK FANNST Í
VETTVANGSFERÐ
NEFNDARINNAR
BREIÐSKÍFA ZÖE 28 NEFNDIN Á LOKAMETRUM 4ARNAR GAUTI FIMMTUGUR 24
Tinna Jóhannsdóttir markaðsstjóri
Smáralindar segir að tilboðsdagarnir
þrír í nóvember, dagur einhleypra
(Singles Day), svartur föstudagur og
netmánudagurinn, hafi jákvæð áhrif á
Smáralind og innlenda verslun yfir
höfuð. Dagur einhleypra var í gær og
bauð þá metfjöldi verslana um allt land
vörur á tilboði á netinu. „Þessir tilboðs-
dagar hafa markvisst verið að styrkj-
ast ár frá ári og eiga einhvern þátt í því
að jólaverslun er að dreifast yfir lengra
tímabil, þ.e.a.s. hún byrjar fyrr með
hverju árinu. Tveir þessara daga eru
með nær allan fókus á vefverslun en þá
daga sjáum við hins vegar ekki fall í
heimsóknatölum í Smáralind. Margir
okkar viðskiptavina vilja miklu fremur
koma í verslanir, snerta vörurnar, eiga
mannleg samskipti og upplifa físíska
þjónustu,“ segir Tinna í skriflegu svari.
Skiptir máli að taka þátt
Kristján Geir Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri húsgagnaverslunarinn-
ar Ilvu, segir að það skipti verslunina
miklu máli að taka þátt í tilboðsdög-
unum þremur. „Singles Day er að
verða mjög sterkur. Við finnum að við-
skiptavinir eru mjög kaupmiðaðir og
innkaupin eru markviss. Við sjáum að
neytendur bíða eftir þessum dögum og
hafa undirbúið sig vel. Þetta er orðinn
mjög stór þáttur í okkar sölutímabil-
um, eitthvað sem við gerum ráð fyrir í
okkar vöruvali og öllum áætlunum.“
Ólafur Vigfússon eigandi Veiði-
hornsins segir að tilboðsdagarnir á
þessum tíma ársins séu nýr veruleiki.
„Maður verður að taka þátt í gleðinni,“
segir Ólafur sem nýverið opnaði nýja
netverslun.
Jólaverslunin
byrjar fyrr
- Viðskiptavinir á degi einhleypra
kaupmiðaðir og innkaupin markviss
MÞunginn í jólaverslun »12
Morgunblaðið/Eggert
Tilboð Ólafur Vigfússon eigandi
Veiðihornsins undirbýr póstlagn-
ingu á vörum til viðskiptavina.