Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.12.2021, Qupperneq 14
Í
gömlu verkamannabústöðunum við Ás-
vallagötu hefur leikkonan Aldís Amah
Hamilton búið sér fallegt heimili. Hún
býður blaðamanni inn í litla og smekk-
lega íbúð sína og hefur dekkað borð. Te
og kaffi, smákökur og súkkulaði er í boði og
eftir að hafa bragðað á öllum tegundum er tími
til að spjalla.
Aldís er sjarmerandi og brosmild með leiftr-
andi brún augu og fallega liðað hár niður á
bak. Dökka yfirbragðið fékk hún í arf frá föður
sínum. Við ræðum um lífið og tilveruna, pabb-
ann í Ameríku, tilviljanir sem leiddu hana á
leiklistarbrautina og að sjálfsögðu Svörtu
sanda, glænýja seríu sem frumsýnd verður um
jólin. Þar leikur Aldís aðalhlutverkið, en það er
ekki allt og sumt. Hún er einnig einn handrits-
höfunda, hún sem ætlaði aldrei að skrifa.
Rétti tíminn til að hitta pabba
Hin þrítuga Aldís er fædd í Þýskalandi þar
sem foreldrar hennar voru bæði enskukenn-
arar á þeim tíma. Aldís segist örugglega ekki
hafa verið plönuð, en fljótlega eftir að hún leit
dagsins ljós slitnaði upp úr sambandi foreldra
hennar, en faðir hennar er bandarískur.
„Ég á eina hálfsystur pabba megin og þrjár
stjúpsystur frá uppeldispabba mínum þannig
að ég er mjög rík. Mamma kynntist Ella pabba
þegar ég var lítil og þau hafa verið saman síð-
an. Blóðfaðir minn fór til Bandaríkjanna þegar
ég var rúmlega eins árs og ég hef engar minn-
ingar um hann frá þeim tíma. Ég hef bara séð
hann á myndum sem mamma geymdi. Það er
kannski svolítið skrítið en þetta er minn raun-
veruleiki,“ segir hún og segir mann móður
sinnar strax hafa gengið sér í föðurstað.
„Fólkið manns er þegar allt kemur til alls
fólkið sem er til staðar, og það var blóðfaðir
minn ekki,“ segir Aldís en segist hafa tekið
upp samband við hann um ellefu ára aldurinn.
„Mamma hjálpaði mér að hafa uppi á honum
og ég sendi honum bréf á eina heimilisfangið
sem mamma var með, heim til ömmu minnar og
afa, foreldra hans. Þau áframsendu svo bréfið til
hans en í bréfinu var líka mynd af mér. Hann
sendi mér bréf til baka með netfanginu hans og
við hófum tölvupóstssamband. En hann hringdi
einnig annað slagið og sendi mér stundum gjafir.
Núna er auðveldara að vera í sambandi en áður
og síðustu tvö ár hafa samskipti okkar verið
miklu betri og jákvæðari. Ég er búin að kaupa
miða út næsta sumar að heimsækja hann og
hitta í fyrsta sinn,“ segir hún en hann býr í L.A.
„Ég upplifi alls konar blöndu af tilfinn-
ingum,“ segir Aldís þegar hún er spurð hvort
hún sé spennt eða kvíðin.
„Ég er ekki hrædd um að mín sjálfsmynd
litist mikið af þessum hittingi því ég er orðin
það þroskuð. Það hafa áður komið tækifæri til
að heimsækja hann en ég finn að núna er rétti
tíminn,“ segir Aldís og segist hafa farið að
hugsa um að nú á tímum kórónuveirunnar
gæti allt gerst. Hún vill alls ekki missa af því
að hitta pabba sinn í eigin persónu.
„Hann er svartur maður kominn af léttasta
skeiði og eftir því sem ég best veit er hann ekk-
ert í frábærum málum hvað varðar sjúkratrygg-
ingar og slíkt. Það ýtti mér af stað,“ segir Aldís
og segir bæði amma sín og afi séu fallin frá.
„Samband pabba og þeirra var flókið og ekki
náið. Í „blacklivesmatter“-bylgjunni var ég
minnt á það að enn er hópur í Bandaríkjunum
sem upplifir mikla reiði. Enda hafa margir þurft
að lifa við hræðilega mikið misrétti og amma og
afi voru í þeim hópi. Mér skilst að þau hafi ekk-
ert verið mjög hrifin af því hvernig pabbi hagaði
lífi sínu en ég vil alls ekki vanvirða minningu
þeirra né draga of sterkar ályktanir. En ég varð
mjög leið að heyra að þau væru fallin frá því ég
hefði viljað hitta þau,“ segir Aldís og segist hafa
dreymt um að þau hefðu tekið sér vel, þó hún
hefði blandaðan bakgrunn.
„Ég á heila fjölskyldu þarna í Bandaríkj-
unum sem ég hef aldrei hitt og veit lítið sem
ekkert um. Pabbi á sjö systkini í Detroit, en er
ekki í sambandi við þau. Hann er mjög sér-
stakur. Það er mikil áfallasaga í fjölskyldunni í
gegnum kynslóðirnar en það má rekja ættina
aftur til þræla.“
Get ekki eignað mér harm svartra
Aldís er Vesturbæingur í húð og hár og hefur
lítið fært sig þaðan, fyrir utan stutt stopp í
Bretlandi, Noregi og fyrstu árin í Þýskalandi.
„Ég er alin upp á þessum bletti. Við mæðgur
fluttum heim til Íslands þegar ég var þriggja
ára og bjuggum fyrst á Seltjarnarnesinu. Við
fluttum hins vegar fljótlega á Bárugötuna. Við
fluttum svo með pabba á Framnesveginn og ég
síðan hingað á Ásvallagötuna. Foreldrar mínir
eru í 450 metra göngufæri, samkvæmt
Google!“
Aldís segist varla hafa upplifað fordóma
þegar hún var lítil, þrátt fyrir að vera dökk á
brún og brá.
„Ég held að enginn hafi verið í pæla í að ég
ætti svartan pabba en fólk tók kannski eftir
því að ég var öðruvísi. En ég á helst bara fal-
legar sögur. Ég held að á Íslandi, þar sem við
erum almennt einsleit, sé stundum horft á
fólk sem er eitthvað öðruvísi og ég gerði það
líka sjálf. Ég var eina brúna barnið á leik-
skólanum en ég held að ég hafi bara verið
meira spennandi fyrir vikið,“ segir Aldís og
brosir.
„Núna eftir „blacklivesmatter“ sé ég hversu
mikil forréttindi það eru að vera ljósbrúnn. Ég
er „samfélagslega samþykkt“ á litinn. Þegar
fólk fór að tala um mig sem „svarta“ konu gat
ég ekki samsamað mig því. Það er svo mikil
vigt sem liggur að baki þessu lýsingarorði sem
ég get ekki eignað mér. Í Ameríku yrði ég
aldrei viðurkennd sem svört og ég yrði bara
tekin af lífi ef ég ætlaði að eigna mér harm
svartra í Bandaríkjunum. Ég er það sem kall-
ast „white passing“ í þessu samhengi. En ég
upplifi mig auðvitað bara sem venjulegan Ís-
lending,“ segir Aldís og segist nýlega hafa
lagst í lestur bóka til að skilja betur fordóma í
garð svartra ásamt sögu þeirra í Bandaríkj-
unum.
„Ég las meðal annars bókina Sapiens eftir
Yuval Noah Harari. Þessi bók breytti lífi mínu.
Hreint og klárt. Það var mjög frelsandi að lesa
um sögu mannskepnunnar. Þessi bók ætti að
vera skyldulesning!“
Það sem ég geri aldrei aftur
Við snúum okkur aftur að lífsgöngunni, en Al-
dís fór í Versló eftir grunnskólann. Hún segir
leiklistina ekki hafa blundað í sér sem barn og
unglingur.
„En þegar ég horfi til baka má sjá skýr
teikn. Ég vildi alltaf verða „performer“, en þá
sem dansari og söngkona. Ég horfði á Beyoncé
og hlakkaði mikið til að feta í hennar fótspor,“
segir Aldís og brosir breitt.
„Ég var alltaf góð í dansi og söng en á sama
tíma rosalega óþolinmóð og nennti ekki að æfa
mig eða gera það sem ég þurfti að gera. Ég hef
aldrei ræktað þessa hæfileika nóg. Hvað var
ég að gera í staðinn, kannski skemmta mér!“
segir Aldís og blaðamaður sannfærir hana um
að það sé aldrei of seint að byrja að rækta
hæfileika.
„Einstaklingar sem eru framúrskarandi á
sínu sviði voru ekki á djamminu, en það er lær-
dómur í öllu. Ég ætla að reyna að sjá ekki eftir
neinu.“
Aldís endaði á að fara í leiklistarnám í LHÍ
eftir menntaskóla. Þó var hún í upphafi á leið-
inni í kínverska viðskiptafræði, með stuttu
stoppi í Bretlandi.
„Kínversk viðskiptafræði var alveg nýtt fyr-
irbæri þá,“ segir hún og hlær dillandi hlátri.
„Eftir Versló tók ég próf til að komast inn í
enskukennaranám og komst inn. Skólinn var í
Oxford og ég bjó þar í nokkrar vikur,“ segir
hún og hugðist þá í raun feta í fótspor foreldr-
anna sem eins og áður segir unnu sem ensku-
kennarar fyrir margt löngu. Kennararéttindin
buðu upp á tækifæri til að ferðast um heiminn
og þá aðallega austur til Asíu. Hún komst fljótt
að því að þetta var ekki hillan sem hún vildi
vera á.
„Þetta var svo erfitt, eitt það erfiðasta sem
ég hef gert. Ég var látin kenna og hafði enga
hæfni né þolinmæði í það. Eftir námið fór ég til
Noregs með þáverandi kærasta og það var
engin snilld heldur,“ segir hún og hristir haus-
inn.
„Maður lærir af öllu. Nú veit ég hvað ég
ætla aldrei að vinna við aftur,“ segir hún og
hlær.
Gerði einleik úr uppsögninni
Eftir heimkomuna frá Noregi fékk Aldís fljót-
lega þá flugu í höfuðið að sækja um í leiklistar-
námi eftir að hún hitti gamlan vin fyrir tilviljun
á skemmtistað.
„Ég hafði þá reynt að komast inn í suður-
kóreska Idolið, en ég hef mikinn áhuga á Suð-
ur-Kóreu. Mig langaði að syngja og dansa. Svo
hitti ég vin minn á djamminu sem var á leið í
leiklistarnám og hugsaði að kannski væri það
málið. Helgina eftir hitti ég vinkonu sem segir
mér að það séu einmitt inntökupróf í gangi og
hún hvetur mig til að sækja um; ég hafi engu
að tapa. En á þessum tíma var ég búin að skrá
mig í kínverska viðskiptafræði og búin að sitja
kynningarfundinn. En ég sótti líka um í
Listaháskólanum og þrátt fyrir að klúðra að-
eins umsókninni fékk ég samt að fara í inn-
tökuprófið.“
Áttir þú alveg óreynd að fara að leika fyrir
framan dómnefnd?
„Já, þetta er djúpa laugin. Ég komst ekki inn
í Nemó, en á lokaárinu mínu söng ég í Vælinu.
Ég hafði reyndar einu sinni leikið á sviði; það
var í Hagaskóla en þar lék ég aðalhlutverkið í
Skrifin læddust
aftan að mér
Aldís Amah Hamilton, ung og
upprennandi leikkona, er
einn handritshöfunda og
aðalleikari í Svörtu söndum,
nýrri seríu í leikstjórn Bald-
vins Z sem frumsýnd verður á
jóladag á Stöð 2. Aldís ætlaði
sér aldrei að verða leikkona
en örlögin gripu í taumana.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.12. 2021