Morgunblaðið - 15.12.2021, Side 7
ALLIR ERU HJARTANLEGA VELKOMNIR.
Boðið verður upp á gómsæta kínverska smárétti og ýmist handverk og minjagripi meðan birgðir endast.
Þann 17. janúar 2008 skrifuðu Íslenskir aðalverktakar og
kínverska fyrirtækið Wuhan Lingyun Building Decoration
Engineering undir samning um glerhjúp á Hörpu, tónlistar -og
ráðstefnuhús.
Þann 12. nóvember 2016 var haldin opnunarhátíð bókasýning-
ar á Landsbókasafni Íslands en tilefnið var að 45 ár voru liðin
frá því komið var á fót stjórnmálasambandi á milli Kína og
Íslands.
Þórdís Kolbrún Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra, á verðlaunaafhendingu sem haldin var
af Íslandsstofu og kínverska fjölmiðlafyrirtækinu Mango TV
þann 31. október 2019.
Þann 6. ágúst 2008 hélt íslenska sendinefndin á Ólympíu-
leikunum fánaathöfn í Ólympíuþorpinu í Beijing. Á myndinni
má sjá Cheng Kai, stjórnanda Ólympíuþorpsins í Beijing,
ásamt íslensku sendinefndinni.
Þann 18. október 2018 var formlega hafinn rekstur á
Rannsóknastöðinni China-Iceland Arctic Science Observatory
(CIAO) á Kárhóli en það er samvinnuverkefni Kína og Íslands.
Þann 25. janúar 2019 var frumsýnd röð atriða til að halda upp
á kínversku Vorhátíðina (Chinese Spring Festival) á Íslandi.
Íslenska ljóðskáldið Linda Vilhjálmsdóttir sem tók þátt í
Norrænni ljóðaviku í Kína spjallar við innfæddar Yi-stúlkur
í Yunnan Stone Forest World Geological Park þann 20. mars
2004.
Þann 26. janúar 2019 sóttu meira en 1.000 íslenskir gestir
kínverska menningarhátíð í Hörpu og blönduðu geði við
arftaka óáþreifanlegs heimsmenningararfs eins og kínver-
ska skrautskrift, leturgröftur, Peking-óperu og sykurmálun
og lærðu af kennurum Northern Lights Confucius Institute.
Þann 26. október 2014, í boði Bardagaíþróttasambands
Íslands, þjálfaði teymi kínverska Qigong Association
meira en 30 heimamenn og skipulagði stigapróf fyrir þá í
Reykjavík. Á myndinni má sjá iðkendur æfa Qigong undir
leiðsögn Dai Haibin þjálfara. Í dag eru um 300 Qigong
iðkendur í Bardagaíþróttasambandi Íslands.