Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 hún féll frá og ég elska að nota það um jólin og við önnur há- tíðleg tækifæri. Það fylgja því góðar minningar en það er svo skemmtilega ýkt svona „cobal“ blátt og hvítt með bresku sveitasælunni áprentaðri. Þetta eru mjög ólík stell sem ég elska bæði.“ Er hálfgerð diskókúla Hvað með húsgögn, teppi og fleira? „Ég er hálfgerð diskókúla og elska ýmsa stíla og tímabil og finnst nauðsynlegt að blanda saman áferðum. Svo fylgir mér smá drama glam og jafnvel fortíðarþrá. Sem dæmi ljós og sitt- hvað fleira sem ég þekki frá því ég var barn, það á sér sinn stað hjá mér. Eldhúsið hjá okkur ber þess sem dæmi alveg merki en það er smá flash-í og dramatískt. Þar erum við með reykta eik, 70’s reyklitað mynstrað gler, messinghöldur sem ég lét skera út, svartan marmara og fleira. Þegar við fluttum hingað langaði mig alveg svakalega að skipta um sófa, þar sem við vorum með gamalt 60’s-sett sem ég hafði einmitt keypt í Góða hirðinum árið 2000. Ég hafði lát- ið bólstra hann með ljósu „bouclé“-áklæði sem ég leitaði af á sínum tíma logandi ljósi í einhverjum smábæjum í Bandaríkj- unum og fann á endanum. Þá vorum við búsett þar og vorum að á leiðinni að flytja okkur heim. Við splæstum í sófa og einnig borðstofuborð frá Versmissen í Heimili og hugmyndum. Sófinn er miklu þyngri og jarð- tengdari en létti 60’s-sófinn sem er eitthvað sem mér fannst þetta hús þurfa. Við seldum sem sagt gamla sófan en héldum stólunum og létum yfirdekkja aftur með svörtu mohair-flaueli. Við sitjum á hverjum degi í þessum stólum en þeir eru örugglega mest not- uðu húsgögnin á heimilinu að undanskildu rúminu. Annars ægir öllu saman hér, nýlegt og gamalt í bland. Við eigum mik- ið af gömlu dóti sem ég hef erft og einnig hefur Góði hirðirinn, Samhjálp, Bland og IKEA komið sterkt inn.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Speglarnir við legubekkinn draga bleika litinn af málverkinu inn í myndina. Spegillinn og legubekkurinn eru frá Heimili og hugmyndum. Stórir gluggar hleypa birtunni inn. „Ég er hálfgerð diskókúla og elska ýmsa stíla og tímabil og finnst nauðsynlegt að blanda saman áferðum. Svo fylgir mér smá drama glam og jafnvel fortíðarþrá“ 5 SJÁ SÍÐU 32

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.