Morgunblaðið - 03.12.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 03.12.2021, Síða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2021 Starfsstöðvar Skattsins verða lokaðar í dag, föstudaginn 3. desember, vegna starfsmannafundar. Viðskiptavinum er bent á að gagnlegar upplýsingar er að finna á skatturinn.is Við höfum lokað í dag Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Allt að þriggja vikna bið er nú eftir greiningu sveppasýna úr bygging- um sem send eru til Náttúrufræði- stofnunar Íslands. Vinna þessi fer fram á Akureyrarsetri stofnunar- innar en þangað hefur mikill fjöldi sýna borist að undanförnu. „Við höfum ekki undan sem stendur. Oftast hefur bið eftir greiningu ver- ið vika eða rúmlega það en núna er hún töluvert lengri, segir Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppafræðing- ur hjá NI, í samtali við Morgun- blaðið. Ætla má að sýni sem berast í desember verði ekki greind fyrr en eftir áramót. Búist er við að það hægi á vinnu við greiningarnar í jólavikunni en vonir standa til að fyrir þann tíma verði hægt að skila niðurstöðum greininga þeirra sýna sem nú hafa borist. Aukin þekking manna á þeirri hættu sem stafar af rakaskemmdum í húsum er örugg- lega ástæða þess hversu mörg sýni hafa borist upp á síðkastið. „Undanfarið höfum við fengið 800-1.200 sveppasýni á ári til grein- ingar. Flest voru sýnin 1.800 árið 2017,“ segir Guðríður Gyða. „Þegar fólk grunar að um myglu eða raka sé að ræða í byggingum eru oftast ráðnir menn sem hafa sérhæft sig í því að finna rakaskemmdir og or- sakir þeirra og það eru þeir sem taka sýni af byggingarefnum þar sem grunur er um skemmdir en úr stórum byggingum, eins og skólum, geta þetta orðið þó nokkur sýni. Stundum eru svo tekin sýni til að staðfesta að efnið sé myglulaust.“ Í greiningum hjá NÍ eru efni fyrst skoðuð í víðsjá og síðan eru þau sem talin eru vera mygla at- huguð frekar í smásjá. Niðurstöður eru svo notaðar við mat á því hversu víðtækar hreinsunaraðgerð- ir þurfi að ráðast í. Rakaskemmdir og mygla í hús- um, þar sem sveppir eru á stundum birtingarmyndin, hefur víða komið upp á síðustu árum. Fossvogsskóli í Reykjavík er þar eitt þekktasta dæmið. Í slíkum málum athuga kunnáttumenn húsin, greina orsak- ir og eðli vandans, kanna loftgæði og koma með tillögur að úrbótum. Rannsóknir á sveppunum eru þar mjög þýðingarmikið atriði, saman- ber fyrrgreindur fjöldi sýna sem berst. Sveppirnir bíða - Annir eru í greiningu á Akureyri - Mygluð hús - Fjöldi sýna berst Rannsókn Sérfræðingar á Akureyr- arsetri Náttúrufræðistofnunar. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Öll óvissa hefur tímabundin áhrif á bókanir, sér í lagi nær í tíma. En til lengri og millilangs tíma þurfum við einfaldlega að bíða í einhverja daga eða vikur og sjá hver áhrif þessa nýja afbrigðis verða, alveg eins og sér- fræðingar mæla með,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Bogi segir að fréttir af hraðri út- breiðslu Ómíkron-afbrigðisins hafi ekki valdið neinum usla í flugrekstri, hjá Icelandair sé tekið á málum af yf- irvegun og það sama virðist gilda um viðskiptavini fyrirtækisins. Bókunar- flæði sé almennt sterkt og ekki hafi þurft að breyta áætlunum. Hann seg- ir jafnframt að þess sjáist ekki merki að hertar aðgerðir í Evrópulöndum hafi áhrif á áform um ferðalög til lengri tíma. „Bókunarstaðan er bara ágæt í all- ar áttir og við erum nokkuð bjartsýn á að svo verði áfram. Við bregðumst auðvitað við því sem gerist í umhverf- inu en jól og áramót líta ágætlega út hjá okkur.“ Aukning á bókunum til landsins Birgir Jónsson, forstjóri Play, seg- ir að áætlanir félagsins hafi ekki breyst við tíðindi af Ómíkron- afbrigðinu og hertum aðgerðum í löndum á borð við Bretland og Dan- mörku. Né heldur að Ísland sé aftur komið á rauðan lista vegna fjölda kór- ónuveirusmita. „Þegar við hófum rekstur í sumar áttuðum við okkur á að það væri enn ókyrrð í lofti og við vorum nú bara að tilkynna þrjá nýja áfangastaði. Fólk er ekki mikið að breyta eða afbóka en það vantar kannski aðeins upp á að fólk sé að ákveða með stuttum fyr- irvara að hoppa til Köben yfir helgi. Staðan er önnur en í sumar. Þá var meira panikk þegar fjórða bylgjan skall á. Nú er stór hluti fólks bólu- settur og við merkjum til að mynda bara aukningu á bókunum til lands- ins. Fólk úti í heimi sem er bólusett vill eflaust komast aðeins burt þegar takmarkanir eru hertar í viðkomandi löndum.“ Tölur frá Isavia um komur og brottfarir í Leifsstöð yfir hátíðarnar staðfesta orð forstjóranna um að bú- ast megi við að margir verði á far- aldsfæti. Ef aðeins er horft til fimm stærstu daganna, 24.-26. desember og 31. desember og 1. janúar, má sjá að alls eru 246 flugferðir á áætlun, 120 komur og 126 brottfarir. Á sama tíma í fyrra lá flug að mestu niðri vegna áhrifa kórónuveirunnar. Sömu daga í fyrra voru ferðirnar alls 18. Árið 2019 voru þær hins vegar 324 talsins. Flestar flugferðanna í ár eru á vegum Icelandair, 98 alls. Næstflest- ar eru hjá Wizz Air, 48, en 32 hjá Easy Jet. Play er með 24 ferðir á áætlun þessa fimm daga en Trans- avia og British Airways 10 hvort. Óvissa hjá hótelunum en þokkaleg staða um hátíðarnar Kristófer Oliversson, fram- kvæmdastjóri Centerhotels og for- maður FHG, Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu, segir að sú nei- kvæða umræða sem leiði af fréttum af hert- um aðgerðum og tilkomu Ómíkron- afbrigðisins hjálpi ekki ferðaþjónust- unni. Þótt frem- ur lítið hafi verið um afbókanir í hótelgeiranum hafi engu að síður hægt á sölu. „Eld- gosið er búið og Ísland orðið rautt land svo óvissan er mjög mikil þess- ar vikurnar. En vonandi róast um- ræðan og það er jákvætt að þeir sem eru búnir að bóka eru enn sem komið er að skila sér, en vissulega hefur hægt á sölu. Bókunarstaða á hótelum á höfuðborgarsvæðinu um jól og áramót er þó eftir atvikum þokkaleg.“ Bókunarstaðan ágæt í allar áttir - Forstjórar flugfélaganna segja að fréttir af útbreiðslu Ómíkron-afbrigðisins hafi ekki enn haft áhrif á bókanir - 246 ferðir eru á áætlun til og frá landinu yfir hátíðarnar - Bókunarstaða hjá hótelum þokkaleg 44 53 97 6 12 6 77 35 42 57 33 24 2 44 24 20 0 81 46 35 49 27 22 Fjöldi koma og brottfara yfir hátíðirnar Flug um KeflavíkurflugvöllJólin 2019, nýársdagur 2020: Komur Brottfarir Jólin 2020, nýársdagur 2021: Komur Brottfarir Jólin 2021, nýársdagur 2022:* Komur Brottfarir *Áætlaður fjöldi Heimild: Isavia 0 18 9 9 9 9 18 4 32 39 71 25 33 58 24. desember 25. desember 26. desember 31. desember 1. janúar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Leifsstöð Búast má við því að annir verði í flugstöðinni yfir jól og áramót. Alls eru 246 flugferðir á áætlun, þar af 98 hjá Icelandair og 24 hjá Play. Bogi Nils Bogason Kristófer Oliversson Birgir Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.