Morgunblaðið - 24.09.2021, Page 41
„Ég veit ekki alveg. Þetta kemur einhvern veginn í góðu flæði
hjá mér og er að mestu áreynslulaust. Í okkar tilfelli finnst okkur
samt gott að gera ekki allt í einu heldur gera hlutina í skrefum og
lesa þannig í húsið og hvernig við nýtum það, hvar er birtan best,
hvernig flæðið er á milli rýma og hvernig það passar við takt okk-
ar heimilisfólksins.“
Ekki er öll hönnun arkitektúr
Hver er munurinn á hönnuðum og arkitektum?
„Hönnun og arkitektúr eru hugtök sem tvinnast saman en
ekki er öll hönnun arkitektúr.
Arkitektúr er náttúrlega ótrúlega mikilvægur hluti í lífi okkar
allra og kemur við sögu í öllu okkar byggðaumhverfi. Ég held að
almenningur átti sig almennt ekki á mikilvægi og mótunarmætti
arkitektúrs.
Flestallir geta verið sammála um að staðir í borgum og bæjum
eru misjafnir. Sumar byggingar og sum rými eru staðir þar sem
fólki almennt líður vel og fólk sækist í dvelja á.
En hvað er það sem gerir það að verkum að þessir staðir og
rými verða eftirsóknarverðari og jafnvel betri en aðrir staðir?
Ef vel er að gáð eiga þessi rými, byggingar eða borgarrými
það oftar en ekki sameiginlegt að til staðar eru gæði. Gæði í arki-
tektúr eru þar sem nýtur til dæmis dagsbirtu og loftrýmis, nátt-
úra, útsýni og fleira.
Þegar verið er að endurgera gömul hús er mikilvægt að huga
að þessum arkitektónísku gæðum og ef það eykur á þessi gæði að
taka niður vegg eða bæta við eða stækka glugga þá hefur það góð
áhrif á rýmið og þannig góð áhrif á lífsgæði þeirra sem munu
nota rýmið.
Þannig að arkitektúr er í grunninn rýmin og flæðið, birtan,
hvernig umhverfið er dregið inn í rýmin og hvernig það birtist í
umhverfi sínu.
Litir, fletir, húsgögn og annað eru að vissu leyti skreyting og
útskiptanlegt og verður oftar en ekki úrelt með tímanum en arki-
tetkónísk gæði standast yfirleitt tímans tönn.“
Lofthæðin það sem heillar mest
Hvað heillaði þig mest við húsið sem þú býrð í núna?
„Lofthæðin klárlega og stórir suðurgluggar sem vísa út í
garð.“
Hvað með stílinn þinn heima?
„Það er enginn stíll heima hjá mér heldur bara tilfinning.“
Hvað finnst þér almennt um arkitektúr á Íslandi?
„Mér finnst mjög mikið af ótrúlega áhugaverðum arkitektúr á
Íslandi bæði gömlum og nýjum.
Það er líka mjög mikið af drasli sem verið er að byggja þar sem
gæði í arkitektúr eru fótum troðin og kemur það mest niður á
þeim sem eiga að nota byggingarnar.“
Er unga fólkið að nálgast húsnæði sitt öðruvísi en fyrri kyn-
slóðir?
„Ég held að fólk kjósi meiri sveigjanleika í notkun á fermetrum
innan íbúða en það gerði áður. Þannig að unga fólkið okkar er
meira að stýra nýtingu heimila sinna. Sem dæmi: Viltu hafa fimm
fermetra geymslu eða nægir þér að hafa tveggja fermetra
geymslu og viltu nýta þessa þrjá aukafermetra í meira pláss í
borðstofunni? Valmöguleikarnir eru endalausir og að sjálfsögðu á
heimilið að vera eins og þú vilt hafa það.“
Stiginn á milli hæða er úr járni. Takið
eftir hvernig plássið undir stiganum
er málað í sama lit og stiginn sjálfur.
Þetta samspil kemur vel út.
Í eldhúsinu er stór skápaveggur
með bakaraofni og viðarhurðum.
Þessi skápur fer vel við eyjuna
sem er hvít með ljósum nátt-
úrusteini. Einfaldleikinn ræður
ríkjum í þessu rými.
FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 MORGUNBLAÐIÐ 41
AUBREY LAMPAR H53cm
13.995 kr. H128cm 19.995 kr.
FLORA BLÓMAVASI
3.995 kr.
ALESSO BLÓMAVASI H73CM 22.995 kr. H43CM 8.995 kr. NORRLAND STÓLL Koma í ýmsum gerðum 39.900 kr.
NEPTUN SÓFABORÐ Hvítur marmari tvö saman 99.800 kr.
FAST SENDINGARGJALD MEÐ PÓSTINUM HVERT Á LAND SEM ER!
Haustdagar
Nýjar vörur
FACEBOOK.COM/ILVAISLAND
INSTAGRAM .COM/ILVAISLAND
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
mánudaga - föstudaga 11:00-18:30, helgar 12-18
ILVA Akureyri Mánudaga - föstudaga 11-18,
laugardaga 10-17, sunnudaga 13-17