Morgunblaðið - 15.12.2021, Qupperneq 15
MINNINGAR 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021
✝
Jenný Bára
fæddist á
Landspítalanum í
Reykjavík 17.
ágúst 1982. Hún
lést 4. desember
2021.
Foreldrar henn-
ar eru Harpa
Hrönn Gestsdóttir
sjúkraliði, f. 21.1.
1965, og Sigurður
Helgi Þórisson, f.
21.10. 1953.
Þau slitu samvistir árið 1988.
Sambýlismaður Hörpu er Run-
ólfur Hjalti Eggertsson, f. 23.4.
1947.
Fósturforeldrar Jennýjar eru
Henný Bára Gestsdóttir bókari,
f. 30.7. 1962, og Hjálmtýr Sæ-
mundur Halldórsson járnsmið-
ur, f. 2.12. 1958.
Bróðir Jennýjar er Jóhann
Sigurðarson, f. 7.9. 1986.
Systkini Jennýjar sammæðra
eru Aníta Runólfsdóttir sjúkra-
liði, f. 13.8. 1993. Barnsfaðir
hennar er Ásgeir Örn Þórsson,
f. 4.1. 1993. Börn þeirra eru
Þóra Gabríela Ásgeirsdóttir, f.
27.12. 2011, og Camilla Hrönn
Ásgeirsdóttir, f. 12.2. 2017.
Dagný Runólfsdóttir, f. 8.4.
1999. Systkini samfeðra Kol-
brún Kristinsdóttir vörustjóri,
f. 30.12. 1975. Fyrrverandi
maki hennar er Axel Thor-
arensen Hraundal, f. 26.5. 1973.
Börn þeirra eru Aníta Erla
Thorarensen, f. 9.10. 1993,
Diljá Sól Thorarensen, f. 5.9.
1995, Adrian Máni Thor-
arensen, f. 5.12. 2002, Athena
Isis Thorarensen, f. 18.7. 2007.
Maki Kolbrúnar er Árni Steinn
Sveinsson, f. 27.7.
1970.
Gylfi Ísarr
Freyr Sigurðsson
bifvélavirki, f. 22.8.
1977. Maki hans er
María Guðbjörg
Bárðardóttir, f.
12.2. 1981. Börn
þeirra eru Isabella
Þórey Ísarsdóttir,
f. 16.9. 2016, og
Sóley Bára Ísars-
dóttir, f. 12.12. 2019.
Anna Kristín Shumeeva, f.
27.3. 1994.
Fósturbróðir Jennýjar er
Kári Sæmundsson, f. 11.10.
1990. Stjúpsystir Jennýjar er
Sylvía Björg Runólfsdóttir
læknir, f. 16.4. 1986. Fyrrver-
andi maki Friðrik Ómarsson
flugstjóri, f. 11.8. 1980. Dóttir
þeirra er Katrín Emilía Frið-
riksdóttir, f. 27.4. 2012. Sam-
býlismaður Sylvíu er Eerikki
Pirkanpoika M. Elovitra forrit-
ari, f. 15.11. 1982. Sonur þeirra
er Mikael Úlfur Elovirta, f. 7.1.
2020.
Jenný Bára giftist Árna
Helga Gunnlaugssyni 9.5. 2002,
f. 10.3. 1964, d. 23.11. 2021.
Synir þeirra eru Elías Aron
Árnason, f. 16.9. 2003, Gunn-
laugur Örn Árnason, f. 25.1.
2005, og Brynjar Pálmi Árna-
son, f. 9.2. 2006.
Jenný Bára og Árni Helgi
skildu árið 2006.
Jenný Bára bjó að mestu öll
sín ár í Reykjavík, mest í
Breiðholtinu og seinast í Vest-
urbæ Reykjavíkur.
Útförin fer fram í dag, 15.
desember 2021, kl. 13.
Elsku fallega systir mín, nú
ertu fallin frá. Þrátt fyrir veik-
indi þín var það skellur að
missa þig strax. Við vorum
deginum áður að fylgja barns-
föður þínum og fyrrverandi
eiginmanni til grafar en hann
hafði glímt við veikindi sem
sóttu á hann með hraði. Þú
varst búin að hafa miklar
áhyggjur eftir fráfall hans af
drengjunum þínum. Ég hafði
kíkt í heimsókn til þín miðviku-
deginum fyrir, þar sem við átt-
um yndislega kvöldstund sam-
an. Ég var svo þakklát, en
þrátt fyrir að samband okkar
væri alltaf einstakt, skilyrðis-
laust og án nokkurra skuld-
bindinga þá hafði ég sagt þér
hversu mikið ég stæði með þér.
Hvað þú gætir treyst mér fyrir
öllu og ég væri alltaf til staðar.
Þér fannst erfitt að geta ekki
sinnt drengjunum þínum eins
mikið og þú vildir. Ég minnti
þig á að þú værir eina mamma
þeirra og enginn gæti tekið
móðurtitilinn af þér.
Öllu þessu kom ég í orð kvöld-
inu fyrir nóttina örlagaríku. Við
knúsuðumst þarna í síðasta
sinn. Veikindi þín voru þó farin
að ágerast en þú hafðir leyft
mér í gegnum árin að fylgjast
með framvindu þeirra, sem mér
þótti afar vænt um. Ég lofaði
þér að vera til staðar bæði fyrir
þig og strákana þína. Þú þarft
ekki að efast eitt augnablik um
að strákarnir, sem nú eiga bæði
pabba og mömmu á himnum, fái
eins mikinn stuðning frá móð-
ursystur sinni og þörf er á.
Ég trúi því að þið horfið sam-
an á drengina ykkar blómstra í
lífinu um ókomna tíð.
Minning þín um alltaf fylgja
mér. Takk fyrir allar okkar
stundir. Takk fyrir að treysta.
Takk fyrir okkar einstaka
systrasamband.
Þín litla systir,
Aníta Runólfsdóttir.
Jenný Bára
Hörpudóttir
Minningarvefur á mbl.is
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
" 3,0'*2 ,5 (1 .''( *!!4&)#'/(5 *2
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
(1 +-'%*2 $/ (15(5 /(/'4,/(5 *!!4&)#'/(5
ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát
Minningar
og andlát
✝
Anna Karls-
dóttir fæddist í
Flatey á Skjálfanda
11. október 1947.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu
Skjóli 28. nóvember
2021.
Foreldrar henn-
ar voru Helga Guð-
mundsdóttir og
Karl Pálsson, út-
gerðarmaður í
Flatey á Skjálfanda. Systkin
hennar voru: Sverrir Bergmann,
Guðmundur Karl, Sigurpáll
Baldur, Pálmi Hannes, Ragnar,
Erlingur Már og Arnþrúður.
Anna ólst upp í Flatey á
Skjálfanda til 13 ára aldurs en
þá flutti hún með fjölskyldu
sinni til Húsavíkur. Anna lauk
námi við Gagnfræðaskóla Húsa-
Anna giftist Sigurði Helga
Jóhannssyni hinn 26. desember
1970. Börn þeirra eru: 1) Stein-
ar Örn, börn hans eru Anna
Margrét, Andri Már, Arnar
Már og Thelma Lind. Sambýlis-
kona Steinars er Karen Ósk
Óskarsdóttir. 2) Karl Jóhann,
synir hans eru Sigurður Óli, Jó-
hann Salberg og Kristinn Örn.
Eiginkona Karls Jóhanns er
Dóra Birna Kristinsdóttir. Fyr-
ir átti Dóra dæturnar Elínu
Ósk, Evu Ósk og Eyrúnu Ósk.
3) Erna Björg, börn hennar eru
Embla Björk, Valtýr Páll, Karl
Jóhann og Eyþór Kári. Eig-
inmaður Ernu er Stefán Reynir
Pálsson.
Útför Önnu verður gerð frá
Laugarneskirkju í dag, 15. des-
ember 2021, og hefst athöfnin
kl. 13. Vegna samkomutak-
markana verður útförinni
streymt og hægt er að nálgast
vefslóðina á:
https://www.mbl.is/andlat
víkur. Nokkru síðar
fór hún í
Húsmæðraskólann
á Laugarvatni. Að
loknu námi við Hús-
mæðraskólann
flutti Anna til
Reykjavíkur og
vann við afgreiðslu-
störf o.fl. Á þessum
tíma kynntist hún
Sigurði Helga. Þau
hófu búskap í
Reykjavík og fluttu að tveimur
árum liðnum til Egilsstaða, þar
sem Sigurður kenndi einn vetur
við unglingaskólann. Að skóla-
árinu loknu fluttu þau til Húsa-
víkur. Árið 1986 fluttu þau Anna
og Sigurður til Reykjavíkur. Síð-
ustu tvö árin naut Anna að-
hlynningar á Hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli.
Amma Anna.
Mikið á ég eftir að sakna
ömmu minnar. Hún tók alltaf
fagnandi á móti mér og systkin-
um mínum þegar við komum í
heimsókn og öllum leið mjög vel í
kringum hana. Hún var kærleiks-
rík og vildi allt fyrir barnabörnin
sín gera. Hún þurfti að ganga í
gegnum erfið veikindi þegar hún
var á besta aldri sem svo fylgdu
henni út ævina. Amma mín var
alltaf jákvæð, hlý og góð. Hún
kenndi mér að lífið gæti stundum
verið ósanngjarnt og óskiljanlegt
og ég yrði að horfa á það jákvæða
í lífinu, vera þakklátur og láta
ekki erfiðleika slá mig út af lag-
inu.
Ég á margar góðar minningar
um ömmu mína. Ég átti svo mörg
fótboltaspjöld því amma var allt-
af að gefa mér fótboltapakka,
ekki bara einn pakka heldur
fimm í einu. Þetta var orðið svo
mikið safn að ég þurfti að fela það
fyrir mömmu því hún var alltaf að
banna ömmu að dekra svona við
mig.
Ég gleymi aldrei þegar ég kom
í heimsókn til ömmu og afa þegar
ég var yngri. Afi skar niður rófur
og radísur og amma gerði bestu
eggjaköku í heimi. Meðan ég var
að borða sagði amma mér alltaf
fyndnar sögur frá því ég var pínu-
lítill og ég man að mér fannst allt-
af jafn gaman að hlusta á þær.
Sérstaklega söguna þegar ég
sagði þeim frá þegar ég veiddi
maríulaxinn og sagði ákafur:
„Ég, ég, ég veiddi sex spýtna
lax.“
Þegar amma var komin inn á
Skjól heimsótti ég hana reglulega
og við sungum saman og skoðuð-
um myndir. Hún var mjög klár og
vitur kona og ég veit að hún er nú
komin á betri stað. Amma mín
mun alltaf lifa í hjarta mínu og
einn daginn munum við aftur
syngja saman Villa Vill, Bítlana,
Ragga Bjarna og Cliff Richards
Karl Jóhann Stefánsson.
Margar minningar koma upp í
hugann þegar ég kveð Önnu
Karlsdóttur frá Flatey á Skjálf-
anda.
Ég kveð þessa baráttukonu
með sorg í hjarta.
Anna var sannkölluð hvers-
dagshetja, hress og jákvæð að
eðlisfari. Þrátt fyrir að líf hennar
hafi ekki alltaf verið dans á rósum
tókst hún á við mótlætið eins og
hvert annað verkefni sem hún
þurfti að leysa. Síðasta stóra og
erfiða verkefnið var alzheim-
ersjúkdómurinn sem hún háði
harða baráttu við, hún gerði allt
sitt besta og lagði sig alla fram og
gafst ekki upp fyrr en í fulla hnef-
ana.
Anna var listfeng og hafði yndi
af að skapa. Árið 2015 kom út
ljóðabók eftir hana sem hún
nefndi Ljóð. Ég vil kveðja Önnu
með einu ljóða hennar sem hún
nefndi „Tilveran“:
Margþættar lífsins leiðir
liggja um sveitir og borg.
Hamingjan lífsgötu greiðir
gleði færir um bæi og torg.
Myndirnar margar geymast
minningarfjöldinn hár,
sem hefur ei fölnað né fallið
í öll þessi liðnu ár.
(Anna Karlsdóttir)
Ég votta fjölskyldu Önnu sam-
úð mína á þessum erfiðu tímum.
Björk Guðjónsdóttir.
Að Laugarvatni í ljúfum draumi
við leiddumst tvö ein um vonarstig
Fjær dægurysi og dagsins glaumi
í dýrðarheima þú seiddir mig.
(Jensína Halldórsdóttir )
Að hausti 1965 mættumst við
fjörutíu stúlkur hvaðanæva frá
öllum landshornum að Laugar-
vatni til vetrarvistar í Hús-
mæðraskóla Suðurlands hver og
ein með sínu lagi. Tilhlökkun í
lofti en náðum fljótlega saman,
málfarið ólíkt … norðanstúlk-
urnar vöktu athygli okkar fyrir
kjarnyrt mál, þeirra á meðal var
hún Anna Karls frá Húsavík sem
við kveðjum í dag. Anna var
gáskafull og glæsileg, litfríð og
ljóshærð og góðum kostum
gædd, æringi mikill og alltaf til í
glens, spilaði á gítar og kunni
alla texta. Hún kom fljótt inn í
gítarsönghópinn sem skemmti
við allskonar tækifæri á
skemmtunum skólans og í nær-
liggjandi skólum og árshátíðum
var gjarnan sungið ljóðið hennar
Jensínu skólastýru. Hún var
kröftug í verkum sínum til
munns og handa og gustaði oft af
henni sem húsmóður í eldhúsvik-
unni. Veturinn leið við nám,
glaum og gleði og einstaka sam-
heldni í hópnum. Að vori kvödd-
umst við með eftirminnilegri Ed-
inborgarferð og ferðalagi um
Skosku hálöndin, alveg ógleym-
anlegt. Síðan hvarf hver og ein til
sinna verka eftir veturinn inn í
framtíðina, en samstaðan alltaf
til staðar og tryggðin söm og jöfn
í stóru klúbbunum svo eftir var
tekið. Hún Anna varð fyrir
hnjaski árið 1984 í saklausri bak-
aðgerð og markaði það hana alla
tíð eftir það, en manna fjörugust
þegar við komum saman, beit á
jaxlinn og veifaði hækjunni, ljóð-
elsk var hún og gaf út ljóð til vina
og vandamanna árið 2015, sendi
okkur geisladiska, myndir og
hugleiðingar, alltaf að. Síðustu
árin glímdi hún við alzheim-
ersjúkdóminn og var komin á
hjúkrunarheimilið Skjól, en
„glimtið“ var alltaf til staðar í
augunum þar til yfir lauk.
Elskulega Anna okkar, nú ert
þú frjáls og fleyg úr fjötrum og
syngur í blómabrekkunni sem
við sungum svo oft um saman
hópurinn. Sigga þínum og fjöl-
skyldunni sendum við einlægar
samúðarkveðjur. Farðu sæl að
himnaborðum inn í stjörnubjarta
fegurð og birtu himins, við segj-
um: Takk fyrir allt og allt og
gæti þín Guð, kæra skólasystir.
F.h. árgangs 1965-66,
Þóra Grétarsdóttir.
Anna Karlsdóttir
✝
Gunnólfur
Árnason
fæddist í Háa-
gerði á Ólafsfirði
26. mars 1941.
Hann lést á
sjúkrahúsinu á
Siglufirði 4. des-
ember 2021.
Foreldrar
Gunnólfs voru
Árni N. Gunn-
laugsson, f. 17.
júní 1914, d. 22. júní 1978, og
Sigurbjörg Vigfúsdóttir, f. 30.
september 1917, d. 16. febr-
úar 2001.
Alsystkin Gunnólfs eru:
Þórdís, f. 1939, Soffía, f.
1942, d. 2009, Vigfús, f. 1944,
Hannes, f. 1947, Álfheiður, f.
1949, Gunnþór, f. 1958, og
Oddný, f. 1962.
Gunnólfur gekk í desember
1965 að eiga heitkonu sína,
Lilju Minný Þorláksdóttur, f.
8. janúar 1941, d. 19. nóv-
ember 2013. Foreldrar Lilju
Minnýjar voru Þorlákur
Kristinn Ólafsson, f. 18. októ-
ber 1875, d. 22. nóvember
1958, og Anna Björnsdóttir, f.
1. ágúst 1902, d. 18. ágúst
1987.
Börn Gunnólfs og Minnýjar
f. 2002, unnusti Halldór Jök-
ull Ólafsson, f. 2002. 5) Heið-
ar, f. 1974 d. 1976. 6) Heið-
björt, f. 1977, maki Lúðvík
Ásgeirsson, f. 1975, börn
þeirra eru: a) Kristófer f.
1997, sambýliskona Gunn-
hildur Ólöf Jóhannsdóttir, f.
1998. b) Ásgeir, f. 1999, sam-
býliskona Mónika Hlíf Sig-
urhjartardóttir, f. 1998. c)
Þórunn, f. 2001, unnusti Tóm-
as Þorri Þorvarðarson, f.
1997. 7) Heiðar, f. 1979, maki
Júlía Gunnlaugsdóttir
Poulsen, f. 1978, börn þeirra
eru: a) Viktor Freyr, f. 1998.
b) Dagný Lára, f. 2002. c)
Aníta Lind, f. 2008.
Gunnólfur starfaði lengi
hjá Ólafsfjarðarbæ á ýmsum
vinnuvélum og snjómokstur
var eitt af verkefnum hans,
m.a. í gamla Múlaveginum.
Um miðjan aldur skipti hann
um vettvang og gerðist sjó-
maður, sem hann starfaði við
allt þar til hann lenti í alvar-
legu slysi um borð í togar-
anum Mánabergi árið 1995 og
eftir það gat hann ekki unnið
almenna vinnu. Hann fann sér
þó alltaf verkefni sem hann
réð við og má segja að honum
hafi aldrei fallið verk úr
hendi.
Útför hans fer fram frá
Ólafsfjarðarkirkju í dag, 15.
desember 2021, klukkan 13.
eru: 1) Stúlka, f.
1963, d. 1963. 2)
Kristín Anna, f.
1965, maki Krist-
ján Hilmar Jó-
hannsson, f. 1960.
Þau eiga tvo syni;
a) Jóhann Gunnar,
f. 1986, sambýlis-
kona hans er
Tinna Stef-
ánsdóttir, f. 1988.
Þau eiga einn son,
Jökul Ómar, f. 2015. b) Daníel
Má, f. 1996. 3) Árni, f. 1966,
maki Dídí Ásgeirsdóttir, f.
1970. Börn Árna af fyrri sam-
böndum eru: a) Aðalheiður
Lilja, f. 1989, maki Arnór Páll
Kárason, f. 1988, þau eiga tvö
börn; Kára, f. 2008, og Selmu
Rós, f. 2011. b) Karen Eva,
sambýlismaður Jón Helgi
Tómasson, f. 1996. Börn Kar-
enar Evu eru: Viktoría Alfa,
f. 2017, og drengur, f. 2021.
c) Viktor Svavar, f. 2003. 4)
Sigurbjörg, f. 1967, maki Sig-
urbjörn Ragnar Antonsson, f.
1958. Börn þeirra eru: a) Lilja
Minný, f. 1987, sambýlis-
maður Jón Þór Ólafsson, f.
1984, börn þeirra eru: Ólafur
Gísli, f. 2017, drengur, f.
2021. b) Jóhanna Ragnheiður,
Elsku pabbi þá er komið að
kveðjustund og þín verður sárt
saknað. Þrátt fyrir veikindi síð-
ustu mánuði kom kallið okkur á
óvart. Mamma kvaddi okkur fyr-
ir átta árum og þú áttir alltaf
erfitt með að sætta þig við það.
Það hjálpar okkur í sorginni að
vita að þú átt eftir að hvíla við
hlið hennar. Við systkinin erum
búin að vera að rifja upp minn-
ingar um þig og mömmu og
hlæja mikið vegna þess að þú
varst einstakur karakter,
þrjóskur og ákveðinn. Til dæmis
fórstu einn í ferðalag á húsbíln-
um eftir að mamma dó og það
tók þig aðeins tvo daga að fara
hringinn í kringum Ísland, svo
mikið þú elsku pabbi.
Þú varst ótrúlega greiðvikinn
og munaði ekki um að rétta öðr-
um hjálparhönd ef svo bar und-
ir. Pabbi tók vel á móti gestum
og hafði gaman af því að spjalla
við fólk um ýmis málefni sem
voru honum hugleikin hverju
sinni.
Elsku pabbi, þú varst góður
við okkur systkinin og afabörnin
þín og gafst þér góðan tíma til
að spjalla, stundum var það
frekar á fullorðinslegum nótum
en þau höfðu gaman af því. Þú
varst dugnaðarforkur og varst
duglegur að dunda þér við ýmis
verk í bílskúrnum og á heim-
ilinu. Tuskan var aldrei langt
undan hvort sem það var verið
að þrífa á heimilinu eða í bíl-
skúrnum að dekra við bílinn
þinn eða húsbílinn.
Pabbi hafði gaman af því að
elda hangikjöt og lambalæri og
gefa okkur í fjölskyldunni eitt-
hvað gott að borða. Það var oft
til slátur í ísskápnum sem var
sett í súr í fötu. Með þessu
kenndir þú barnabörnunum að
borða súrt slátur.
Pabbi og mamma voru dugleg
að ferðast um landið með okkur
krakkana, í fyrstu með tjald og
síðar með fellihýsi og svo áttu
þau húsbíl síðustu ár. Eftir að
mamma kvaddi okkur fór pabbi
minna í ferðir.
Elsku pabbi, þú varst góður
faðir, tengdapabbi og afi og við
munum sakna þín og samtalanna
við þig, við sjáum þig fyrir okk-
ur keyra um á bláum Mitsubishi
Pajero í sumarlandinu. Takk
fyrir allt og hvíl í friði elsku
pabbi, tengdapabbi og afi.
Kristín Anna, Árni, Sig-
urbjörg, Heiðbjört, Heiðar,
tengdabörn og fjölskyldur.
Gunnólfur Árnason