Morgunblaðið - 12.11.2021, Síða 25

Morgunblaðið - 12.11.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2021 Hæ sæti – hvað vilt þú borða! Bragðgott, hollt og næringarríkt Smáralind, Kringlunni, Spönginni, Reykjanesbæ og Akranesi – dyrabaer.is ÚTSÖLUSTAÐIR: Byko, Selfossi | Garðheimar | Heimkaup |Dýrabær „ÞETTA VAR MJÖG TÆPT ALLT ÞAR TIL Á LOKAMETRUNUM, ÞÁ NÁÐI HANN AÐ POTA SÉR FRAM ÚR MÉR.“ „SJÁLF HELD ÉG AÐ ÞETTA SÉ VEGNA ALLRA EFNANNA SEM ÚÐAÐ ER Á ÁVEXTI NÚ TIL DAGS.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... ferðalag á framandi slóðir. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann MYNDI ÞAÐ DREPA ÞIG AÐ ÞURRKA STUNDUM AF NEI ÁI! Æ, ÞETTA ERU HROÐALEG MEIÐSLI SJÁÐU ALLT GÓSSIÐ SEM HERTOGAYNJAN ÁTTI! ÞETTA GLINGUR VEITIR MÉR ENGA ÁNÆGJU … EN AÐ KAUPA GLINGUR GERIR ÞAÐ! BÆ! inu til júlí 2022, að minnsta kosti. „Líf mitt breyttist mikið 8. janúar 2019 þegar ég kynntist yndislegu unnustu minni, Berglindi Sif. Í ágúst 2021 bað ég hennar í 320 metra hæð á toppi Eiffelturnsins í París, þar sem sú borg er mín uppáhaldsborg í heim- inum og var vel við hæfi að staðfesta ást sína þar. Við munum gifta okkur 16. júlí 2022 í Háteigskirkju. Mitt viðhorf til lífsins er að aðal- tilgangurinn sé að vera góður eigin- maður og faðir og skapa fallegar minningar til handa börnunum mín- um, skila þeim inn í lífið með fallegt hjartalag með kurteisi og kærleik að leiðarljósi. Árin 50 hafa verið alls kon- ar en síðustu fjögur ár í lífi mínu hafa verið þau bestu, fallegustu og kær- leiksríkustu ár sem ég hef lifað og bið Guð um að vaka yfir fjölskyldu minni um ókomin ár.“ Fjölskylda Maki Arnars Gauta er Berglind Sif Valdemarsdóttir, f. 8.4. 1981, félags- fræðingur og sérkennari fyrir ein- hverf börn. Þau búa í Seljahverfi í Reykjavík. Foreldrar Berglindar Sifjar eru hjónin Sveinbirna Helga- dóttir, f. 9.3. 1953, og Valdemar Frið- geirsson, f. 17.2. 1955, veiðileiðsögu- maður, búsett á Akureyri. Börn Arnars Gauta með fyrri maka, Aðalbjörgu Einarsdóttur, f. 4.2. 1973, aðstoðarmanni tannlæknis, eru Natalía París Arnarsdóttir, f. 10.1. 2004, og Kiljan Gauti Arnarsson, f. 6.10. 2007. Dóttir Arnars Gauta og Berglindar er Viktoría Ivy Arnars- dóttir, f. 13.8. 2020. Synir Berglindar Sifjar og stjúpsynir Arnars Gauta eru Nökkvi Blær Hafþórsson, f. 19.1. 2006, og Lúkas Breki Berglindarson, f. 19.2. 2011. Foreldrar Arnars Gauta: Ingibjörg Þorláksdóttir, f. 22.12. 1954, verka- kona, búsett í Garði í Suðurnesjabæ, gift Jarli Bjarnasyni, starfsmanni Landhelgisgæslunnar, og Sverrir Jónsson, f. 14.4. 1942, d. 17.1. 1993, verkamaður í Vestmannaeyjum og í Kópavogi. Stjúpfaðir Arnars Gauta var Ólafur Þór Brynjólfsson, f. 24.7. 1950, d. 21.11. 2015, verkamaður og kranamaður. Arnar Gauti Sverrisson Soffía Jónsdóttir húsfreyja í Lækjabæ og Reykjavík Jóhannes Jónsson bóndi í Lækjabæ í Vesturárdal í Miðfirði og verkamaður í Rvík Jón Þórbergur Jóhannesson bifreiðarstjóri Reykjavík Ragna Sigurgísladóttir húsfreyja í Reykjavík Sverrir Jónsson verkamaður í Vestmannaeyjum og síðar í Kópavogi Sigurgísli Guðnason verslunarmaður í Rvík, bús. í Tjarnargötu María Kristín Friðriksdóttir húsfreyja í Tjarnargötu í Reykjavík Ásgeir Halldór Pálmason Hraundal umboðssali í Hafnarfirði Ingibjörg Þorláksdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Þorlákur Magnússon Ásgeirsson sjómaður í Vestmannaeyjum Ásta Stefánsdóttir verkakona í Vestmannaeyjum og Keflavík Rósa Árnadóttir húsfreyja í Vestmannaeyjum Stefán Finnbogason málari í Vestmannaeyjum Ætt Arnars Gauta Sverrissonar Ingibjörg Þorláksdóttir verkakona í Garði í Suðurnesjabæ Jahá, hváði kerlingin á Skóla- vörðuholtinu þegar umsjónar- maður rakst á hana í gær í mið- bænum. „Það kemur mér ekki á óvart að Laugarneskarlinn sé með klakastíflu,“ hélt hún áfram og hristi höfuðið. Hafði hún heyrt af umkvörtunum karlsins í Vísnahorn- inu í fyrradag, en þar sagðist hann vera með klakastíflu, nánar til- greint „whiskey on the rocks“. Kerlingin kastaði fram: Daglangt er garmurinn bús sitt að blanda. Bakkus hann náði að múlbinda. Fáráður karlinn fullur að vanda, flestum til ama og leiðinda. Ráðlegra væri þeim ræfli að snúa radarnum sínum í nýja átt, ryðja úr höfðinu feyskni og fúa og fá eitthvað annað en sinadrátt. Svo rigsaði hún sína leið. Það verður forvitnilegt að sjá hvort karlinn í Laugarnesinu rumskar við þetta. Þegar Golli eða Kjartan Þor- björnsson kom heim úr árlegri veiðiferð í Laxdalsá í haust var hann ekki einungis búinn að fanga fiska heldur líka stuðla og rím: Þar sem hundruð hóla halda aftur Flóði, gullin sól og gjóla, góður jeppaslóði. Við Hnausastrenginn stöndum strekkist flugulína, stórum laxi löndum, lengd hans skulum rýna. Álku kasta aðrir, eygja stóra fiska, báðir flugum barðir beisk er þeirra viska. Áður fengið flugur freklegar í kjaftinn, á þeim enginn bugur ennþá hafa kraftinn. Vatnsdalsvinir góðir, vil með ykkur fagna. Fyllast sálarsjóðir, samtöl efans þagna. Standa af mér storma stríða kannski laxi. Fram á daga dorma svo draumafiskar vaxi. Hringhenda eftir Bjarna Jónsson í Sýruparti á Akranesi misritaðist í Vísnahorni á dögunum og er rétt hér: Ellisár um ævihaust orkusmár má liggja sagnafár með svikna raust sjötíu ára og þriggja. Pétur Blöndal p.blondal@gmail.com Vísnahorn Af kerlingu, víni og draumfiskum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.