Morgunblaðið - 23.11.2021, Page 5

Morgunblaðið - 23.11.2021, Page 5
Opið bréf nr. þrjú til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra Grein heilbrigðisráðherra, „Mikilvægi bólusetninga“, sem birt var í Morgunblaðinu 9. nóvember sl. vekur upp margar spurningar sem nauðsynlegt er að ráðherra svari. Um er að ræða málefni sem snýr ekki aðeins að lýðheilsu heldur einnig að borgaralegu frelsi og almennum mannréttindum. Meðal þess sem vekur spurningar eru vísbendingar um að íslensk stjórnvöld hafi valið óskilvirkari leiðir en önnur ríki sem virðast vera á betri vegferð, sbr. m.a. Japan. Síðasta bylgja smita í Japan náði hátindi 22. ágúst sl. en þá voru ný smit 26.184 talsins. Ný smit þar í landi 21. nóvember sl. voru 99,5% lægri en þegar mest lét í ágúst á þessu ári eða 112 skv. www.worldometers.info Í Japan búa tæplega 126 milljónir manna. Ef þetta er borið saman við Ísland samsvarar þetta því að einn myndi greinast á Íslandi þriðja hvern dag. Þess skal getið að Japan er ekki eina dæmið um ríki sem hefur náð góðum árangri að þessu leyti undanfarna mánuði. Stjórnvöldum ber að leggja heildarmat á þær aðgerðir sem þau standa fyrir, þ.m.t. áhættu, kostnað og ábata. Á þessum forsendum er þess óskað að heilbrigðisráðherra veiti skilmerkileg svör við eftirfarandi spurningum: 1. Ef markmiðið er að bæta heilsu fólks og þekktar aðferðir annara ríkja eru kunnar, hvers vegna hefur þeim ekki verið beitt hérlendis? 2. Ef markmiðið er að bæta heilsu fólks, hvers vegna hvetja heilbrigðisyfirvöld ekki fólk til að taka lýsi og tiltekin vítamín daglega? 3. Ef markmiðið er að bæta heilsu fólks, hvers vegna eru yfirvöld ekki að beita sömu aðferðum og Japanir og önnur ríki sem náð hafa bestum árangri gegn SARS-COV 2 undanfarna mánuði? 4. Ef markmiðið er bætt heilsa fólks, hvers vegna hafa heilbrigðisyfirvöld lagt alla áherslu á að „bóluefnin“ séu töfralausnin gegn SARS-COV 2, í stað þess að prófa notkun lyfja og vítamína sem virka vel erlendis og gætu gert gæfumuninn í baráttunni gegn SARS-COV 2? 5. Hvers vegna eru þær rannsóknir og þau vísindi sem frelsisskerðingar yfirvalda byggja á ekki birtar á vef heilbrigðisráðuneytisins eða á www.covid.is? Farið er fram á að allar upplýsingar verði birtar þar um þær vísindalegu forsendur sem yfirvöld byggja aðgerðir sínar á, ásamt viðeigandi tilvísunum til þeirra reglna sem settar hafa verið. 6. Samkvæmt frétt 11. nóvember sl. halda yfirvöld því fram að 27 einstaklingar hafi fengið SARS-COV 2 oftar en einu sinni hér á landi. Ef rétt reynist væri hér um heimsviðburð að ræða á sviði vísinda. Óskað er eftir að ráðuneytið staðfesti réttmæti þessara frétta, en leiðrétti þær ella sem fals-fréttir. 7. Birtar hafa verið upplýsingar á www.covid.is um hlutfall innlagna á sjúkrahús, „fullbólusettra“ og „ekki-bólusettra“ einstaklinga, hlutfall „fullbólusettra“ mun samkvæmt því vera 65%. Inniliggjandi sjúklingar eru um 1.4% af heildarfjölda PCR jákvæðra. Hve margir PCR jákvæðra einstaklinga hafa verið veikir á hverjum tíma og hve margir einkennalausir? Getur ráðuneytið upplýst hlutfall veikra af þeim sem hafa mælst með jákvætt PCR próf? Með hliðsjón af þeim miklu almannahagsmunum sem í húfi eru væntum við þess að ráðherra víki sér ekki undan því að bregðast skjótt við með skýrum svörum. Við væntum þess að sjálfsögðu að svör ráðherra verði studd tilvísunum í vísindalegar rannsóknir og gögn. Virðingarfyllst, VIÐVILJUM SVÖR SAMTÖKIN FRELSI OG ÁBYRGÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.