Morgunblaðið - 23.11.2021, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2021
Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, skrifar um kjara-
samninga á bak Viðskiptablaðsins
í liðinni viku. Þar nefnir hún að á
síðustu 32 mán-
uðum hafi 326
kjarasamningar
verið endurnýjaðir
og að stéttarfélög
séu tvöfalt fleiri
hér á landi en í Sví-
þjóð. Þá segir hún:
„Á Norður-
löndunum er það
ófrávíkjanleg regla að stefnu-
markandi samningar eru gerðir á
vettvangi útflutningsgreina og að
opinberi vinnumarkaðurinn víki
ekki frá þeim ramma. Hér er
þessu öfugt farið.
- - -
Í kjarasamningum fyrir opinbera
starfsmenn líta stéttarfélögin á
fyrstu kjarasamningana á almenn-
um vinnumarkaði sem lágmarks-
samninga og knýja svo í framhald-
inu fram meiri launahækkanir.
Þessi kerfisgalli hefur lengi legið
fyrir en lítill áhugi verið til um-
bóta.“
- - -
Ásdís bendir ennfremur á að
veikasti hlekkurinn í þessari
keðju séu sveitarfélögin, enda hafi
formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga nýverið lýst „launa-
hækkunum sem stórslysi í fjár-
málum sveitarfélaga“.
- - -
Ásdís telur að grípa þurfi til að-
gerða, meðal annars að veita
þurfi ríkissáttasemjara „heimildir
og verkfæri til að tengja saman
aðila og fresta verkfallsaðgerðum
ef kröfur eru óraunhæfar að hans
mati“. Mögulega væri þetta liður í
að laga kerfið hér á landi. Í öllu
falli er ljóst að atvinnulífið þolir
ekki að farið verði út í aðra eins
kjarasamningalotu og síðast með
þeim afleiðingum sem henni hafa
fylgt.
Ásdís
Kristjánsdóttir
Kjarasamninga-
gerð í ólestri
STAKSTEINAR
Svört vika
Netsprengja
20% afsláttur
af öllum vörum
dagana 22.-29. nóvember
Selásbraut 98, 110 Reykjavík, sími 419 7300, sportval.is
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Embætti héraðssaksóknara hefur
gefið út ákæru í máli gegn karl-
manni á Egilsstöðum vegna skot-
árásar sem átti sér stað 26. ágúst í
götunni Dalseli í bænum. Þetta stað-
festi Friðrik Smári Björgvinsson hjá
héraðssaksóknara við mbl.is í gær.
Lögregla skaut manninn í aðgerðum
sínum, en hann er á batavegi.
Í skotárásinni fór maðurinn vopn-
aður haglabyssu og riffli á heimili
annars manns sem hann leitaði að.
Sá maður hafi hins vegar ekki verið
heima þegar byssumanninn bar að
garði. Heimildir herma þó að börn
mannsins hafi verið heima og flúið
þar sem þeim stóð ógn af byssu-
manninum sem hafði skotið á rúðu í
húsinu á móti áður en lögreglan kom
á staðinn.
Fjöldi íbúa í Dalseli varð var við
skotárásina sem stóð yfir í rúman
hálftíma að sögn vitna. Minnst einn
varð vitni að því þegar byssumaður-
inn var skotinn í kviðinn í aðgerðum
lögreglu.
Saksóknari hefur 12 vikur til að
gefa út ákæru ef halda á sakborn-
ingum í gæsluvarðhaldi. Rann sá
frestur út sl. föstudag. Friðrik Smári
staðfesti að maðurinn yrði í gæslu-
varðhaldi til 30. nóvember.
Manninum hefur enn ekki verið
birt ákæran.
Ákæra gefin út vegna skotárásar
- Byssumaðurinn á Egilsstöðum sagð-
ur á batavegi - Áfram í gæsluvarðhaldi
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Egilsstaðir Frá vettvangi skotárás-
arinnar í Dalseli í ágústmánuði sl.
Hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur
nam tæpum 2,1 milljarði króna á
þriðja ársfjórðungi, samanborið við
ríflega 1,6 milljarða hagnað á sama
tímabili í fyrra.
Rekstrar-
tekjur jukust um
867 milljónir á
tímabilinu og
námu 4,2 millj-
örðum. Rekstr-
arkostnaður
dróst hins vegar
saman um 135
milljónir og nam
4,2 milljörðum
króna. Laun og
launatengd gjöld námu 1.625 millj-
ónum króna og lækkuðu um 42
milljónir króna.
Vaxtakostnaður lækkaði talsvert
á tímabilinu og nam 1.890 millj-
ónum króna en hafði numið 2.059
milljónum á sama fjórðungi í fyrra.
Bjarni Bjarnason, forstjóri fyrir-
tækisins, segir að góð tök á rekstr-
arkostnaði séu lykillinn að því að
hagstæðar ytri aðstæður, ekki síst
hærra álverð og hagstæðari lána-
kjör, skili sér í góðri heildarniður-
stöðu árshlutareiknings.
„Vegna þessa árangurs í rekstr-
inum getum við haldið áfram að
bjóða þjónustuna á tiltölulega lágu
verði. Nýlega lækkuðu tengigjöld
Veitna og nú liggur fyrir að raun-
lækkun verður á kalda vatninu með
því að vatnsgjald heimila verður
óbreytt á næsta ári,“ segir Bjarni.
Á fyrstu níu mánuðum ársins
nemur hagnaður OR 10,9 milljörð-
um króna, samanborið við 743
milljóna hagnað á fyrstu níu mán-
uðum ársins 2020. Munar þar
miklu að rekstrarkostnaður er 867
milljónum lægri. Þá hefur það mik-
il áhrif á uppgjörið að verðmæti
langtímasölusamninga er fært í
rekstrarreikning. Vegna lækkandi
álverðs vegna kórónuveirunnar
voru þeir samningar færðir um-
talsvert niður. Á fyrstu níu mán-
uðum ársins 2020 var virði þeirra
samninga fært niður um 2,75 millj-
arða en hækkar á fyrstu níu mán-
uðum yfirstandandi árs um 7,86
milljarða.
„Ef við lítum fram hjá reiknuð-
um stærðum í uppgjörinu þá væri
rekstrarafkoman jákvæð um sex
milljarða króna. Það er eðlilegur
afrakstur af því fé sem eigendur
hafa bundið í starfseminni,“ segir
Bjarni í tilkynningu.
Orkuveitan hagn-
ast um 2,1 milljarð
- Rekstrarkostnaður lækkar milli ára
Bjarni
Bjarnason