Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 34
H úsið er sögufrægt en það var hannað af hinum heimsfræga arkitekt Richard Neutra, sem hannaði mörg af glæsilegustu húsunum í Suður-Kaliforníu. Þetta hús stendur á einstökum stað með út- sýni yfir Nichols Canyon en Neutra sér- valdi lóðina með þetta hús í huga og er það eitt af fyrstu húsunum sem hann teiknaði á þessu svæði. Risastórir gluggar, flöt þök og fallegar verandir eru einkennandi fyrir hans hönnun. Húsið hafði þó farið í gegnum alls konar ferli síðan það var byggt og var lítið eftir af sjarma hönnunar Neutra þegar eig- andi hússins festi kaup á því fyrir nokkrum árum. Var komið langt frá upprunanum Þetta hús var hannað í kringum 1940 og lögðu Erla Dögg og Tryggvi ofuráherslu á að koma húsinu í nútímalegt horf. Erla Dögg segir að húsið hafi gengið í gegnum mjög miklar breytingar í gegnum tíðina og þegar þau tóku við verkefninu var búið að bæta annarri hæð ofan á húsið. Það var því lítið eftir að upprunalegum sjarma og var búið að hlaða á húsið Hawaiian Tiki Tiki hönnun eins og Erla Dögg kallar það. Erla Dögg og Tryggvi eru þekkt fyrir sína stílhreinu hönnun og þegar þau voru búin að fara höndum um húsið var það eins og nýtt. Einstakt flæði Á neðri hæðinni liggja eldhús og stofa saman í sameiginlegu rými og það sem ger- ir húsið einstaklega sjarmerandi er heill gluggaveggur sem gengur þvert yfir stof- una. Hægt er að opna húsið upp á gátt þannig að innisvæði og útisvæði verða að einu. Garðurinn í kringum húsið er ein- stakur. Fyrir utan útisundlaugina sem er í garðinum þá er garðurinn svo gróinn að hann er eins og einkagarður. Eldhús frá Boffi Eldhúsinnréttingin er frá ítalska gæða- merkinu Boffi. Eldhúsið samanstendur af stórum skápavegg sem er úr bæsaðri eik og eyju sem hefur að geyma stórt helluborð og vask. Gróf viðarborðplata prýðir eyjuna en hægt er að sitja við hana og nota sem eld- húsborð. Garðurinn í kringum húsið er einstakur. Þar er sundlaug og góð aðstaða til að njóta alls góða veðursins. Sófarnir í garðinum voru keyptir í IKEA. Íslenskur ævintýra- heimur í Holly- wood-hæðum Íslenska arkitektastofan Minarc, sem rekin er af Erlu Dögg Ingjaldsdóttur og Tryggva Þorsteinssyni, fékk það verkefni að hressa upp á einbýlishús sem stendur í hæðum Hollywood í Los Angeles í Bandaríkjunum. MartaMaríamm@mbl.is 5 SJÁ SÍÐU 36 34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.