Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 28
Ragna Sif Þórsdóttir hefur tekið að sér alls konar verkefni undanfarin ár, bæði tengt hótelum, veiðihúsum, heimilum og sumarbústöðum. Hún er einnig að ljósmynda en ásamt því að vera listlærð þá lærði hún ljósmyndun í Ljósmyndaskólanum á sínum tíma. „Það eru nokkur verkefni í farvatninu sem eru að fara af stað nú í byrjun vetrar sem snúa öll að innanhússkipulagi og hönnun. Ég er oft fengin í alls konar endurbætur og endur- hugsun á skipulagi og útfærslum enda er ég frekar lausna- miðuð og hef meira gaman af því að blanda saman gömlu og nýju og skapa fallega heildarmynd en að kaupa allt nýtt. Það hentar mörgum og hefur sinn stað í þessum hönnunarheimi hér.“ Hvernig lýsir þú heimilinu þínu? „Heimilið er mjög fjölbreytilegt hvað varðar innanstokks- muni og í raun stíl. Hér ægir öllu saman sem mér og okkur hjónum finnst skemmtilegt eða fallegt. Heimilið er bjart og opið en samt eiga hlutir og rými sinn stað, en á kvöldin mætti segja að það sé frekar „moody“ en þá erum við alltaf með loft- ljós á lægstu stillingu og notum frekar lampa og kveikjum á kertum í skammdeginu.“ Hvaða svæði í húsinu notar þú mest? „Við notum stofuna langmest. Bæði vinn ég þar mikið og svo sitjum við í stofunni á kvöldin að spjalla, skoða netið eða vinna og horfum svo kannski á einn þátt og þá bara í tölvunni með öðru auganu. Því við erum ekki með sjónvarp í stofunni. Svo er eldhúsið auðvitað mikið notað.“ Finnur notaða gersemi víða Ertu búin að vera að gera eitthvað fyrir heimilið að und- anförnu? „Nei ég er ekkert mikið að breyta nema ef ég hafi fundið einhverja gersemi einhvers staðar og þá helst eitthvað „se- cond hand“ en þá kannski þarf eitthvað að víkja eða færast að- eins til. Við máluðum borðstofuna fyrir jólin í fyrra. Mér fannst hún frekar kuldaleg svona hvít eins og hún var. Múr- steins-rauðbrúnn varð þá fyrir valinu og hann hefur farið ágætlega í okkur en ég mála hana kannski aftur fyrir næstu jól. Svo kaupi ég helst blóm, sem getur verið túlipanar í Bónus eða pottaplanta í Bauhaus og svo spari þá fer ég í fallegustu blómabúð landsins að mínu mati, sem er 4 árstíðir.“ Hvað hafið þið búið lengi á þessum stað? „Við erum búin að vera hér í rúm sex ár. Við fengum afhent- an hvítan steypukassa og eyddum svo um það bil þremur til fjórum mánuðum í að standsetja eftir okkar höfði. Það var mjög skemmtilegur tími enda alltaf gaman að teikna og hanna fyrir sjálfan sig og finna út hvað maður sjálfur kann að meta og vill hafa í kringum sig.“ Áttu þér uppáhaldsmatarstell? „Ég er alin upp við mjög fallegt og einfalt hvítt sparimat- arstell með gyltri rönd á brúnum sem er alltaf í uppáhaldi hjá mér. Mamma mín heitin keypti það þegar hún og pabbi voru að byrja að búa og hún vann sem flugfreyja. Held að hún hafi keypti það í Macy’s í New York á sínum tíma sem var aðal- búðin hjá ungu flugfreyjunum á sjöunda áratugnum. Ég erfði svo Spode frá föðursystur minni henni Maríu þegar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í stofunni er heildarmyndin falleg. Bekkurinn upp við vegginn kemur úr IKEA en sófaborðið á sér sögu. Ragna fann marmaraplötuna í Samhjálp á sínum tíma og úr varð stofuborð. Stofuborðið fer vel við myntugræna sófann og listaverkin á dökkblágráa veggnum. Ragna Sif býr yfir einstökum hæfileikum til að blanda saman litatónum sem mynda konunglegan sjarma. Málverk keypt af listakonu í New York. Listakonan var úti á götu að selja verkin sín. Ljósmyndarinn heillast af verkum Annie Leibovitz eins og sést hér. Málverkið er frá 1953 og er ætt- argripur eftir Matthías listmálara. „Heimilið er mjög fjölbreytilegt hvað varðar innanstokks- muni og í raun stíl“ 5 SJÁ SÍÐU 30 28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.