Morgunblaðið - 17.11.2021, Síða 13

Morgunblaðið - 17.11.2021, Síða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2021 Beðið Í kulda og trekki geta strætóskýlin veitt gott skjól, líkt og raunin var hjá þessari konu sem beið í slíku skýli á Selfossi. Ekki verra að hafa grímu sem getur veitt vörn gegn kulda og veiru. Eggert Í upphafi Covid- faraldursins var ég ekki í hópi þeirra sem voru háværir í op- inberri gagnrýni á stjórnvöld vegna þeirra takmarkana á borgaralegum rétt- indum sem gripið var til í baráttunni við veiru sem læknavís- indin höfðu litla þekk- ingu á. Ég tók stöðu með heilbrigð- isyfirvöldum og hélt því m.a. fram 18. mars á síðasta ári að fumlaus og skipulögð viðbrögð kæmu okkur í gegnum hættuna. Verkefnið væri að hægja á útbreiðslu og „tryggja eins og hægt er að heilbrigðiskerfið ráði við að veita nauðsynlega – oft lífs- nauðsynlega þjónustu“ og vernda „þá sem eru viðkvæmastir og í mestri hættu“. Í varnarbaráttunni yrðu stjórnvöld, með skýrum og ótvíræðum hætti, „að standa þétt við bakið á öflugu starfsfólki heilbrigð- iskerfisins, fjárhagslega sem and- lega“. Stjórnmálamenn ættu ekki að troða sér upp á sviðið en einbeita sér að efnahagslegum aðgerðum til að lágmarka skaðann fyrir íslensk fyrirtæki og heimili. Sem sagt: Ég taldi það réttlæt- anlegt og nauðsynlegt, þegar óþekktur ógnvaldur herjar á þjóð, að stjórn- völd grípi til ráðstafana til að verja líf og heilsu almennings, jafnvel þótt frelsi einstaklinga sé skert tímabundið. Þessi afstaða er byggð á sannfæringu um að ein af grunnskyldum ríkisvaldsins sé að bregðast við þegar samfélaginu er ógnað, enda sé farið eftir meg- inreglum réttarríkisins og stjórnarskrár. Svigrúm ekki nýtt Í mörgu hefur okkur Íslendingum tekist vel upp í baráttunni við veir- una. Hægt og bítandi hefur þekk- ingin og skilningurinn á ógninni auk- ist. Með hörðum sóttvarnaaðgerðum var myndað svigrúm til að undirbúa helstu stofnanir samfélagsins til að taka þátt í vörninni og ekki síst styrkja innviði heilbrigðiskerfsins til að takast á við vágestinn. Með því yrði hægt að skipuleggja baráttuna án þess að ganga með freklegum hætti á borgaraleg réttindi. Skýrar vísbendingar eru um að svigrúmið hafi ekki verið nýtt. Rúmlega tuttugu mánuðir eru frá því að óvissustigi var lýst yfir vegna kórónuveirunnar hér á landi. Á þess- um mánuðum hefur, líkt og í flestum frjálsum samfélögum Vesturlanda, myndast eitrað andrúmsloft óttans. Líkt og ég benti á í grein fyrir réttu ári (og sótti í smiðju Sumptions lá- varðar og fyrrverandi dómara við hæstarétt Bretlands) er óttinn öfl- ugasta verkfæri þeirra sem virða frelsi borgaranna lítils. „Forræð- ishyggjan nærist á ótta. Í skugga óttans sé þess krafist að stjórnvöld grípi til aðgerða, sem sumar geta verið gagnlegar en aðrar skaðlegar í viðleitni allra til að verja líf og heilsu.“ Frelsið verður fórnarlamb Og eins og oftast verður frelsið fyrsta fórnarlamb óttans og um leið hverfur umburðarlyndi gagnvart ólíkum skoðunum. Gagnrýnin um- ræða um aðgerðir stjórnvalda á erf- itt uppdráttar. Leikir sem lærðir veigra sér við að spyrna við fótum og spyrja alvarlegra en nauðsynlegra spurninga þar sem óskað er eftir rökstuðningi fyrir hvers vegna frelsi einstaklinga er takmarkað og hvort of langt sé gengið. Þeim er mætt af fullkominni hörku og á stundum með svívirðingum. Þar ganga því miður læknar, sem fá útrás fyrir hégóma í sviðsljósi fjölmiðla, hart fram. Til að magna ótta almennings er grafið skipulega undan trausti á heilbrigð- iskerfið, sem þrátt fyrir allt er eitt það besta í heimi, þar sem fram- úrskarandi starfsfólk vinnur afrek á hverjum degi, sem hvorki fjölmiðlar né samfélagsmiðlar hafa áhuga á. Flest erum við fús til að færa fórn- ir og sætta okkur við að búa við skert athafnafrelsi í ákveðinn tíma til að vinna bug á hættulegri veiru. Við viljum sýna árvekni og ábyrgð gagnvart samferðafólki, ekki vegna þess að stjórnvöld þvingi okkur til þess heldur vegna borgaralegrar skyldu sem fylgir því að búa í frjálsu samfélagi. Illa staðið undir kröfum Það versta sem frjáls ein- staklingur gerir er að hlýða at- hugasemdalaust og án gagnrýni fyr- irmælum stjórnvalda sem með einum eða öðrum hætti takmarka borgaleg réttindi, jafnvel þótt fyr- irmælin séu til að verja almanna- heill. Án aðhalds og gagnrýni verður til ríkisstjórn reglugerða og tilskip- ana. Við skulum viðurkenna nauðsyn þess að stjórnvöld geti gripið til að- gerða í sóttvörnum til að verja al- menning á hættutímum. Um leið verðum við að gera ákveðnar kröfur til stjórnvalda og heilbrigðisyfir- valda: Að þau viðmið sem stuðst er við séu skýr, öllum ljós og taki mið af breyttum aðstæðum (s.s. bólusetn- ingu) og betri þekkingu. Að gætt sé samkvæmni í yfirlýsingum og upp- lýsingum. Að yfirvöld heilbrigðis- mála nýti svigrúm til að auka við- námsþrótt mikilvægustu stofnana. Að hægt sé treysta því að aldrei sé gengið lengra en þörf er á – að með- alhófið ráði alltaf för, að stjórnvöld virði grunnréttindi borgaranna og starfi innan þeirra valdmarka sem þeim eru mörkuð. Að ekki sé kynt undir ótta til að réttlæta skerðingu á borgaralegum réttindum. Að mál- efnalegum athugasemdum og gagn- rýni sé ekki mætt af hroka þeirra sem telja sig umboðsmenn valdsins og þekkingarinnar. Að spurningum sé svarað. Stjórnvöld hafa því miður uppfyllt þessar kröfur illa á síðustu tuttugu mánuðum. Líklegast er ekki við aðra að sakast en okkur sjálf, sem hlýðum tilskipunum gagnrýnislaust. Og þess vegna á frelsið í vök að verjast. Að vera frjáls borgari verður aðeins óljós minning. Eftir Óla Björn Kárason » Oftast verður frelsið fyrsta fórnarlamb óttans og um leið hverf- ur umburðarlyndi gagn- vart ólíkum skoðunum. Gagnrýnin umræða á erfitt uppdráttar. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálf- stæðisflokksins. Frelsið á í vök að verjast

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.