Morgunblaðið - 23.11.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.11.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2021 Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Utanríkisleyniþjónusta Rússlands, SVR, hafnaði í gær ásökunum um að Rússar væru nú að undirbúa inn- rás í Úkraínu, en Vesturveldin segja að rúmlega 100.000 rúss- neskir hermenn séu við landamæri ríkjanna. „Bandaríkjamenn mála nú ógn- vekjandi mynd af rússneskum skriðdrekum sem ætli sér að kremja borgir Úkraínu,“ sagði í yfirlýsingu SVR, sem kallaði slíkt „falsfréttir“ og „hræðsluáróður“ Bandaríkjamanna til bandamanna sinna og tilraun til þess að auka spennu í heimshlutanum. Þá sakaði leyniþjónustan her Úkraínumanna um að ráðgera árásir á aðskilnaðarsinna í austur- hluta landsins, en Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, sagði þær ásakanir alrangar. Segja „innrásar“- fregnir rangar RÚSSLAND Bandaríkjamenn voru slegnir hryll- ingi í gærmorgun eftir að ökumað- ur á rauðum jepplingi keyrði á ofsahraða inn í jólaskrúðgöngu í borginni Waukesha í Wisconsinríki á sunnudagskvöld. Fimm létust hið minnsta og rúmlega fjörutíu slös- uðust þegar bifreiðin keyrði í gegn- um mannfjöldann, en börn voru á meðal fórnarlambanna. Óttast var að um skipulagt hryðjuverk hefði verið að ræða, en bandarískir fjölmiðlar greindu frá því í gær að svo virtist ekki vera, heldur hefði ökumaður bifreiðar- innar verið að flýja lögregluna vegna annars brots. Var hann nefndur í fjölmiðlum sem Darrell Brooks, 39 ára gamall maður frá Wisconsin, en ekki var búið að ákæra hann í gær. Fánar í ríkinu voru dregnir í hálfa stöng í gær og Tony Evers ríkisstjóri sagði að beðið yrði fyrir samfélaginu í Waukesha, börn- unum og ástvinum sem nú hefðu orðið fyrir þessum „óhugsandi harmleik“. BANDARÍKIN Keyrði á ofsahraða inn í skrúðgöngu AFP Harmleikur Brak lá eins og hráviði um götur Waukesha eftir ofsaaksturinn. Stórblöðin Fin- ancial Times og Wall Street Journal greindu frá því í gær að tilraun Kínverja með ofur- hljóðfráa eld- flaug í júlí síðast- liðnum hefði einnig falið í sér að annarri eldflaug var skotið frá megineldflauginni, meðan hún ferðaðist á meira en fimmföldum hljóðhraða. Segja blöðin tilraunina sýna að þróun Kínverja á kjarn- orkuvígbúnaði sínum sé komin mun lengra en áður var talið, en hvorki Bandaríkin né Rússland hafa gert áþekkar tilraunir með ofurhljóðfrá vopn. Ekki er vitað hvort tilgangur seinni eldflaugarinnar er að bera kjarnaodda eða rugla varnarkerfi í ríminu. KÍNA Eldflaug skotið frá annarri eldflaug Eldflaugaskot Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Jens Spahn, heilbrigðisráðherra Þýskalands, varaði við því að það væri erfiður vetur fram undan vegna fjórðu bylgju kórónuveirunnar, sem leikur nú Evrópu grátt. Tilfellum í flestum ríkjum Vestur-Evrópu fjölg- aði ört í síðustu viku frá vikunni áður, og er það sjöunda vikan í röð samkvæmt Sóttvarnastofnun Evr- ópu sem nýjum tilfellum hefur fjölg- að í álfunni. Sagði Spahn að ástandið væri það slæmt að líklega yrðu allir Þjóðverj- ar eitt af þrennu í lok vetrarins; bólu- settir, læknaðir af kórónuveirunni eða látnir af völdum hennar. Hvatti hann sem flesta til þess að láta bólu- setja sig, en stjórnvöld í Þýskalandi hafa rætt að setja á bólusetningar- skyldu, en einungis um 68% þýsku þjóðarinnar hafa látið bólusetja sig. Munu kristilegu flokkarnir vera fylgjandi því, en sósíaldemókratar, sem leiða nú viðræður um myndun nýrrar ríkisstjórnar, eru efins. Þjóðverjar íhuga einnig frekari takmarkanir, einkum gagnvart þeim sem ekki hafa þegið bólusetningu gegn kórónuveirunni. Varaði Angela Merkel Þýskalandskanslari við því á fundi flokksleiðtoga kristilegra demókrata í gær að þær aðgerðir sem þegar hefði verið gripið til væru ekki nóg til þess að stemma stigu við fjórðu bylgju kórónuveirunnar. Sagði hún að fjöldi nýrra tilfella tvö- faldaðist nú á tólf daga fresti í Þýskalandi. Þau sambandslönd sem verst hafa orðið úti í fjórðu bylgjunni hafa þeg- ar gripið til hertra aðgerða, og hefur t.d. öllum jólamörkuðum í Bæjara- landi verið lokað vegna ástandsins. Ekki er þó víst hvort Þýskaland eða önnur ríki muni grípa til útgöngu- banns á borð við það sem gekk í gildi í Austurríki í gær, en það eru hörð- ustu aðgerðir sem gripið hefur verið til í Evrópu frá því á síðasta ári. Fordæmdu ofbeldi helgarinnar Forsætisráðherrar Hollands og Belgíu fordæmdu í gær óeirðir helg- arinnar, sem spruttu upp af mót- mælum gegn hertum sóttvarna- aðgerðum gegn kórónuveirunni um helgina. Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, sagði að óeirðirnar hefðu verið „hreint ofbeldi“, framið af „hálfvitum“, en að minnsta kosti 145 voru handteknir vegna óeirðanna, sem náðu til allra helstu stórborga Hollands. Fjórir særðust í óeirðun- um og nokkrir lögregluþjónar fengu áverka eftir þær. „Ég skil að það er mikil spenna í samfélaginu vegna þess að við höfum verið að takast á við kórónuveiru- pláguna svo lengi,“ sagði Rutte, og bætti við að hann myndi alltaf verja rétt fólks til mótmæla en ekki væri hægt að samþykkja ofbeldi. Stjórn- völd í Hollandi íhuga nú að leyfa bör- um og veitingastöðum að meina óbólusettum aðgang, en takmarkað útgöngubann hefur verið í gildi þar í tíu daga. Alexander de Croo, forsætisráð- herra Belgíu, sagði hins vegar að það ofbeldi sem hefði sést á götum Brussel á sunnudaginn, þar sem um 35.000 manns komu til að mótmæla hertum aðgerðum, hefði verið „al- gjörlega óviðunandi“. Þrír lögreglu- þjónar særðust eftir að óeirðaseggir köstuðu grjóti og kveiktu elda í mið- borg Brussel. Þakkaði De Croo lögreglunni fyrir að verja almenning. Sagði hann að hegðun mótmælenda ætti ekkert skylt við hugmyndir um frelsi. „Þetta hafði ekki að gera með hvort bólusetning væri góð eða ekki, þetta var glæpsamleg hegðun.“ Erfiður vetur fram undan - Tilfellum fjölgar í Evrópu sjöundu vikuna í röð - Þjóðverjar allir „bólusettir, læknaðir eða látnir“ í lok vetrar - Rutte og De Croo fordæmdu óeirðirnar AFP Fordæmdu óeirðir Hér má sjá verksummerki eftir óeirðir í Rotterdam um helgina, þar sem kveikt var í hjólum og grjóti kastað í lögreglumenn. Mark Rutte forsætisráðherra Hollands fordæmdi í gær óeirðirnar sem brutust út. Heimild: AFP, talning byggð á opinberum tölum Breyting frá síðustu viku í % Fjöldi daglegra tilfella, meðaltal síðustu 7 daga 333,500 100,000 50,000 10,000 -5-20 +5 +50+20 Tilfellum Covid-19 fjölgar enn í Vestur-Evrópu Staðan 21. nóvember

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.