Morgunblaðið - 12.11.2021, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2021
EM 2023
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ungt og lítt reynt lið Íslands kom á
óvart í Búkarest í gær og var nálægt
því að leggja Rúmeníu að velli þegar
undankeppni EM kvenna í körfu-
knattleik hófst. Oft er sú lýsing not-
uð að ungum liðum sé teflt fram í
íþróttum. Ef til vill of oft en á vel við
í þessu tilfelli því meðalaldurinn í
landsliði Íslands var innan við 23 ár.
Helena Sverrisdóttir og Hildur
Björg Kjartansdóttir eru á sjúkra-
listanum. Er það stór biti fyrir ís-
lenska liðið að kyngja enda at-
kvæðamestu leikmenn liðsins
síðustu árin. Þrátt fyrir það var leik-
urinn jafn og spennandi. Ísland fékk
sannarlega tækifæri til að ná í bæði
stigin en nýtti það ekki.
Rúmenía var stigi yfir að loknum
fyrri hálfleik, 26:25, og fyrir síðasta
leikhlutann var Ísland stigi yfir,
46:45. Rúmenar voru oftar yfir í
leiknum en munurinn var aldrei
mikill. Þegar tvær mínútur voru eft-
ir var Rúmenía tveimur stigum yfir,
58:56, en þær rúmensku voru betri á
lokakaflanum og unnu 65:59.
Munur á vítanýtingu liðanna
Það sem svíður örugglega hjá
landsliðskonunum er að þeim tókst
ekki að nýta góð færi til að skora.
Eitt sem hægt er að benda á er vít-
anýtingin hjá liðunum. Rúmenar
hittu úr 17 af 19 vítum en Ísland úr
7 af 15. Í jöfnum leik sem þessum þá
er þarna talsverður munur. Einnig
nýttust ekki nokkur góð færi eins og
sniðskot en erfitt er að vinna móts-
leiki í undankeppni stórmóts þegar
slík færi nýtast ekki.
Á móti má segja að Íslendingar
settu niður tólf þriggja stiga skot í
leiknum og hittnin fyrir utan
þriggja stiga línuna var tæp 39%
sem er afskaplega gott. Þar sem
Rúmenía var með hávaxnari leik-
menn þá var góður kostur fyrir Ís-
lendinga að freista þess að skjóta
fyrir utan.
Fjórir nýliðar í hópnum
Vörnin var góð hjá íslenska liðinu
og baráttan og viljinn eins og við
viljum sjá í landsleikjum. Þjálfarinn
Benedikt Guðmundsson sagði í
Morgunblaðinu í gær að hann væri
með spennandi hóp í höndunum og
þar væri að finna framtíðarleikmenn
í landsliðinu.
Leikurinn í gær gefur fín fyr-
irheit. Með fjóra nýliða í hópnum og
tvo þeirra í byrjunarliðinu, Önnu
Ingunni Svansdóttur og Dagnýju
Lísu Davíðsdóttur, þá tekur auðvit-
að smá tíma að spila liðið almenni-
lega saman. Landslið fær ekki þann
tíma sem félagslið fá. Auk þess þarf
væntanlega að breyta mörgu í leik-
aðferð liðsins þegar leikmenn eins
og Helena og Hildur detta út.
Með þessi atriði í huga er margt
jákvætt við leikinn gegn Rúmeníu.
Það gæti orðið mjög áhugavert að
sjá til liðsins á næstu árum ef Bene-
dikt fær tíma til að móta lið úr þeim
efnivið sem er til staðar.
Illa farið með vítin
- Margt jákvætt í leik landsliðsins þrátt fyrir svekkjandi tap gegn Rúmeníu í
Búkarest - Meðalaldurinn í íslenska liðinu tæp 23 ár - Öflugur varnarleikur
Ljósmynd/FIBA
Búkarest Ingunn Embla Kristínardóttir setti niður þrjá þrista í leiknum.
_ Þýskaland burstaði Liechtenstein
á heimavelli, 9:0, í J-riðli Íslands í
undankeppni HM karla í gær. Liech-
tenstein lék manni færri frá 9. mín-
útu og var eftirleikurinn auðveldur
fyrir þýska liðið. Leroy Sané og
Thomas Müller skoruðu tvö mörk
hvor og þeir Ridle Baku, Marco Reus
og Ilkay Gundogan skoruðu sitt
markið hver. Þá voru tvö markanna
sjálfsmörk. Þýskaland hefði þegar
tryggt sér toppsæti riðilsins og sæti
á lokamóti HM.
5:0 stórsigur Norður-Makedóníu á
útivelli gegn Armeníu gerði það að
verkum að möguleikar Íslendinga á
að ná öðru sætinu í riðlinum voru
endanlega úr sögunni, og það áður
en leikurinn í Búkarest hófst. Enis
Bardhi, leikmaður Levante á Spáni,
var í stuði því hann skoraði þrennu
fyrir Norður-Makedóníu. Aleksandar
Trajkovski og Milan Ristovski skor-
uðu einnig fyrir Norður-Makedóníu.
_ Spánn fór upp fyrir Svíþjóð og
upp í toppsæti B-riðils með 1:0-sigri
á Grikklandi á útivelli. Fyrr í gær töp-
uðu Svíar óvænt í Georgíu 2:0.
_ Spánn fer vel af stað í C-riðli Ís-
lands í undankeppni Evrópumóts
kvenna í körfubolta en spænska liðið
gerði góða ferð til Ungverjalands og
vann 66:62-sigur. Rúmenía og Spánn
eru með tvö stig og Ísland og Ung-
verjaland eitt stig. Næsti leikur Ís-
lands er gegn Ungverjalandi á sunnu-
daginn kemur á Ásvöllum. Spænska
liðið er eitt það sterkasta í Evrópu
en liðið varð í þrígang Evrópumeist-
ari á árunum 2013 til 2019.
_ Íslendingaliðið Elverum hafði bet-
ur gegn öðru Íslendingaliði í Dramm-
en í undanúrslitun norska bikarsins í
handbolta, 32:31. Orri Freyr Þorkels-
son, sem hefur leikið vel með Elver-
um á leiktíðinni, er því á leið í bik-
arúrslit.
_ Steven Gerrard hefur verið ráðinn
knattspyrnustjóri enska úrvalsdeild-
arliðsins Aston Villa en félagið til-
kynnti um ráðninguna í gær. Gerrard,
sem er 41 árs gamall, tekur við liðinu
af Dean Smith sem var rekinn um
síðustu helgi. Gerrard gerir þriggja
og hálfs árs samning við Villa en
hann stýrði Rangers í
Skotlandi í þrjú ár og
gerði liðið að Skot-
landsmeisturum á
síðustu leiktíð. Var
það fyrsti sigur
Rangers í deild-
inni í áratug.
Aston Villa þarf
að greiða Rangers í
kringum 3 milljónir
punda fyrir Gerrard.
Eitt
ogannað
„Það var ótrúlegt að standa uppi á
verðlaunapalli og fagna sigri á
Norðurlandamótinu,“ sagði Sævar
Baldur Lúðvíksson, nýkrýndur
Norðurlandameistari í skylmingum
með höggsverði, í Dagmálum,
frétta- og menningarlífsþætti
Morgunblaðsins.
Sævar, sem er 31 árs gamall,
vann til tvennra gullverðlauna á
Norðurlandamótinu í Espoo í Finn-
landi sem fram fór 23. október en
hann fagnaði sigri í einstaklings-
og liðakeppni.
Norðurlandameistarinn hefur
æft skylmingar frá því hann var tíu
ára gamall en stóran hluta ævi sinn-
ar hefur hann þurft að glíma við
bæði kvíða og þynglyndi vegna yf-
irþyngdar.
Árið 2009 ákvað hann svo að
hætta keppni.
„Ég var 167 kílógrömm fyrir
einu og hálfi ári og ég trúði því
varla að þetta væri að gerast þegar
ég tók við verðlaununum,“ sagði
Sævar.
„Á sama tíma lagði ég gríðarlega
mikla vinnu á mig til þess að kom-
ast á þann stað sem ég er í dag. Ég
mætti á allar æfingar, tók aukaæf-
ingar, fór út að hlaupa og kom mér
í frábært form. Öll þessi aukavinna
gerði sigurinn enn þá sætari fyrir
vikið og tilfinningin sem fylgdi
gullverðlaunum var í raun bara
ólýsanleg,“ sagði Sævar.
Ólýsanleg tilfinning í Finnlandi
Ljósmynd/Skylmingasamband Íslands
2 Sævar Baldur vann tvöfalt á
Norðurlandamótinu í skylmingum.
KÖRFUBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Staðan í efri hluta úrvalsdeildar
karla í körfuknattleik, Subway-
deildarinnar, er afskaplega áhuga-
verð eftir leiki gærkvöldsins. Fjögur
lið eru efst og jöfn með 10 stig hvert:
Grindavík, Þór Þorlákshöfn, Kefla-
vík og Tindastóll en þau þrjú síðast-
nefndu voru á ferðinni í gær.
Titilvörn Þórsara hefur verið
áhugaverð. Liðið tapaði illa í Njarð-
vík í fyrstu umferð deildarinnar en
hefur síðan þá unnið fimm leiki í röð.
Þór hafði betur gegn Breiðabliki í
fjörugum leik í Smáranum í gær
104:102. Daniel Mortensen skoraði
31 stig fyrir Þórsara en Everage
Lee Richardson skoraði 30 stig fyrir
Breiðablik sem er með 2 stig. Miðað
við hversu jafnir leikir liðsins eru má
búast við að liðið nái að safna fleiri
stigum á næstunni.
Keflvíkingar héldu Þórsurum í 56
stigum þegar liðin mættust í Höll-
inni á Akureyri og Þórsarar bíða því
enn eftir fyrsta sigrinum. Jeremy
Landenbergue sem er nýkominn til
liðsins var ekki með og mun hafa
meiðst á æfingu.
Á Króknum vann Tindastóll sigur
á Vestra 92:81. Staðan var jöfn í hléi
45:45 en Skagfirðingar voru beittari
í síðari hálfleik. Nýliðarnir frá norð-
anverðum Vestfjörðum eru með 2
stig en eins og Blikar fara þeir ágæt-
lega af stað í deildinni.
Valur er tveimur stigum á eftir
efstu liðunum eftir góðan sigur á ÍR
92:79 á Hlíðarenda. ÍR-ingar léku í
fyrsta skipti undir stjórn Friðriks
Inga Rúnarssonar sem var ráðinn
þjálfari liðsins í vikunni. Liðið er
með 2 stig eftir rólega byrjun á tíma-
bilinu. Valsmenn höfðu ágætt for-
skot í hléi 48:37 og héldu dampi út
leikinn. Landsliðsmaðurinn Kári
Jónsson skoraði 29 stig fyrir Val og
nálgast sitt fyrra form.
Óskýrar línur í efri hlutanum
- Fjögur lið efst og jöfn í efstu deild karla - Íslandsmeistararnir frá Þorlákshöfn hafa
unnið fimm leiki í röð - Keflvíkingar héldu Þórsurum í 56 stigum á Akureyri
Morgunblaðið/Unnur Karen
Smárinn Luciano Massarelli með boltann í leiknum gegn Breiðabliki í
Kópavoginum í gær en hann skoraði 21 stig fyrir Þór Þorlákshöfn.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Subway-deild karla:
DHL-höllin: KR – Stjarnan .................20:15
1. deild karla:
Borgarnes: Skallagrímur – Selfoss .....19:15
Álftanes: Álftanes – Hrunamenn.........19:15
Hveragerði: Hamar – Haukar .............19:15
Akranes: ÍA – Sindri .............................19:15
1.deild kvenna:
Kennaraháskólinn: Ármann – KR.......20:15
HANDKNATTLEIKUR
Grill 66 deild karla:
Dalhús: Fjölnir – Þór Ak. ....................19:30
Víkin: Berserkir – Selfoss U .....................20
Varmá: UMFA U – Vængir Júpíters .......20
Í KVÖLD!