Morgunblaðið - 03.12.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 03.12.2021, Síða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2021 Skemmtileg bók fyrir forvitin grunnskólabörn og laumu jólasveina Umer að ræða vandaða og fræðilega bók fyrir grunnskólabörn, meðævintýralegum tilgangi. Tengd sögulegum stöðumáAusturlandi, íþróttamennsku ungviða og þekktra persóna.Mikilvægi tengsla foreldar og barna. Hlýnun jarðar, heimsminjar, UNESCO og innsýn í grænlenskamenningu. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Eftirspurn eftir raforku hjá við- skiptavinum Landsvirkjunar hefur aukist mjög. Kaupendur fullnýta raforkusamninga sína og raforku- kerfið er fulllestað. Á sama tíma er vatnsbúskapurinn á Þjórsár- svæðinu verri en lengi hefur verið. Verður því gripið til takmarkana á afhendingu raforku í vetur sam- kvæmt ákvæð- um í skerðan- legum samningum, að minnsta kosti til fiskimjölsverk- smiðja. „Við sjáum mikla aukningu eftirspurnar hjá viðskiptavinum okkar, við sjáum met í því, og það gengur vel þvert á allar grein- ar iðnaðarins, ál, kísilmálm og einnig gagnaver,“ segir Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Landsvirkj- un. Allir á fullum afköstum Mikil breyting hefur orðið á stuttum tíma, frá öldudalnum vegna erfiðleika á heimsmarkaði sem kórónuveirufaraldurinn skap- aði. Til dæmis nýtti einn af stærstu viðskiptavinum Lands- virkjunar, Rio Tinto í Straumsvík, sína samninga ekki til fulls og framleiðsla kísilvers PCC á Bakka við Húsavík lá niðri. Það skapaði slaka á raforkumarkaðnum, ekki var nýtt öll samningsbundin orka. „Þetta hefur breyst hraðar en við og greiningaraðilar áttum von á. Nú um stundir eru mjög hagfelld- ar ytri aðstæður hjá okkar við- skiptavinum, hátt verð á afurðum álvera og kísilvera. Hækkunin er í sumum tilvikum 100% frá lægsta verði,“ segir Tinna. Bendir hún á sem dæmi að Rio Tinto reki álver sitt með fullum afköstum og PCC reki báða sína bræðsluofta á fullum afköstum. Nú er staðan sú að viðskiptavinir Landsvirkjunar fullnýta almennt raforkusamninga sína og biðja um að fá að kaupa meira. Gagnaverin vilja kaupa meiri orku. Eftirspurn- in er ekki síst eftir orku úr end- urnýjanlegum orkulindum. Þrýst- ingur er á lágt kolefnisspor í allri virðiskeðjunni. Tinna segir að þessi eftirspurn endurspeglist í raforku- verði til stórnotenda, það hafi aldr- ei verið hærra en nú vegna þess að afurðaverð sé í sögulegu hámarki. „Við erum með langtíma- viðskiptasambönd við viðskiptavini okkar og stöndum við þá samninga. Hins vegar erum við með nokkurn veginn fulllestað raforkukerfi og þurfum að meta það frá degi til dags hvort við höfum borð fyrir báru til að svara aukinni eftirspurn frá stórnotendum,“ segir Tinna spurð um möguleika á að bæta við viðskiptavinum. Skerða fyrst afgangsorku Um 90% af samningum Lands- virkjunar um raforkuksölu eru um svokallaða forgangsorku. Ýmsir viðskiptavinir hafa einnig samið um kaup á skerðanlegri orku. Fela þeir samningar það í sér að viðskipta- vinirnir þurfa að sæta skerðingum á afhendingu ef ekki er til næg orka og það endurspeglast í hag- stæðum viðskiptakjörum. Á þetta við um fiskimjölsverksmiðjur, fisk- þurrkanir og fjarvarmaveitur á köldum svæðum. Samningarnir við stærstu notendur eru langtíma- samningar en í þeim er gert ráð fyrir að í lélegum vatnsárum geti komið til skerðingar. Ekki hefur mikið reynt á slíkar skerðingar á undanförnum árum. Þess vegna brá mörgum í brún þegar Landsvirkjun tilkynnti í byrjun vikunnar skerðingu á raf- orku til fiskimjölsbræðslna og fisk- þurrkana. Við almennt ástand í kerfinu bættist viðhald á Búrfells- virkjun sem ekki var hægt að fresta. Stóð skerðingin aðeins í nokkra klukkutíma á miðvikudaginn. Vatnsbúskapur virkjana Lands- virkjunar er slakur í ár, sérstaklega á Þjórsársvæðinu. Þórislón, sem er stærsta miðlunarlón fyrirtækisins, fylltist ekki áður en nýtt vatnsár hófst, 1. október, og þróunin síðan hefur ekki verið hagfelld vegna þurrka. Hugsanlegt er að það rofi eitthvað til í þessu efni en ekki er hægt að fullyrða um það fyrirfram. Það eykur síðan á vandræðin að vegna takmarkana á flutningsgetu byggðalínunnar á ákveðnum svæð- um er ekki hægt að flytja jafn mikla orku á milli svæða og þörf er á við þessar aðstæður. Nú er að hefjast stærsta loðnu- vertíð í tæpa tvo áratugi og bræðsl- urnar þurfa mikla orku til að bræða þann hluta hráefnisins sem ekki fer til manneldis. Ákveðið hef- ur verið að takmarka afhendingu á raforku til fiskimjölsverksmiðja í janúar og áfram í vetur ef að- stæður krefja, samkvæmt upplýs- ingum Landsvirkjunar. Hugsanlegt er að fleiri verði fyrir skerðingum og nefnir Tinna fiskþurrkanir á köldum svæðum í því sambandi. Fiskimjölsverksmiðjurnar þurfa því væntanlega að nota innflutta olíu sem orkugjafa í vetur í meira mæli en verið hefur síðustu ár. Spurð um frekari skerðingar í vetur segir Tinna að staðan sé stöðugt vöktuð. Fleiri ákvarðanir hafi ekki verið teknar en ef þróunin verði ekki hagfelld sé ekki útilokað að til þeirra komi. „Það er veruleik- inn í lokuðu raforkukerfi eins og okkar. Álag og veðurfar ráða því hvort skerða þurfi afhendingu á raforku og hversu mikil hún þá verður. Jafnvel þótt það komi til einhvers samdráttar verður raf- orkuafhendingin í heild yfir 95%,“ segir Tinna. Lítið afl að bætast við Raforkunotkun á almenna mark- aðnum eykst á hverju ári og orku- skipti í samgöngum ganga hraðar en margir reiknuðu með. Lítið er verið að virkja. Komið hefur fram að HS Orka er að stækka Reykja- nesvirkjun með því að nýta betur auðlindina. Sú stækkun samsvarar allt að 30 megavöttum í uppsettu afli. Þá er verið að byggja 6 MW virkjun í Vopnafirði. Nýjustu virkjanir Landsvirkjun- ar eru Þeistareykjavirkjun og stækkun Búrfells. Fyrirtækið er að undirbúa byggingu Hvammsvirkj- unar í Neðri-Þjórsá og á einhverja möguleika á aflaukningu eldri virkjana. Tinna segir að engar ákvarðanir hafi verið teknar um framkvæmdir og tekur fram að það taki um það bil fjögur ár að reisa virkjun og það leysi ekki vanda- málin sem nú eru uppi. Afhending raforku skert - Raforkukerfið er fulllestað og vatnsbúskapurinn slakur - Leiðir það til takmarkana á afhendingu raforku - Fiskimjölsverksmiðjurnar þurfa því að nota olíu í meira mæli en verið hefur síðustu ár Ljósmynd/Landsvirkjun Miðlun Þórisvatn á Tungnaár-Þjórsársvæðinu er stærsta miðlunarlón Landsvirkjunar. Lónið fylltist ekki við lok síð- asta vatnsárs, 1. október, og þróunin síðan hefur ekki verið góð. Reynt er að nýta önnur lón til framleiðslu. Tinna Traustadóttir Lagt er til að sóttvarnalæknir verði framvegis skipaður af ráðherra í stað þess að hann sé ráðinn af land- lækni í áformum að nýjum sótt- varnalögum, sem heilbrigðis- ráðherra hefur birt á samráðsgátt stjórnvalda. Þar er einnig lagt til að fjölskipuð farsóttanefnd taki að hluta við tillögugerð um opinberar sóttvarnaráðstafanir sem eru á hendi sóttvarnalæknis í dag en að núverandi sóttvarnaráð verði á hinn bóginn lagt niður og verkefni þess flutt til farsóttanefndar, sóttvarna- læknis og ráðherra. Endurskoða stjórnsýsluna Fram kemur í skýringum ráðu- neytisins að tilgangur frumvarpsins sé m.a. að endurskoða stöðu sótt- varnalæknis innan stjórnsýslunnar og stjórnsýslu sóttvarna þegar ráð- ist er í opinberar sóttvarnaráðstaf- anir. Alþingi samþykkti í febrúar sl. breytingar á sóttvarnalögum í fram- haldi af tillögum starfshóps og álits- gerð Páls Hreinssonar lögfræðings. Sl. sumar var svo nýjum starfshópi falið að skrifa drög að nýjum heild- arlögum um sóttvarnir. „Að mati starfshópsins er það ekki þannig að gildandi lög og reglur dugi ekki til, t.d. í mótsspyrnu gegn farsóttum. Þó er það þannig að rétt er að skýra betur ákvarðanatöku þegar opinberar sóttvarnaaðgerðir eru ákvarðaðar. Þá er jafnframt rétt að skýra stöðu sóttvarnalæknis inn- an stjórnsýslunnar, t.a.m. um að sóttvarnalæknir hafi tiltekið sjálf- stæði gagnvart öðrum embættum og að sóttvarnalæknir sé skipaður af ráðherra,“ segir í umfjöllun ráðu- neytisins. Tekið er fram að heilbrigðis- ráðherra áætli að mæla fyrir frum- varpinu í mars á næsta ári. Ráðherra skipi sóttvarnalækni - Farsóttanefnd geri líka tillögur Morgunblaði/Arnþór Birkisson Fundur Alma Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.