Morgunblaðið - 12.11.2021, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2021
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Verð kr. 6.500
Verð kr. 4.900
Stærð 8-24
netverslun www.gina.is
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Stærð 8-24
Verð kr. 6.500
netverslun www.gina.is
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
fyrir veturinn og
tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Ath. Grímuskylda er á uppboðum
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Breiðhella 12, Hafnarfjörður, fnr. 231-8819 , þingl. eig. Monís ehf.,
gerðarbeiðendur Hafnarfjarðarkaupstaður og Séreignardeild Birtu
lífeyrissj. og Heimstaden rekstur ehf. og Sjóvá-Almennar trygging-
ar hf., þriðjudaginn 16. nóvember nk. kl. 14:00.
Norðurbraut 35, Hafnarfjörður, fnr. 207-8394 , þingl. eig. Lokin-
hamrar ehf., gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 16.
nóvember nk. kl. 10:00.
Steinhella 1, Hafnarfjörður, fnr. 235-0411 , þingl. eig.Tryggvi Þór
Aðalsteinsson og Hraunvinnslan ehf., gerðarbeiðandi Hafnar-
fjarðarkaupstaður, þriðjudaginn 16. nóvember nk. kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
11. nóvember 2021
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Botsía kl. 10.
Zumba Gold kl. 10.30. Kraftur í KR kl. 10.30, rútan fer frá Vesturgötu 7
kl. 10.10, Grandavegi 47 kl. 10.15 og Aflagranda 40 kl. 10.20. BÍÓ í mat-
salnum kl. 13.15. SAUMAKLÚBBURINN - boðið uppá kruðerí. Nánari
upplýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir.
Áskirkja Jólahlaðborð Safnaðarfélags Áskirkju verður haldið
fimmtudaginn 25. nóvember kl. 19. Húsið opnar kl. 18.30. Verð er
6000 kr og er miðinn happdrætti. Allir velkomnir. Vonumst til að sjá
sem flesta. Hægt er að skrá sig hjá kirkjuverði í síma 581 4035 og 588
8870 og hjá Petreu í síma 891 8165 fyrir 22. nóvember.
Boðinn Línudans fyrir byrjendur kl. 14.15. Línudans fyrir lengra
komna kl. 15. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15, söngstund kl. 14.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11.
Opin Listasmiðja kl. 9-12. Botsía kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30-
12.30. Opin Listasmiðja kl. 13-15.45. Hæðargarðsbíó kl. 13. Síðdegis-
kaffi kl. 14.30-15.30.
Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl.
10. Dansleikfimi í Sjálandi kl. 9.30. Söngstund kl. 11.10 í Jónshúsi.
Félagsvist kl. 13 í Jónshúsi. Smiðja í Kirkjuhvoli opin kl. 13-16.
Gjábakki Kl. 8.30-1.30 opin handavinnustofa. Kl. 9-11.15 botsía í
hreyfisal. Kl. 9-11.30 postulínsmálun á verkstæði. Kl. 13-15.30 tré-
skurður á verkstæði. Kl. 14-15 sögur og fræði, upplestur í handa-
vinnustofu. Kl. 20-22 félagsvist á vegum FEBK í aðalsal. Við minnum á
laufabrauðsdaginn laugardaginn 27. nóv. kl. 13-17. Allir velkomnir.
Gullsmári 13 Handavinna kl. 9. Qigong heilsueflandi æfingar kl. 10.
Fluguhnýtingar kl. 13. Gleðigjafarnir falla niður.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9-
11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-12. Útskurður kl. 9-12. Bingó
kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30.
Hraunsel Billjard kl. 8-16. Línudans kl.10. Brids kl. 13. Botsía kl. 13.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 8.30 í Borgum. Pílukast í Borg-
um kl. 9.30. Útvarpsleikfimi í Borgum kl. 9.45. Gönguhópur Korpúlfa
kl. 10 gengið frá Borgum og inni í Egilshöll, þrír styrkleikahópar.
Bridshópur Korpúlfa í Borgum kl. 12.30 og hannyrðahópur Korpúlfa í
Borgum kl. 12.30.Tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum. Kaffiveitingar
kl. 14.30-15.30. Allir hjartanlega velkomnir.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag hittist föstudagshópur í handa-
vinnustofu 2. hæðar kl. 10.30-11.30. Eftir hádegi, kl. 12.50, kemur
Auður Harpa og dansar með okkur inn í helgina í setustofu 2. hæðar.
Þá er opin handavinnustofa kl. 13-16. Öll velkomin í hvers konar
handavinnu eða spjall. Bingó kl. 13.30-14.30 í matsal 2. hæðar, spjald-
ið er á 250 kr. Eftir það er vöfflukaffi, kl. 14.30. Verið velkomin!
Seltjarnarnes Kaffispjall alla morgna frá kl. 9. Minnum á söngstund-
ina í salnum kl. 13.00. Kaffisopi á eftir. Allir hjartanlega velkomnir.
Minnum á skáninguna á jólahlaðborðið í Kríunesi fimmtudaginn 25.
nóvember og nú er skáning hafin í leikhúsferð í Borgarleikhúsið á
sýninguna ER ÉG MAMMA MÍN? sem fyrirhuguð er fimmtudaginn 9.
desember. Skráning og allar upplýsingar í síma 8939800 og á
kristin.hannesdottir@seltjarnarnes.is
Smá- og raðauglýsingar
Atvinnublað
Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín
á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í
Mogganum, ámbl.is og finna.ismbl.is
alltaf - allstaðar
✝
Þröstur Reyn-
isson fæddist á
Akranesi 17. sept-
ember 1945. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 5. nóvember
2021.
Foreldrar hans
voru Reynir Hall-
dórsson sjómaður,
f. 7. mars 1924, d.
1. des. 1977, og
Guðrún Jóna Jónsdóttir mat-
ráðskona og húsfreyja, f. 13.
feb. 1925, d. 5. sept. 2008.
Systkini Þrastar eru: Aldís, f.
1944, d. 1991; Högni Már, f.
1946; Gunnar, f. 1950; Freyr, f.
1952; Reynir Rúnar, f. 1954;
Ragnar Steinar, f. 1955, d.
1982; Guðrún Jóna, f. 1960; Sig-
rún, f. 1962; barn Guðrúnar
Jónu, Jón Vignir, f. 1941, d.
2011.
Þröstur giftist Þorbjörgu
Haraldsdóttur kennara, f. 31.
jan. 1942, hinn 11. apríl 1966.
Foreldrar Þorbjargar voru
Haraldur Jónsson, bóndi og
kennari, f. 6. júlí 1901, d. 13.
þeirra: a) Hákon Ingi, f. 23. júlí
1989, eiginkona Eva Þórey Sig-
urðardóttir, f. 21. nóv. 1989.
Börn þeirra eru: Nikulás
Högni, f. 7. apríl 2018, og Mím-
ir Thor, f. 11. apríl 2020. b)
Hlynur Örn, f. 30. sept. 1990. c)
Hermann Þór, f. 1. jan. 1993,
sambýliskona Sigrún Ósk Jóns-
dóttir, f. 17. sept. 1995. Barn
þeirra: Höður Þór, f. 15. feb.
2021. d) Helena Hrönn, f. 20.
júní 1997.
Þröstur ólst upp á Akranesi
fram á unglingsár, gekk þar í
barnaskólann og síðar gagn-
fræðaskólann. Þá flutti fjöl-
skyldan að Skjaldartröð á
Hellnum.
Þröstur hóf sjómennsku ung-
ur að árum á togurum og sigldi
svo um heimsins höf á flutn-
ingaskipum fram yfir tvítugt
þar til Þorbjörg fékk hann til
að festa landfestar á Akranesi.
Þá hóf hann nám í trésmíðum í
Iðnskólanum á Akranesi og
starfaði við þá iðn alla tíð.
Þröstur starfaði sjálfstætt við
trésmíðar en starfaði síðar hjá
Rafveitu Akraness og hjá ýms-
um trésmiðjum.
Útför Þrastar fer fram frá
Lindakirkju í Kópavogi í dag,
12. nóvember 2021, klukkan 10.
nóv. 1975, og Guð-
rún Eiríksdóttir
ljósmóðir, f. 5. maí
1901, d. 30. sept.
1965.
Börn þeirra eru:
1) Guðrún, f. 8.
des. 1965, eig-
inmaður Torben
Nordling, f. 31.10.
1969. Börn þeirra:
Óskar, f. 24. okt.
1995, og Eigill, f.
27. mars 2002. 2) Reynir, f. 13.
nóv. 1968, maki Sigríður Helga
Sveinsdóttir, f. 7. ágúst 1967.
Börn þeirra: Þröstur Sveinn, f.
1. maí 1995, Halldór Hrafn, f.
27. des. 2005, og Guðmundur
Örn, f. 27. des. 2005. 3) Atli, f.
6. jan. 1981, sambýliskona Inga
Kristín Jónsdóttir, f. 1. nóv.
1983. Börn þeirra: Hildur
Björg, f. 19. maí 2015, og
Emma Guðrún, f. 24. mars
2017.
Barn Þorbjargar og stjúp-
sonur Þrastar er Haraldur
Unnarsson, f. 6. ágúst 1962,
eiginkona Ragnhildur Högna-
dóttir, f. 31. ágúst. 1965. Börn
Við pabbi höfum brallað ým-
islegt í gegnum tíðina. Við höfð-
um sameiginlegt áhugamál í
stangaveiðinni. Hítará á Mýrum
átti hug og hjarta okkar feðga í
laxveiðinni, Grjótá og Tálmi í
Hítardal voru líka oft viðkomu-
staðir okkar á sumrin. Ætli það
sé ekki að nálgast 45 ár sem við
höfum veitt saman í Hítará.
Fyrstu árin var veitt með maðki
en síðari ár náði hann betri tök-
um á fluguveiði eftir því sem
stöðum til maðkaveiði fækkaði.
Pabbi fylgdist af miklum áhuga
með veiðifréttum úr laxveiðiám
um allt land og hringdi gjarnan í
mig til að leita frétta ef við vor-
um ekki saman á veiðum. Pabbi
var nú stundum þrjóskur og
þver í veiðinni og ef hann var
búinn að sjá stóran lax þá var
varla hægt að hnika honum til
og gafst hann ekki upp fyrr en í
fulla hnefana. Eitt sinn var okk-
ur boðið að taka upp veiðiþátt í
Hítará snemma sumars. Í það
sinn var þokkaleg veiði og var
pabbi við veiðar í Langadrætti
en ég fór með myndatökumann-
inum upp í Hítardal til að sýna
honum svæðið betur. Þegar við
komum upp undir Kattarfoss
hringdi pabbi í ofboði og sagði
okkur að koma og hjálpa honum
því hann hafði sett í stóran lax.
En þegar við komum aftur að
Langadrætti þá var laxinn
sloppinn af agninu. Ekki var
hann nú ánægður með það. En
hann bætti um betur og fékk tvo
stóra laxa í ferðinni.
Pabbi hóf sjómennsku ungur
að árum með pabba sínum og
blundaði sjómennskan alltaf í
blóðinu. Það endaði með því að
við feðgar keyptum litla trillu af
bróður hans og byrjuðum útgerð
í frístundum. Stunduðum grá-
sleppuveiðar og strandveiðar á
meðan pabbi hafði heilsu til.
Hafði pabbi mikið yndi af þessu
brölti okkar þó afraksturinn hafi
nú ekki alltaf verið mikill. Pabbi
var mjög ánægður og stoltur
með okkur félagana sem erum
búnir að gera upp Snarfara AK
17, minnsta strandveiðibátinn á
Akranesi.
Rétt fyrir aldamótin byggði
pabbi sér sumarbústað á Mýr-
unum með svila sínum og áttu
þau mamma sér þar afdrep árið
um kring og höfðu þau mikla
ánægju af að fá barnabörnin í
heimsókn til sín í sveitina. Þá
byggði hann frá grunni sum-
arbústað fyrir okkur Siggu og
tengdaforeldra mína á næstu lóð
við hliðina. Það get ég aldrei
nægjanlega þakkað honum fyrir
sem og aðra vinnu sem hann að-
stoðaði okkur við af sinni al-
kunnu vandvirkni. Mikill sam-
gangur var á milli okkar og
ófáar stundir sem við áttum
saman í Votaskógi við smíðar,
trjárækt og veiðar.
Pabbi var ekki mikið fyrir
sviðsljósið og man ég nú ekki
eftir því að hafa séð hann reiðast
né séð hann skegglausan.
Takk fyrir allt, elsku pabbi
minn. Hvíl í friði. Þinn sonur og
veiðifélagi,
Reynir.
Ég kynntist Þresti á árinu
1991 þegar við Reynir sonur
hans byrjuðum að skjóta okkur
saman. Ég áttaði mig fljótt á því
að það voru hvorki hávaði né
læti í honum tengdaföður mínum
og að hann hafði það fyrir vana
að flýta sér frekar hægt. Seinna
áttaði ég mig á því að þessir eig-
inleikar hans gerðu það að verk-
um að hann var mjög vandvirkur
við smíðar og átti ég nú aldeilis
eftir að njóta þess þar sem
Þröstur taldi það aldrei eftir sér
að aðstoða okkur Reyni hvort
sem verkið var stórt eða smátt.
Þær voru ófáar veiðiferðirnar
sem við Reynir fórum í með
Þresti. Þá kom greinilega fram
hvað hann hafði mikla þolinmæði
og hvað hann gat verið þrjóskur.
Hann gafst aldrei upp fyrr en í
fulla hnefana og landaði mörgum
vænum fiskum eftir að aðrir
veiðimenn hefðu verið löngu
búnir að gefast upp.
Tengdapabbi fór vel með og
eyddi aldrei um efni fram.
Óþarflega vel fannst mér stund-
um. Ég man til dæmis eftir því
að hafa verið send í Bónus til að
kaupa einhver lifandis ósköp af
sykri. Þröstur hefur sjálfsagt
ætlað að búa til sultu.
Ég man ekki eftir að hafa séð
Þröst reiðast á þessum 30 árum
sem ég þekkti hann. Ég er alveg
viss um að hann var ekki skap-
laus en létta lundin og jákvæðn-
in voru svo ríkjandi í fari hans.
Sennilega hefur Þröstur ein-
hverntíma hækkað róminn eða
sussað á barnabörnin enda var
örugglega oft ærið tilefni til þeg-
ar hann var með fullt húsið af
börnum til dæmis á árunum þeg-
ar verið var að smíða í Votaskógi
og þegar þau Þorbjörg voru að
passa tvíburana okkar Reynis og
þeir voru vísir með að hlaupa
sitt í hvora áttina frá þeim.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér
.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Takk fyrir samfylgdina, ynd-
islegi tengdafaðir minn, og hafðu
þökk fyrir allt og allt.
Sigríður Helga Sveinsdóttir.
Við systkinin höfum átt marg-
ar góðar stundir með afa yfir
ævina, hvort sem það var á
Akranesi þegar afi sat í stólnum
sínum og fylgdist með öllum fót-
boltaleikjunum í sjónvarpinu, fór
með okkur í sund eða dró okkur
á ÍA-leiki þegar þeir voru á
heimavelli. Flestar minningar
okkar um afa eru uppi í sum-
arbústað þar sem við fengum
þann heiður að smíða með hon-
um og læra af honum og pabba
réttu handabrögðin, því allir sem
þekktu afa vel vita að hann vildi
hafa hlutina upp á 110 prósent
og ef þið hafið séð pabba vinna í
gegnum tíðina þá er augljóst
hver kenndi honum að vinna því
handabrögðin frá afa skína vel
þar í gegn.
Við systkinin höfum alltaf haft
gaman af því að aðstoða við
vinnu uppi í bústað og var það
orðinn fastur liður á meðan
bygging á bústöðunum stóð yfir.
Við mættum oft upp í bústað í
vinnuhelgi og lét afi sig aldrei
vanta. Hann og pabbi unnu alltaf
vel saman og var lítið um hangs,
nema þegar amma kallaði okkur
inn í mat og það mátti alltaf bú-
ast við veislu frá henni eftir
langan vinnudag.
Svo má ekki gleyma því
hvernig afi missti puttana, hann
nagaði neglurnar svo mikið að
hann nagaði þá af eða svo segir
sagan.
Hvíldu í friði, elsku afi.
Hákon Ingi, Hlynur
Örn, Hermann Þór og
Helena Hrönn, börn
Haraldar.
Þröstur Reynisson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar