Morgunblaðið - 17.11.2021, Síða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2021
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Borgarráð hefur samþykkt að hefja
útboðsferli á fyrsta fasa verkefnisins
Átak í teikningaskönnun, þ.e. þeim
hluta er snýr að skönnun. Gert er ráð
fyrir að kostnaður við verkefnið verði
45 milljónir á ári til þriggja ára. Yfir
milljón teikningar hafa ekki verið
færðar á stafrænt form og eru því að-
eins aðgengilegar á pappírsformi. Um
er að ræða verkfræðiteikningar bygg-
ingarfulltrúa sem ná yfir allar teikn-
ingar aðrar en aðaluppdrætti.
Fram kemur í erindi þjónustu- og
nýsköpunarsviðs til borgarráðs að
fyrir nokkrum árum var farið í álíka
átak og voru allir aðaluppdrættir
skannaðir og gerðir aðgengilegir á
netinu. Nú eru aðaluppdrættir skann-
aðir inn jafnóðum og þeim er skilað
inn.
35 vinnuvikur á ári
Í erindinu til borgarráðs segir: Í
maí 2020 var byrjað á að taka við
beiðnum um teikningar í tölvupósti,
en í framhaldinu komu 1.247 slíkar
beiðnir inn yfir 12 mánaða tímabil. Á
sama tíma komu um 5.110 heimsókn-
ir í Borgartún vegna beiðna um af-
greiðslu teikninga. Samtals eru þetta
um 6.357 beiðnir á ársgrundvelli.
Miðað við þær forsendur að það taki
12 mínútur að meðaltali að afgreiða
eina beiðni gegnum tölvupóst eða í
þjónustuveri má áætla 76.284 mínút-
ur í afgreiðslu á ári, sem samsvarar
1.271 klst. á ári eða 35 vinnuvikum
miðað við 36 klst. vinnuviku, á árs-
grundvelli.
Samþykkt var á fundi borgarráðs
11. nóvember að fara í verkefnið og í
bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólks-
ins segir að það sé í raun furðulegt að
skrifstofa þjónustu og reksturs/þjón-
ustu- og nýsköpunarsviðs hafi ekki
gert þetta fyrir löngu. „Það er afar
sérstakt að Reykjavíkurborg, stærsta
sveitarfélag landsins, sé núna fyrst að
ganga í málið. Búið er að vesenast
lengi með þetta og starfsfólk og þjón-
ustuþegar hafa kvartað yfir handa-
vinnunni sem hverri umsókn fylgir og
seinagangi í afgreiðslu umsóknar …,“
segir í bókuninni. aij@mbl.is
Eftir að skanna yfir milljón
teikningar á stafrænt form
- Átak borgarinnar - „Búið að vesenast lengi með þetta“
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Aldrei hafa fleiri greinst smitaðir af
kórónuveirunni hér á landi en í
fyrradag. Þá greindust 215 smit,
þar af innanlands 206 og voru 95 í
sóttkví við greiningu. Níu greindust
smitaðir á landamærunum. Í gær
lágu 18 sjúklingar á Landspítala
með Covid. Fjórir voru á gjörgæslu
og tveir í öndunarvél.
Þriðji dagur örvunarbólusetn-
ingarátaksins í Laugardalshöll í
Reykjavík er í dag. Eftir hádegi í
gær var búið að bólusetja á tólfta
þúsund manns frá því á mánudags-
morgun. Fólk verður áfram boðað í
bólusetningu frá mánudegi til mið-
vikudags næstu vikur.
Opið hús í Laugardalshöll
Á morgun og á föstudag verður
opið hús klukkan 10-15 í Laugar-
dalshöll vegna bólusetninga.
„Opna húsið er hugsað fyrir þá
sem eru kvíðnir, fjölfatlaða og aðra
með sérstakar ástæður. Einnig ef
fólk þarf annað bóluefni en frá Pfi-
zer og óskar eftir Moderna, Jans-
sen eða AstraZeneca-bóluefni,“
segir Ragnheiður Ósk Erlends-
dóttir, framkvæmdastjóri hjúkr-
unar hjá Heilsugæslu höfuðborg-
arsvæðisins. Hún segir að þeir sem
fengu boð um að koma í bólusetn-
ingu en komust ómögulega á til-
settum tíma geti einnig mætt og
sýnt strikamerkið. „Við verðum
ekki það mörg að við getum tekið
við mörg hundruð manns en þetta
verður svona björgunarlína,“ segir
Ragnheiður.
Hún segir að fólk sem er á leið
til útlanda hafi leitað til heilsugæsl-
unnar um að fá þriðju sprautuna.
Séu liðnir meira en fimm mánuðir
frá annarri sprautu getur þetta fólk
fengið bólusetningu þá daga sem er
bólusett. Bóluefnið nær fullri virkni
á 1-2 vikum.
Víða eru tekin hraðpróf
Hraðpróf eru notuð til að skima
fyrir Covid-19-veirunni hjá þeim
sem ekki sýna einkenni. Sem kunn-
ugt er er þess nú krafist við fjöl-
menna viðburði að fólk framvísi nei-
kvæðu hraðprófi.
Heilbrigðisstofnanir í öllum
heilbrigðisumdæmum landsins gera
hraðpróf. Hægt er að skrá sig í
hraðpróf hjá heilbrigðisstofnunum
hvar sem er á landinu í gegnum vef-
inn heilsuvera.is eða vefslóðina
hradprof.covid.is/skraning. Auk
þess er hægt að fara í hraðpróf á
BSÍ og í Kringlunni 7 í Reykjavík
og Aðalgötu 60 í Keflavík. Skráning
er í gegnum www.testcovid.is.
Hraðpróf, sem eru með vefsíðuna
hradprof.is, taka hraðpróf á Klepps-
mýrarvegi 8 í Reykjavík, í Hörpu og
við Háskólann á Akureyri í Borgum
við Norðurslóð á Akureyri.
Þeir sem eru með einkenni eða
grunar að þeir séu smitaðir, þrátt
fyrir að vera bólusettir, þurfa að
fara í einkennasýnatöku (PCR-
próf). Sýnataka er bókuð í gegnum
vefinn heilsuvera.is.
Flest kórónuveiru-
smit á einum degi
Morgunblaðið/Eggert
Laugardalshöll Fólk er boðað í bólusetningu frá mánudegi til miðvikudags. Opið hús er á fimmtudag og föstudag.
- Örvunarbólusetning í Laugardalshöll - Víða hraðprófað
Fjöldi smita
frá áramótum
j f m a m j j á s o n
200
150
100
50
215 ný innan-
landssmit
greindust sl. sólarhring
Heimild: covid.is
215
154
1.773 eru með
virkt smit og í
einangrun
2.636 eru
í sóttkví
Ævar Pálmi Pálmason, yfirmaður
kynferðisbrotadeildar lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti í
samtali við mbl.is í gær að deildin
væri með ofbeldismál til rannsóknar
sem hefði átt sér stað í Hollandi.
Fréttablaðið greindi frá því í gær að
Íslendingur á fimmtugsaldri sem
hefði áður verið dæmdur fyrir
nauðgun hér á Íslandi lægi nú undir
grun í Hollandi um að hafa nauðgað
íslenskri konu og svipt hana frelsi.
Þá hefði blaðið heimildir fyrir því að
konan hefði farið í skýrslutöku bæði í
Hollandi og á Íslandi en lögreglan í
Amsterdam væri nú að leita að
manninum.
Ævar Pálmi segist ekki geta tjáð
sig um einstök mál né veitt frekari
upplýsingar um það að svo stöddu
aðrar en þær að deildin sé með mál
til rannsóknar sem átti sér stað í
Hollandi.
Sakfelldur fyrir nauðgun
síðast árið 2018
Á vef Fréttablaðsins var því haldið
fram að hinn grunaði hefði síðast
verið dæmdur til fjögurra ára fang-
elsisvistar fyrir nauðgun árið 2018.
Það var þá í annað sinn sem mað-
urinn var sakfelldur fyrir þann glæp.
Í ljósi þess að brotaþoli og sak-
borningur eru báðir Íslendingar
gæti málið verið rekið fyrir íslensk-
um dómstólum.
Gruna Íslending
um nauðgun
- Lögreglan í Hollandi leitar að Íslendingi
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Skuldaviðmið Hafnarfjarðar fara í
fyrsta skipti í áratug niður fyrir
hundrað prósent og verða 97 prósent
í lok árs 2022 gangi fjárhagsáætlun
sveitarfélagsins eftir.
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun
Hafnarfjarðar fór fram í bæjarstjórn
í síðustu viku og
er síðari umræða
um hana áætluð
8. desember.
Þá er lagt til að
fasteignaskattar
verði lækkaðir á
íbúðarhúsnæði
um tæplega fimm
prósent til þess
að koma til móts
við hækkun fast-
eignamats ásamt fleiri gjaldskrár-
lækkunum.
Barnafjölskyldur í fyrirrúmi
„Við erum að leggja sérstaka
áherslu á að bæta starfsumhverfi og
kjör starfsfólks á leikskólum bæjar-
ins í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun,
ásamt því að halda áfram að lækka
kostnað barnafjölskyldna í bæjar-
félaginu,“ segir Ágúst Bjarni Garð-
arsson, formaður bæjarráðs Hafnar-
fjarðarbæjar, í samtali við
Morgunblaðið.
„Það er eitthvað sem hefur verið
rauði þráðurinn á kjörtímabilinu,
okkar fyrsta verk var að stórauka
systkinaafslátt af leikskólagjöldum
frá því sem áður var og innleiða nýj-
an systkinaafslátt af skólamáltíðum
grunnskólabarna. Fyrsta skrefið þar
var hundrað prósenta afsláttur á
þriðja barn, en nú erum við að taka
næsta skref og setja 25% afslátt á
barn nr. 2. Við erum því að fara úr
því að greitt sé fullt gjald fyrir öll
börn, í það að mest verður nú greitt
fyrir 1,75 barn. Þetta er skref í rétta
átt og liður í því verkefni að létta
þeim róður sem þyngstar byrðar
bera.“
Gert er ráð fyrir að rekstrarnið-
urstaða A- og B-hluta verði jákvæð
um 842 m.kr. og að útsvarsprósenta
haldist óbreytt í 14,48%. Auk þess
verður 500 milljónum varið í kaup á
félagslegu húsnæði.
Spurður út í tillögu Samfylking-
arinnar um hækkun útsvars gagn-
rýnir Ágúst að slíkt hafi verið lagt til.
„Það hefur verið ein af áherslum nú-
verandi meirihluta að hækka ekki
álögur á íbúa bæjarfélagsins. Síð-
ustu mánuðir í alheimsfaraldri hafa
reynt á allar stoðir samfélagsins,
rekstur ríkis, sveitarfélaga og heim-
ila. Útsvarshækkun hefði í för með
sér tekjuskerðingu fyrir bæjarbúa
eða með öðrum orðum; útborguð
laun íbúa bæjarfélagsins lækka og
svigrúm heimila minnkar. Slíkt er
ekki á dagskrá.“
Lækka skatta
í Hafnarfirði
- Til móts við hækkun fasteignamats
Ágúst Bjarni
Garðarsson