Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 22
að sækja og ganga frá hlutunum hjá okkur. Frá því að við byrjuðum að búa höfum við lagt mik- ið upp úr því að eldhúsið sé skipulagt en það hefur komið í veg fyrir óþarfaeyðslu í mat- vörubúð og einnig spornað gegn matarsóun. Við hendum mjög litlum mat og það má þakka góðu skipulagi fyrir það. Synir okkar sem eru tveggja og þriggja ára að aldri eru líka skemmtilega skipulagðir. Þeir flokka leikföngin sín í rétta kassa, ganga frá útifötum eftir sig og geta nálgast allt sitt dót auðveldlega. Fataskáparnir okkar eru alltaf léttir og erum við mjög dugleg að gefa fötunum okkar nýtt líf. Inni á baðherbergi eru bara snyrtivörur sem við notum, við vitum hvað er til og hvað þarf og hvað þarf ekki að kaupa.“ Á meðan fjölskyldan byggir sér hús leigja þau íbúð sem er 70 fermetrar að stærð. „Íbúðin rúmar okkur vel og myndi án efa enginn trúa að við erum fjögur sem búum í henni því við erum frekar mínimalísk og eigum lítið óþarfa dót. Við eigum sem dæmi einn jólakassa og í hon- um er meira að segja jólatré. Allir hlutir eiga sinn stað og enginn staður á heimilinu okkar sem er í óreglu eða skápur sem búið er að troða dóti í.“ Því minna dót því betra Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn heima? „Sennilega bara allir staðir. Ef þeir eru skipulagðir og lítið á þeim þá líður mér vel. Því minna dót því betra. Þegar kemur að því að raða í fataskápa þá höfum við bara fatnað í skápunum sem við notum og ekkert umfram það. Í efri hillunni er eitthvað sem ég þarf ekki í daglegu lífi en nota samt en bara sjaldnar. Ég er með það skipulagt í boxum. Sem dæmi er eitt box fyrir belti og annað fyrir veski. Svo finnst mér gott að hengja fötin á herðatré þannig að ég sé þau strax þegar ég opna skápinn. Ég er ekki með spariföt eða föt sem ég nota mjög sjaldan hangandi, þau fá að vera í boxi í efri hillunni svo að þau séu ekki „fyrir“. Nærföt og sokkar eru flokkuð í körfur og allt brotið saman og snyrtilegt. Ef hluturinn er ekki fatnaður eða fylgihlutur á hann ekki heima í skápnum.“ Eldhúsið einstaklega skipulagt Hvað með eldhúsið og baðherbergið? „Við erum með tvær skúffur inni á baði undir vaskinum þar sem við geymum allt það sem við S óley Ósk hefur mikinn áhuga á naumhyggjulegum lífsstíl, fjár- málum og fjölskyldunni. Hún er í fullri vinnu í sínu eigin fyrirtæki, með tvo unga drengi, unnusta og að byggja sér hús. Fyrr á þessu ári opnaði hún vefsíðuna Heimaskipulag sem býður upp á úrval af skipu- lagsvörum ásamt þjónustu til að koma heim- ilinu í lag. „Hugmyndin á bak við Heimaskipulag er ekki bara sala á vörum, heldur alls konar þjón- usta sem hægt er að kaupa fyrir fólk sem ekki hefur tíma til að koma á skipulagi hjá sér. Það hefur færst í aukana að fólk vill nýta frí- tímann í fjölskylduna eða áhugamál. Á heimasíðunni er boðið upp á þessa þjón- ustu á vegum Hvers hlutar. Hver hlutur var stofnað fyrr á þessu ári af henni Sigurlaugu Elínu Þórhallsdóttur en hún vinnur við það að skipuleggja heimili og fyrir- tæki. Ég hlakka mikið til komandi tíma og að geta hjálpað öðrum að líða sem best á sínu heimili.“ Hefur alltaf viljað hafa fínt í kringum sig Sóley Ósk segir skipulagt heimili með ótak- markað óþarfa dót geti sparað fólki tíma í til- tekt og þrif. „Ég hef alltaf verið mjög skipulögð og hef viljað hafa hreint og fínt í kringum mig. Eftir að ég eignaðist mitt fyrsta barn tók ég virki- lega eftir því hvað þetta er mikilvægt. Það eru ekki bara við foreldrarnir sem erum svona heppin að fá að eyða meiri tíma með börnunum okkar og minni tíma í að viðhalda heimilinu heldur eru það börnin okkar sem eru að stór- græða á þessu líka. Það þarf ekki að kaupa neitt til þess að vera skipulagður eða vera með skipulagt heimili þrátt fyrir það að það hjálpi oft til að vera með box og annars konar skilrúm til að auðvelda leit að hlutum á heimilinu. Það þarf ekki að kosta mikla peninga að skipu- leggja heima hjá sér en það getur kostað þig mikinn tíma að gera það ekki. Hins vegar fór ég út í þetta verkefni með þann draum að geta unnið fyrir mig sjálfa og hef ég nú sagt upp vinnunni og sé ég fram á að láta þann draum eftir mér.“ Lifir það sem hún kennir og gerir Skipulagið heima hjá Sóleyju Ósk er mjög gott. „Við vitum hvar allt er heima og er auðvelt Ljósmynd/Colourbox Morgunblaðið/Eggert Hirslurnar mynda gott skipulag í kringum vörurnar inni á baði. Það er auðvelt að taka sig til á morgnana þegar maður sér allt sem maður þarf að nota. Hver hlutur á sinn stað á heimilinu. „Það er engin óregla ámínu heimili“ þurfum til daglegra nota. Allt sem við notum ekki eins oft fer í annan skáp. Við viljum ekki opna skúffu og þurfa að gramsa eftir því sem að við erum að leita að. Ef það er bara það sem við notum í daglegu lífi sem er ekki mikið, þá er auðvelt aðgengi. Eldhúsið er líka skipulagt og með auðvelt að- gengi á öllu. Raftæki og annað sem er ekki í mikilli notkun er í efri skápum og það sem er notað meira í betra færi. Við eigum heldur ekki of mikið að neinu sem hjálpar auðvitað til með að halda skipulagi. Ég fer í búð einu sinni í viku og gef mér góðan tíma í að ganga frá öllum matvælum á réttan stað. Ég losa eins mikið af umbúðum og ég get af vörunum og flokka það strax og farga. Það sparar bæði pláss og við þurfum ekki að vera alla vikuna að henda um- búðum. Ég skola ávexti og ber og set í box inn í ísskáp svo að það sé hægt að sækja sér og borða strax. Ísskápurinn er ekki troðfullur af krukkum og sósum sem eru að renna út eða týnast á bak við önnur matvæli. Ég passa að ég sjái allt sem að við eigum og ekkert gleymist. Ég set líka mikið af þurrvörum í loftþétt þurr- vörubox sem heldur matnum ferskum lengur og hef þá losað líka um umbúðir í leiðinni. Svo auðvitað hefur myndast góð rútína um hvernig og hvenær sé best að ganga frá inni í eldhúsi.“ Viðeigandi að fara í Sorpu við tiltekt Hvað er besta heimaskipulagsráð sem þú hefur heyrt? „Að vera ekki að skipuleggja dót sem þú hef- ur ekki not fyrir. Margir fara í tiltektar- og skipulagsgírinn og ætla svo aldeilis að gera fínt hjá sér sem er frábært en fólk er að skipu- leggja dót sem það hefur ekki not fyrir og hefur ekki notað í fjölda ára. Ég hef mikið talað um að losa sig við óþarfa dót og kaupa þar af leið- andi minna af því. Það þarf ekki að henda því sem er í lagi. Það getur verið að það sé einhver sem vill gefa því nýtt líf og hefur meiri not fyrir það. Að taka til í geymslu eða bílskúr er ekki bara að raða jóladóti í einhverja kassa og úti- legudóti í aðra, heldur að fara í gegnum dótið og raða eingöngu í kassana því sem þið viljið eiga og nota. Þetta ætti að kalla á nokkrar Sorpuferðir.“ Dótið á sinn stað í geymslunni. Morgunkornið er vel geymt í loft- tæmdum umbúðum. Ef einungis fatnaðurinn sem er í notkun er í skápunum þá er auðvelt að finna réttu fötin. Ávextirnir eru þvegnir áður en þeir fara inn í ísskápinn svo dæmi séu tekin. Það er auðveldara að þrífa þegar allt á sinn stað á heimilinu. Sóley Ósk Hafsteinsdóttir er á því að það þurfi ekki að kosta mikla pen- inga að skipuleggja heima hjá sér. Það geti hins vegar kostað fólk mikinn tíma að gera það ekki. Það er enginn skápur á heimilinu hennar í óreglu. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is 22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.