Morgunblaðið - 17.11.2021, Qupperneq 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2021
Undankeppni EM U21 karla
D-RIÐILL:
Grikkland – Ísland ................................... 1:0
Liechtenstein – Hvíta-Rússland ............. 0:4
Portúgal – Kýpur ..................................... 6:0
Staðan:
Portúgal 5 5 0 0 20:0 15
Grikkland 6 4 2 0 11:1 14
Kýpur 5 2 1 2 12:7 7
Ísland 5 2 1 2 6:4 7
Hvíta-Rússland 6 2 0 4 11:7 6
Liechtenstein 7 0 0 7 0:41 0
Undankeppni HM karla
D-RIÐILL:
Bosnía – Úkraína...................................... 0:2
Finnland – Frakkland.............................. 0:2
Lokastaðan:
Frakkland 18, Úkraína 12, Finnland 11,
Bosnía 7, Kasakstan 3.
_ Frakkland fer á HM, Úkraína í umspil.
E-RIÐILL:
Tékkland – Eistland................................. 2:0
Wales – Belgía .......................................... 1:1
Lokastaðan:
Belgía 20, Wales 15, Tékkland 14, Eistland
4, Hvíta-Rússland 3.
_ Belgía fer á HM, Wales og Tékkland í
umspil.
G-RIÐILL:
Gíbraltar – Lettland................................. 1:3
Svartfjallaland – Tyrkland ...................... 1:2
Holland – Noregur ................................... 2:0
Lokastaðan:
Holland 23, Tyrkland 21, Noregur 18,
Svartfjallaland 12, Lettland 9.
_ Holland fer á HM, Tyrkland í umspil.
Suður-Ameríka
Bólivía – Úrúgvæ...................................... 3:0
_ Brasilía 34, Argentína 28, Ekvador 20,
Síle 16, Kólumbía 16, Úrúgvæ 16, Bólivía
15, Perú 14, Paragvæ 12, Venesúela 7.
Brasilía er komin á HM.
4.$--3795.$
Olísdeild karla
Stjarnan – FH....................................... 26:33
Staðan:
Haukar 8 6 1 1 243:209 13
Valur 7 5 1 1 208:177 11
FH 8 5 1 2 223:200 11
ÍBV 7 5 0 2 211:204 10
Stjarnan 7 5 0 2 215:207 10
Afturelding 8 4 2 2 238:224 10
Fram 7 4 0 3 195:194 8
Selfoss 7 3 0 4 176:175 6
KA 8 3 0 5 219:237 6
Grótta 6 1 1 4 155:165 3
HK 7 0 0 7 175:204 0
Víkingur 8 0 0 8 170:232 0
Grill 66-deild karla
Afturelding U – Fjölnir........................ 26:31
Olísdeild kvenna
HK – Haukar ........................................ 27:30
Staðan:
Valur 7 6 0 1 203:160 12
Fram 7 5 1 1 191:173 11
KA/Þór 7 5 1 1 198:181 11
Haukar 8 4 1 3 220:215 9
HK 8 3 1 4 190:199 7
Stjarnan 7 2 0 5 166:189 4
ÍBV 7 2 0 5 180:183 4
Afturelding 7 0 0 7 149:197 0
Evrópudeild karla
B-RIÐILL:
Medvedi – Lemgo ................................ 28:30
- Bjarki Már Elísson skoraði 9 mörk fyrir
Lemgo.
Nantes – GOG ...................................... 27:24
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði tvö skot í
marki GOG.
_ Benfica 6, GOG 4, Nantes 4, Lemgo 4,
Medvedi 0, Cocks 0.
C-RIÐILL:
Aix – Sävehof ....................................... 25:30
- Kristján Örn Kristjánsson skoraði þrjú
mörk fyrir Aix.
La Rioja – Magdeburg ........................ 29:29
- Ómar Ingi Magnússon skoraði 6 mörk
fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist-
jánsson komst ekki í blað.
_ Magdeburg 5, Sävehof 4, Nexe 4, La
Rioja 3, Gorenje 2, Aix 0.
D-RIÐILL:
Tatabánya – Kadetten ........................ 31:23
- Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
_ Nimes 4, Sporting 4, AEK Aþena 4,
Eurofarm Pelister 3, Tatabánya 1, Kadet-
ten 1.
%$.62)0-#
1. deild karla
ÍA – Skallagrímur .............................. 58:107
NBA-deildin
Chicago – LA Lakers ....................... 121:103
Washington – New Orleans............. 105:100
Minnesota – Phoenix............................ 96:99
Cleveland – Boston............................... 92:98
Detroit – Sacramento....................... 107:129
Atlanta – Orlando ............................. 129:111
New York – Indiana ............................. 92:84
Dallas – Denver ................................ 111:101
Memphis – Houston ......................... 136:102
Oklahoma – Miami ............................. 90:103
Portland – Toronto........................... 118:113
4"5'*2)0-#
Kári Arnarsson og Sölvi Atlason
skoruðu tvö mörk hvor fyrir
Skautafélag Reykjavíkur, SR, þeg-
ar liðið vann stórsigur gegn Fjölni í
úrvalsdeild karla í íshokkí, Hertz-
deildinni, í Egilshöll í Grafarvogi í
gær. Leiknum lauk með 9:1-
stórsigri SR en Hilmar Sverrisson
lagaði stöðuna fyrir Fjölni í stöð-
unni 0:6. SR er með 11 stig í öðru
sæti deildarinnar eftir fyrstu sjö
leiki sína en Fjölnir er í neðsta sæt-
inu með 3 stig eftir sjö leiki.
Skautafélag Akureyrar er í efsta
sætinu með 16 stig eftir sex leiki.
Stórsigur í
Grafarvogi
Ljósmynd/Bjarni Helgason/SR ís
2 Kári Arnarsson skoraði tvívegis í
stórsigri SR gegn Fjölni í Egilshöll.
Hulda Bjarnadóttir verður sjálf-
kjörin forseti Golfsambands Ís-
lands, GSÍ, þegar Golfþing ársins
2021 fer fram dagana 19. og 20.
nóvember á Fosshóteli í Reykjavík.
Hulda tekur við embættinu af
Hauki Birgissyni sem gaf ekki kost
á sér til áframhaldandi setu. Birgir
Leifur Hafþórsson, Hansína Þor-
kelsdóttir, Hjördís Björnsdóttir,
Hörður Geirsson, Jón B. Stef-
ánsson, Jón Steindór Árnason, Kar-
en Sævarsdóttir, Ólafur Arnarson,
Ragnar Baldursson og Viktor Elvar
Viktorsson eru sjálfkjörin í stjórn.
Sjálfkjörin
forseti GSÍ
Ljósmynd/Styrmir Kári
Forseti Hulda Bjarnadóttir tekur
við embættinu um næstu helgi.
SVÍÞJÓÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Berglind Rós Ágústsdóttir, leikmaður
Örebro í Svíþjóð og íslenska kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu, átti frá-
bært tímabil með sænska liðinu í úr-
valsdeildinni þar í landi í ár.
Berglind Rós, sem er 26 ára gömul,
byrjaði alla 22 leiki Örebro í deildinni
á tímabilinu en hún gekk til liðs við
sænska félagið frá Fylki í desember á
síðasta ári eftir fjögur ár í herbúðum
Árbæinga þar sem hún var fyrirliði
liðsins lengi vel.
Örebro var í harðri baráttu um
Meistaradeildarsæti á tímabilinu en
liðið hafnaði að endingu í áttunda sæti
sænsku úrvalsdeildarinnar með 30
stig, fimm stigum minna en Íslend-
ingalið Kristianstad, sem endaði í
þriðja sætinu og hirti síðasta Meist-
aradeildarsætið í Svíþjóð.
„Ég er mjög ánægð með mína
frammistöðu á nýliðnu tímabili og
þetta gekk betur en ég þorði að vona,“
sagði Berglind Rós í samtali við
Morgunblaðið.
„Satt best að segja þá átti ég ekki
von á því að spila jafn mikið og ég
gerði ef ég á að vera alveg hreinskilin.
Ég vissi auðvitað ekki alveg hvað ég
væri að fara út í enda mitt fyrsta
tímabil í atvinnumennsku. Ég var bú-
in að búa mig undir það að vera í
aukahlutverki með liðinu enda var ég
iðulega á meðal varamanna á undir-
búningstímabilinu.
Ég átti þess vegna alveg von á því
að hlutverk mitt yrði að koma inn á í
leikjunum og hjálpa liðinu þannig. Ég
endaði svo á að byrja alla leiki liðsins
sem var algjörlega geggjað. Ég spil-
aði mest sem miðvörður á leiktíðinni,
en ég spilaði líka sem bakvörður og á
miðjunni, þannig að maður fékk að
prófa hinar ýmsu stöður sem var
skemmtilegt líka,“ sagði Berglind.
Kærkomið sumarfrí
Örebro byrjaði tímabilið vel en var
komið í harða fallbaráttu um mitt
tímabil. Liðinu tókst hins vegar að
snúa genginu við um mitt tímabil, eft-
ir sumarfríið í ágúst.
„Þetta var mjög sérstakt tímabil í
alla staði ef við horfum á úrslitin. Við
byrjuðum þetta ágætlega og vorum
um miðja deild eftir fyrstu umferð-
irnar. Svo kemur ákveðið tímabil hjá
okkur, frá því í enda maí og fram í
júlí, þar sem bókstaflega ekkert
gengur upp hjá okkur. Við vorum
ekki að skora nægilega mörg mörk á
þessum tíma og það er erfitt að vinna
fótboltaleiki þegar mörkin láta á sér
standa.
Sumarfríið í sænsku deildinni var
því kærkomið og það kom líka á góð-
um tíma fyrir okkur. Eftir hlé þá fóru
hlutirnir aftur að falla með okkur og
við komumst á mjög gott skrið þar
sem við unnum sex leiki af níu. Við
áttum möguleika á því að enda í
Meistaradeildarsæti fyrir loka-
umferðina, eitthvað sem var fjar-
lægur draumur um mitt sumar.
Það hefur aðeins komið mér á
óvart hversu jöfn sænska deildin er
því með sigri í lokaumferðinni þá
hefðum við getað endað í þriðja sæt-
inu, ef úrslit í öðrum leikjum hefðu
verið okkur hagstæð. Í staðinn end-
um við í áttunda sætinu, fimm stigum
frá sæti í Meistaradeildinni en á
sama tíma vorum við líka með nýtt lið
þannig séð og það tók smá tíma að
púsla þessu saman.
Stemningin innan liðsins var hins
vegar alltaf mjög góð, þrátt fyrir dap-
urt gengi á köflum og við erum allar
mjög góðir vinir, leikmennirnir, utan
vallar. Við vissum að við gætum snúið
þessu við og þegar ég horfi til baka
þá held ég að við getum bara verið
nokkuð sáttar með tímabilið í heild
sinni.“
Vonast eftir góðum fréttum
Berglind hefur verið viðloðandi ís-
lenska landsliðshópinn síðan Þor-
steinn Halldórsson tók við liðinu í
janúar á þessu ári en alls á hún að
baki fjóra A-landsleiki.
„Ég er fyrst og fremst ánægð að
vera hluti af landsliðinu þótt ég sé að-
eins búin að vera inn og út úr hópnum
undanfarið. Samkeppnin er gríðar-
lega mikil en ég er þakklát fyrir þau
tækifæri sem ég hef fengið og það er
undir sjálfri mér komið að nýta þau
eins vel og ég get.
Steini [Þorsteinn Halldórsson] sér
mig meira sem miðjumann en varn-
armann og það eru smá viðbrigði að
koma inn á miðjuna í landsliðinu þeg-
ar ég er að spila sem varnarmaður í
Svíþjóð en það er líka bara skemmti-
leg áskorun.
Mig langar að vera hluti af hópnum
sem fer í lokakeppnina á Englandi
næsta sumar en til þess þarf ég að
halda áfram að standa mig vel með
mínu félagsliði. Við sjáum hvað setur
en markmiðið er að sjálfsögðu að
gera sig gildandi með landsliðinu
einn daginn.“
Berglind fór meidd af velli í loka-
leik tímabilsins í Svíþjóð gegn Vittsjö
6. nóvember í stöðunni 0:2, en leikn-
um lauk með 2:8-sigri Vittsjö.
„Ég sparkaði í boltann og fann fyr-
ir braki í hnénu. Ég gat ekki hlaupið
eftir þetta og settist bara niður á völl-
inn. Ég fékk verk aftan í hnéð en ég
hef þrívegis slitið krossband í hnénu
og þetta var ekki sama tilfinning. Ég
er þess vegna nokkuð bjartsýn á að
það sé í lagi með krossbandið.
Sjúkraþjálfararnir hjá Örebro
telja að ég sé með rifu í krossbandinu
en ég fór í myndatöku í vikunni og bíð
bara eftir niðurstöðu úr henni núna.
Vonandi fæ ég góðar fréttir í vikunni
og get tekið fullan þátt í undirbún-
ingstímabilinu með Örebro,“ bætti
Berglind við í samtali við Morgun-
blaðið.
Markmiðið að gera sig
gildandi með landsliðinu
- Berglind Rós byrjaði alla leiki Örebro í sænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu
Morgunblaðið/Unnur Karen
Ísland Berglind Rós lék sinn fjórða A-landsleik á dögunum gegn Kýpur á
Laugardalsvelli þegar hún kom inn á sem varamaður hinn 26. október.
Margrét Lea Kristinsdóttir náði bestum ár-
angri íslensku keppendanna á Norður-
Evrópumótinu í áhaldafimleikum sem fram fór
í Cardiff í Wales um nýliðna helgi.
Margrét Lea hafnaði í öðru sæti í gólfæfing-
um með 12.550 stig en Jónas Ingi Þórisson
náði bestum árangri karlamegin, fékk 13.750
fyrir gólfæfingar sínar, sem skilaði honum
bronsverðlaunum. Jónas Ingi keppti einnig til
úrslita í stökki, þar sem hann hafnaði í 6. sæti,
og á svifrá þar sem hann hafnaði í 7. sæti.
Jón Sigurður Gunnarsson keppti til úrslita í
hringjum og hafnaði í 4. sæti. Martin Bjarni
Guðmundsson kom inn sem varamaður á svifrá
og endaði í 6. sæti. Valgarð Reinhardsson
hafnaði í 4. sæti á tvíslá. Þá náðu þær Kristín
Sara Jónsdóttir og Hildur Maja Guðmunds-
dóttir sínum besta árangri á ferlinum í fjöl-
þraut.
Karlalandsliðið hafnaði í 5. sæti, rétt á eftir
sænska landsliðinu, og konurnar höfnuðu einn-
ig í 5. sæti, á eftir danska landsliðinu. Margrét
Lea var með bestan árangur kvenna í fjölþraut
með 46.550 stig og karlamegin var það Val-
garð með 77.100 stig, jafn í 9. sæti við Marcus
Stenberg frá Svíþjóð.
Margrét Lea nældi í silfur á Norður-Evrópumótinu
Ljósmynd/FSÍ
2 Margrét Lea
fékk silfur-
verðlaun
fyrir gólf-
æfingar sínar í
Cardiff.