Morgunblaðið - 03.12.2021, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 03.12.2021, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2021 ✝ Ófeigur Björns- son fæddist í Reykjavík 14. febr- úar 1948. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 22. nóv- ember 2021. For- eldrar hans voru Björn Ófeigsson stórkaupmaður, f. 27. febrúar 1912, d. 19. mars 1995, og Jensína E.S. Jóns- dóttir, f. 18. mars 1915, d. 2. jan- úar 1976. Systkini Ófeigs eru Jón arki- tekt, f. 1. mars 1941, d. 1. mars 2009, Jóhanna nuddfræðingur, f. 19. apríl 1944, og Anna Lísa, fv. flugfreyja, f. 12. apríl 1953. Hinn 31. maí 1969 kvæntist Ófeigur Hildi Bolladóttur kjóla- meistara, f. 13. maí 1949. Börn þeirra eru: 1) Bolli gullsmíða- meistari og rafvirki, eiginkona Þórunn Margrét Gunnarsdóttir leikskólakennari, f. 7. desember 1968. Börn þeirra eru Gunnar læknir, f. 27. mars 1992, Hildur Margrét menntaskólanemi, f. 3. desember 2002, og Bára María menntaskólanemi, f. 12. febrúar 2005. 2) Björn, grafískur hönn- uður, f. 15. janúar 1973, eig- inkona Aníta Rut Harðardóttir varðstjóri, f. 19. júlí 1975. Fóstur- synir Björns eru Lúðvík Marínó Reykjavíkur 2002 og Freyjusóm- ann 2013. Ófeigur var frumkvöðull margra hátíða á Skólavörðu- stígnum. Hann kom á fót Kjöt- súpudeginum. Einnig hjálpaði hann til við Blómadaginn, Reykjavík Blúsfestival, Beikon- hátíðina o.fl. Ófeigur tók þátt í fjölda sam- sýninga bæði á skartgripum sín- um og myndverkum hér heima og erlendis. Ófeigur vann alla sína skartgripi eins og um mynd- verk væri að ræða. Ófeigur var einn af stofnend- um Svifdrekafélags Reykjavíkur árið 1978. Ófeigur var einn af stofnend- um Gallerí Grjóts, Skólavörðu- stíg 4a frá 1983-89 en þar var öfl- ugt sýningarstarf og galleríið áberandi í miðbæjarlífinu. Gripir eftir Ófeig eru í eigu m.a. Hillary Clinton, Madeleine Albright, Ringos Starrs, Barböru Bach o.fl. Myndverk eftir Ófeig eru í eigu stofnana, m.a. Hafrann- sóknastofnunar, Borgarspítalans o.fl. Ófeigur verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag, 3. des- ember 2021, klukkan 13. Í ljósi aðstæðna þurfa kirkjugestir að sýna fram á neikvætt PCR-próf eða hraðpróf og bera grímu við athöfn. Streymt verður frá at- höfninni. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Karlsson, f. 29. nóvember 1996, og Alexander Emil Beck, f. 4. ágúst 2004. Ófeigur lærði gullsmíði hjá Jó- hannesi Jóhann- essyni gullsmíða- meistara og listmálara. Hann út- skrifaðist sem gull- smiður frá Iðnskól- anum 1969 ásamt námi í skúlptúrdeild Myndlistarskóla Reykjavíkur. Ófeigur starfaði sem slökkviliðsmaður á Keflavík- urflugvelli frá 1973 til 1997. Ófeigur og Hildur bjuggu fyrstu hjúskaparárin á Vífilsgötu 9. Síðan byggðu þau sér raðhús við Vesturberg 79 1976. Árið 1991 fluttu þau á Skólavörðustíg 5. Þá byggðu þau sýningarsal fyrir ofan verslunarrými og opn- uðu þar Gullsmiðju og listmuna- hús Ófeigs 1992. Í sýningarsal Listhúss Ófeigs hafa verið haldn- ar um það bil 360 listsýningar. Í bakgarði og fyrir framan verslun Ófeigs og Hildar hafa verið haldnir ótal tónleikar og list- viðburðir. Listhús Ófeigs hefur hlotið ýmsar viðurkenningar, m.a. við- urkenningu fyrir framlag til þró- unar og uppbyggingar í miðborg Elsku Ófi bróðir minn er farinn til himna, þetta bar brátt að og átti alls ekki að fara svona. Eftir situr sár söknuður og eiginlega ringlureið bæði í höfði og hjarta. Við ólumst upp á Vífilsgötu 9 og Brekkugerði 7, vorum fjögur systkinin, bræðurnir farnir en við systurnar eftir. Ég man aðallega eftir Ófa í Brekkugerðinu þar sem hann brallaði mikið. Hann smíðaði kassabíl sem hann setti mótor í og rúntaði á honum um hverfið. Hon- um þótti einkennilegt að bara stelpurnar fengju matreiðslu í gaggó og talaði við skólastjórann um það. Eftir það viðtal var hann einn með stelpunum að baka, ekki það að hann hefði áhuga, man ekki eftir honum baka nokkurn tíma. Gleymi aldrei þegar hann kom heim frá Englandi í fjólubláum buxum á þeim árum þegar sá litur var einungis notaður í gardínur. Hann var alsæll með buxurnar. Svo skellti hann sér í svifdreka- flug og var auðvitað einn af þeim fyrstu í þá vitleysu. Þessi drengur var alltaf með hausinn fullan af hugmyndum og spekúlasjónum. Ófi kynntist einu ástinni sinni, Hildi, aðeins 17 ára. Tommi og hann voru staddir í Austurbæjar- bíó og ef mig misminnir ekki þá heilsaði Tommi tveimur stelpum, Ófi fór á undan Tomma í salinn og settist hjá stelpunum. Tommi spyr síðan af hverju hann sæti þarna: „Nú, þú heilsaðir þeim.“ Tommi kannaðist við aðra þeirra, ekki Hildi, og eftir þetta blómstr- aði ástin hjá Ófa og Hildi. Þau hjón hafa verið saman nánast alla daga síðan og Hildur hefur misst sinn besta vin. Þau hjón blómstr- uðu sem aldrei fyrr þegar þau keyptu Skólavörðustíg 5. Bjuggu á tveimur efri hæðum hússins en voru með skartgripaverslun, verk- stæði og gallerí á jarðhæðinni. Hildur er klæðskeramenntuð og saumar fatnað og hatta fyrir búð- ina. Ófi var á þeim stað þar sem hann átti að vera, sérstaklega þar sem hann elskaði að hitta alls kon- ar fólk, spjalla og spekúlera. Hann setti lit sinn á Skólavörðustíginn með alls konar uppákomum, kjöt- súpudegi, beikondegi og ýmsu öðru með félögum sínum, Eggert feldskera og Jóa í Ostabúðinni. Ég kveð þig, elsku bróðir minn, veit að þú tekur á móti mér þegar ég kem og það veitir mér huggun. Elsku Hildur mín, Bolli, Bjössi og fjölskyldur, góðar minningar um Ófa munu lifa með okkur öll- um. Anna Lísa litla systir. Góður mágur hefur kvatt. Það var óvænt að heyra að Ófi skyldi deyja eftir aðgerð á fæti. Við viss- um auðvitað að Ófi var kannski ekki upp á sitt besta í slíka aðgerð og hafði áður þurft að takast á við önnur erfið veikindi. Aðgerðin snerist um að laga æðar í fótlegg sem voru farnar að há honum. Við Ófi kynntumst upphaflega þegar við Anna Lísa vorum að passa Bolla niðri á Vífilsgötu, þar sem þau bjuggu á sínum fyrstu sambúðarárum. Ég man að bæði Ófi og Hildur tóku sérstaklega vel á móti mér þegar ég fyrst hitti þau og fann strax hversu velkominn ég var. Sama átti við Björn og Jennu foreldra Lísu og Jonna og Sunnu, en við vorum einnig að passa börn- in þeirra. Það var ekki erfitt að kynnast Ófa, það tókst strax með okkur mikil vinátta. Ófi var ansi ræðinn og hafði mjög skemmti- lega sýn á ýmis málefni. Þessar móttökur spilltu nú ekki fyrir því að ég tók alltaf vel í að fara að passa með Lísu, fyrir utan hvað það var upplagt að geta stundum verið með Lísu langt fram á nótt á fallegu heimili þeirra Hildar og Ófa. Ég upplifði strax að Ófi og Hildur voru yndisleg og áttu vel saman. Heima hjá þeim var allt svo eðlilegt og látlaust, ekkert bruðl en samt allt fallegt og þægi- legt. Sama má segja um heimili þeirra á Skólavörðustíg. Það heimili er algjörlega í sérflokki, ætti í raun að vera varðveitt eins og það er, svo smekklega hafa þau Hildur og Ófi komið sér þar fyrir. Þetta er eins og koma inn á safn, þar eru falleg húsgögn og lista- verk sem komið hefur verið fyrir á einstaklega smekklegan hátt, ein- stök upplifun. Sama má segja um hús þeirra sem þau byggðu í Vest- urbergi. Húsið var teiknað af bróðir Ófa, Jonna, samkvæmt leiðbeiningum frá Ófa eins og ég skildi hann alltaf og ég er þess fullviss að það sé rétt. Þegar við Lísa heimsóttum þau þar, að hluta til á byggingartíma hússins, var Ófi alltaf að sýna alls konar hug- myndir og lausnir sem hann var að vinna að í sambandi við bygg- ingu hússins og að sjálfsögðu gull- smíðar. Það var alltaf eitthvað nýtt sem Ófi var að vinna að. Þannig var hann, hafði svo gaman af því að ræða og sýna manni hvað væri í gangi og hvernig hann hafði leyst alls konar vandamál. Manni fannst Ófi vera arkitektinn að hús- inu en hann hafði alltaf bróður sinn í bakhöndinni sem einnig var alltaf með einfaldar og praktískar lausnir. Þegar góðir vinir kveðja fyll- umst við söknuði. Þá fer maður að hugsa, hvers vegna gaf maður sér ekki meiri tíma til samskipta og samveru. Ófi hafði einstaklega góða nærveru, hlustaði og setti sig inn í mál annarra. Í huganum finnst mér enginn geta fyllt þetta skarð, hann var mér sem bróðir. Hildur og Ófi hafa komið ótrúlega mörgu í framkvæmd, auk þess að vera miklir vinir og stuðningsaðil- ar sinnar fjölskyldu. Það er ekki hægt annað að brosa þegar maður hugsar til Ófa, hann var alltaf uppátækjasamur fram á síðasta dag. Hann gaf öll- um tækifæri, góður heim að sækja og hafði gaman af því að velta hlutunum fyrir sér og finna nýjar leiðir. Blessuð sé minning hans. Haukur. Þegar Ófeigur var að læra gull- smíðina á Skólavörðustíg hjá Jó- hannesi kom ég iðulega í heim- sókn því Jóhannes var oft fjarverandi. Þá spjölluðum við saman endalaust og drukkum ketilkaffi sem Ófi var snillingur í að laga. Ég reykti Kool og hann reykti pípu. Við kynntumst uppi á Keflavíkurflugvelli sumarið 1965, hann var 17 og ég 16. Eftir þetta héldum við vinskapnum alveg fram á síðasta dag. Man hvað ég var hissa þegar hann sagði mér að hann væri að fara að vinna í slökkviliðinu uppi á Keflavíkur- velli. Þegar ég fór í brúðkaupið til Isaac B. Tigrett, stofnanda Hard Rock Cafe, þá smíðaði Ófeigur fyrir mig sérstakt listaverk sem ég gaf þeim hjónum stoltur. Við fórum oft í útilegur eða borðuðum hver hjá öðrum. Hildur var snill- ingur í eldhúsinu og alltaf gaman að koma hvort sem var á Vífils- götu, í Vesturbergið eða á Skóla- vörðustíginn. Hann var vinur vina sinna og ég var einn af þeim. Blessuð sé minning hans. Samúðarkveðjur til Hildar Bolla og Bjössa. Kær kveðja, Tómas Andrés Tómasson (Tommi). Það brá skugga á líf mitt er Ófeigur kvaddi öllum að óvörum. Mikill harmur er kveðinn að fjölskyldu hans, ekki síst konu hans, Hildi Bolladóttur, en sam- búð þeirra var einstaklega ástrík. Vinátta okkar Ófeigs hefur spannað marga áratugi, allt frá því við lærðum gullsmíði saman ungir að árum og ýmislegt annað höfðum við brallað saman. Elsku Hildur, börn, barnabörn og fjölskylda. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð, megi minning um góðan dreng lifa og Guð styrkja ykkur. Jóhannes Bárðarson, Agnethe (Agga) og fjölskylda. Árið var 1966, Ófeigur Björns- son hafði ákveðið að hlaupa í skarðið fyrir umboðsmann hljóm- sveitarinnar Glampa, sem var unglingahljómsveit. Það þurfti að aka drengjunum á staðinn og ábyrgast þá, því þeir voru allir fjórir undir lögaldri – máttu ekki fara inn á öldurhús. Drengirnir áttu að spila í Lídó og síðar um kvöldið í Breiðfirð- ingabúð og var uppálagt að mæta tímanlega heim til hins nýja um- boðsmanns í Brekkugerði. Þar tók á móti þeim áberandi vel klæddur fríðleikspiltur, sem vís- aði þeim til sætis í einkastofu sinni og bað þá bíða, rétt á meðan hann sinnti veigamiklum verkefnum. Hann virtist aðeins nokkrum ár- um eldri en drengirnir, en kom fram af þvílíkri yfirvegun að þeir hlýddu umsvifalaust. Skömmu síðar kom hann aftur með Póló- gervikjarnadrykk og bauð, því næst kynnti hann sig formlega. Þar með vissu þeir hver Ófeigur Björnsson var. Síðar á lífsleiðinni kynntist ég Ófeigi á allt öðrum forsendum. Þá bjó ég í miðbænum og átti stund- um leið um Skólavörðustíginn. Ófeigur stóð þar oftar en ekki á gangstéttinni fyrir framan versl- un sína, þar sem hann seldi sína fallegu og sérstæðu smíðagripi úr gulli og silfri, sem og glæsilegt handverk Hildar konu sinnar. Við tókum gjarnan tal saman og einn daginn átti ég við hann erindi, bað hann að smíða fyrir mig úr hrafns- vængjum eitthvað sem ég gæti fest á handarbökin og látist fljúga. Hann tók því vel, eins og öðru sem hann var beðinn um, og brosti sínu kankvíslega brosi. Einhverju sinni spurði ég hann út í umboðsmanns- ferilinn og sagðist hann aðeins hafa gerst umboðsmaður í tvö kvöld á ævinni. Fyrra kvöldið var téð föstudagskvöld og seinna kvöldið var föstudagur viku síðar. Þegar ég áréttaði hvort hann myndi eftir heimsókn okkar og Pólódrykknum frá Sanitas sem hann bauð okkur leiðrétti hann það strax og sagði: „Nei, en ég minnist þess að hafa fært ungum piltum Sanitas-appelsínulímonaði og það drukku drengirnir beint af stút, þrátt fyrir að ég kæmi með glös – það þótti mér sérstakt.“ Upp úr þessu spjalli okkar Ófeigs spratt smám saman náin og kær vinátta og við hjónin áttum marg- ar skemmtilegar og eftirminnileg- ar stundir með þeim Hildi; heima og heiman, og það sem okkur þótti svo ánægjulegt var hvernig þessi vinátta þroskaðist alveg áreynslu- laust, öngvar stellingar, heldur að- eins afslöppuð nærvera. Okkur finnst eins og Ófeigur hafi svolítið stýrt samskiptum okkar á þann veg. Allt streymdi eðlilega fram og gott ef tilveran varð ekki léttari og lán okkar fjögurra umfaðmað í hlýrri samveru. Þær stundir höfum við, hvert um sig, geymt við rætur hjartans, sem minningaleiftur sem þungt er að rifja upp nú um stundarsakir – en góður drengur, sem Ófeigur var, skilur eftir hugrekki og þor fyrir okkur að halda áfram að leita uppi vinsemd og góðar samveru- stundir – því annars er nokkuð víst að tómleiki og ástleysi leggi okkur lifandi. Hildi okkar, börnum og öðru venslafólki sendum við hugheilar samúðarkveðjur. Tinna og Egill. Það varð snöggt um hann Ófeig vin minn og kollega til margra ára. Ófeigur Björnsson ✝ Jóhannes Árna- son fæddist 26. febrúar 1925 á Sölv- hólsgötu 12 í Reykjavík. Hann lést á Vífilsstaða- spítala 23. nóv- ember 2021. Foreldrar hans voru Árni Pálsson atvinnubílstjóri í Reykjavík, f. 12. desember 1898, d. 14. júlí 1978, og Kristín Jóhann- esdóttir, f. 28. apríl 1906, d. 22. október 1996. Bróðir Jóhannesar var Ólafur Helgi, f. 17. október 1930, d. 30. október 1932. Systir Jóhannesar var María, f. 4. sept- ember 1926, d. 22. apríl 2020. Eiginkona Jóhannesar var Guðrún Ólöf Sveinjónsdóttir, f. 23. nóvember 1926, d. 9. nóv- ember 2020. Þau giftust 6. des- 1969, og Sigríður Helga, f. 14. ágúst 1982. 3) Kristín Andrea, f. 3. janúar 1955. Eiginmaður hennar er Sigurður Straumfjörð Pálsson, f. 26. október 1951. Börn þeirra eru: Jóhannes Páll, f. 17. febrúar 1972, og Guðrún Ólafía, f. 3. janúar 1975. Á bernskuárum Jóhannesar bjó fjölskyldan í Vesturbænum. Eftir barnaskólagöngu fór hann í Stýrimannaskólann og útskrif- aðist þaðan sem loftskeytamað- ur. Síðar lærði hann búfræði á Hvanneyri og seinna meir gekk hann í Iðnskólann eins og synir hans og lauk þar trésmíðanámi með hæstu einkunn sem gefin var á þeim tíma. Hann var þús- undþjalasmiður og fátt sem hann ekki gat gert eða lært. Hann vann hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum. Má þar nefna Gufu- nesradíó, Keflavíkurflugvöll, ýmsar bílaleigur og síðast hjá Rannsóknastofnun bygging- ariðnaðarins. Hann kynntist Guðrúnu eig- inkonu sinni 1946 og gengu þau í hjónaband ári síðar. Til að byrja með bjuggu þau á Hringbraut en fluttu síðar í Efstasund og stuttu seinna á Bergstaðastræti og Sundlaugaveg. 1963 fluttu þau í glænýja íbúð í Safamýri og stofn- uðu eigið fyrirtæki, Bílaleiguna Ferð, þar sem hann sá um við- hald og hún hélt bílunum hrein- um. Árið 1968 fluttu þau til Dan- merkur og bjuggu þar í eitt ár. Þar starfaði hann við bíla- viðgerðir og hún á spítala. Fljót- lega eftir heimkomu fluttu þau á Tjarnarflötina þar sem hjónin bjuggu til æviloka. Jóhannes átti sér mörg áhuga- mál. Má þar nefna hesta- mennsku, garðrækt, dvöl í sum- arbústað þeirra hjóna og ferðalög innanlands sem utan. Útför Jóhannesar fer fram frá Garðakirkju í dag, 3. desember 2021, og hefst hún klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða einungis nánustu aðstand- endur viðstaddir útförina. ember 1947. Börn þeirra eru: 1) Svein- jón, f. 6. júlí 1947. Fyrri eiginkona hans er Helena Al- bertsdóttir, f. 26. nóvember 1947. Þau skildu. Börn þeirra eru: Jóhanna Þóra, f. 28. sept- ember 1966, og Al- bert, f. 9. maí 1969. Seinni eiginkona hans er Kolbrún Aðalsteins- dóttir, f. 16. ágúst 1956. Þau skildu. Börn þeirra eru: Brynjar Örn, f. 6. september 1978, og Að- alsteinn Janus, f. 16. júlí 1986, d. 4. maí 2005. 2) Árni, f. 10. ágúst 1948. Eiginkona hans er Stella Hjörleifsdóttir, f. 3. maí 1948. Þau skildu. Börn þeirra eru: Jó- hannes, f. 12. desember 1966, Hjörleifur Einar, f. 19. október Í dag kveðjum við einn höfðingj- ann til í fjölskyldunni. Það má með sanni segja að Jóhannes Árnason tengdafaðir minn hafi átt viðburða- ríkt líf í þau 96 ár sem hann lifði hér á jörð. Eftir að hafa heyrt æviágrip sem systkinin hafa tekið saman um föður sinn er enginn vafi á að tengdó hefur farið um víðan völl og verið óhræddur við nýjar og flóknar áskoranir. Ég þekkti lítið til höfðingjans fyrr en hann og hans föruneyti flutti í Garðabæinn í húsið þar sem hann bjó sér heimili og verðlauna- garðinn sem hann hannaði sjálfur af mikilli snilld og elju. Ég man svo vel eftir að þegar loksins tókst að aðstoða hann við einhvers konar framkvæmdir þá varð maður sko að passa sig að leggja sig allan fram, vanda sig og gera hlutina eins og hann vildi gera þá. Ef ekki þá gat maður bara gert eitthvað annað. Ég held að ég hafi verið „inn“ hjá honum í þeim efnum og er ég bæði þakklátur og stoltur fyrir það. Jóhannes kenndi mér margt til verka. Hann átti líka fullt af verkfærum, bæði í skúrnum og líka verkfæri í huganum. Hann var alltaf með lausnir á öllu enda reyndur og vel menntaður. Tengdapabbi minn var lærður ostagerðarmaður, loftskeytamað- ur, búfræðingur og trésmiður og lauk öllu sínu námi með fullu húsi stiga og oftast hæstu einkunnum. Geri aðrir betur. Hann gerði líka kröfur um að allir gerðu eins. Ég man að þegar hann keypti sér nýja bíla þá vildi hann að allir í fjöl- skyldunni keyptu sér eins bíla því þeir væru einfaldlega bara bestir. Ég flutti inn á Tjarnarflötina grænn og óheflaður. Þau ár sem ég átti með fjölskyldunni þar voru mér mikilvæg. Ég sá vel hvernig maður þurfti að haga sér og vinna ef maður vildi komast áfram í líf- inu. Þökk sé m.a. frábærum tengdaföður. Jóhannes og Lilla tengdamóðir mín eyddu miklum tíma með okkur Öddu bæði á fyrstu árum okkar í búskap og þegar við bjuggum í Danmörku. Sem betur fer endur- tók sagan sig þegar við fluttum til Spánar og heimsóknir þeirra þangað voru tíðar og veittu okkur bæði ánægju og gleði. Stundum skildi hann þó ekki alveg hvernig hægt væri bara að flytja til Spánar og hætta að vinna. Hann spurði oft hvort mér leiddist ekki og hvort ég hefði nóg að gera. Það þýddi ekk- ert að segja honum að ég hefði nóg að gera og með fullt af vinnu í „tölvunni“. Hann skildi það bara ekki alveg hann gamli minn. Tengdapabbi var ekkert hrædd- ur við tölvuna og nýjungarnar sem henni fylgdi. Næstum til dauða- dags las hann Moggann á netinu og hann var meðal fyrstu manna til að kaupa sér alls konar listaverk á netinu. Þetta gerðist áður en al- menn netviðskipti hófust. Hann fór svo bara í bankann og borgaði og listaverkin komu svo eftir nokkra mánuði frá löndum sem meira að segja reyndir netverslunarmenn þora ekki að gera viðskipti við í dag. Tengdapabbi var óhræddur og nýjungagjarn og var stoltur af. Ég sakna hans og Lillu og mun minnast þeirra til æviloka. Ég votta öllum fjölskyldumeðlimum Jóhannesar og Guðrúnar mína bestu samúð og þakka um leið fyrir að hafa fengið að verða samferða þeim síðastliðin 50 ár eða svo. Sigurður Straumfjörð Pálsson. Jóhannes Árnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.