Morgunblaðið - 12.11.2021, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2021
ÍBV lagði Aftureldingu að velli
32:30 í fjörugum leik í Olís-deild
karla í handknattleik í gær. Eyja-
menn höfðu frumkvæðið nánast all-
an leikinn en staðan var 17:13 að
loknum fyrri hálfleik. Hægri væng-
urinn var öflugur hjá ÍBV því Theo-
dór Sigurbjörnsson skoraði sjö
mörk og Rúnar Kárason sex mörk.
Guðmundur Bragi Ástþórsson var
markahæstur hjá Aftureldingu með
8 mörk.
ÍBV er með 10 stig eftir sex leiki,
stigi á eftir efstu liðum en Aftureld-
ing er með 8 stig eftir sjö leiki.
Fimmti sigur
Eyjamanna
Morgunblaðið/Þórir
Markahæstur Theodór Sigurbjörns-
son skoraði 7 mörk fyrir ÍBV.
Knattspyrnudeild Vals og mark-
vörðurinn Hannes Þór Halldórsson
hafa komist að samkomulagi um
starfslok. „Knattspyrnufélagið Val-
ur og Hannes Þór Halldórsson hafa
undirritað samkomulag um starfs-
lok og er Hannesi því frjálst að
semja við önnur lið kjósi hann svo.
Valur vill þakka Hannesi Þór fyrir
góð þrjú ár sem færðu félaginu m.a.
einn Íslandsmeistaratitil. Hannes
segist kveðja leikmannahópinn með
söknuði og þakkar Knattspyrnu-
félaginu Val fyrir samstarfið,“ seg-
ir í yfirlýsingu frá Val.
Hannes laus
allra mála
Morgunblaðið/Eggert
Á förum Hannes Þór Halldórsson er
ekki lengur samningsbundinn Val.
HM 2022
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta
gerði í gærkvöldi markalaust jafntefli
við Rúmeníu á útivelli í undankeppni
HM. Sjá má framfarir á íslenska lið-
inu, en Rúmenía vann fyrri leik lið-
anna á Laugardalsvelli í september,
2:0.
Þar sem Norður-Makedónía vann
5:0-stórisigur á Armeníu fyrr um
daginn var ljóst að Ísland átti ekki
lengur möguleika á að fara á lokamót
heimsmeistaramótsins og því lítið
annað en stoltið undir og tækifæri til
að heilla landsliðsþjálfarann.
Tölfræðin var öll Rúmeníu í vil en
heimamenn voru mun meira með
boltann, áttu miklu fleiri tilraunir,
sendingar, hornspyrnur o.s.frv. Leik-
ur íslenska liðsins var hins vegar
skipulagður og góður varnarleikur
stærstan hluta leiks sá til þess að
flest skotin sem Elías Rafn Ólafsson
fékk á sig voru þokkalega auðveld
viðureignar.
Góður grunnur til að byggja á
Elías hefur komið gríðarlega vel
inn í liðið og aðeins fengið á sig eitt
mark í þremur landsleikjum. Fram
að því var Ísland að fá á sig heldur
mörg mörk í riðlinum. Elías var afar
öruggur í öllum sínum aðgerðum og
varnarmönnum Íslands virðist líða
vel með hann fyrir aftan sig. Til að
búa til gott fótboltalið þarf að byggja
frá grunni. Skipulagður og agaður
varnarleikur með sterkan markvörð
þar fyrir aftan er afar traustur
grunnur.
Alfons Sampsted, Brynjar Ingi
Bjarnason og Daníel Leó Grétarsson
voru flottir fyrir framan Elías og
Guðmundur Þórarinsson komst
ágætlega frá sínu, en hann leysti Ara
Frey Skúlason af hólmi snemma leiks
vegna meiðsla. Það er ljóst að Alfons
og Brynjar eru framtíðarmenn í ís-
lensku vörninni og haldi Daníel áfram
að spila líkt og hann gerði í gærkvöldi
mun hann einnig spila fullt af lands-
leikjum.
Fyrir framan vörnina voru þeir
Stefán Teitur Þórðarson, Birkir
Bjarnason og Ísak Bergmann Jó-
hannesson. Þeir börðust eins og ljón
allan tímann og hlupu mikið. Það
vantaði hins vegar ákveðin gæði í
bland við baráttuna. Rúmenía var
miklu meira með boltann m.a. vegna
þess að miðjumenn íslenska liðsins
voru stundum í eltingarleik.
Í skítverkunum í metleiknum
Birkir Bjarnason lék sinn 104.
landsleik í gærkvöldi og jafnaði í leið-
inni landsleikjamet Rúnars Krist-
inssonar. Hann getur bætt það á úti-
velli gegn Norður-Makedóníu á
sunnudaginn kemur. Birkir hefur oft
verið meira áberandi, en hann var í
skítverkunum fyrir framan vörnina
og var duglegur að vanda.
Einmana í framlínunni
Það er komin ákveðin mynd á
varnarleik íslenska liðsins en miðjan
er enn spurningarmerki enda gengið
illa að stilla upp sömu miðju tvo leiki í
röð.
Í sókninni voru Jón Dagur Þor-
steinsson og Albert Guðmundsson
hvor sínu megin við Svein Aron Guð-
johnsen. Jón Dagur og Albert reyndu
hvað þeir gátu að skapa einhver færi,
en það reyndist oft erfitt. Fyrir vikið
var Sveinn einmana í framlínunni og
náði lítið sem ekkert að ógna.
Heilt yfir hefur íslenska liðið verið
betra í síðustu leikjum en mánuðina á
undan, en betur má ef duga skal. Eins
og áður hefur komið fram var Rúm-
enía miklu meira með boltann og ís-
lenska liðið slapp með skrekkinn þeg-
ar Ianis Hagi skaut í stöng fimm
mínútum fyrir leikslok. Þá sköpuðu
íslensku miðju- og sóknarmennirnir
lítið. Það er kominn ákveðinn grunn-
ur og liðið á alltaf fína möguleika á að
vinna ef það nær að halda hreinu. Nú
þarf að byggja ofan á grunninn.
Næsta skref hlýtur að vera að ná
meiri stöðugleika á miðjuna og
minnka eltingarleikinn. Þá verður lið-
ið að skapa sér meira fram á við til að
vinna lið eins og Rúmeníu á útivelli.
Það eru klárlega hæfileikar í íslenska
liðinu og ungu leikmennirnir eiga
auðvitað bara eftir að verða betri.
Leikurinn í gær var lítið skref í rétta
átt.
Framfarir í Rúmeníu en
betur má ef duga skal
- Markalaust jafntefli í Rúmeníu - Ísland varðist vel en skapaði sér lítið
Ljósmynd/Alex Nicodim
Búkarest Miðvörðurinn Daníel Leó Grétarsson í skallaeinvígi í Rúmeníu í gær en Ísland hélt markinu hreinu.
Undankeppni HM karla
J-RIÐILL:
Rúmenía – Ísland ..................................... 0:0
Armenía – N-Makedónía ......................... 0:5
Þýskaland – Liechtenstein.......................9:0
Staðan:
Þýskaland 9 8 0 1 32:3 24
N-Makedónía 9 4 3 2 20:10 15
Rúmenía 9 4 2 3 11:8 14
Armenía 9 3 3 3 8:16 12
Ísland 9 2 3 4 11:15 9
Liechtenstein 9 0 1 8 2:32 1
A-RIÐILL:
Aserbaídsjan – Lúxemborg..................... 1:3
Írland – Portúgal...................................... 0:0
_ Portúgal 17, Serbía 17, Lúxemborg 9, Ír-
land 6, Aserbaídsjan 1.
B-RIÐILL:
Georgía – Svíþjóð ..................................... 2:0
Grikkland – Spánn ................................... 0:1
_ Spánn 16, Svíþjóð 15, Grikkland 9,
Georgía 7, Kósóvó 4.
H-RIÐILL:
Rússland – Kýpur..................................... 6:0
Malta – Króatía......................................... 1:7
Slóvakía – Slóvenía................................... 2:2
_ Rússland 22, Króatía 20, Slóvakía 11,
Slóvenía 11, Malta 5, Kýpur 5.
4.$--3795.$
Olísdeild karla
Valur – FH.............................................29:29
ÍBV – Afturelding ................................ 32:30
Staðan:
Haukar 7 5 1 1 207:174 11
Valur 7 5 1 1 208:177 11
Stjarnan 6 5 0 1 189:174 10
ÍBV 6 5 0 1 176:168 10
FH 7 4 1 2 190:174 9
Afturelding 7 3 2 2 205:195 8
Fram 7 4 0 3 195:194 8
KA 7 3 0 4 190:204 6
Selfoss 6 2 0 4 144:157 4
Grótta 6 1 1 4 155:165 3
HK 7 0 0 7 175:204 0
Víkingur 7 0 0 7 152:200 0
Þýskaland
Kiel – Bergischer................................. 24:23
- Arnór Þór Gunnarsson skoraði 1 mark
fyrir Bergischer.
Balingen – Erlangen ........................... 23:25
- Daníel Þór Ingason skoraði 3 mörk fyrir
Balingen en Oddur Gretarsson er meiddur.
Danmörk
Skanderborg – GOG............................ 23:31
- Viktor Gísli Hallgrímsson kom lítið við
sögu í marki GOG.
Noregur
Bikarkeppni, undanúrslit:
Drammen – Elverum .......................... 31:32
- Óskar Ólafsson skoraði 1 mark fyrir
Drammen.
- Orri Freyr Þorkelsson skoraði ekki fyrir
Elverum.
Svíþjóð
Malmö – Guif ........................................ 27:26
- Aron Dagur Pálsson skoraði 3 mörk fyr-
ir Guif og Daníel Freyr Ágústsson varði 5
skot í marki liðsins.
Skövde – Önnered ............................... 33:23
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 6
mörk fyrir Skövde.
Sviss
Bern – Kadetten .................................. 23:26
- Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
%$.62)0-#
RÚMENÍA – ÍSLAND 0:0
MM
Elías Rafn Ólafsson
M
Brynjar Ingi Bjarnason
Daníel Leó Grétarsson
Ísak Bergmann Jóhannesson
Albert Guðmundsson
Gul spjöld: Ísak Bergmann Jóhannes-
son 45 og Andrei Ratiu 59.
Dómari: Sergei Karasev, Rússlandi.
Áhorfendur: Ekki leyfðir.
_ Lið Íslands: (4-3-3) Mark: Elías Rafn
Ólafsson. Vörn: Alfons Sampsted,
Brynjar Ingi Bjarnason, Daníel Leó
Grétarsson, Ari Freyr Skúlason (Guð-
mundur Þórarinsson 15). Miðja: Ísak
Bergmann Jóhannesson ( Aron Elís
Þrándarson 90), Birkir Bjarnason,
Stefán Teitur Þórðarson (Þórir Jóhann
Helgason 74). Sókn: Albert Guð-
mundsson (Mikael Egill Ellertsson 90),
Sveinn Aron Guðjohnsen (Andri Lucas
Guðjohnsen 74), Jón Dagur Þorsteins-
son.
_ Birkir Bjarnason lék sinn 104. lands-
leik og jafnaði í leiðinni leikjamet Rún-
ars Kristinssonar. Birkir bætir metið
ef hann leikur gegn Norður-Makedón-
íu á sunnudaginn kemur.
_ Byrjunarlið Íslands var heilt yfir
reynslulítið því fyrir utan Birki og Ara
Frey Skúlason (83 leikir) er restin af
byrjunarliðinu með samtals 88 lands-
leiki eftir leikinn í gær.
_ Daníel Leó Grétarsson lék sinn
fyrsta heila keppnisleik með landslið-
inu. Fyrir leikinn í gær hafði hann leik-
ið tvo keppnisleiki og komið inn á sem
varamaður í öðrum þeirra og farið
meiddur af velli í hinum.
_ Elías Rafn Ólafsson hefur leikið þrjá
landsleiki og aðeins fengið á sig eitt
mark og haldið tvisvar hreinu. Hann
varði sjö sinnum í leiknum í gær, sjö
sinnum oftar en gegn Liechtenstein í
síðasta leik.
Í blaði gærdagsins var því ranglega
haldið fram að innbyrðisviðureignir
réðu úrslitum ef lið væru jöfn að stig-
um í undankeppni karla í knattspyrnu
fyrir HM 2022. Hið rétta er að það er
markatala sem ræður úrslitum.
Markatala ræður
LEIÐRÉTT
Undankeppni EM kvenna
C-RIÐILL:
Rúmenía – Ísland................................. 65:59
Stig Íslands: Sara Rún Hinriksdóttir 17,
Dagbjört Dögg Karlsdóttir 12, Ingunn
Embla Kristínardóttir 9, Lovísa Hennings-
dóttir 8, Þóra Kristín Jónsdóttir 6, Hallveig
Jónsdóttir 3, Anna Ingunn Svansdóttir 3,
Dagný Lísa Davíðsdóttir 1.
Ungverjaland – Spánn..........................62:66
Subway-deild karla
Breiðablik – Þór Þ. ........................... 102:104
Þór Ak. – Keflavík ................................ 56:70
Tindastóll – Vestri ................................ 92:81
Valur – ÍR.............................................. 92:79
Staðan:
Grindavík 6 5 1 509:465 10
Þór Þ. 6 5 1 577:551 10
Keflavík 6 5 1 527:488 10
Tindastóll 6 5 1 531:502 10
Valur 6 4 2 470:474 8
KR 5 3 2 468:440 6
Njarðvík 6 3 3 543:504 6
Stjarnan 5 2 3 443:438 4
Breiðablik 6 1 5 633:651 2
Vestri 6 1 5 487:531 2
ÍR 6 1 5 525:567 2
Þór Ak. 6 0 6 414:516 0
4"5'*2)0-#