Morgunblaðið - 12.11.2021, Side 24

Morgunblaðið - 12.11.2021, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2021 40 ÁRA Anna Birna er Reykvík- ingur, ólst upp í Breiðholti en býr í Laugarnesinu. Hún er skurðhjúkr- unarfræðingur og vinnur á skurð- stofunni á Landspítalanum við Hringbraut. „Helstu áhugamál mín eru samverustundir með fjölskyld- unni, en ég er mjög heimakær. Svo finnst mér gaman á skíðum og æfi líkamsrækt í Primal í Faxafeni.“ FJÖLSKYLDA Eiginmaður Önnu Birnu er Davíð Höskuldsson, f. 1981, þjónustustjóri hjá Expert. Börn þeirra eru Saga, f. 2008, og tvíbur- arnir Ása Soffía og Embla, f. 2010. Foreldrar Önnu Birnu eru Soffía Jóna Bjarnadóttir, f. 1960, kennari að mennt en vinnur hjá Ríkis- eignum, og Guðlaugur Ómar Leifs- son, f. 1954, bifvélavirki. Þau eru búsett í Reykjavík. Anna Birna Guðlaugsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú nýtur þess að stússa og koma lífi þínu í röð og reglu. Eitthvað sem þú gast ekki ímyndað þér að myndi nokkru sinni gerast er möguleiki í dag. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú gengur með margar hugmyndir í maganum. Stundum verður maður að leyfa hlutunum að hafa sinn gang, þótt erfitt sé. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Magnþrungnir árekstrar við ná- komna munu reyna töluvert á þig. Þótt freistandi sé skaltu ekki ganga lengra í því máli sem hæst ber í huga þínum. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Það er eitt og annað sem þú hefur látið sitja á hakanum en verður nú að ganga frá. Þú geislar af krafti og ert tilbú- inn til að hefjast handa. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Draumar þínir eru fallegir og því getur líf þitt hæglega tekið jákvæða stefnu á næstunni. Þú færð tækifæri til að gera hluti sem þú hefur aldrei komið nálægt áður. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þjónustulund þín gerir þig að verð- mætri eign hverjum þeim hópi sem er svo heppinn að þú tilheyrir honum. Varastu að láta tilfinningarnar hlaupa með þig í gönur. 23. sept. - 22. okt. k Vog Það gæti tekið þig smá stund að skilja hvenær einhver þarfnast hjálpar þinnar. Leggðu allt kapp á að finna farsæla lausn svo þú getir sofið róleg(ur). 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það getur skipt sköpum að beita réttum aðferðum til þess að ná árangri. Hafðu trú á getu þinni til að skapa. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Það stefnir í átakalítinn dag hjá þér en það þýðir ekki að þú getir slegið slöku við. Gerðu að sið að skiptast á upp- lýsingum við fólkið í kringum þig. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Ef þú leggur áherslu á að hlusta og taka á móti visku annarra muntu koma mjög miklu í verk með mjög litlu erfiði. Fáðu þína nánustu í lið með þér. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú skalt sýna öðrum þolinmæði í dag. Sýndu mildi og mýkt og gakktu úr skugga um hvað aðrir vilja. Hafðu samband við vini og þiggðu heimboð sem þér berast. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Einhver þarf sárlega á stuðningi þínum að halda en er of feiminn til að bera sig upp við þig. Láttu það eftir þér að gera eitthvað skapandi. „Ég fékk mikinn áhuga á hús- gögnum og hönnun og Ingi Jak- obsson í Exó kenndi mér mikið um efni og viðartegundir sem síðar leiddi til mikillar vöruþekkingar af minni hálfu. Ég setti síðan í loftið vefinn www.sirarnargauti.is og byrjaði að skrifa um lífsstílstengd efni og hafði áhuga á að miðla minni reynslu þar og áhugamáli. Þaðan kemur vöru- merkið Sir Arnar Gauti en það er sprottið út frá áhuga mínum á breskri hönnun, t.d. Burberry, Barbour & Landrover ásamt annarri klassískri hönnun sem hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Þegar ég vann hjá Húsgagnahöllinni var ég byrjaður að vinna í mínum eigin upplifunarhönn- unarverkefnum og þegar mér var síð- an sagt upp í Húsgagnahöllinni fór ég alfarið að vinna að mínum eigin hönn- unarverkefnum sem hafa verið fjöl- breytt og árangursrík.“ Meðal verkefna sem Arnar Gauti hefur verið með er veitingastaðurinn Library Bistro fyrir Radisson Park Inn í Keflavík og American Style í Skipholti. Hann hannaði nýjar höfuð- Þetta voru viðburðaríkir tímar og bauðst Arnari Gauta í kringum árið 2004 þegar hann var 32 ára að opna fyrstu verslun Burberry í Skandinavíu. „GK Reykjavík flutti inn alþjóðlega merkið Burberry og áttum við gott samstarf við skandinavísku söluaðilana sem buðu mér þetta. Átti verslunin að vera í Kaupmannahöfn og í minni eigu. Þegar verkefnið var komið nokkuð langt reyndist fjárfestinum ómögulegt að geta klárað verkefnið eftir að Bur- berry London setti miklar kröfur um fjármagn og verkefnið kláraðist ekki. Þetta var mikill skóli.“ Arnar Gauti er nýkominn aftur í tískubransann. „Í september 2021 gerðumst við Berglind meðeigendur í tískuvöruversluninni Kroll í Kringl- unni. Ég er með sterka framtíðarsýn hvað hana varðar og við erum með eitt best staðsetta verslunarplássið í Kringlunni.“ Hönnunarferillinn Arnar Gauti hóf störf í kringum 2005 í Exó húsgagnaverslun, Módern, og síðar í Húsgagnahöllinni. A rnar Gauti Sverrisson er fæddur 12. nóvember 1971 í Vestmannaeyjum og bjó þar þangað til gosið hófst. „Ég var þá ferjaður frá Eyjum og var okkur kom- ið fyrir á Suðurnesjum þar sem ég ólst svo upp með móður minni og Ástu Stefánsdóttur ömmu minni. Árið 1977 kynnist móðir mín Ólafi Þór Brynj- ólfsson sem gekk mér í föðurstað.“ Þau bjuggu í Njarðvík og hóf Arnar Gauti skólagöngu sína þar en seinna meir flutti fjölskyldan til Keflavíkur þar sem hann lauk gagnfræðaskóla. „Uppeldisárin í Keflavík voru góð og einkenndust af fótbolta á malar- vellinum og að veiða á bryggjunni með vinum. Ég fór að vinna eftir grunn- skóla sem þjónn á veitingastaðnum Glóðinni í Keflavík en svo stefndi hug- urinn til stórborgarinnar og fór ég á þjónasamning á Veitingastaðnum Sjávarsíðunni við Tryggvagötu, eftir það fylgdi ég meistara mínum á Hótel Holiday Inn.“ Síðar var Arnar Gauti veitingastjóri á staðnum Mirabelle. Tískuferillinn Arnar Gauti fór að hafa óbilandi áhuga á tísku og lífsstíl og tók sín fyrstu skref í verslun við störf í herra- fataversluninni HANZ í Kringlunni. „Þar kynntist ég einnig mínum besta vini, Gunnar Hilmarssyni.“ Arnar Gauti vann síðan við tískubransann í um 25 ár, m.a. í versluninni 17, Jack & Jones, GK Reykjavík og Hagkaup. „Ég vann með Margréti Jónsdóttur í fyrstu verslun Jack & Jones í Kringl- unni og kynntist þeirri yndislegu fjöl- skyldu og hennar dætrum, Mörtu Árnadóttur og Helgu Árnadóttur, sem standa mér hvað næst enn þann dag í dag. GK, sem Gunni og Kolla áttu, braut blað í sögu tískuvöruversl- ana að mínu mati og var að mínu mati fyrsta alvöru lífsstílsverslun landsins. Ég tók þátt í framleiðsluferli á fyrstu fatahönnunarlínu Gunna og Kollu, Reykjavík Collection, sem var mikill skóli og tókum við þátt í sýningum er- lendis. Síðar fékk athafnakonan Íris Björk Jónsdóttir mig í lið með sér til að kaupa GK Reykjavík af Gunna & Kollu. Við rákum það fyrirtæki til árs- ins 2008.“ stöðvar SaltPay í Katrínartúni ásamt höfuðstöðvum fyrirtækisins Dineout. „Athafnakonan Inga Tinna Sigurðardóttir, sem á Dineout, stend- ur mér mjög nærri og núna er ég að hanna fyrir hana nýja þakíbúð. Einn- ig er ég í nýju verkefni sem er hönn- un og bygging íbúða og húsa undir merkinu Smartbyggð.“ Fjölmiðlaferillinn Vinirnir Arnar Gauti og Gunnar Hilmarsson fóru í gang með Tísku- og menningarþáttinn Kúltúr á út- varpsstöðinni FM 95,7 árið 1997 sem þeir héldu úti í nokkur misseri. „Leiðin lá síðan í sjónvarpið í kringum árið 2006 þar sem ég stýrði einum vinsælasta sjónvarpsþætti landsins, Innlit Útlit, í um þrjú ár ásamt Þórunni Högnadóttur Nadíu Banine. Síðar, eða árið 2020, fór ég að vinna að mínum eigin lífsstílþætti á sjónvarpsstöðinni Hringbraut sem ber einmitt nafnið Sir Arnar Gauti.“ Þátturinn er með um 40.000 manns uppsafnað áhorf á hvern þátt, þriðja serían er núna í gangi og verður í loft- Arnar Gauti Sverrisson, upplifunarhönnuður og sjónvarpsmaður – 50 ára Trúlofuð Arnar Gauti og Berglind Sif. Fjölskyldan skiptir mestu máli Feðginin Arnar Gauti og Viktoría Ivy. Til hamingju með daginn Reykjavík Stefán Flóki fæddist 22. desember 2020. Hann vó 4.065 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Stefanía Sif Stefánsdóttir og Guðni Rúnar Pálmason. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.