Morgunblaðið - 23.11.2021, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
GEMMA
CHAN
RICHARD
MADDEN
KUMAIL
NANJIANI
LIA
McHUGH
BRIAN TYREE
HENRY
LAUREN
RIDLOFF
BARRY
KEOGHAN
DON
LEE
WITH KIT
HARINGTON
WITH SALMA
HAYEK
AND ANGELINA
JOLIE
O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T
91%
H
asargrínmyndin Red
Notice mun vera sú
dýrasta sem streymis-
veitan Netflix hefur
framleitt til þessa. Er framleiðslu-
kostnaður talinn hafa verið 200
milljónir bandaríkjadala eða um
26,8 milljarðar króna. Þessu fé var
heldur illa varið því Red Notice er
í lakari kantinum, þrátt fyrir flott-
ar brellur, ágætan hasar og þrjár
kvikmyndastjörnur, þau Gal Ga-
dot, Dwayne Johnson og Ryan
Reynolds. Ekki er við stjörnurnar
að sakast, þær bregða sér í kunn-
ugleg hlutverk og standa sig ágæt-
lega. Vöðvatröllið Johnson er
þögla, harða týpan. Reynolds er
spaugarinn, sá sem dælir út hnyt-
tiyrðum og vandræðalegum at-
hugasemdum líkt og hann hefur
gert í svo mörgum fyrri kvikmynd-
um sínum. Gadot er „femme
fatale“ myndarinnar, bardagafim
þokkadís sem enginn karlmaður
fær staðist og stórhættuleg.
Þessi kunnuglegu hlutverk eru
ekki vandamálið heldur valið á
handritshöfundi myndarinnar og
leikstjóra. Sá heitir Rawson
Marshall Thurber og á að baki
kvikmyndir sem seint munu teljast
vandaðar: DodgeBall: A True Und-
erdog Story, We’re the Millers,
Central Intelligence Skyscraper.
Auðgleymanlegar grín- og hasar-
myndir virðast vera hans sérgrein
og hér bætist ein slík í safnið.
Red Notice vísar til eftirlýstra
glæpamanna og fá þeir allra eftir-
lýstustu á sig rauða litinn. Í mynd-
inni segir af listaverkaþjófi, Nolan
Booth (Reynolds), sem telur sig
vera þann færasta í því fagi. Hann
ætlar sér að stela einu af þremur
gulleggjum Kleópötru en FBI-
spaðinn John Hartley (Johnson)
gómar hann eftir að hafa fengið
vísbendingu frá öðrum þjófi sem
kallar sig Biskupinn (Gadot) og er
sá í raun sá færasti. Biskupi tekst
að stela egginu og koma sök á
Hartley. Er þeim Booth stungið í
fangelsi og þar snúa þeir bökum
saman og einsetja sér að ná Bisk-
upinum og finna eggin þrjú. Berst
þetta ævintýri víða um lönd, m.a.
til Balí, Argentínu, Spánar og
Egyptalands. Hafa þeir uppi á
Biskupinum, skaðræðiskvendinu
slæga sem virðist þó alltaf vera
skrefi á undan þeim og leikur sér
að þeim eins og köttur að músum.
Þrátt fyrir heldur klisjukennda
fléttu og framvindu, þar sem feng-
ið er að láni úr kvikmyndunum um
James Bond, Indiana Jones,
Ocean’s 11 og fleiri kunnuglegum,
kemur handritshöfundur á óvart
með endi sögunnar sem er því mið-
ur ekki ánægjulega óvæntur. Sú
tilraun til frumlegheita hittir bara
ekki í mark.
Kvikmyndastjörnurnar þrjár ná
ágætlega saman og hafa mikinn
bíósjarma að vanda, þótt heldur sé
sniðuga týpan hans Reynolds orðin
þreytandi. Hún gengur hins vegar
ágætlega upp í mótvægi við þurr-
pumpulega FBI-gaurinn hans
Johnsons. Gadot fær miklu færri
mínútur á skjánum og er það mið-
ur því hún er sú langbesta af
þríeykinu. Leikstjórinn og hand-
ritshöfundurinn Thurber reynir
allt hvað hann getur að skemmta
áhorfendum og tekst ágætlega á
köflum og þá einna helst í has-
aratriðum. Inn á milli koma allt að
því pínleg samtöl, t.d. eitt einlægt
milli Booths og Hartleys um feður
sína. Sækir þá bæði hrollur og
syfja að manni.
Sem afþreying á kósíkvöldi fjöl-
skyldunnar, sem ekki þarf að
borga aukalega fyrir, þá sleppur
Red Notice. Myndin er sæmilegur
grínhasar en lítið meira en það.
Í klípu Gal Gadot, sem leikur Biskupinn, leikur sér að þeim Hartley og Nolan þar sem þeir eru handjárnaðir saman upp við súlu í Red Notice.
Lítið fyrir peninginn
Netflix
Red Notice bbmnn
Leikstjórn og handrit: Rawson Marshall
Thurber. Aðalleikarar: Dwayne Johnson,
Ryan Reynolds, Gal Gadot, Ritu Arya og
Chris Diamantopulos. Bandaríkin, 2021.
118 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Streymisveitan
Spotify hefur nú
fjarlægt slembi-
spilunarhnapp-
inn, „shuffle“,
þann sem gerir
slembispilun
mögulega, eftir
að enska söng-
konan Adele
sagði slíka spilun
skemma fyrir heildarupplifun
hlustenda af hljómplötum. Lögum
væri raðað upp af ákveðinni
ástæðu, til að segja ákveðna sögu.
Spotify brást fljótt við og fjarlægði
hnappinn og þakkaði Adele fyrir-
tækinu fyrir þann gjörning. Nú er
því ekki lengur hægt að hlusta á
nýjustu plötu Adele, 30, með
slembivali heldur þarf að hlusta á
lögin í réttri röð og það sama gildir
um aðrar plötur. „Takk fyrir að
hlusta, Spotify,“ sagði í þakkar-
kveðju söngkonunnar til fyrir-
tækisins og fékk hún þau svör til
baka að það myndi gera hvað sem
er fyrir hana. Fóru þessi samskipti
fram á Twitter í fyrradag, að því er
fram kemur á vef The Guardian.
Slembispilun af-
lögð fyrir Adele
Adele
Nígerísk-banda-
ríski popptón-
listarmaðurinn
Davido fékk
330.000 sterlings-
pund, jafnvirði
um 59 milljóna
króna, gefins frá
vinum sínum og
aðdáendum eftir
að hafa beðið fólk
um peninga á Twitter 17. nóvember
síðastliðinn. Sagðist hann þurfa á
peningum að halda til að geta leyst
Rolls Royce-bifreið sína úr tollinum.
„Ef þið vitið af lagi með mér sem
slegið hefur í gegn … sendið mér þá
pening,“ skrifaði Davido og lét
fylgja með númer á bankareikningi í
Nígeríu. Ekki stóð á viðbrögðum og
um 90 mínútum síðar höfðu yfir 30
milljónir fylgjenda Davidos lagt inn
á reikninginn. Hefur þetta uppátæki
popparans bæði valdið kátínu og
reiði þar sem hann var vellauðugur
fyrir og hefur gortað sig af því.
Bað um peninga
og fékk milljónir
Davido