Morgunblaðið - 23.11.2021, Page 21

Morgunblaðið - 23.11.2021, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2021 ✝ Ingvi Th. Agn- arsson fæddist í Reykjavík 13. des- ember 1950. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans 19. októ- ber 2021. Móðir hans er Erla Ásmunds- dóttir, f. 28. maí 1931. Faðir hans Agnar Ólafsson, f. 29. nóvember 1930, d. 9. október 2014. Þann 14. mars 1972 kvæntist Ingvi Margréti Báru Sigmunds- dóttur, f. 4. júlí 1952. Þau eign- uðust tvö börn, Ólaf Hólm Theó- dórsson, f. 7. maí 1973 og Erlu Björk Theódórsdóttur, f. 25. ágúst 1976. Barn Ólafs er Anna Lísa Ólafsdóttir, f. 20. sept- ember 1999. Börn Erlu eru Margrét Lísa Ingimars- dóttir, f. 22. sept- ember 1997 og Sindri Már Ingi- marsson, f. 7. des- ember 2000. Systkini Ingva eru Dagmar Agn- arsdóttir, f. 14. mars 1952, Kristín Agnarsdóttir, f. 24. maí 1955 og Agnar Agnarsson, f. 28. maí 1961. Ingvi lærði útvarps- og sjón- varpsvirkjun og gaf út Íslenskan annál um árabil. Frá 1994 störf- uðu þau hjónin saman við mynd- list, Myndver Margrétar, þar til hann féll frá. Útför Ingva hefur farið fram í kyrrþey. Það er þungt og sárt að kveðja bróður sinn hinsta sinni. Við systkinin eftirlifandi erum eigin- lega í þoku, svo óraunverulegt er að þurfa að sætta sig við að elsti bróðir okkar, skemmtilegi grall- arinn og þúsundþjalasmiðurinn, sé ekki lengur á meðal okkar. Ingvi var góður bróðir, glað- beittur og áhugasamur, talaði aldrei illa um nokkurn mann, ávallt reiðubúinn að benda á lausnir og lét ekkert vefjast fyrir sér. Handlaginn umfram flest annað fólk og lét ekkert stöðva sig ef honum þótti líklegt að út- koman yrði ánægjuleg eða til gagns. Þar voru þeir feðgar, Ingvi og Óli, í essinu sínu: smíð- uðu í sameiningu dróna, magnara og margt fleira sem við hin kunn- um ekki skil á. Tólf ára gamall opnaði hann fína stofuútvarpið og plötuspilarann heima hjá okkur, losaði úr því snúrur, festingar, skrúfur og lampa – og setti svo allt saman aftur og fékk úr því enn betri hljóm en áður. Í einkalífinu var stóri bróðir okkar gæfumaður. Þau Margrét Bára kynntust ung, gengu ung í hjónaband og vernduðu æsku sína og æskuástina alla tíð. Ekki var hægt að tala um annað þeirra án þess að hitt væri nefnt í sömu andrá, svo samhent og samstiga voru þau. Ef til stóð að byggja eða bæta, þá voru þau bæði kom- in í vinnugallann og unnu eins og einn maður – hvort heldur sem var við smíðar, pípulagnir, raf- lagnir eða hvaðeina. Á liðnu vori kom til að mynda í ljós að end- urgera þyrfti þakkantinn á hús- inu þeirra í Fýlshólum. Því var leitað eftir tilboðum frá nokkrum verktökum. Nei, sögðu þau þegar þau skoðuðu tilboðin: við gerum þetta bara sjálf. Og svo var það gert! Það sama hafði gerst þegar þau ákváðu að það væri nauðsynlegt að hafa heitan pott við sumarhús þeirra við Laugarvatn. Þar áttu þau sjálf hvert handtak og pott- urinn varð listasmíð sem fellur svo vel inn í umhverfið að engu er líkara en hann hafi verið þar alla tíð. Listfengi þeirra og vand- virkni var viðbrugðið, aldrei var gerður hlutur sem ekki bar höf- undum sínum gott vitni. Ingvi lærði sjónvarpsvirkjun sem ungur maður en áttaði sig fljótt á því að það átti ekki við hann að vinna hjá öðrum eða und- ir stjórn annarra, hann vildi ráða sjálfur sínum tíma og sínu vinnu- lagi. Þar, eins og í flestu öðru, áttu þau Magga skap saman. Í mörg ár nýtti hún listfengi sitt og dugnað við málverk – málaði fyr- irbæri af ýmsu tagi af einstakri lagni og listfengi – og Ingvi fyllti svo sendibílinn af myndum og ók út um land til að selja verkin. Börnin þeirra tvö, Ólafur Hólm og Erla Björk, héldu dyggilega hópinn með foreldrum sínum, áttu þau að bestu vinum og þegar barnabörnin fóru að koma gilti það sama um þau. Að fylgjast með stóra bróður og hans fólki var aldrei minna en afar fallegt. Við vitum sem er að þótt Ingvi bróðir sé farinn að spekúlera á gresjunum eilífu, og tómleikinn innra með okkur sé mikill og söknuðurinn sár, þá eigum við alltaf ljúfsáru minningarnar og fólkið hans Ingva. Elsku Magga Bára, Óli, Erla og afabörn: Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Dagmar, Kristín og Agnar og fjölskyldur þeirra. Hann Ingvi Theódór Agnars- son bróðursonur minn hefur kvatt þennan heim óvænt og allt- of fljótt, rétt orðinn sjötugur. Við Ingvi höfum fylgst að í lífinu nán- ast frá því vorum strákar og verið bestu vinir þrátt fyrir dálítinn aldursmun. Þegar Ingvi og Mar- grét Bára konan hans fóru að búa 1972 settu þau sig niður ekki langt frá heimili mínu í Fossvog- inum og kom ég oft til þeirra á þeim tíma í Gautlandið. Ingvi og Magga voru ekki bara samhent hjón heldur kom fljótt í ljós að þau voru hugmyndarík og handlagin með afbrigðum og nýttu sér það með því að búa til fallega hluti og málverk sem Ingvi síðan seldi með því að ganga í hús um allt land. Þannig eignuðust þau sína fyrstu íbúð og þannig hafa þau mikið til unnið fyrir sér síðan. Á þessum árum voru Magga og Ingvi reglulegir gestir í kaffi hjá okkur mömmu í Keldulandinu og þannig hélst þessi góði siður allt þar til mamma dó 1988. Málin voru krufin og rædd yfir kaffibolla og oft kíkti mamma í bolla og spáði fyrir gestunum. Ingvi lauk námi í því sem þá var kallað útvarps- og sjónvarps- virkjun og vann um tíma sem slíkur og nýtti sér líka námið og kunnáttuna til að smíða sér hátal- ara og magnara o.fl. sem mér þótti spennandi og gaman að fylgjast með verandi tæpum níu árum yngri. Ég er ekki frá því að þetta hafi m.a. haft áhrif á mig þannig að ég fór í nám í raf- magnsverkfræði. Ingvi lét aldrei fagið alveg frá sér þrátt fyrir annað lifibrauð. Síðustu árin hef- ur hann m.a. smíðað sér dróna sem voru í raun á undan sinni samtíð því að þeir voru ekki hvers manns leikfang þegar hann byrjaði á því. Lengst af hafa Magga og Ingvi búið í Fýlshólunum í Breiðholt- inu og þangað var alltaf gaman að koma og sitja við borðstofuglugg- ann og sjá yfir nánast alla Reykjavík, Esjuna og Faxafló- ann. Þar var gott að ræða málin og leysa úr öllum spurningum samtímans. Þá eru ótaldar stund- irnar sem við áttum saman í hestamennskunni, fórum á lands- mót og áttum góðar stundir sam- an þar sem alltaf var glatt á hjalla og mikið sungið og jafnvel dans- að. Þar tók pabbi Ingva, bróðir minn Agnar Ólafsson, oft mikinn þátt og við skemmtum okkur vel saman. Það er margs að minnast og mikill söknuður hjá okkur öllum sem kynntumst Ingva og áttum samleið með honum. Hann var alltaf kátur og hlýr og góður heim að sækja, hvort sem það var í Fýlshólunum eða í sumarbú- staðnum á Laugarvatni þar sem Magga og Ingvi undu sér löngum stundum og lögðu haga hönd á margt. Eitt af því er heiti pott- urinn sem í raun er veraldarund- ur, svo haganlega er hann gerður og fellur vel að umhverfinu. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Við Unnur minnumst Ingva með söknuði og þakklæti fyrir allar góðu stundirnar sem hefðu mátt vera miklu fleiri núna á seinni árum. Við sendum Mar- gréti Báru og börnum og barna- börnum og allri stórfjölskyldunni okkar bestu samúðarkveðjur og vitum að söknuðurinn er mikill en um leið eru minningarnar svo góðar og dýrmætar inn í eilífðina. Eyþór Haraldur Ólafsson. Ingvi Th. Agnarsson Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún) Hallgrímur Hallgrímsson ✝ Hallgrímur Hallgrímsson fæddist 15. apríl 1955. Hann lést 13. október 2021. Útförin hefur farið fram í kyrr- þey. Nú ertu farinn í síðustu ferðina þína elsku pabbi. Eftir sitjum við sorg- mæddar og hugsum hversu ósanngjörn örlögin geta verið. Við vildum að þú hefðir haft lengri tíma hér, en þú fórst alltof fljótt. Síðasta ferðalagið okkar saman var í lok árs 2018. Þá var búið að greina þig með MND og þú fórst á ráð- stefnu um sjúkdóminn í Skotlandi. Við komum frá Englandi og áttum tvo daga með þér í Glasgow. Það var baráttuandi í þér og þú sagðist ætla að berjast af fullum þunga eða eins og „rjúpan við staurinn“ (eins og þú orðaðir það) við sjúk- dóminn sem herjaði á þig. Þú varst nefnilega þannig, þú gafst ekki upp, varst stoltur og hafðir ríka réttlætiskennd. Þú sýndir okkur svo vel hversu stórkostlegur baráttuandi þinn gat verið meðan þú barðist við veikindin. Þú barðist hetjulega og fékkst meira að segja samþykkt að fá að taka inn lyf sem hafði ekki verið notað áður á Íslandi gegn MND en var byrjað að nota í með- ferð gegn sjúkdómnum í Ástralíu. Þú tókst á við kerfið til að fá þessi lyf og náðir þínu fram. Þannig varstu elsku pabbi, þú varst tilbú- inn að leggja þig allan fram fyrir málstaðinn. Það er svo sárt að fá ekki leng- ur að ræða við þig um heima og geima og fá ekki lengur að læra af reynslu þinni. Þú fylgdist vel með, hugsaðir út fyrir rammann, varst frumkvöðull og heimsborgari. Þegar við töluðum saman var aug- ljóst að þú varst líka stoltur af okkur, öllum stelpunum þínum, og hafðir áhuga á því sem við vorum að gera. Þegar litlu langafa- snúllurnar þínar komu að hitta þig á Droplaugarstöðum var alveg sama hversu líðanin var slæm og þú kvalinn á þeim degi, þú ljóm- aðir upp og varst alltaf svo ánægð- ur þegar þær komu. Við stelpurnar þínar munum aldrei gleyma þér elsku pabbi, afi og langafi. Þú munt lifa áfram í hjarta okkar – takk fyrir allt og allt. Þínar Hildur og Heba. Einu sinni fæddist á gömlu sím- stöðinni á Eskifirði gullfallegur drengur með himinblá augu, ljóst hár og útstæð eyru. Hann var skírður Hallgrímur og skírnin gekk áfallalaust nema hvað hon- um leiddist aðgerðaleysið og sleit perluhálsfesti sem föðursystir hans bar. Áfram þurfti Halli að hafa nóg fyrir stafni. Hann lagði allt undir til að klára verkefni sín og gafst ekki upp þótt á móti blési. Stundum fannst okkur hann vera eins og maðurinn sem barðist við vindmyllurnar. Ekki að andstæð- ingurinn væri ímyndaður heldur að sigur væri óhugsandi. Það var þó ótrúlega oft að seigla hans og hugkvæmni færðu honum sigur. Sú þrautseigja fylgdi honum alla tíð en birtist líka sem þrjóska eða þvermóðska. Ekki var nóg að leysa verkefnin. Úrlausnin varð að vera fullkomin eða því sem næst. Það voru kröfurnar sem hann gerði til sjálfs sín og annarra. Honum fannst afleitt þegar sam- ferðamenn hans notuðu öðruvísi gleraugu á lífið en hann sjálfur. Hann skipti þó stundum um skoð- un en það gat allt eins farið á hinn veginn og kostað sárindi sem erf- itt var að græða. Halli var frum- kvöðull og afar sjálfstæður maður. Þetta gat valdið árekstrum þegar hann vann fyrir aðra. Stundum skildi því leiðir með honum og þeim sem höfðu hin áþreifanlegu völd í ágreiningi einstaklings og atvinnurekanda eða í baráttu við- skiptavinar við fjármálastofnun. Ungur kvæntist Halli Valgerði og þau eignuðust tvær dætur, Hildi Rós og Hebu Björgu. Þau hjónin slitu samvistir. Hall réði sig sem skipstjóri á bát en vildi líka vera hæstráðandi í landi. Hann ætlaði sér að beina dætrum sínum á réttar brautir í lífinu. Hann vildi hlífa þeim við sársaukanum sem fylgir því að villast af vegi og hann þekkti hugsanlega af eigin raun. Hver veit, hann átti örðugt með að tjá tilfinningar sínar. Hann duldi þær þar til þær sprengdu sér leið út. Dæturnar erfðu sjálfstæðið og þrjóskuna. Þær vildu velja sína lífsgöngu og bera sjálfar ábyrgð á sér. Á nítjándu öld hefði Halli ver- ið stórbóndi með útgerð. Hann hefði haft fjölskylduna og vinina í kringum sig og trúlega heimilis- lausa líka. Hann hefði stjórnað og gert vel við alla í mat og drykk eins og hann gerði í lífi sínu. Hann tók mömmu til sín þegar hún gat ekki lengur búið ein heima. Hún dvaldi hjá honum og Irinu, sam- býliskonu hans, síðustu tvö árin í lífi sínu. Sagt hefur verið að dæma skuli mann af vinum hans. Halli bróðir átti einstaklega góða og trausta vini. Þegar hann flutti í Eyjafjarðarsveit eignaðist hann góða vini á nágrannabæjunum og fleiri reyndust honum vel. Á eng- an þeirra er hallað þegar tveir eru nefndir. Árni Emilsson, frændi og vinur, sem heimsótti Halla alltaf þegar því varð við komið eftir að hann greindist með sjúkdóminn sem dró hann til dauða. Árni var skemmtilegur maður, skarp- greindur og víðlesinn. Raunar birtist okkur systrum enn einn bróðirinn þegar við upplifðum þá saman en þar naut eðlisgreind Halla sín einstaklega vel, hárbeitt- ur húmorinn og minnið. Það reyndist Halla mikið áfall þegar Árni dó í febrúar sl. Hinn vinurinn var Magnús Helgason, sem setti sig ekki úr færi að heimsækja vin sinn. Þeir höfðu einnig þessa jákvæðu nær- veru hvor við annan. Þessir menn studdu Halla með ráðum og dáð. Elsku Halli. Takk fyrir allar góðu minningarnar þú gafst okkur og við yljum okkur við, núna þeg- ar þú ert farinn. Ingibjörg og Rósa Þóra. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar Gamlársdagur 1944 – lýðveldisárið að kveðja. Fjögur systkinabörnin í Dilksnesi eru borin til skírnar saman. Hátíð í bæ, sungið og dansað fram á nóttina. Dengsi litli var eitt þessara barna, aðeins tveggja vikna gam- all. Hlaut þar nafnið Björn Jóns- son, alnafni afa okkar frá Hoffelli. Og bar nafnið stoltur alla tíð. Hann ólst upp á Sjónarhóli hjá mömmu sinni, sem var ein af fáum útivinnandi mömmum þess tíma, var talsímakona hér í bæn- um, svo litli kallinn eignaðist góða hauka í hornum sem aðstoð- uðu þegar þurfti. Eftir að fjöl- skylda mín flutti á Höfn átti Dengsi litli sitt athvarf líka hjá mömmu minni enda þær systur búandi í sama húsinu, sín á hvorri hæð, þægilegra gat það ekki ver- ið. Það þarf eitt þorp til að ala upp barn segir einhvers staðar. Mikill sannleikur í þessu, svona var það, krakkar fengu að prófa sig áfram í tilverunni. Haft auga með að enginn færi sér alvarlega að voða. Duglegum strákum leyft að grípa í verk ef því var að skipta. Bryggjurnar og sjórinn voru aðalvettvangurinn. Strák- arnir smíðuðu sér fleka sem mátti stjaka á víkinni við Höfð- ann, nú svo var stundum hægt að skella sér í jakahlaup á vestur- firðinum ef góða ísa leysti á út- mánuðum – betra að láta ekki strauminn grípa sig á útfallinu. Dengsi smíðaði sér kajaka á ung- lingsárunum, sagðist hafa strekkt strigann á grindina í eld- húsinu hennar mömmu sinnar, með hennar hjálp, svo voru her- legheitin máluð og þétt. Á þessu fleyi var róið um fjörðinn, jafnvel skroppið út fyrir Ós. Það var allt- af eitthvað á döfinni hjá honum Dengsa, eftir kajaktímabilið fékk hann sér fjarðarbát með mótor, átti á honum fína túrana um fjörðinn. Tækjakallinn átti fína Björn Jónsson ✝ Björn Jónsson (Dengsi) fædd- ist 16. desember 1944. Hann lést 10. nóvember 2021. Útförin fór fram 20. nóvember 2021. skellinöðru „stíf- bónaða alltaf“ sagði einn vinurinn. Snyrtimennskan var Dengsa í blóð borin og gilti þetta líka um alla fínu bíl- ana hans seinna meir. Búið var að fjárfesta í fyrsta bílnum, Moskanum, nokkru fyrir bíl- prófið. Eitt af uppá- haldsverkefnunum hans Dengsa var að fá að brasa með vinum sín- um á Flugfélaginu. Ekki gamall er hann fór að smygla sér með Tobba og Gísla Jóns þegar af- greiða þurfti flugvélarnar, þetta var auðvitað algjört ævintýri, koma fragt og farþegum í Mela- bátinn, sigla svo yfir sundið að Melabryggjunni, stökkva í land með tógið og binda bátinn. Hent- aði vel okkar manni, gaman að geta aðeins létt undir. Þessir traustu kallar voru notalegir við strákinn, virkjuðu hann með í verkefnin. Dengsi sinnti ýmsum störfum um ævina, oftast var það tengt vélum og tækjum einhvers konar. Byrjaði mjög ungur að vinna á lyftara í gamla Frystihúsinu. Þegar síldarævintýrið byrjaði hér færði hann sig yfir til Fiski- mjölsverksmiðju Hornafjarðar. Vann hann þarna nokkur ár. Dengsi var laginn og útsjónar- samur verkmaður og eftirsóttur tækjamaður. Hann réðst til starfa hjá bæjarfélaginu og vann þar í 32 ár mest á vélum og tækj- um, ásamt smíðaverkefnum ým- iss konar, Þarna naut hann sín til fullnustu, vandaði sín störf og lagði metnað í að skila góðu verki. Hrókur alls fagnaðar á góðri stundu. Tilsvör Dengsa og skemmtisögur af ýmsum atvikum í lífi hans munu lifa hjá þeim sem hann þekktu. Happ fyrir hvert bæjarfélag að eiga mann eins og hann. Dengsi minn, þú hnýttir ekki bagga þína alltaf sömu böndum og aðrir. Við fjölskyldan mín er- um þér þakklát fyrir samfylgdina gegnum öll árin. Far þú í friði kæri vinur. Hildigerður (Gerða frænka). Guðrún Guð- laugsdóttir ✝ Guðrún Guðlaugs- dóttir fæddist 15. ágúst 1924. Hún lést 30. október 2021. Útför Guð- rúnar fór fram 15. nóvember 2021. Meira: www.mbl.is/andlat/. Minningar á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.