Morgunblaðið - 17.11.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.11.2021, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2021 Ilmur er ný litalína Slippfélagsins hönnuð í samstarfi við Sæju innanhúshönnuð. Línan er innblásin af jarðlitum, dempaðir tónar með gulum og rauðum undirtónum. Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga slippfelagid.is slippfelagid.is/ilmur Hör Leir Truffla Börkur Myrra Krydd Lyng Kandís Lakkrís Innblástur og nýir litir á slippfelagid.is 30 ÁRA Guðmundur ólst upp á Flúðum en býr í Reykjavík. Hann er menntaður óperusöngvari og lærði hjá Kristjáni Jóhannssyni og Renato Bruson. Guðmundur er sölustjóri hjá Eco Garden og gulrótabóndi á Flúðum. Hann verður með jólatónleika á Flúð- um 11. desember og verða þetta fjórðu jólatónleikarnir hans þar. FJÖLSKYLDA Guðmundur er trúlofaður Guðnýju Helgu Lárus- dóttur, f. 1993, hagfræðingi. Börn þeirra eru Ágúst Elí, f. 2018, og Helga Lind, f. 2021. Foreldrar Guðmundar eru Olga Lind Guð- mundsdóttir, f. 1963, og Eiríkur Ágústsson, f. 1957, garðyrkju- bændur á Flúðum. Guðmundur Karl Eiríksson Til hamingju með daginn Reykjavík Helga Lind Guðmunds- dóttir fæddist 15. júní 2021 kl. 19.24 á Landspítalanum. Hún vó 3.734 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Guðmundur Karl Eiríksson og Guðný Helga Lárusdóttir. Nýr borgari Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Hristu af þér slenið og settu mark- mið þín og væntingar á blað. Þú fyllist metn- aði og framkvæmdagleði heima fyrir í dag. 20. apríl - 20. maí + Naut Þótt þú eigir auðvelt með að hrífa aðra er ekki þar með sagt að allir viðhlæjendur séu vinir. Gættu þess að leyfa ekki öðrum að ganga um of á rétt þinn. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Stundum kemur að málum þar sem frekari umræður leiða ekki til neins árangurs. Gættu þess að skrifa ekki undir neitt sem gæti komið í bakið á þér seinna. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þér er heitt í hamsi og þarft að gæta þess að það bitni ekki á þeim sem síst skyldi. Láttu aðstæður ekki leiða þig út í hluti sem þér eru á móti skapi. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Samræður við systkini og nágranna eru óvenju beinskeyttar og hreinskilnar um þessar mundir. Gættu þess að halda utan um þína nánustu eins og þeir gera um þig. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú gætir fengið óvæntar gjafir eða góss í dag, sennilega fyrir milligöngu vinar. Láttu ekki undan lönguninni til þess að slá um þig, þótt sterk sé. 23. sept. - 22. okt. k Vog Tilfinningarnar koma upp á yfirborðið og það er í hæsta máta eðlilegt. Skoðaðu málin vandlega svo þú hafir allt á hreinu. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Aðrir eru ekki eins spenntir fyr- ir ferðahugmyndum og námsáætlunum og þú. Vertu sáttur við sjálfan þig og undirbúðu þig vel og vandlega. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Viðleitni þín til hagsýni og skipu- lagningar skilar árangri. Vertu ekki óþarflega harður við sjálfan þig og mundu að enginn getur verið fullkominn. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Óvæntar hugmyndir þínar geta átt eftir að leiða til aukinna tekna. Athugaðu hvar þú getur orðið öðrum en sjálfum þér að liði. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Nú eru aðrir reiðubúnir til að hlusta á mál þitt og gefa því þann gaum sem það á skilið. Leitaðu ráða með þau mál sem þú getur ekki leyst sjálfur. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú þarft á öllum þínum sannfæring- arkrafti að halda til þess að samstarfsmenn þínir fallist á að fara þá leið sem þú vilt. Stattu fast á þínu. tekið þátt í ýmsum hagyrðinga- mótum. Þegar Helga er ekki að sinna bú- störfum eða félagsmálum reynir þeim alltaf þegar þeir fara í söng- ferðir, sel diskana og fleira svo að ég er eiginlega í kórnum.“ Helga er líka kunnur hagyrðingur og hefur H elga Guðný Kristjáns- dóttir fæddist 17. nóvember 1961 á sjúkrahúsinu á Sel- fossi, en hún var fyrsti krakkinn þar sem var tekinn með keisaraskurði. Hún bjó öll bernsku- og unglingsár í Bakkár- holti í Ölfusi. Helga gekk í barna- og gagn- fræðaskóla í Hveragerði. Hún lauk námi frá Húsmæðraskóla Reykja- víkur, er búfræðingur frá Bænda- skólanum á Hvanneyri og garð- plöntufræðingur frá Garðyrkju- skólanum á Reykjum í Ölfusi. Helga kynntist eiginmanni sínum þegar hún var í námi á Hvanneyri og hann var að vinna þar. Hún fluttist síðan með honum í heima- haga hans og eru þau bændur í Botni í Súgandafirði. „Það var erfitt að draga hann suður í Ölfus en það voru líka nýrri hús hérna,“ segir Helga. Í Botni og Birkihlíð er eins konar félagsbú, en þau eiga búið á móti yngsta bróður Bjarnar sem býr í Birkihlíð. Þetta er blandað bú með 250 fjár og um 230 nautgripi á ýmsum aldri, þar af eru um 70 mjólkandi kýr. Þau eru með tvo mjólkurróbóta og eru einnig með æðarvarp. „Við erum með virkjun fyrir heimilin og búið og aðra 550 kw rennslisvirkjun sem við eigum í fé- lagi við nokkra aðra og seljum Orkubúi Vestfjarða rafmagnið. Við erum þrjú sem vinnum við búið að staðaldri. Vinnan er töluverð og árstíðabundin. Við heyjum yfir helming af ársforðanum í næstu fjörðum,“ en þau eiga jörðina Fremri-Breiðadal í Önundarfirði. Helga vinnur einnig hlutastarf í Húsasmiðjunni/Blómavali á Ísafirði. Helga er virk í félagsmálum en hún er formaður Rauðakrossdeildar Súgandafjarðar, og meðal annarra félaga sem hún er í eru sauma- klúbburinn Sokkabandið, Rebekku- stúkan Þórey og kvenfèlagið Ársól. Hún hefur verið dugleg í kórastarfi gegnum tíðina og er núna í Kirkju- kór Suðureyrar. „Svo er ég við- hengi við Karlakórinn Erni. Karl- inn minn er í þeim kór og ég fylgi hún að sinna sem mest fjölskyld- unni. „Við erum heppin með að flest barnabörnin eru á Ísafirði. Það er stutt að skreppa eða fyrir þau að koma til okkar. Yngri dæt- urnar búa á Suðurlandinu og þar er yngsti molinn, en við reynum að skreppa öðru hverju suður og hitta fjölskyldurnar þar. Við erum svo heppin að eiga hörkuduglega og góða krakka og makar þeirra allra yndislegir. Best er að hafa gaman af lífinu og njóta með fjölskyldu og vinum. Ég vona að heilsan verði góð og gott að vakna lifandi að morgni hvað sem öðrum finnst.“ Fjölskylda Eiginmaður Helgu er Björn Birkisson, f. 6.7. 1956, bóndi. For- eldrar Björns: Hjónin Birkir Frið- bertsson, f. 10.5. 1936, d. 5.6. 2017, og Guðrún Fanný Björnsdóttir, f. 16.7. 1936, bændur í Birkihlíð í Súgandafirði. Börn Helgu og Bjarnar eru: 1) Helga Guðný Kristjánsdóttir, bóndi í Botni í Súgandafirði – 60 ára Ljósmynd/Ágúst Atlason Fjölskyldan Helga, Björn og börn í túninu heima í Botni. Dæturnar sem búa fyrir sunnan halda utan um Ölfus- inginn Helgu, en börnin sem búa á Ísafirði halda utan um Súgfirðinginn Björn. Sunnlendingurinn í Súgandafirði Heyannir Helga og Björn í heyskap í Breiðadal í Önundarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.