Fréttablaðið - 14.01.2022, Side 18
Niðurstöðurnar
sýndu að dagsyfja
var mjög algeng hér á
landi en tíðni hennar er
svipuð og í nágranna-
löndum okkar.
Elín Helga Þórarinsdóttir
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Vansvefta fólk þjáist oft af
af dagsyfju sem getur haft
fjölþættar heilsufarslegar
afleiðingar í för með sér og
dregið úr almennum lífs-
gæðum. Í doktorsverkefni
sínu rannsakar Elín Helga
Þórarinsdóttir dagsyfju.
Fyrir utan hreyfingu og hollt
mataræði er góður svefn öllum
mjög mikilvægur og talinn ein af
meginundirstöðum góðrar heilsu
og vellíðunar. Dagsyfja fylgir oft
vansvefta fólki sem getur haft fjöl-
þættar heilsufarslegar afleiðingar
í för með sér, auk þess sem hún
getur dregið úr almennum lífs-
gæðum og afkastagetu í námi og
starfi, segir Elín Helga Þórarins-
dóttir, sérnámslæknir í heimilis-
lækningum og doktorsnemi við
Háskóla Íslands. Doktorsrannsókn
hennar fjallar um dagsyfju og
ber heitið „Íþyngjandi dagsyfja –
tengsl við heilsufar og lífsstíl“. Hún
segir dagsyfju vera mjög algenga.
„Dagsyfja getur verið einkenni
sjúkdóma en einnig afleiðing lífs-
stílsþátta. Við upplifum öll syfju
á einhverjum tímapunkti í lífinu
og í f lestum tilfellum, sérstaklega
hjá yngra fólki, er syfja afleiðing
þess að við sofum ekki nægilega
mikið. Þegar við náum svo að bæta
upp þann svefn sem við skuldum
þá hverfur dagsyfjan. Slík syfja er
mjög algeng en ekki eitthvað sem
þarf að rannsaka frekar.“
Dagsyfja er algengari en margur heldur
Elín Helga
Þórarinsdóttir
er sérnáms-
læknir í heimilis-
lækningum og
doktorsnemi við
Háskóla Íslands.
MYND/AÐSEND
Dagsyfja getur farið illa með fólk á ólíkum tímum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Kæfisvefn hefur mikil áhrif
Hins vegar, eftir því sem við
eldumst, verður algengara að dag-
syfja sé afleiðing truflana á svefni,
frekar en afleiðing of stutts svefns.
„Þá er algengara að dagsyfjan verði
bæði mikil og langvarandi og
hefur þannig verulega áhrif á dag-
legt líf fólks. Það geta legið margar
ástæður að baki íþyngjandi dag-
syfju fullorðinna einstaklinga,
svo sem kæfisvefn, fótaóeirð,
lyfjanotkun, verkir, kvíði og þung-
lyndi.“
Hún segir algengasta sjúk-
dóminn sem veldur dagsyfju hjá
fullorðnum einstaklingum vera
kæfisvefn. „Sjúkdómurinn ein-
kennist af því að viðkomandi hefur
endurtekin öndunarstopp yfir
nóttina og stoppin trufla svefninn.
Kæfisvefn getur einnig haft aðrar
alvarlegar afleiðingar ef hann er
ekki greindur og meðhöndlaður.
Hann eykur meðal annars líkur
á hjarta- og æðasjúkdómum,
háþrýstingi og heilaáföllum. Það
getur því verið til mikils að vinna
að greina kæfi svefn og með-
höndla.“
Engin ein aðferð dugar
Margar rannsóknir hafa skoðað
algengi dagsyfju að sögn Elínar
Helgu. Vandamálið sé hins vegar
að í dag er engin ein aðferð sem
metur dagsyfju vel. „Algengasti
spurningalistinn sem er notaður er
svokallaður Epworth-syfjuskali en
það er stuttur spurningalisti sem
metur líkur viðkomandi á að sofna
eða dotta við átta mismunandi
aðstæður. Epworth-spurningalist-
inn er meðal annars oft notaður til
að meta hverjir þurfa forgang til að
fá svefnöndunarvél við kæfisvefni.
Syfja er mjög einstaklingsbundin
og kemur fram á mismunandi hátt
milli einstaklinga. Sumir lýsa því
að þeir séu sífellt dottandi ef þeir
setjast niður en aðrir geta upplifað
mikla dagsyfju án þess að þeir séu
alltaf að sofna.“
Dagsyfja mjög algeng hér á landi
Fyrstu niðurstöður verkefnis
hennar birtust í Journal of Sleep
Research árið 2019. „Niðurstöð-
urnar sýndu að dagsyfja var mjög
algeng hér á landi en tíðni hennar
er svipuð og í nágrannalöndum
okkar. Um 23 prósent upplifa
dagsyfju f lesta daga vikunnar og
14 prósent eru líkleg til að sofna
að degi til. Við sáum að dagsyfjan
tengdist helst svefntruflunum og
fótaóeirð og að lífsgæði þeirra sem
upplifðu íþyngjandi dagsyfju voru
marktækt verri en hjá þeim sem
ekki voru syfjaðir.“
Önnur greinin birtist í
desember á síðasta ári en þar var
rannsakað hvernig dagsyfja hjá
kæfisvefnssjúklingum breyttist
við meðferð með svefnöndunar-
vél. „Niðurstöðurnar staðfestu að
meðferð með svefnöndunarvél
minnkar syfjuna umtalsvert hjá
þeim sem þjást af kæfisvefni. Hins
vegar er hluti sjúklinganna sem
áfram þjáist af íþyngjandi dag-
syfju þrátt fyrir meðferð. Hjá þeim
virtist dagsyfjan vera afleiðing
annarra þátta en kæfi svefnsins.
Þessir einstaklingar voru oftar
með kvartanir um svefnleysi og
voru að vakna endurtekið upp yfir
nóttina.“
Kvöldtýpur sofa styttra
Einnig var áhugavert að hennar
sögn að sjá að þeir sem svöruðu
ekki meðferð með svefnöndunar-
vél voru líklegri en aðrir til að vera
svokallaðar kvöldtýpur. „Kvöld-
týpur eru þeir einstaklingar
sem eru hressir á kvöldin og fara
því venjulega seinna að sofa en
morguntýpur. Þar sem flestir
þurfa svo að mæta til vinnu eða
skóla að morgni þá hafa rann-
sóknir sýnt að kvöldtýpur sofa að
meðaltali styttra en þeir sem eru
morguntýpur. Þegar þessir ein-
staklingar eru meðhöndlaðir við
kæfisvefni lagast kæfisvefninn en
eftir stendur að þeir sofa of stutt
og eru því áfram syfjaðir. Niður-
stöðurnar benda því til þess að
mikilvægt sé að huga að öðrum
þáttum sem stuðla að syfju hjá
þeim kæfisvefnssjúklingum sem
ekki svara meðferð með svefn-
öndunarvél.“
Hún segir svefnleysi skerða ein-
beitingu og viðbragð og geta jafn-
vel orsakað brenglun á skynjun.
„Lítill svefn hefur einnig áhrif í
sumum tilvikum á skaphöfn fólks.
Það er því til mikils að vinna að
greina vandamál sem valda dag-
syfju og finna ráð til að bæta svefn
og draga úr afleiðingum sem geta
verið hættulegar heilsu fólks.“
Heilsugæslan er í dag fyrsti við-
komustaður þeirra sem sofa illa og
eru syfjaðir að degi til. „Langoftast
eru svefntruflanir og dagsyfja
ekki einangruð fyrirbæri heldur
eru þeir sem finna fyrir slíku
þegar í eftirliti hjá heilsugæslunni
vegna annarra sjúkdóma, svo
sem hjarta- og lungnasjúkdóma,
verkja, þunglyndis og f leira.
Greining og meðferð felst þá í
heildstæðu mati þar sem reynsla
og yfirsýn innan heilsugæslunnar
kemur sér vel.“ n
Sleepy 1 árs á Íslandi!
Okkar stærsti
afsláttur hingað til!
20% Afsláttur
sleepy.is - s: 620 7200 - Ármúli 17
G Ó ÐUR S V E F N6 kynningarblað A L LT 14. janúar 2022 FÖSTUDAGUR