Fréttablaðið - 14.01.2022, Síða 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Svanborgar
Sigmarsdóttur
n Bakþankar
Ég las viðtal við konu í vikunni sem
er að safna Covid-afbrigðum. Bara
þessum algengustu, Alfa, Delta og
Omíkron. Hún hefur greinilega
ekkert verið að sækjast í þessar
sjaldgæfari sem hafa fundist. Til
dæmis hefur hún ekkert við að
vinna með Lamda, Theta eða Mu.
Þetta er því ekki merki um
Covid-söfnunaráráttu á háu stigi.
Bara aðeins meira en meðaltalið.
Lesturinn minnti mig svolítið á það
þegar ég var að safna servéttum
þegar ég var ung. Það var gengið
á milli húsa og spurt „Áttu serv-
éttur?“ svo úr varð skringilegt safn
af mjög algengum pappírsbréfum í
alls konar litum. Svo áttum við allar
eins servéttur, því við fórum í sömu
húsin og því var lítið hægt að bítta.
Það var einna helst ef eldri frænkur
úr öðrum bæjarfélögum komu
með einhver næfurþunn afbrigði
að spenningurinn hríslaðist um
líkamann. Hér var komið eitthvað
nýtt. Eitthvað sem bara örfáir
höfðu. Aðeins meira en meðaltalið.
Þrísmitaða Covid-konan hafði
farið misvel út úr þessum þremur
afbrigðum. En orðið veik. Og því
frekar óheppin með þessa nátt-
úrulegu söfnun afbrigða. Eiginlega
bara mjög óheppin þegar tekið
er tillit til þess að hún hefur líka
fengið svínaflensu. Einhvers konar
segull á vírusa í öndunarfærum.
Svo heyrir man af öðru fólki sem
er að reyna að safna. Bankar upp
á hjá nágrönnum og spyr „Áttu
Covid?“. Þar á meðal er enginn sem
fær Lamda, Theta eða Mu. Engin
von til að fá næfurþunna afbrigðið.
Labba í mesta lagi heim með meðal-
talið. Jafnvel það mikið að nóg er
til skiptanna. Bæði til safnara og
þeirra sem þola afbrigðin illa. n
Hvaða afbrigði
hefur þú fengið?
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR
ÚTSALA
BETRA BAKS
ÚTSALAN ER HAFIN
STILLANLEG RÚM | HEILSURÚM OG -DÝNUR | GAFLAR | SÆNGUR | KODDAR | SVEFNSÓFAR | STÓLAR | SÆNGURFÖT, O.FL.
QUADRO SVEFNSÓFIRÚMFÖT TIMEOUTSLOPPAR
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN
SÓLARHRINGINN
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is