Morgunblaðið - 12.11.2021, Síða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Andstaða hluta landeigenda í Reyn-
isfjöru í Mýrdal ræður því að þar
hefur ekki verið settur upp öryggis-
búnaður eins og áformað var. Sem
kunnugt er varð banaslys á þessum
stað sl. miðvikudag, þegar ung kín-
versk kona sem stóð í flæðarmálinu
lenti í brimskafli sem bar að landi og
skolaði með honum út. Þrjú önnur
sem voru í sama hópi og konan voru
hætt komin.
Alls eru dauðaslysin í Reynisfjöru
orðin fjögur frá árinu 2007 og oft hef-
ur munað litlu að illa færi.
Vildu setja upp
viðvörunarfána og blikkljós
„Við getum tekið frekari skref í ör-
yggismálum á þessum stað. Mér
finnst á engan hátt forsvaranlegt að
andstaða hluta landeigenda þarna
ráði því að ekki megi gera mikilvæg-
ar úrbætur,“ segir Jónas Guðmunds-
son, verkefnisstjóri hjá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg.
Fyrir um tveimur árum voru
komnar tillögur um öryggisráðstaf-
anir í fjörunni, unnar af starfshópi á
vegum Þórdísar Kolbrúnar Reyk-
fjörð Gylfadóttur ferðamálaráð-
herra. Til stóð þá að setja upp viðvör-
unarfána og blikkljós, sem gefa
myndi ljósmerki þegar mest brimar í
fjörunni. Aðstæður hefðu þá verið
vaktaðar til dæmis skv. veðurspám
og ölduspám sem sérfræðingar
Vegagerðarinnar hafa nú þegar
útbúið. Hugsanlega hefði þá verið
kveikt á ljósinu í gegnum stjórnstöð
Neyðarlínu eða með sambærilegum
hætti. Einnig voru uppi hugmyndir
um að setja einhvers konar fyrirstöð-
ur á svæðinu, girðingar sem loka fyr-
ir að fólk fari í fjöruna þegar hæstu
og þyngstu öldurnar ber að landi.
„Landeigendur sögðu að þetta
gæti orðið of íþyngjandi. Nú veit ég
ekki hvað felst í því, hvort þeir töldu
sig eiga að hlaupa til og flagga þegar
og ef öldulag gæfi tilefni til slíks. Mér
finnst þetta undarleg rök, miðað við
hvaða öryggishagsmunir eru þarna í
húfi,“ segir Jónas. Bætir hann við að
búið hafi verið að fá peninga, nokkr-
ar milljónir króna, frá ferðamálaráð-
herra til að setja öryggisbúnaðinn
upp og gera allt klárt – hefðu and-
staða og afsvör landeigenda ekki
komið til. Málið sé því stopp, hvað
sem síðar verði.
Málflutningurinn er blaut tuska
„Sá málflutningur að ætla að
kenna okkur landeigendum um er
ódýr,“ segir Guðni Einarsson í Þóris-
holti í Mýrdal. „Þetta er eins og að fá
blauta tusku framan í andlitið. Ég
minnist þess ekki að við höfum hafn-
að því að öryggisbúnaður yrði settur
upp í Reynisfjöru, þó við höfum gert
athugasemdir við eitt og annað sem
okkur var kynnt.“
Guðni segist m.a. spyrja hverjir
eigi að fylgjast með fjörunni og
kveikja á aðvörunarljósunum þegar
svo beri undir. Þá megi hafa í huga
að banaslys í Reynisfjöru á síðustu
árum hafi orðið við ýmsar aðstæður,
ekki aðeins í svarrandi brimróti eins
og var þegar kínversku konuna tók
út í fjörunni sl. miðvikudag. Minna
megi líka á ábyrgð fararstjóra og
eðlilega vitund ferðafólksins sjálfs
um varkárni og almenna skynsemi.
Morgunblaðið/Hallur Már
Reynisfjara Einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins. Aðstæður breytast oft mjög hratt og brimið er varasamt.
Öryggisráðstafanir í
fjöru mættu andstöðu
- Fjögur banaslys - Ódýr málflutningur, segir landeigandi
Jónas
Guðmundsson
Guðni
Einarsson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það kom ábending frá Vinum
Saltfiskmóans og við sendum í kjöl-
farið ábendingar til borgarinnar og
Veitna og óskuðum eftir að friðaða
svæðið yrði girt af. Við höfum
fundað um þetta og þetta lítur allt
saman vel út núna,“ segir Anna
Lísa Guðmundsdóttir, verkefna-
stjóri fornleifa hjá Borgar-
sögusafni.
Á útboðsgögnum fyrir væntan-
legar framkvæmdir á Sjómanna-
skólareit sem tilheyra gatnagerð og
lögnum var skilgreint verndarsvæði
menningarminja ekki afmarkað. Á
skýringarmyndum var fram-
kvæmdasvæði skilgreint innan
verndarsvæðis og því óttuðust Vin-
ir Saltfiskmóans, sem beitt hafa sér
fyrir vernd svæðisins, að stórslys
væri í uppsiglingu.
Anna Lísa segir við Morgun-
blaðið að ekki sé óalgengt að við
framkvæmdir séu þeir sem koma
að þeim misvel upplýstir um minja-
vernd og því sé gott að hnykkja á
að allt sé á hreinu áður en þær
hefjast. „Einn partur í minjavernd
er að biðja um að fornleifar séu
girtar af meðan á framkvæmdum
stendur til að koma í veg fyrir tjón
á minjunum. Það verður gert
þarna,“ segir hún.
Ljósmynd/Vinir Saltfiskmóans
Sjómannaskólareitur Verndarsvæði verður girt af við framkvæmdir.
Svæði við Sjómanna-
skólann verður girt af
- Fundahöld til að vernda fornminjar
Sala á jólabjór í Vínbúðunum var
umtalsvert minni fyrstu viku sölu-
tímabilsins í ár en á sama tíma í
fyrra. Salan frá fimmtudegi í síðustu
viku til og með miðvikudegi í þessari
viku nam 146 þúsund lítrum á móti
184 þúsund lítrum í fyrra. Þannig
var salan 20,6% minni í ár en í fyrra.
Vert er að taka fram að í fyrra
voru flestir veitingastaðir lokaðir
vegna samkomutakmarkana og sala
í Leifsstöð lítil sem engin. Því er ef-
laust ekki óeðlilegt að salan minnki
á milli ára.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu nýverið verða alls 108 teg-
undir jólabjórs í boði í ár og hafa
aldrei verið fleiri. Þar er að finna
ýmsar nýjar tegundir en það eru
þó kunnugleg nöfn á lista yfir mest
seldu jólabjórana.
Alls seldust 76 þúsund lítrar af
Tuborg julebryg, eða 52% af allri
sölunni. Næstvinsælasti jólabjórinn
er frá Víking, þá kemur jólabjór
Thule, því næst Jóla Kaldi og Jóla-
gull situr í fimmta sæti.
hdm@mbl.is
Sala dróst saman
um 21% milli ára
- Tuborg langvinsælasti jólabjórinn
„Við höfðum farið þarna upp eftir á
þriðjudeginum í fínu færi en síðan
snjóaði mikið um nóttina og leiðin
varð torsótt á miðvikudeginum,“
segir Hrefna Hagalín hjá kvik-
myndaframleiðslufyrirtækinu Arc-
tic Production sem vinnur nú með
hópi Bandaríkjamanna frá New
York að gerð auglýsingar fyrir er-
lent vörumerki. Á leiðinni í Land-
mannalaugar festist fjallarúta frá
ferðaþjónustufyrirtækinu Activity
Iceland skammt frá Sigöldu, í bak-
grunni er Hrauneyjalónið.
Hrefna segir að þeim bandarísku
hafi þótt mikið til koma og flestir
þeirra aldrei séð jafn mikinn snjó.
Íslendingarnir séu þó öllu vanir á
ferðum sínum um hálendið.
„Það náðu allir að taka sínar
myndir og voru glaðir eftir þetta
litla ævintýri. Bíllinn var nú ekki
svo mikið fastur, snjórinn var blaut-
ur á leiðinni í Landmannalaugar en
á bakaleiðinni um kvöldið hafði
fryst og færið mjög gott. Bílstjórinn
frá Activity var alveg frábær og
stóð sig vel,“ segir Hrefna.
Vetrarlegt orðið um að litast á hálendinu og færðin víða erfið
Festust á leið-
inni í Land-
mannalaugar
Morgunblaðið/Árni Sæberg