Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 38
Erla Dögg og Tryggvi reyndu að gera húsið eins flæðandi og hægt var. Flísarnar á útiveggnum minna á hippatímann og auka gleðina þegar horft er á húsið úr garðinum. Tveir vel vandaðir og mikið notaðir leðurstólar fara vel við glansandi borð og risastórt mál- verk. Takið eftir að vegg- irnir eru flestir hvítmál- aðir, sem fer vel við öll listaverkin í húsinu. Í hjónaberginu er risastórt listaverk eftir Helga Þorgils Friðjónsson. Það fer vel við lampana frá Artemide. Þegar Erla Dögg er spurð hvað hafi verið skemmtilegast við þetta verkefni segir hún að það hafi verið kúnnarnir eða eigendur hússins. Hún nefnir sérstaklega að þau hafi einstakan smekk og því hafi samstarfið við þau verið ánægjulegt. Þegar Tryggvi er spurður að því hvað þau hjónin séu ánægðust með í húsinu nefna þau flæðið í húsinu. „Það er listin að láta innisvæði og útisvæði renna saman í eitt. Þetta er hús listarinnar og geymir ofsalega fallega list og einstök húsgögn,“ segir hann. Þegar Erla Dögg og Tryggvi eru spurð hver hafi verið mesta áskorunin í þessu verkefni segja þau að það hafi verið að auka flæðið í húsinu og gera allt einfaldara. Þau eru á fullu í alls konar spennandi verk- efnum þessa dagana og þegar ég spyr þau um hvað fólk vilji helst núna þegar kemur að heimilum nefna þau heimaskrifstofu, liti, list og líf. Hönnunin á svalahurð- inni á efri hæðinni er mjög svöl eins og sést á þessari mynd! Ljósmyndir/Minarc Svarthvítar myndir og styttur eru mikil prýði. 38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 Erla Dögg og Tryggvi sækja mikið til Ís- lands þegar þau hanna heimili. Hér má sjá svartar flísar sem minna á eldfjöll og fara vel við vaskinn sem er hvítur og einfaldur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.