Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.12.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.12.2021, Blaðsíða 10
Guðrún einnig hvað hún vildi og var ákveðið að brúðkaupið færi fram heima á Íslandi og fór at- höfnin fram í Kristskirkju á Landakotshæð. „Tengdafjölskylda mín kom til landsins með áætlunarflugi í gegnum Lundúnir og við héld- um veislu í garðinum á Langholtsvegi. Þetta var 18. maí 1953.“ Guðrún segir að þótt vissulega hafi fjölskyld- urnar verið ólíkar á margan hátt, og að eflaust hafi það verið sérstakt fyrir Pierre og Hor- tense, móður Charles, að sjá hann kvænast ungri konu frá Íslandi, hafi þau alla tíð tekið henni og reynst afar vel. Degi eftir brúðkaupið héldu þau af landi brott og lá leiðin þá til Parísar. „Þar beið okkar gljáfægður svartur Austin. Tengdaforeldrar mínir héldu áfram til Brussel en við Charles í brúðkaupsferðina okkar. Við fórum akandi niður til Ítalíu og ferðuðumst um landið.“ Tíð ferðalög um heiminn Að ferðinni lokinni tók alvara lífsins við, en ör- lagadísirnar höguðu því þannig að lífshlaup Guðrúnar hefur orðið með allt öðru móti en hefði getað orðið, hefði hún ekki sótt enskuskól- ann í Lundúnum árið 1949. Í hinu nýja heima- landi biðu spennandi verkefni og lagði hún m.a. stund á nám í listfræði. „Við Charles eignuðumst svo þrjár dætur, þær Christine, Catherine og Chantal, svo að við höfðum alltaf meira en nóg við að vera. Störfum Charles fylgdu einnig mikil ferðalög alla tíð og þegar faðir hans fékk hjartaáfall þá tók hann við rekstrinum, löngu áður en við gerðum ráð fyrir að til þess kæmi.“ Og starfsemin dró þau víða um heim og út- gerðin var umsvifamikil. Þegar mest lét var fyrirtæki Charles með 15 skipapramma í förum á ánum Rín og Maas í Hollandi en þeir fluttu einkum efnavörur ýmiss konar sem fyrirtækið seldi fyrirtækjum á borð við Rio Tinto. Eitt þessara skipa fékk nafnið Guðrún og á heimili þeirra hjóna er fagurlega smíðað líkan af því sem heldur minningu þessara miklu um- svifa á lofti. „Við fengum líka tækifæri til þess að kynnast framandi menningu í Kína og Japan og þar var Charles í miklum viðskiptum með stál.“ Viðskiptatengsl á Íslandi Og þessi umsvif rötuðu einnig til Íslands. Þann- ig kom Charles að sölu vélbúnaðar í Sig- ölduvirkjun sem Landsvirkjun reisti á áttunda áratug síðustu aldar og þá seldi hann Loftleið- um einnig klæðningu og glugga sem í áratugi prýddu Hótel Loftleiðir í Vatnsmýri. „Í þessum viðskiptum kynntumst við yndis- legu fólki og Charles átti góða vináttu manna eins og Jóhannesar Einarssonar, sem síðar var lykilmaður hjá Cargolux, og einnig Eiríks Briem hjá Landsvirkjun. Þeir urðu miklir mát- ar, höfðu báðir gaman af því að yrkja og sendu hvor öðrum ljóð. Eins hafði hann náið samband við Má Maríusson, aðstoðarforstjóra fyrir- tækisins.“ Oft hafa tilviljanir ráðið því að lífið hefur tek- ið óvænta stefnu hjá Guðrúnu. Upp úr veik- indum tengdaföður hennar hófst nýr kafli í lífi fjölskyldunnar sem enn stendur og er hann í raun með miklum ólíkindum. „Pierre hafði aldrei hlustað á tónlist. Eftir að hann fékk hjartaáfall og var rúmliggjandi fékk hann hins vegar áhuga á henni og hlustaði mik- ið. Dætur okkar lærðu á píanó. Það var keypt hefðbundið hljóðfæri á heimilið en Pierre fannst það ekki nógu gott þannig að hann keypti for- láta flygil frá Steinway og Christine dóttir okk- ar var duglegust í tónlistarnáminu. Hann gaf henni flygilinn. Hljóðfærið er enn á heimili hennar og báðir synir hennar spila mikið. Árið 1972 var haldin mikil tónlistarkeppni í borginni og í útvarpinu var auglýst eftir fólki sem ætti pí- anó og gæti hýst keppendur sem kæmu erlend- is frá til keppninnar. Catherine dóttir okkar lagði til að við myndum bjóða keppendur vel- komna þar sem við hefðum aðstöðu til þess.“ Tengsl við þekkta listamenn Meðal þeirra sem dvöldu á heimili Guðrúnar og fjölskyldu var ungur bandarískur píanóleikari, Emanuel Ax að nafni. Þrátt fyrir augljósa hæfi- leika renndi gistifjölskylduna ekki í grun að þarna væri kominn listamaður sem ætti eftir að setja svip sinn á alþjóðlega tónlistarsenu á komandi áratugum en Ax er í hópi virtustu einleikara heims, hefur unnið til Grammy- verðlauna og fyllir stærstu tónlistarhús heimsins þar sem hann spilar. Um langt árabil hefur hann verið prófessor við hinn virta Juilliard-háskóla í New York. „Þar lagði vinur minn, Víkingur Heiðar Ólafsson, stund á nám á sínum tíma. Emanuel hefur sagt mér að hann hafi mikið álit á hon- um.“ Á keppnisdögunum í upphafi áttunda áratug- arins mynduðust vinatengsl sem hafa haldið æ síðan og Guðrún ferðast vítt og breitt um heim- inn, einkum þó Evrópu til þess að hlýða á Ax. „Það sama á við um hina tónlistarmennina tvo. Annar þeirra er þó því miður látinn en við höfum haldið tengslum við fjölskyldu hans. Það hefur veitt okkur svo mikla, mikla gleði að fylgja þessum listamönnum eftir og njóta þess sem þeir hafa gefið okkur og öðrum unnendum klassískrar tónlistar. Við álítum okkur afar heppin að hafa kynnst þessum hæfileikaríku ungu listamönnum þegar þeir voru að stíga sín fyrstu skref á listabrautinni.“ Guðrún hefur alla tíð haft góðar tengingar við íslenskt lista- og menningarlíf, ekki síst það sem borist hefur út fyrir landsteinana. Í hópi góðra vina er t.d. Rut Ingólfs- dóttir sem nam fiðluleik í Brussel, löngu áður en stórt Íslendingasamfélag byggðist upp í borginni. „Þá langar mig einnig að nefna Pál Skúlason, fyrrum rektor Háskóla Íslands. Hann var okk- ur einnig mjög kær. Hann nam heimspeki í Lö- ven, m.a. hjá Paul Ricæur, rétt eins og núver- andi forseti Frakklands, Emanuel Macron. Charles hafði mikið yndi af því að ræða heim- speki við Pál.“ Sæmd fálkaorðunni 1978 Guðrún gerir í hógværð sinni lítið úr aðstoð sinni við þá samlanda hennar sem áttu leið um borgina og Belgíu á þessum árum. Fálkaorða sem hún var sæmd árið 1978 í þágu Íslands og Íslendinga vitnar þó um að þar hefur hún lagt drjúgan skerf af mörkum. „Ég gerði í raun ekki neitt. Þegar fólk bank- aði upp á þá opnaði ég en annað var það ekki.“ Fjölmargir vinir Guðrúnar frá þessum tíma og sennilega allir sendiherrar sem þjónað hafa ís- lenskum hagsmunum í Brussel hafa þó öllu meiri sögu um framlag hennar að segja (sjá rammagrein). Menningaráhuginn hefur dregið Guðrúnu vítt og breitt um heiminn en af samtölum við hana má ráða að tvennt sé henni afar ofarlega í huga, auk tónlistarinnar sem skipar heiðurssess af augljósum ástæðum. Það er menning Rússlands og gyðingdómurinn. En hvaðan kemur þessi áhugi? Og ég spyr fyrst út í áhugann á stórveld- inu í austri. „Ég veit það ekki almennilega en mig grunar að það tengist æsku minni. Þegar ég var barn höfðum við mikil tengsl við Vífilsstaði og berkla- spítalann sem þar var starfræktur. Eiginmaður frænku minnar, Ólafur Geirsson, var læknir þar. Sumir sjúklingarnir sem höfðu fótaferð komu gjarnan með strætó inn í bæ og gengu uppeftir til okkar á Langholtsveginn og litu við í kaffi. Þar var einn maður mjög eftirminnilegur sem ræddi mikið við foreldra mína um Rússland og allt sem rússneskt var. Þar hefur þessi áhugi sennilega kviknað.“ En gyðingdómurinn? „Það er sömu sögu að segja. Ég veit það ekki almennilega en sennilega tengist það fyrr- nefndum áhrifum frá Melittu sem ég minntist á áður og öðrum gyðingum sem ég kynntist sem barn og ung kona. Ég hef kynnst mörgum gyð- ingum í gegnum árin sem hafa merka sögu að segja og þetta hefur allt vakið mikinn áhuga hjá mér.“ Og þannig er það með Guðrúnu að þegar hún fær áhuga á einhverju þá fylgir hún því eftir. Hefur hún t.d. viðað að sér miklu gagnasafni um Melittu og Viktor Urbancic og dregur nú fram nýlegt ættartré sem tengir fjölskylduna sem festi rætur á Íslandi við stóran ættboga erlendis. Á slóðum Grimaldi og Sveinbjarnar Egilssonar Nýverið var greint frá fyrirlestri í Morgun- blaðinu sem Sigrún Magnúsdóttir var í þann mund að flytja um Þuríði Þorbjarnadóttur úr garðhúsum sem giftist markgreifa af Grimaldi-- ættinni. Í viðtali við Sigrúnu bar nafn Guðrúnar fyrir augu enda hefur hún kynnt sér sögu Þur- íðar í þaula og grafið upp áður óþekkt gögn sem tengjast stuttu lífshlaupi hennar. Lagðist Guð- rún meira að segja í rannsóknarvinnu til að hafa uppi á leiði Þuríðar og fann eftir talsverða leit. Blaðamaður hefur kynnst þessari elju og eðli- legri forvitni Guðrúnar á eigin skinni. Þegar eldri sonur minn fæddist 17. nóvember 2016 hafði hún samband og fagnaði dagsetningunni sérstaklega. Benti mér á að sameiginlegur for- faðir okkar, Sveinbjörn Egilsson, rektor, skáld og þýðandi, hefði verið sæmdur heiðursdokt- orsnafnbót við háskólann í Breslau þennan dag árið 1848. Kom þekkingin á þessu tiltekna atriði undirrituðum mjög á óvart. „Ég hef lengi heillast af Sveinbirni og fyrir nokkrum árum fór ég til Wroclaw í Póllandi, sem áður hét Breslau, heimsótti háskólann og skoðaði gögnin sem tengjast þessari viður- kenningu sem hann hlaut. Það var mikið ævin- týri.“ Skömmu áður en kórónufaraldurinn skall á hafði Guðrún lokið ríflega viku langri heimsókn til Armeníu þar sem hún í góðum hópi kynnti sér m.a. sögu gyðinga þar í landi. Og það er á Guð- rúnu að heyra að hún er með margt á prjón- unum. „Ég hef alltaf haft gaman af að ferðast í góðra vina hópi og einnig að taka á móti gestum. Ég ætla að halda því áfram á meðan heilsan leyfir,“ segir hún glöð í bragði. Guðrún verður níræð á nýju ári og það er ekki að sjá að aldurinn bíti nokkuð á henni. Það er eins og var með Fanný móður hennar sem bjó heima hjá sér á Lang- holtsveginum langt fram á tíræðisaldur en hún lést árið 1999. Margir vinir og kunningjar hafa kynnst rausnarskap og gestrisni þeirra hjóna í gegnum áratugina. Lengi áttu þau sitt annað heimili í fal- legu húsi niðri við höfnina í Nice við suðurströnd Frakklands. Þar áttu þau einnig lystisnekkju sem þau höfðu gaman af að bjóða vinum á þegar þannig stóð á. „Við seldum hana fyrir löngu síðan. Okkur þótti mikil binding í því og þegar skipstjórinn sem hafði umsjón með bátnum lést þá þótti okk- ur gott að setja punktinn aftan við þá sögu.“ En verkefnin eru enn til staðar og þegar blaðamaður kveður Guðrúnu í rigningunni í Brussel er þétt dagskrá fram undan þar sem ævintýrin bíða handan við hornið. Charles Ansiau og Guðrún Högnadóttir kynntust í Lundúnum árið 1949. Þau voru gift í 65 ár en Charles lést árið 2018. Þau eignuðust þrjár dætur sem allar eru búsettar í Brussel. Barnabörnin eru 2. ’ ...„Ég held hreinlega að þau hafi látið allt eftir mér,“ segir hún þegar hún minnist foreldra sinna. Haustið 1966 fékk Rut Ingólfs- dóttir boð um að hún gæti þreytt inntökupróf við Tónlistar- háskólann í Brussel hjá heims- þekktum fiðluleikara, André Gertler að nafni. Hún hélt út en í millitíðinni hafði faðir Rutar, Ing- ólfur Guðbrandsson, samband við gamlan nemanda sinn úr Laug- arnesskóla sem hann vissi að bjó í höfuðborg Belgíu. „Ég flaug til Lúxemborgar og tók lestina þaðan til Brussel. Á brautarstöðinni tók Charles á móti mér og tók mig með heim- .Næstu árin varð heimili þeirra eins og mitt annað heimili. Ég var hjá þeim alla fimmtudaga og oftast á sunnudögum einnig.“ Fyrstu dagana í borginni dvaldi Rut á heimili þeirra hjóna og Guðrún aðstoðaði hana við að finna herbergi til leigu. Þetta var gott fyrirkomulag að öllu leyti nema því að eitt sinn þegar Rut var á leið til Guðrúnar varð hún fyrir slysi. „Ég dett illa og mjaðmarbrotna. Ég komst með einhverjum hætti inn í strætó og svo í verslun þar sem ég gat hringt í Guðrúnu. Hún kom strax og fylgdi mér á slysavarðstofu. Það var ljóst að ég gæti ekki búið í herberginu næstu mánuði enda 98 tröppur þangað upp. Þau hjónin bjuggu um mig í stofunni heima hjá sér.“ Þegar leið á tímann sem Rut notaði til að ná sér dvaldi hún einnig á heimilum sendi- ráðsstarfsmanna sem þá voru nýlega komnir til starfa í nýju sendiráði Íslands í borginni. „Guðrún og Charles hafa alla tíð sýnt námi mínu og starfi mikinn áhuga. Þegar ég sótti eitt sinn sem oftar námskeið og tíma í borginni slógu þau upp tónleikum heima hjá sér, buðu fjölda gesta og með glæsilegum veitingum. Þarna fékk ég tækifæri til þess að prufukeyra prógrammið sem ég flutti á Myrkum músíkdögum nokkrum vikum síðar.“ Þær eru margar tengingarnar milli þeirra Rutar og Guðrúnar, allt frá námsárum Guð- rúnar hjá Ingólfi í Laugarnesskólanum og til áranna í Brussel. „Þegar við Björn giftum okkur og fluttum í okkar fyrstu íbúð þá var það leiguíbúð á Bergstaðastræti. Í því húsi fæddist Guðrún árið 1932.“ Það fór vel á með Rut, Charles og Guðrúnu þegar þau hittust. Þessi mynd var tekin í Brussel árið 2011. „Eins og mitt annað heimili“ VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.12. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.