Morgunblaðið - 03.12.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.12.2021, Blaðsíða 32
DURANCE JÓLAILMUR 2021 MODULAX HÆGINDA- STÓLAR RAFSTILLANLEGIR HLEÐSLUSTÓLAR – FALLEG HÖNNUN OG ÞÆGINDI STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI FULLKOMIN ÞÆGINDI um jólin Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu „Annarsstaðar“ er heiti sýningar Helgu Katrínar sem verður opnuð í Midpunkt í Hamraborg Kópavogs í dag kl. 17. Helga nam ritlist við Háskóla Íslands og Middlesex University, en er núna að ljúka námi við Ljósmynda- skólann. Um er að ræða hljóðinnsetningu í verulega umbreyttu rými Midpunkts en í henni vinnur Helga með dagdrauma og þrána að vera annars staðar þrátt fyrir að vera líkamlega föst á tilteknum stað. Áhorfendur eru leiddir í gegnum sjón- rænt ferðalag sem miðlað er í framandi hljóðheimi og í draumkenndri, fantasískri lýsingu. Í Midpunkt hafa ver- ið settar upp margar metnaðarfullar sýningar en þetta er síðasta sýning þar í bili. Hljóðinnsetning Helgu Katrínar í síðustu sýningu Midpunkts að sinni FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 337. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Guðmundur Þórarinsson landsliðsmaður í knatt- spyrnu hefur fulla trú á að lið sitt, New York City, geti orðið bandarískur meistari en það spilar úrslitaleik Austurdeildar á sunnudagskvöldið. „Ég fer ekki ofan af því að mér finnst við vera með besta liðið,“ segir Guðmundur. »26 Finnst við vera með besta liðið ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fjöllistakonan og fararstjórinn Vil- borg Halldórsdóttir hefur sent frá sér bókina Hugleiðingar Vilborgar, sem eru mörgum ógleymanlegar eftir flutning hennar á þeim í skemmtiþáttum í Sjónvarpi Símans frá því fyrstu samkomutakmarkanir skullu á í fyrra. „Mig langaði til þess að fólki gæf- ist tækifæri til þess að lesa hug- leiðingarnar sem ég samdi og handfjatla grip- inn,“ segir Vilborg um bókina, sem hún vann í samvinnu við Kristínu Þorkelsdóttur myndlistarkonu og grafíska hönnuðinn Gunnhildi Ýri Gunnarsdóttur. Sjónvarpsþættir Helga Björns og Reiðmanna vindanna ásamt gestum í Sjónvarpi Símans hafa létt lands- mönnum lífið í heimsfaraldrinum rétt eins og karlalandsliðið í fótbolta bjargaði sálarlífi margra í rúman áratug eftir hrunið margumtalaða. Eftir að Vilborg hafði þýtt ljóðið „Útgöngubann“ eftir írska munkinn Richard Hedrick og flutt það í „stof- unni“ hjá eiginmanninum fylgdi hver perlan á fætur annarri, fyrst ís- lensk ljóð og síðan eigin hugleið- ingar. „Mér fannst ekki hægt að geyma þessar hugleiðingar eingöngu í staf- rænum heimi,“ segir Vilborg. „Ég leyfði þeim að koma og þær fæddust í hverri viku, spegla gjarnan það sem var að gerast, eru eins og vind- urinn blés.“ Þær hafi verið ákveðin upplifun og skemmtilegt hafi verið að fara með þær til Kristínar Þor- kelsdóttur og biðja hana að setja þær í búning. „Hún tók svo vel á móti mér. „Þakka þér fyrir að koma með óskina þína til mín, Vilborg mín,“ sagði hún.“ Gleði og blús Þegar Vilborg var í menntaskóla samdi hún ljóð og sum þeirra voru birt í Lesbók Morgunblaðsins en þetta er fyrsta bók hennar. „Ég hef skrifað alla ævi en fyrst og fremst litið á mig sem leikkonu,“ segir hún. Hún samdi ljóðið „Húsið er að gráta – Mér finnst rigningin góð“ 1978, en það hefur notið mikilla vinsælda eft- ir að Helgi og hljómsveitin Grafík sömdu við það lag og gerðu ódauð- legt sex árum síðar. „Fyrsta ljóðið í bókinni samdi ég 1977 þannig að út- gáfan er stór stund fyrir mig, að hugsanir mínar séu í höndum les- enda.“ Þegar andinn kemur yfir Vilborgu punktar hún hjá sér hugmyndirnar á næstu servíettu. „Ég sest ekki nið- ur og segist ætla að fara að skrifa heldur kemur textinn til mín. Þegar maður er glaður þá dansar maður og þegar örlítill blús er í manni nær maður frekar að fanga þessa tilveru, því þá er kyrrðin meiri.“ Helgi og Vilborg gefa bókina út og hana má kaupa á heimasíðu þeirra (heimamedhelga.is), í bóka- búðum og stórmörkuðum. „Helgi gaf mér svigrúm í þáttunum og þannig urðu hugleiðingarnar til,“ segir Vilborg. Hún sgist vera með ýmsa sköpun í farvatninu, en fram- tíðin verði að skera úr um hvað raungerist. „Það ætti alltaf að vera pláss fyrir alla í listrænum fjöl- breytileika. En allavega er eitt ljóst; ég fer með gönguhóp til Ítalíu í vor, fer til „himnaríkis“, og verð þar eins og fuglinn fljúgandi.“ Ljósmynd/Mummi Lú Flutningur Vilborg Halldórsdóttir flutti hugleiðingarnar með tilþrifum í skemmtiþáttum í Sjónvarpi Símans. Hugleiðingar Vilborgar - Innblásturinn speglar lífið eins og vindurinn blæs hverju sinni - Hefur skrifað alla ævi og fyrsta bókin stór stund

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.