Morgunblaðið - 23.11.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2021
HÁDEGISMATUR alla daga ársins
Bakkamatur
fyrir fyrirtæki og mötuneyti
Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum,
sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt,
einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum
fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is
SKÚTAN
Matseðill og nánari upplýsingar á
veislulist.is
„HVERS VEGNA ERTU MEÐ HENDUR Á
LOFTI? HANN SAGÐI „UPP MEÐ HENDUR
OG NIÐUR MEÐ BRÆKUR“.“
„ÓKEI, HÉR ERU NIÐURSTÖÐURNAR ÚR
PRÓFINU YKKAR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að snæða saman
morgunverð í rúminu
um helgar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
AH! ANNAR FÓTURINN Á
MÉR ER SOFANDI
ISS, ÉG GET HÆKKAÐ
UM ÞRJÁ Í VIÐBÓT
HVAÐ MEÐ KNÚS,
SONUR SÆLL?
KANNSKI
SEINNA
ÉG HELD AÐ AMLÓÐI SÉ EKKERT
FYRIR SNERTINGU! KANNSKI VILL HANN BARA
EKKI SNERTA GRÍSAFEITI!
hesta þegar ég var 17 ára, en eftir
það tók leiklistin yfir og ég hætti líka
í handbolta á þeim tíma. Ég á ekki
hesta núna en ég hef farið í hesta-
ferðalög með Gunnari Gunnsteins-
syni vini mínum og Hilmi Snæ og
fleirum sem eru með hesta. Ég hef
góðan aðgang að lánshestum hjá vin-
um mínum og líka hjá Simma í Syðra-
Langholti í Hrunamannahreppi, en
hann er mér sem bróðir. Draumurinn
er að eignast aftur hesta og það gæti
ræst á næstu árum,“ segir Jóhann og
bætir við að fjölskyldan sé frekar
virk þegar áhugamál eru annars veg-
ar.
„Ég stunda reglulega líkamsrækt,
lyftingar og fleira, og við erum líka í
golfi og förum á skíði á veturna. Ég
fylgist vel með íþróttum og synir
mínir voru báðir afburðagóðir í hand-
bolta og annar einnig í fótbolta. Þeir
voru í yngri landsliðum og ég fór í
margar ferðir í kringum það. Nýlega
fengum við okkur hvolp og það tekur
tíma að sinna honum. Ég á líka tvö
mótorhjól, annað er ég að dunda við
að gera upp en hitt er ferðahjól. Ég
tilheyri skemmtilegum hópi sem
ferðast um landið á mótorhjólum á
sumrin.“
Fjölskylda
Eiginkona Jóhanns er Guðrún Kal-
dal, f. 16.7. 1970, framkvæmdastjóri
frístundamiðstöðvarinnar Tjarnar-
innar. Þau búa á Seltjarnarnesi. For-
eldrar Guðrúnar eru Jón Kaldal, f.
14.3. 1942, d. 11.2. 2003, bygginga-
fræðingur, og Steinunn Kaldal Krist-
insdóttir, f. 9.12. 1945.
Synir Jóhanns og Guðrúnar eru
Jóhann, f. 9.6. 1999, og Krummi, f.
7.1. 2003, báðir nemar.
Jóhann Gunnar
Jóhannsson
Guðlaug Vigfúsdóttir
húsfreyja í Hjallanesi, f. á Framnesi, Skeiðum, Árn.
Þórður Þórðarson
bóndi í Hjallanesi í Landsveit,
Rang, f. þar
Emelía Sigríður Þórðardóttir
húsfreyja í Reykjavík
Ingibergur Gunnar Kristinsson
netagerðarmaður í Reykjavík, fósturfor:
Þorvaldur Jónsson og Ragnheiður Jónsdóttir
Guðlaug Svala Ingibergsdóttir
húsmóðir í Kópavogi
María Guðríður Jónsdóttir
húsfreyja í Reykjavík, f. á
Brennistöðum, Borgarhr., Mýr.
Kristinn Þorkelsson
skósmiður í Reykjavík, f. á Fellsenda í Þingvallasveit
Kristín Pétursdóttir
húsfreyja á Berserkjahrauni, síðast í Reykjavík, f. í Flatey
Guðmundur Sigurðsson
bóndi á Berserkjahrauni í
Helgafellssveit, Snæf., f. á Staðarbakka
Guðrún Guðmundsdóttir Ellis
húsfreyja í Reykjavík, síðar í
Iowa, BNA,maki: Ray Ellis
Gísli Gunnar Björnsson
bifvélavirki og bílstjóri í Reykjavík
Jóhanna Jónsdóttir
húsfreyja í Reykjavík, f. í
Skipholti, Hrunamannahr., Árn.
Björn Blöndal Jónsson
skipstjóri og löggæslumaður í Reykjavík. Einn af stofnendum
Sjómannafélags Reykjavíkur, f. á Hausastöðum, Garðahr., Gull.
Ætt Jóhanns G. Jóhannssonar
Jóhann Gunnar Gíslason
vélstjóri í Kópavogi.
Hestamaður, íþróttamaður
og þjálfari. Gegndi ýmsum
trúnaðar- og félagsstörfum
Þorsteinn í Holti í Þistilfirði var
mikill fjárræktarmaður og sú
fjölskylda og átti hrútinn Pjakk,
sem þótti skara fram úr öðrum
kynbótahrútum í landinu. Þetta
var kveikjan að þessari vísu, sem
ég orti þegar við Steingrímur Sig-
fússon vorum á þingi saman:
Var í Holti hrútur vænn
en hann er dauður;
Steingrímur er stundum grænn
og stundum rauður.
Þetta rifjaðist upp þegar ég las
limruna „Bæn pólitísku hæn-
unnar“ eftir Pál Jónasson bónda í
Hlíð á Langanesi:
„Og hananú,“ sagði hænan,
„ég hafa vil – sprækan og vænan,
með eggjandi stél,
sem embættar vel,
og auðvitað rauðan og grænan.“
Enn yrkir Páll og kallar „Hænu-
haus“:
Topphæna í tilvistarvanda
í taktleysi reynir að standa
sína topphænuvakt
í topphænudragt
og gaggið og vaggið að vanda.
Á laugardaginn birtist í Vísna-
horni „gömul vísa“. Einar Njáls-
son sendi mér þessa athugasemd,
sem ég er þakklátur fyrir: „Þakka
þér skemmtilegt Vísnahorn sem
ég les jafnan mér til ánægju. Í
morgun 20.11. 2021 er birt „Göm-
ul vísa“ sem ég lærði öðruvísi. Til
öryggis fletti ég upp í Þingeyskum
ljóðum sem prentuð voru 1948 og
gefin út til styrktar byggingu
sjúkrahúss á Húsavík. Þar er þessi
vísa Steingríms Baldvinssonar
bónda í Nesi svohljóðandi á bls.
176“:
Meydómurinn mesta þykir hnoss
meðan hann er þetta kringum tvítugt.
En verður æði mörgum kvalakross,
ef kemst hann nokkuð teljandi yfir þrí-
tugt.
Ingólfur Ómar sendi mér póst:
„Mér datt í hug að lauma að þér
vísu sem ég tileinka stökunni“:
Lifir hróður stuðlastáls
stefjagróður þarfur.
Vísan góða fim og frjáls
fengsæll þjóðararfur.
„Síminn minn“ eftir Sigurlín
Hermannsdóttur:
Á snapp-tjatti snotur ein mynd er
í snjallsímann kalla ég fram.
Þar er líka tvítið og tinder,
tik-tok og instagram.
Hann tiltekur fyrir mig tímann
og telur mín gönguskref.
En stundum ég þrái þó sveitasímann
sem samfélagsmiðlavef.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Og hananú sagði hænan